Morgunblaðið - 29.07.2001, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2001 B 15
bíó
MAÐURINN á bak við Scary Movie, ogScary Movie 2, sem er að hefja göngusína hérlendis, er Keenan Ivory Wayans,
vígalegur Bandaríkjamaður og höfuð Way-
ans-fjölskyldunnar. Hún telur fimm bræður,
sem allir hafa notið velgengni í kvikmyndum
og sjónvarpi. Keenan er fjölhæfur kvikmynda-
gerðarmaður; handritshöfundur, framleið-
andi, leikari og leikstjóri. Menntaður frá
Tuskagee-stofnuninni og vakti fyrst athygli
sem uppistandari og brandarasmiður fyrir
ekki ómerkari mann en Eddie Murphy.
Aðaltromp Wayans-bræðra er nokkuð
óvænt kímnigáfa, hún dylst undir frekar
hrikalegum skráp, a.m.k. vildi maður ógjarn-
an mæta þeim í kirkjugarðinum í skammdeg-
inu. Keenan sló hressilega í gegn ’88, (þá þrí-
tugur), með Í́m Gonna Git You, Sucka,
líflegri skopstælingu á „svartamark-
aðsmyndum“ áttunda áratugarins. Lék aðal-
hlutverkið, leikstýrði, skrifaði handritið og
framleiddi, vann sömu hlutina og við gerð
Scary Movie-myndanna. Þá var hann heilinn
á bak við virta en skammlífa sjónvarpsþætti
hjá Fox, sem heita In Living Color. Þeir
reyndust ekki aðeins lyftistöng fyrir þá Way-
ans-bræður alla, heldur ekki síður hinn
mjólkurhvíta æringja, Jim Carrey, sem fékk
sitt fyrsta tækifæri hjá spaugaranum Keenan.
Sem leikara minnast hans vafalaust margir
úr Most Wanted (’97), Glimmer Man (’96) og
grín-hasarmyndinni A Low Down Dirty
Shame (’94).
Bakgrunnur Damons er keimlíkur Keenans
stóra bróður. Kom sér á framfæri í uppi-
standi og átti síðar góð ár í grínþáttunum
Saturday Night Live og In Living Colors,
með bræðrum sínum og Carrey. Fyrsta kvik-
myndahlutverkið var í Beverly Hills Cop, þá
leikstýrði hann Mó Money (’92), og fór með
aðalhlutverkið, ásamt Marlon bróður sínum.
Þá lék hann aðalhlutverkið í gamanmyndinni
Major Payne (’95). Kim Wayans hefur m.a.
leikið í gamanmyndunum Flonderin (’94), A
Low Down Dirty Shame, Talkin About Sex
og Hollywood Shuffle. Shawn hefur að mestu
leyti haldið sig í skjóli bræðra sinna í Scary
Movie-myndunum báðum, Dońt Be a Menace
to South Central ... (’96) og I’m Gonna Git
You Sucka.
Marlon er yngstur og sumir segja hæfi-
leikaríkastur í þessari fyndnustu fjölskyldu
kvikmyndanna. Fæddur 1972, í New York og
útskrifaðist frá The School of Performing
Arts áður en hann stundaði nám í kvik-
myndagerð og listfræði við Howard-
háskólann. Keenan varð fyrstur til að gefa
honum tækifæri í I’m Gonna Git You Sucka
og síðar í hinum frábæru sjónvarpsþáttum,
In Living Color. Hann er miklum gaman-
leikhæfileikum gæddur og hefur verið á stöð-
ugri uppsiglingu. Lék aðalhlutverkið í gam-
anmyndinni MóMoney, ásamt Damon, og kom
í gang sjónvarpsþáttunum The Wayans
Brothers (’95) með Shawn.
Marlon hélt áfram að bæta á sig skraut-
fjöðrum síðari hluta 10. áratugarins. Gerðist
leikstjóri og handritshöfundur meðfram kvik-
mynda- og sjónvarpsleik. Sá um alla hand-
ritsgerð og leik í skopstælingunum Dońt Be
a Menace (to South Central While Drinking
Your Juice in the Hood) og margnefndum
myndum kenndum við Scary Movie. Fékk
fína dóma fyrir ærslaleik í Senseless (’98),
sem annars þótti þunn í roðinu, en fannst
tími kominn til að reyna fyrir sér í alvarlegri
hlutverkum. Hann sýnir sterkan, hádrama-
tískan leik sem eiturlyfjafíkill á hraðferð til
glötunar og vinur Jareds Leto, í hinni rómuðu
Requiem for a Dream (’00). Sló síðan á létt-
ari strengi er hann, í félagi við Shawn, stjórn-
aði afhendingu MTV tónlistarmyndbanda-
verðlaunanna í fyrra.
Þeir Wayans-bræður allir
Sæbjörm Valdimarsson
Svipmynd
WAYANS-BRÆÐUR,
tveir þeirra hér með meðlimum NSYNC,
eru tvímælalaust fyndnustu bræður í kvik-
myndaborginni. Útlitslega myndu þeir ekki
síður sóma sér vel í götugengi, en völdu, til
allrar guðslukku, skemmtanaiðnaðinn. Þeir
hafa sýnt ótrúlega samheldni og orðið
áberandi í kvikmynda- og sjónvarps-
þáttagerð. Duttu síðan í lukkupottinn með
skopstælingunni Scary Movie, sem rakaði
inn peningum á síðasta ári, og nú eru að
hefjast sýningar á SM 2 hér í höfuðborg-
inni. Bræðrabandið þarf því ekki að óttast
fjárskort í framtíðinni.
KVIKMYNDAVERIÐfullnægir í dag þörfumhvaða myndframleiðslusem er og þess vegnahefur það auðveldað
Tékkum að byggja upp þjónustuiðn-
að við auglýsingar, kvik- og sjón-
varpsmyndir sem skiluðu þjóðinni í
fyrra tekjum sem áætlaðar eru um
200 milljónir dollara.
Auk þess að gera myndir fyrir inn-
lendan markað vex hlutur erlendrar
framleiðslu jafnt og þétt.
Í fyrra voru sjö stórmyndir frá
Bandaríkjunum framleiddar í Barr-
andov auk auglýsinga og sjónvarps-
mynda. „Framleiðsla fyrir vestræn
fyrirtæki hefur þrefaldast á tveimur
árum og tekjurnar af þessum mynd-
um námu í fyrra 18 milljónum banda-
ríkjadala á móti 8 milljónum 1996,“
segir framkvæmdastjóri kvikmynda-
versins, Radomir Docekal.
Það sem helst laðar erlenda fram-
leiðendur til Prag er lágur kostnaður
við starfsmannahald og tengda þjón-
ustu ýmiskonar.
Nýlega lauk tökum á stórmyndinni
Hart’s War sem skartar m.a. stór-
stjörnunni Bruce Willis. „Ég fékk
handritið í hendur þremur vikum eft-
ir að ég skoðaði Barrandov,“ segir
framleiðandi myndarinnar, David
Ladd. „Ég seldi MGM myndina á
þeim forsendum að ég gæti gert hana
fyrir pening sem samsvarar tveimur
ostborgurum og einni kók.“ Þetta er
að sjálfsögðu djarflega mælt, en full-
yrða má að kostnaður við framleiðsl-
una sé þriðjungur af því sem hann
væri í Bandaríkjunum. Eini kostnað-
arliðurinn sem ekki breyttist var
þóknunin til stjörnunnar, en þúsund-
ir aukaleikara, auk tækniliðs og þjón-
ustufólks, þiggja verulega lægri laun
en greiða þyrfti á Vesturlöndum, t.d.
í Þýskalandi, þar sem til stóð að
framleiða Hart’s War.
En fleira kemur til en peningar.
Tékkar hafa áratuga reynslu í kvik-
myndagerð og geta því boðið upp á
samskonar þjónustu og í Hollywood.
„Tækni- og samstarfsfólk okkar í
Prag hefur reynst stórkostlega. Sér-
staklega má hrósa tæknibrellufólk-
inu, myndatökugenginu og áhættu-
leikurunum,“ segir David Ladd, sem
er í skýjunum að nýloknum tökum
myndar sinnar, og bætir við að um-
hverfi og góðir tökustaðir hafi einnig
hjálpað til.
David Kappers, sem hefur nýlokið
gerð sjónvarpsþátta um líf Önnu
Frank, hrósar einnig tækni- og töku-
liði. Í hans tilfelli lét hann byggja
bæði útrýmingarbúðir og líkan af
hluta Amsterdam með síkjum og öllu
tilheyrandi.
Við gerð myndarinnar From Hell,
sem er spennumynd um „Kobba
kviðristi“ og skartar stjörnunni
Johnny Depp, var byggt líkan af 19.
aldar London.
Universal-kvikmyndaverið hefur
einnig lokið gerð spennumyndarinn-
ar The Bourne Identity sem tekin
var í Prag og París. Framleiðandinn,
Pat Crowley, segir kostnaðinn við
tökudag í Prag vera 100 þúsund doll-
ara en 250 þúsund í París. Hann sér
framtíðina þannig að Tékkland gegni
sama hlutverki í Evrópu og Kanada
gerir fyrir Bandaríkin.
Allt frá því að Milos Forman tók
upp mynd sína Amadeus um miðjan
níunda áratuginn, þar sem hann not-
aði Prag til að taka Vínarsenurnar,
hafa fjölmargir aðrir fylgt í kjölfarið.
Prag dregur því að sér framleiðslu
mynda frá Evrópu, sérstaklega frá
Bretlandi, sem horfir á eftir
tónlistarmyndbanda- og auglýsinga-
framleiðslu sinni suðureftir.
Til að svara sívaxandi eftirspurn
kvikmyndamarkaðarins hafa þjón-
ustu- og tæknifyrirtæki sprottið upp
eins og gorkúlur.
Eitt þessara fyrirtækja er Stilking
Film, sem er í Barrandov-verinu.
Stofnandi þess er 25 ára stjórnmála-
fræðingur, Matthew Stillman, sem
kom í heimsókn til Prag árið 1993 og
greip gæsina. „Ég var á réttum stað
á réttum tíma,“ svarar hann af lítil-
læti.
Hann lagði til fyrirtækisins fimm
hundruð dollara og ritvél. Á síðasta
ári velti firmað 43 milljónum dollara
og hafði 80 manns í fastri vinnu og
500 manns í tímabundnum verkefn-
um.
Tékkneska fyrirtækið Flimka sér-
hæfir sig í áhættuleikurum. Þar
starfa 60 manns og eigandinn, Lad-
islav Lahoda, segir erlend fyrirtæki
þekkja þá af gæðum og áreiðanleika.
Þeir tóku þátt í gerð fjögurra er-
lendra mynda í fyrra og meðal
mynda sem þeir hafa unnið við eru
Titanic, Gladiator og Saving Private
Ryan.
Michal Patek, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins Segma, sem útvegar
aukaleikara, segir algjöra spreng-
ingu hafa orðið á síðustu þremur ár-
um. Ásóknin í að framleiða myndir í
Tékklandi er sívaxandi og velta fyr-
irtækis hans hefur tvöfaldast á tíma-
bilinu. Stærsta verkefnið til þessa
var Hart’s War, þar sem hann útveg-
aði 2.500 manns í fjöldasenurnar.
Í Prag starfa 60 myndframleiðslu-
fyrirtæki og þekking þeirra og tækni
eykst með hverri mynd.
Bob Rickerd, sem rekur auglýs-
ingaframleiðslufyrirtækið Flying
Colour í London, opnaði útibú í Prag
fyrir þremur árum. Hann segir bylt-
inguna liggja í fjárfestingum á
tæknibúnaði, sem fyrirtæki á borð
við hans hafa lagt út í, og fullyrðir að
tékkneskur auglýsinga- og kvik-
myndaiðnaður sé með því besta sem
gerist. Hann segir tékkneska leik-
stjóra og auglýsingasmiði hafa yfir
meiri hugmyndaauðgi að ráða en til
að mynda kollegar þeirra í London.
Annar ávinningur erlendra kvik-
myndaframleiðanda er hversu Prag
er vingjarnleg í garð þeirra. Stjörn-
urnar geta gengið að mestu óáreittar
um bæinn og yfirvöld sýna iðnaðin-
um skilning, þrátt fyrir að hafa á eng-
an hátt komið að uppbyggingu hans.
Michal Stillman var til að mynda að
vinna að gerð myndar í litlu þorpi í
nágrenni flugvallar og hafði sam-
band við flugturninn sem bægði um-
ferð frá svæðinu í nokkra klukkutíma
til að auðvelda þeim vinnu sína.
Og við gerð myndarinnar Borne
Identity var hluta Prag lokað og
hann þakinn gervisnjó.
„Ef yfirvöld eru vöruð við og þeim
gefinn fyrirvari á tökum er nánast
hægt að mynda hvar sem er,“ segir
Stillman. En á meðan iðnaðurinn
þenst út í Prag dregst hann að sama
skapi saman annars staðar.
Philip Waley, sem er framleiðandi
Flying Colours, segir önnur Evrópu-
lönd ekki geta keppt við Prag að svo
stöddu. „Önnur lönd eiga eftir að
finna fyrir samdrættinum vegna
þessa,“ segir hann.
Lundúnabúinn Mike Cunningham
frá McCann Ericson-auglýsingastof-
unni segir uppgangs Prag í þessum
geira þegar farið að gæta í samdrætti
í London. „Það er líklegt að Bretar
muni á komandi árum leggja út í bar-
áttu til að endurheimta stöðu sína,“
segir hann.
Hvað sem því líður er fátt sem
bendir til þess að Prag-ævintýrið
endi á næstunni. Kvikmynda- og
auglýsingafyrirtæki munu um ófyr-
irséða framtíð halda áfram að dæla
peningum inn í landið og stjörnur á
borð við Anthony Hopkins, Bruce
Willis, Anjelicu Huston og Wesley
Snipes munu við tökur mynda sinna
áfram gleðja Pragbúa með heim-
sóknum sínum.
FYRIR 70 árum ákvað byggingameistarinn Havel, sem var faðir Vaclavs Havels forseta, að byggja kvikmyndaver
ásamt bróður sínum, sem var kvikmyndaframleiðandi. Útkoman var Barrandov, sem allar götur síðan hefur verið
þungamiðja tékkneskrar kvikmyndaframleiðslu, segir Jón Benjamín Einarsson.
Prag – hin nýja
„Hollywood“ Evrópu
Reuters
Bruce Willis við tökur í kvikmyndaborginni Prag.