Morgunblaðið - 29.07.2001, Page 13

Morgunblaðið - 29.07.2001, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2001 B 13 börn Teiknið... Trúðurinn og lúðurinn EINS og sést eru sex myndir af lúðurþeytaranum í trúðsgervinu. Myndirnar eru svona margar til þess að reyna athygli ykkar. Þið eigið að geta séð tvær myndir sem eru alveg eins – en þá verðið þið líka að gefa ykkur tíma til þess að virða þær fyrir ykkur hverja og eina. SKÝIN eru blá, þau sigla um himininn. Sum eru löng og mjó, sum eru skrýtin og sum eru eins og flugvél. Höfundur: Auður Hávarsdóttir, 7 ára, Brekkubæ 15, 110 Reykjavík. Ský Ástríkur og Steinríkur eru stöðugt að vernda heimabæ sinn, Gaulverjabæ, fyrir árásum Rómverja. Sem betur fer kann vinur þeirra Sjóðríkur seiðkarl að blanda töfraseyði sem hjálpar þeim mikið í baráttunni. Ævintýri Ástríks og Steinríks eru nú komin út á sölumyndbandi með íslensku tali. Halló krakkar! Ef þið svarið þessum laufléttu spurningum rétt gætuð þið unnið myndina „Ástríkur og Steinríkur“ á myndbandi. Spurningar 1. Hvað heitir heimabær Ástríks og Steinríks? 2. Hvað heitir seiðkarlinn vinur Ástríks og Steinríks? 3. Gegn hverjum berjast Ástríkur og Steinríkur til að vernda þorpið sitt? Sendið okkur svörin merkt: Barnasíður Morgunblaðsins, Ástríkur og Steinríkur, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.