Morgunblaðið - 29.07.2001, Síða 10
10 B SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
BMW X5 hefur vissulega útlit jepp-
ans og þótt hann sé sagður jeppi,
t.a.m. á innflutningsskjölum, myndu
harðkjarna jeppamenn seint fallast á
að skilgreina þennan bíl sem slíkan.
Þessi 4,67 metra langi, fimm manna
bíll, er ekki á sjálfstæðri grind og
fjórhjóladrifið er sítengt og án milli-
kassa. BMW hefur enda lýst því yfir
að ekki stóð til að bæta við í þá flóru
þegar framleiðslu bílsins var hrundið
af stað. Þótt X5 hafi vissulega upp á
margt meira að bjóða en fjórhjóla-
drifnir fólksbílar, t.a.m. meiri utan-
vegagetu og meiri veghæð, þá líður
honum samt best á malbikinu og þar
á hann heima.
Líklega hefur enn ekki verið fram-
leiddur „jeppi“ með meiri fólksbíla-
eiginleika en X5 Sport, (þótt ekki
verði komist hjá því í þessu sambandi
að minna á nýja Ford Escape jepp-
linginn, sem státar af undraskemmti-
legum aksturseiginleikum, sem og
Lexus RX 300).
Mjúk og áreynslulaus hröðun
X5 Sport er með stífari fjöðrun en
staðalgerðin og á 19 tommu álfelgum
í stað 18. Þetta er bíll sem er mun
nær því að vera sportbíll en nokkru
sinni jeppi, en þó ekki.
Vélin er línusexa, þriggja lítra og
skilar að hámarki 231 hestafli. Hún er
með svokölluðum double-Vanos bún-
aði sem er sjálfvirkur og breytilegur
opnunarbúnaður fyrir inntaksventla
sem stjórnast af inngjöf og vélar-
snúningi. Búnaðurinn gerir að verk-
um að meira afl fæst út úr vélinni á
mun lægri snúningi en vænta má og í
því sambandi segja tölurnar 300 Nm
við 3.500 snúninga sína sögu. Þetta
finnst líka strax í akstri. Gangurinn
er mjúkur og vélin hljóðlát en hún er
alltaf tilbúin með afl þegar beðið er
um það. Hröðunin er 8,8 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km og hámarkshrað-
inn takmarkaður við 202 km.
Við vélina er tengdur fimm þrepa
steptronic-gírkassi og gefur öku-
manni val um fulla sjálfskiptingu eða
handskiptingu án kúplingar.
Tæknistafróf BMW
Að utan virkar bíllinn eins og
BMW 5 á sterum – hinar einu og
sönnu BMW-línur leyna sér hvergi
en þær fara þessari gerð bíls líka vel
– ekki síst í Sport-útgáfunni á 19
tommu hjólunum. Stórar diska-
bremsur að framan og aftan og með
kælingu tryggja öfluga og nákvæma
hemlun. Þessi bíll er líka hlaðinn
tæknibúnaði frá fólksbílalínunni.
Þarna er t.a.m. átt við ABS, ADB-X,
ASC-X, CBC, DBC, DSC og HDC og
von að menn staldri við. DSC-kerfið
skynjar hættuna á því að bíllinn
skrensi og gefur honum stöðugleika á
augabragði með stjórnun á fjöðrun-
arbúnaðinn. ADB-X starfar með
DSC-kerfinu og beinir hámarksafli til
allra hjóla við hvaða vegaðstæður
sem er. HDC var fyrst kynnt í Free-
lander og er kerfi sem dregur sjálf-
krafa úr hraða bílsins og heldur hon-
um í um 8 km/klst þegar honum er
ekið niður bratta brekku. ASC-X er
spólvörn, CBC er hemlunarstýribún-
aður sem kemur í veg fyrir að bíllinn
yfirstýri þegar hemlað er í beygjum.
DBC-kerfið eykur hemlunarátakið
við neyðarhemlun. Allur þessi bún-
aður er til þess fallinn að auka öryggi
þeirra sem ferðast í bílnum og ann-
arra í umferðinni.
Yfir sjö milljónir
Prófunarbíllinn er klæddur þykku
gæðaleðri og mælaborðið er jafn-
framt skreytt með burstuðu áli. Þeir
stjórnrofar sem mest eru notaðir í
þjóðvegaakstri eru í stýrinu sjálfu,
þ.e. hraðastillir og stýrihnappar fyrir
hljómtæki. Miðstöðin er tvívirk og
með stafrænni hitastillingu. Fram-
sæti eru með rafstýrðri fjölstillingu
og minni og aðdráttur og veltingur á
stýri eru rafstýrð. Milli framsætanna
er stór geymslustokkur, tvískiptur,
og stórir vasar eru í hurðum. Sex
líknarbelgir eru staðalbúnaður, þ.e. 2
púðar í mælaborði, tveir hliðarpúðar
og tveir höfuðpúðar, og svo er hægt
að panta hliðarpúða sem aukabúnað
fyrir farþega í aftursætum. Það er
auðvelt að gleyma einhverju í upp-
talningunni en þessi bíll hefur nánast
upp á allt að bjóða sem einum bíleig-
anda getur hugnast.
Dýrlegheitin kosta líka sitt. Próf-
unarbíllinn, sem er í Sport-útfærslu
eins og fyrr segir, og m.a. með sól-
lúgu, kostar yfir 7 milljónir króna.
Grunngerðin, ef hægt er að tala um
slíkt um beinskipta bílinn, kostar
5.850.000 krónur og sjálfskiptur er
hann kominn upp í 6.140.000 krónur.
Bíllinn fæst líka með 4,4 lítra, V8 vél,
286 hestafla, og kostar hann frá
7.680.000 krónum með steptronic-
sjálfskiptingunni.
X5 – draumur á hjólum
Morgunblaðið/Jim Smart
BMW X5 Sport er á 19 tommu álfelgum og kostar rúmar 7 milljónir kr.
gugu@mbl.is
Mikið pláss og ríkulegur búnaður er aðall BMW X5.
Rafstýrður aðdráttur og velting er í
stýri ásamt ýmsum stjórnrofum.
Efri hluti hlerans opnast fyrst og einfalt er að opna neðri hlutann.
REYNSLUAKSTUR
BMW X5 Sport
Vél: 2.979 rsm., sex
strokkar, 231 hestafl, 300
Nm tog.
Lengd: 4.667 mm.
Breidd: 2.180 mm. (með
speglum).
Farangursrými: 465–
1.590 lítrar.
Eigin þyngd: 2.090 kg.
Eyðsla: 12,9 l í blönduðum
akstri.
Verð: 7,1 milljón kr.
Umboð: B&L.
BMW
X5 3.0 Sport
Guðjón Guðmundsson