Morgunblaðið - 29.07.2001, Qupperneq 6
6 B SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975.- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar. (Allt nema bensín og
afgr.gjöld á flugvöllum.)
Aðrir litlir og stórir bílar,
minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
GSM- símakort
með dönsku símanúmeri.
Á heimasíðu má velja sumarhús og
orlofsíbúðir, panta bílaleigubíl og
fá fjölbreyttar upplýsingar.
Fylkir Ágústsson
Fylkir — Bílaleiga ehf.
Sími 456 3745
Netfang fylkirag@snerpa.is .
Heimasíða www.fylkir.is .
NÁTTÚRAN KALLAR!
W
IESBADEN, höfuðborg
sambandsríkisins Hessen
í Þýskalandi, er lítil borg
að mati heimamanna.
Einkum þó samanborið við ná-
grannaborgina Frankfurt, miðstöð
fjármála og viðskipta í Þýskalandi, en
borgir eins og Bonn, Köln og Darm-
stadt eru ekki langt undan. Wiesbad-
en er systurborg Mainz og skilur
Rínarfljótið borgirnar tvær að. Það
er með þessar tvær borgir eins og
fleiri systur að nokkur rígur einkenn-
ir samband þeirra þrátt fyrir mikla
samvinnu, m.a. í samgöngum og
orkudreifingu. Wiesbaden eignar sér
um 270 þúsund íbúa, (fjöldi sem lætur
kunnuglega í eyrum Íslendinga) og
lætur lítið yfir sér í samanburði við
volduga nágranna. En borgin kemur
á óvart og óhætt er að mæla með
stuttum heimsóknum þangað. Hvort
sem landinn er á leiðinni í stutta
borgarheimsókn út fyrir landstein-
ana eða á ferð um sveitir og vínrækt-
arhéruð Þýskalands. Eflaust eru
margir sem kjósa að dvelja í
Frankfurt vegna stærðar
hennar og mikilvægis í við-
skiptalífinu en óhætt er að
mæla með Wiesbaden sem er
eins og falinn konfektmoli í
miðju Rínarhéraði (Rhein-
Main).
Borgin er nógu stór til að
þar er fjölmargt að skoða.
Þar eru fjölbreyttar verslanir
og fjörugt næturlíf en að
sama skapi er Wiesbaden
nógu lítil til að hægt sé að
skoða sögulegar byggingar,
heita brunna, heilsulindir og
rómantíska garða á tveimur
jafnfljótum. Auk þess segja
kunnugir að gestir þurfi ekki
að vera jafnvarir um sig á
kvöld- og næturröltinu í
Wiesbaden og í Frankfurt
eða öðrum stærri borgum
Evrópu, þar sé glæpatíðni
mun lægri.
Gæluborg þýsks aðals
Það sem gerir Wiesbaden
svo heillandi og raun ber vitni er sú
staðreynd að hún hefur löngum verið
gæluborg þýsks aðals, ef til vill ekki
svo mikið í dag og fyrir um það bil 100
árum. Og þó, borgin hefur enn orð á
sér að laða til sín þotuliðið, alla vega
fólk sem á eitthvað meira en skipti-
mynt í vasanum. Þess vegna hefur
verið mikið lagt í útlit borgarinnar í
gegnum tíðina, í byggingarlist, garða
og viðhald gamalla bygginga.
Í borginni eru 26 allt að 67° heitar
lindir (hljómar einnig kunnuglega!)
en það var einmitt jarðhitinn sem
fyrst gerði veg Wiesbaden mikinn.
Lækningamáttur lindanna, gegn m.a.
gigt og ýmsum líkamsmeinum, dró
ríka fólkið til hennar. Rómverjar
voru fyrstir til að nýta sér lækninga-
mátt lindanna svo vitað sé en það var
fyrst upp úr miðbiki 19. aldarinnar að
efra lag þjóðfélagsins tók að fara í
sérstakar heilsubótarferðir til
Wiesbaden. Vilhjálmur II Prúss-
landskeisari heimsótti borgina reglu-
lega til að nýta sér heitt lindarvatnið
til heilsubótar og bætti það svo um
munaði orðspor borgarinnar fyrir
evrópskt aristókratí á þeim tíma.
Það eru ekki eingöngu heilsulind-
irnar sem drógu til sín hina betur efn-
uðu og þá sem gjarnan vildu vera það.
Spilavítið í Wiesbaden hefur löngum
verið þekkt út um allan heim fyrir
glæsileik sem að fullu jafnast á við
aðrar stofnanir af sama tagi suður í
Mónakó. Vísir að spilavítinu var fyrst
settur á laggirnar árið 1810 og það
varð fljótt leikstaður hinna ríku.
Spilavítið í Wiesbaden getur gortað
af gestum eins og Richard Wagner og
Fjodor Dostojevski og fleirum sem
verða ekki taldir upp hér. Spilavítið
er staðsett í glæsilegri byggingu,
Heilsulindinni (Kurhaus), sem byggð
var árið 1907 og hýsti eitt sinn heilsu-
lind mikla og er því í daglegu tali kall-
að Spielbank im Kurhaus, „Spilavítið
í heilsulindinni“.
Um 1.000 veitingastaðir
Þeir sem heimsækja borgina geta
valið úr tæplega 1000 veitingastöðum
í borginni og í nærliggjandi sveitum
við bakka Rínarfljóts. Þetta mikla úr-
val veitingastaða er ekki síst að
þakka hvítvíns- og matarmenningu
svæðisins sem hefur þrifist í krafti
þeirra fjölmögu gesta sem Wies-
baden hefur hýst. Að auki státar
borgin af óperu, balletsýningum og
fjölda tónlistar- og myndlistarvið-
burða ár hvert.
Wiesbaden liggur í miðri Rínar-
sveit (Rheingau) og gestir borgarinn-
ar ættu ekki að láta fram hjá sér fara
að skoða vínræktarhéruðin við bakka
Rínarfljóts sem er lífæð þessa svæð-
is. Fljótið flæðir frá vestri til austurs í
Rínarsveit og frjósamir bakkar þess
snúa beint á móti suðri á stóru svæði;
sem er meginforsendan fyrir miklum
gæðum þeirra vínberja sem ræktuð
eru á svæðinu og svo hefur verið um
aldir. Hvítvínsframleiðslan einkenn-
ist af djúpri virðingu fyrir viðfangs-
efninu, allt að því trúarlegri nálgun
sem byggist á aldalöngum hefðum.
Staðbundinn brandari segir að vín-
bændur svæðisins fæðist með annan
fótinn styttri en hinn til að auðvelda
þeim vinnuna á hæðóttum víngörðum
Rínarbakka. Fyrir gesti Wiesbaden
eru stuttar vínsmökkunarferðir við
bakka Rínarfljóts ógleymanleg upp-
lifun. Í Rínarhéraði eru að auki
fjöldamörg falleg þorp og litlir bæir
sem eru þess virði að heimsækja, bæ-
ir sem virðast hafa staðnað í tíma og
eiga lítið sammerkt með stærstu
borgum Þýskalands.
Wiesbaden er eins og falinn konfektmoli í miðju Rínarhéraði
Borg evrópsks aðals
í nútíð og fortíð
Morgunblaðið/Dóra Magnúsdóttir
Ríkisleikhúsið í Hessen en Wiesbaden er höfuðborg samnefnds sambandsríkis.
Stytta af Schiller prýðir flötina framan við leikhúsið.
Wiesbaden er þekkt fyrir
heilsulindir og spilavítið þar í
borg þykir einkar glæsilegt.
Dóra Magnúsdóttir segir að
þar séu líka yfir þúsund veit-
ingastaðir og gestir ættu því
að geta gælt við bragðlaukana
meðan þar er dvalið.
Netfang fyrir þá sem vilja
vita meira:
http://english.wiesbaden.de/
touristinfo/
Markaðskirkjan í miðbæ Wiesbaden sem byggð
var 1852 til 1862.
Dæmi um verð:
Tveggja tíma ferð kostar
3.000 krónur fyrir manninn.
Dagsferð fyrir hópa kostar
7.800 krónur fyrir manninn.
Innifalið í verði eru leiðsögn,
hlífðarfatnaður, hjálmur og reið-
stígvél. Í dagsferðum og lengri
ferðum er matur einnig innifalinn
og akstur fyrir hópa að hesta-
leigunni. Sumstaðar þarf að bóka
tíma fyrirfram en rétt er að at-
huga hvort aldurstakmark gildi,
en algengt er að miðað sé við níu
ára aldur ef um byrjendur er að
ræða. Ófrískar konur fá ekki
leigða hesta hjá hestaleigunni
sem rætt var við.
Hvað
kostar að
leigja hest?„ÚTIVERAN, félagsskapurinn og sam-spil milli hests og manns er það
skemmtilegasta við sportið,“ segir
Ólöf Guðmundsdóttir, gjaldkeri hesta-
mannafélagsins Fáks, en hún hefur
stundað hestamennsku í yfir þrjátíu ár.
Aðspurð segir hún hálendið einna
skemmtilegasta svæðið þegar fara á í
hestaferð. „Mínar uppáhalds reiðleiðir
eru Fjallabaksleiðir syðri og nyrðri. Þá
eru auðvitað einnig mjög skemmti-
legar leiðir á láglendi, eins og t.d. Þjórs-
árbakkar, Löngufjörur á Snæfellsnesi
og Þingvallasvæðið.“
Ólöf segir að algengt sé að hesta-
ferðir félagsins geti verið allt frá 2-3
dögum upp í viku eða jafnvel lengur.
„Séu ferðirnar langar þarf að skipu-
leggja slíka ferð tímanlega svo allt
gangi upp. Oftast eru farnir slóðar sem
ekki er hægt að fara um nema ríðandi
eða gangandi.“ Hún segir að þegar
fara eigi í hestaferð sé mikilvægast að
vera á hesti sem hæfir viðkomandi.
„Reiðmaður verður að geta valdið
hestinum. Þá er hjálmur ómissandi og
auðvitað reiðtygin en síðan á fólk ein-
faldlega að klæða sig eftir veðri. Gott
er að vera í fatnaði sem truflar ekki
hestinn en föt sem skrjáfar mikið í,
geta valdið því að hann fælist.“
Hestamennska er mikið fjölskyldu-
sport sem allir geta stundað að sögn
Ólafar. „Mjög algengt er að öll fjöl-
skyldan taki þátt og oft er það þannig
að ef einn fjölskyldumeðlimur byrjar
þá koma hinir fljótlega á eftir.“
Hún segir börn allt niður í 5-6 ára
geta farið á hestbak. „Oftast eru þau
þá í fylgd með foreldrum sínum eða þá
í reiðskólum sem eru starfandi yfir
sumartímann.“
Skemmtilegast á hálendinu
Hefur stundað hestamennsku í yfir þrjátíu ár
'
(
('
)
Krakkar eru að byrja í hestamennsku með foreldrum sínum 5-6 ára gömul.