Morgunblaðið - 29.07.2001, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2001 B 5
Wiesbaden
eins og falinn
konfektmoli
Gestir geta
gælt við
bragð-
laukana
RÍKISSTJÓRN Malasíu er sökuð um að leyna
upplýsingum um hættulega loftmengun þar í landi,
til þess að fæla ekki ferðamenn frá, að því er kemur
fram í breska blaðinu Sunday Times. Nýlega var
mengun það mikil á Kuala Lumpur-svæðinu að loka
þurfti skólum og koma í veg fyrir leiki barna utan
dyra.
Yfirvöld hafa samt sem áður ekki gefið upp hve
mikil mengunin er en viðurkenna að þau óttist af-
leiðingarnar sem væru hugsanega þær sömu og
árið 1997, þegar þykk þoka varð til þess m.a. að
ferðamönnum fækkaði og tapið varð tæpir tuttugu
milljarðar íslenskra króna.
Loftmengun mikil í Malasíu
„ALGENGAST er að íslenskir
ferðamenn í útlöndum fái mat-
areitrun þegar þeir borða tilbúinn
mat sem keyptur er af götusölum,
en öruggast er að borða á einka-
heimilum,“ segir Helgi Guðbergs-
son yfirlæknir Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur. Hann segir
mestu hættuna á að fólk fái nið-
urgang vegna matarsýkingar í
þróunarlöndunum, þar sem vatns-
veitur og fráveitur geti verið ófull-
komnar, erfiðleikar verið með
hráefni og ekki nægt hreinlæti til
staðar, t.d. í Mið-Ameríku, á sum-
um svæðum S-Ameríku, þróunar-
löndum Afríku, Mið-Austurlönd-
um og S-Asíu. „Annars getur fólk
verið óheppið alls staðar, ég man
til dæmis eftir íþróttaliði sem fór í
keppnisferð til Tyrklands og hafði
fengið nákvæmar leiðbeiningar
um hvernig ætti að passa sig á
matarsjúkdómum aður en farið
var af stað. Í Tyrklandi gekk allt
vel en síðan var millilent í London
þar sem farið var á skyndibitastað
og eftir það urðu margir veikir.“
Sprauta vatni í vatnsmelónur
til að þyngja þær
Ferðafólk ætti að varast hrátt
kjöt, hráan skelfisk, ógeril-
sneyddar mjólkurvörur og hrátt
grænmeti á veitingahúsum að
sögn Helga. „Yfirleitt er í lagi að
borða ferska ávexti sem maður
þarf að afhýða en sums staðar er
vatni sprautað inn í vatnsmelónur
til að þyngja þær og þannig geta
skaðlegir gerlar borist inn í ávöxt-
inn.“ Hann segir ís sem keyptur
er af götusölum geta verið vara-
saman en einnig geti gerlar verið í
ísmolum sem settir eru út í
drykki. „Ég ráðlegg fólki að halda
sig við innlendan mat á hverjum
stað, soðinn og steiktan og drekka
drykki sem keyptir eru í lokuðum
ílátum. Sé það gert sleppur fólk
yfirleitt við að fá í magann á ferða-
lagi. Að mati Helga er skynsam-
leg hegðun gagnvart mat og
hreinlæti í fríinu lykilatriði til að
forðast matarsjúkdóma. „En fólk
má samt ekki vera of hrætt við þá,
hluti af góðu fríi er auðvitað að
kynnast matarmenningunni í
hverju landi.“
Ferðafólk fær oftast í
magann af skyndibitamat
Reuters
Hluti af góðu fríi er að kynnast
matarmenningunni í hverju landi.
Á www.cdc.gov er að
finna ítarlegar upplýsingar
fyrir ferðafólk um matar-
sjúkdóma.
AF ÖLLUM heimsins stöðum er nú í bígerð, að
koma upp risastóru skíðasvæði í stórborginni
Mumbai (Bombay) á Indlandi, í lok þessa árs, að því
er segir í Sunday Times. Mumbai er þekkt fyrir allt
annað en snjókomu og kulda, en fyrirtæki frá Dubai
lætur það ekki aftra sér, um fimm milljörðum króna
skal eytt í byggingu vetrarmiðstöðvar sem þekja á
um 9.000 fermetra. Sannkölluð alpastemmning
mun ríkja, með gervisnjó og gerviskýjum á himni,
auk ísskautasvæðis og ísborgar þar sem getur m.a.
að líta skúlptúra úr ís, af Eiffel-turni og Stóra Ben.
Á skíðum í Mumbai FERÐAVENJUR Íslendingaeru að breytast, ferðirnar eru
fleiri og styttri, og ferðir sem
sameina borg og strönd sækja í
sig veðrið. „Þriggja vikna sólar-
landaferðirnar sem voru alltaf al-
gengastar hafa styst niður í
tveggja vikna ferðir en einnig er
mjög algengt að fólk fari í viku-
langar sólarlandaferðir sem
þekktist ekki fyrir nokkrum ár-
um,“ segir Auður Björnsdóttir
framleiðslustjóri Samvinnuferða/
Landsýnar. „Þá kjósa margir að
fara í stutta sólarlandaferð á
sumrin og síðan í borgarferð á
öðrum tíma ársins.“ Hún segir
fólk frekar tilbúið til að fara í
ferðir með skömmum fyrirvara
en áður var.
Andri Már Ingólfsson forstjóri
Heimsferða tekur í sama streng
og segir um 60% sólarlandafara
kjósa tveggja vikna ferðir. „Þetta
er greinileg þróun sem verður
skýrari með hverju árinu.“ Auk-
inn áhugi er einnig á ferðum sem
sameina borg og strönd, að sögn
Andra. „Vinsælt er að fara í
tveggja vikna ferðir til Barcelona
þar sem 4-5 dögum er eytt í borg-
inni og síðan slappað af á strönd-
inni á eftir.“ Hann segir barna-
fólkið þó mikið til halda sig við
ströndina, enda þægilegt að vera
með börn á slíkum stöðum, það
fari þá frekar í dagsferðir til
borganna.
Fólk vill fjölbreyttari ferðir
Páll Þór Ármann markaðs-
stjóri Úrvals-Útsýnar segir
mynstrið greinilega hafa breyst.
„Til dæmis heyra fjögurra vikna
sólarlandaferðirnar sem voru
talsvert algengar fyrir nokkrum
árum til undantekninga núna.“
Vinsælt er að fara í tveggja vikna
ferð í sólina á sumrin og síðan
skjótast í borgarferð eða stutta
sérferð á fjarlægar slóðir á vet-
urna. „Aukið framboð ferða og
lækkað verð er líklega ástæðan
fyrir því að fólk fer oftar. Það kýs
fjölbreyttari ferðir og vill sjá og
læra meira en áður, en virðist
vera minna fyrir að flatmaga í sól-
inni vikum saman.“
Íslendingar í
styttri sólarlanda-
ferðir en áður
Morgunblaðið/Ómar
Áhugi Íslendinga á að flatmaga í sól vikum saman virðist hafa minnkað.
MÓSAÍKGERÐ fyrir mæðgur og
legókubbanámskeið fyrir feðga
verða meðal viðburða á fjölskyldu-
og listahátíðinni Listasumar á
Súðavík sem haldin verður dagana
9.-12. ágúst. Súðavíkurhreppur,
Sumarbyggð í Súðavík og FÍH
standa að hátíðinni sem haldin er í
þriðja sinn, en markmið hennar í
upphafi var að styrkja ímynd
Súðavíkur eftir snjóflóðin 1995, að
sögn Soffíu Vagnsdóttur, fram-
kvæmdastjóra hátíðarinnar.
Jazztónleikar, sveitaball
og fjölskyldukaffi
Meðal viðburða á dagskránni
eru jazztónleikar Jóhönnu Vigdís-
ar Arnardóttur, leik- og söngkonu,
varðeldur og sveitaball á laugar-
dagskvöldið og tónlistarmessa og
fjölskyldukaffi á sunnudeginum.
Hún segir nóg af tjaldstæðum á
svæðinu og ýmiss konar afþrey-
ingu í boði fyrir
ferðamenn, eins og
t.d. siglingu um
Jökulfirði.
„Súðavík er dálít-
ið svipuð ferða-
mannastöðunum á
Spáni, íbúafjöldinn
eykst um helming
yfir sumartímann,“
segir Soffía. Eftir
snjóflóðið, var reist
þorp á nýjum stað
en gamla þorpið
fékk að halda sér og
kallast nú Sumar-
byggð. Þau hús eru
nú notuð sem sumarhús enda að-
eins íbúðarhæf yfir sumartímann.
„Sum húsanna voru seld til ein-
staklinga og félagasamtaka en
hreppurinn á einnig hluta húsanna
og eru þau leigð út til ferðamanna
til lengri eða skemmri tíma.“
Fjölbreytt dagskrá í Súðavík
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Húsin í gamla þorpinu á Súðavík eru nú notuð
sem sumarhús.
Upplýsingar um útleigu
húsanna má fá í síma 456-
4986 eða með því að
senda tölvupóst á sum-
arbyggd@suðavik.is.
ÞEIR sem fljúga til Ástralíu, Nýja-Sjálands eða
Indlands eiga það á hættu að verða úðaðir með
skordýraeitri þegar þeir bíða þess að ganga frá
borði eftir lendingu til að tryggja að skordýr berist
ekki til landanna, að því er kemur fram í tímaritinu
Traveller. Skordýraeitrið sem notað er hefur verið
bannað í Bandaríkjunum og er sagt sérlega hættu-
legt fyrir ungbörn.
Oft er efninu úðað þegar vélarnar eru tómar, en
oft kemur fyrir að flugfreyjur og flugþjónar verða
að úða eitrinu í gegnum loftræstikerfi vélanna á
meðan farþegarnir eru enn um borð. Þá eru farþeg-
arnir varaðir við og þeim bent á að halda fyrir vit
sér til að verjast eitrinu.
Þó að eitrið sem um ræðir sé bannað í Bandaríkj-
unum er það ennþá leyft af Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnuninni og því sjá ástralskir ráðamenn
ekkert því til fyrirstöðu að nota efnið og telja ólík-
legt að notkun þess verði hætt.
Skordýraeitri úðað á flugfarþega
DANSKA matvælaeftirlitið hefur vakið athygli á
að hreinlæti á sumum veitingastöðum í Tívolí,
skemmtigarðinum vinsæla í Kaupmannahöfn, sé
ábótavant. Gríðarlegt magn af humri og kjúklingi
var fjarlægt frá veitinga- og kaffistaðnum Classal-
ens þar sem hann lyktaði illa, samkvæmt frétt á
aftenposten.dk. Fleiri veitingastaðir hafa hlotið
ákúrur og því þykir ljóst að eftirmálar verða for-
ráðamönnum skemmtigarðsins erfiðir.
Vondur matur í Tívolí
mbl.is