Morgunblaðið - 29.07.2001, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.07.2001, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2001 B 9 Bova Futura, 58 manna rúta frá Hollandi sem SBK hafa keypt. SBK hf., SérleyfisbílarKeflavíkur, flutti innfyrstu rútuna af gerðinni BOVA sl. vor. Þetta er hollensk framleiðsla og fyrsti bíll sinnar tegundar á Íslandi. BOVA er vel þekkt merki í Evrópu og hefur verið í framleiðslu í 17 ár en saga fyrirtækisins nær allt aftur til ársins 1871. BOVA framleiðir um 600 nýj- ar rútur á ári og flytur út 90% af þeim. Stærsti markaðurinn er Þýskaland, þar sem BOVA er með mesta sölu innfluttra rúta í landinu. Nálægt 200 BOVA-rútur eru árlega seldar til Þýskalands. Bíllinn sem SBK hf. er ný- lega búinn að fá er af gerðinni BOVA Futura FHD 13-370 og er 58 farþega bíll. Hann er 12,7 metrar á lengd. Hann er með DAF 11,6 lítra vél sem uppfyllir Euro 2-mengunarstuðulinn. Vélin er sex strokka, 364 hest- öfl og togið er 1.500 Nm við 1.500 snúninga á mínútu. Hann er með ZF 6S 1.600 gírkassa, ARS-hraðatakmarkara, loft- púða, hraðastilli, síma, mynd- bandstæki með tveimur lita- skjám, rafdrifna spegla, ísskáp, stillanleg sæti með hliðarfærslu og fleira. Bíllinn eyðir um 29 lítrum á hverja 100 km með þessari vél. Einnig er hann fáanlegur með 300–400 hestafla DAF-vélum og mismunandi gerðum skiptinga. Einar Steinþórsson, fram- kvæmdastjóri SBK, segir að kostirnir við þennan bíl séu þeir helstir að hér sé á ferðinni 58 sæta bíll á sama þungaskatti og 50–54 sæta bílar. Einnig sé hann mjög rúmgóður og þægi- legt pláss á milli sæta sem kem- ur til af því að hann er 70 cm lengri en sambærilegir bílar. Þá er hann mjög léttur, eða um 12 tonn tómur, og heildarþyngd er um 18 tonn. Einar segir að olíu- eyðslan sé lítil, eða um 29 lítrar. Einar segir að ekki verði opnaðar söluskrifstofur hér á landi heldur muni SBK hafa milligöngu við verksmiðjurnar. Einnig er fyrirhugað að fara í heimsókn í verksmiðjurnar í haust og kynna þá framleiðslu sem þar fer fram. Bíllinn er með góðar geymslur sem eru um 13 rúm- metrar. Einar segir að bíllinn hafi verið í framleiðslu í 17 ár og því talsverð reynsla komin á framleiðsluna og segir hann einfaldan í notkun og viðhaldi og með lága bilanatíðni. Bíll eins og SBK hefur fengið kost- ar um 18,8 milljónir kr. Síðast en ekki síst hefur þessi bíll ver- ið í framleiðslu í 17 ár, mjög einfaldur í notkun og viðhaldi og hefur ótrúlega lága bilana- tíðni. Bíllinn kostar 18,8 milljónir kr. fyrir utan flutning og virð- isaukaskatt. SBK taka við umboði fyrir BOVA-rútur Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson  OPNAÐAR voru fjórar nýjar verslanir Bíla- nausts á landsbyggðinni á síðasta ári og 16. júlí síðastliðinn var opnuð ný verslun á Bíldshöfða 12. Nýja verslunin er í 550 fermetra húsnæði. Áformað er að opna vörubifreiðadeild í nýju versluninni í haust. Á sama tíma og nýja verslunin verður opnuð á Bíldshöfða 12 var verslunum Bílanausts lokað á Bíldshöfða 14 og í Skeifunni 2. Fermetrarými verslana Bílanausts á höfuðborgarsvæðinu hefur samt sem áður aukist töluvert. Verslanir Bíla- nausts á höfuðborgarsvæðinu eru nú þrjár tals- ins. Í Borgartúni 26 er um 1.000 fermetra versl- unarrými. Aðrar verslanir Bílanausts á höfuðborgarsvæðinu eru á Bæjarhrauni 6 í Hafn- arfirði og Bíldshöfða 12. Ný verslun Bílanausts opnuð  VÆNTANLEGUR jeppi Porsche, sem kallast Cayenne, var nýlega prófaður á Nürburgring- brautinni í Þýskalandi. Við prófunina varð það óhapp að eitt hjól fór undan bílnum. Verið var að prófa bílinn sem er með V8 vél og fjórhjóladrifi, í kröppum beygjum þegar eitt hjólið fór undan hon- um. Við það tækifæri náðist þessi mynd af bílnum en Porsche hefur haldið mikilli leynd yfir Cayenne. Sjá má á myndinni skína í fjöðrunarkerfi bílsins sem er loftpúðafjöðrun, sem gerir ökumanni kleift að velja veghæð eftir aðstæðum hverju sinni. Þrjú hjól undir bílnum… NÝR Renault Espace- fjölnotabíll verður frum- kynntur á bílasýningunni í Genf í mars á næsta ári. Þessar njósnamyndir náðust af bílnum þegar verið var að prófa hann á dögunum. Þetta er fimmta kynslóð bílsins og ljóst er að hönnuðir Re- nault hallast að rennilegri línum en almennt tíðkast um fjölnotabíla. Við hönn- unina var lögð áhersla á að ökumaður hefði sem mest útsýni og af þeim sökum eru gluggapóstar hafðir eins efnisrýrir og unnt er. Bíllinn verður með sama kortalyklinum og nýja Lag- unan en að auki hlaðinn alls kyns öðrum tæknibúnaði. Hann verður t.a.m. með regnskynjara sem setur rúðuþurrkur í gang sjálfkrafa, bíll- inn kveikir sjálfur aðalljósin þegar birtu tekur að bregða, eins og t.d. í göngum, búnaður í dekkjunum skynjar ef of lítill loftþrýstingur er í þeim og einnig verður bíllinn með fjarlægðarskynjara sem aðstoðar ökumann við að leggja bílnum í þröng stæði. Engin hand- bremsusveif er inni í bílnum enda er Espace fyrsti fjöldaframleiddi bíllinn í heimi með rafeindastýrðri handbremsu. Bíllinn er smíðaður á sama undirvagni og Laguna og væntanlegur Avantime, sem þýðir að hann er stífari og öruggari en áður. Yfirbyggingin er nú öll úr stáli en var áður að hluta til úr plasti. Þetta þýðir að bíllinn verður þyngri en Renault mætir því með nýjum vélum, þ.e. tveggja lítra bensínvél með forþjöppu sem skilar 165 hestöflum, en að auki 3,5 lítra V6- vél, 235 hestafla. Þá verður hann boðinn með 2,2 lítra og nýrri 3,0 lítra V6-dísilvélum, 145 og 180 hestafla. Nýr Espace kemur á markað næsta sumar. Nýr Espace – hlaðinn tækni Harley og Porsche leggja saman Harley-Davidson með Porsche-vél.  MÓTORHJÓLAFRAMLEIÐANDINN Harley- Davidson hefur náð samningum við Porsche um framleiðslu á vélum í nýtt V-Rod-mótorhjól. Vél- in er 115 hestafla og á hún að geta skilað 225 km hámarkshraða. Vélin er 1.130 rúmsentimetr- ar að slagrými og er vökvakæld. Hún er byggð á keppnishjóli Harley-Davidson í Bandaríkjunum, en hefur verið endurhönnuð fyrir almenna notk- un. V-Rod-hjólið kemur á markað í Evrópu í haust.  ÁÆTLANIR Saab gera ráð fyrir að sala í Banda- ríkjunum á næstu fimm árum tvöfaldist í kjölfar kynningar á fimm nýjum bílum þar. Salan á síðasta ári var tæpir 40 þúsund bílar en áætlanir gera ráð fyrir sölu á 70-80 þúsund bílum. Mesta sala Saab í Bandaríkjunum var árið 1986 þegar vinsælt var hjá ungum og efnuðum bílkaupendum að kaupa Saab. Saab í Bandaríkjunum BMW X5 – Draumur á hjólum Honum líður best á malbik- inu og þar á hann heima. TÆPLEGA 45% samdráttur er í sölu nýrra bíla fyrstu sjö mánuði árs- ins, samkvæmt bráðabirgðatölum frá Skráningarstofunni. Á það ber þó að líta að tveir virkir dagar eru eftir af mánuðinum. Alls hafa selst 5.062 bílar það sem af er árinu sem er 4.104 bílum minni sala en í fyrra.                       !"#  +,-,.+                 ! ! ! !! !       """            /0                                1                $%&' ()) (*$ +(, %-* %*- %+) $-% $)' $), $') $*' $%% $,& )' *', 1  !1       

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.