Morgunblaðið - 26.08.2001, Síða 4
4 C SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sölumenn óskast
Codex — innheimtulausnir óska eftir metnaðar-
fullum og þjónustuliprum sölumönnum til
starfa nú þegar. Boðið er upp á góða starfsað-
stöðu og spennandi viðfangsefni hjá nýju og
framsæknu fyrirtæki á sviði milliinnheimtu.
Lykilstarfsmönnum verður boðinn kaupréttur
í fyrirtækinu. Með allar umsóknir verður farið
með sem trúnaðarmál.
Áhugasamir sendi upplýsingar til auglýsinga-
deildar Mbl. í síðasta lagi 30. ágúst merktar:
„Codex — innheimtulausnir“.
Codex — innheimtulausnir veita heildarlausn við innheimtu á við-
skiptakröfum. Lögð er áhersla á trausta og markvissa innheimtu
þar sem ávallt er komið fram við greiðandann af lipurð og kurteisi.
Óskar eftir dugmiklu starfsfólki í
eftirtalin störf.
● Fótaaðgerðarfræðing.
● Naglafræðing.
● Nema í snyrtifræði.
● Snyrtifræðing.
Upplýsingar gefur Rósa í síma
581 1593 eftir kl. 19.
Hjúkrunarfræðingar
Laus er til umsóknar staða hjúkrunardeildar-
stjóra lyflækningadeildar II (100% staða
í dagvinnu). Deildin er dag- og fimm daga
deild. Áætluð er samvinna og samhæfing í
hjúkrun á milli lyflækningadeildar II og lyflækn-
ingadeildar I.
Laus er til umsóknar staða hjúkrunardeildar-
stjóra í Seli (100% staða í dagvinnu).
Sel er hjúkrunardeild fyrir aldraða með hvíldar-
og dagvistunarplássum.
Umsækjendur þurfa að hafa starfsleyfi hjúkrun-
arfræðings, sérnám í stjórnun og stjórnunar-
reynslu. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubr-
ögð og góða hæfileika í samskiptum og sam-
vinnu.
Hjúkrunardeildarstjóri ber fag-, stjórnunar- og
rekstrarlega ábyrgð á hjúkrun á viðkomandi
deild.
Næsti yfirmaður hjúkrunardeildarstjóra er
framkvæmdastjóri hjúkrunar.
Lausar eru til umsóknar stöður svæfinga-
hjúkrunarfræðinga á svæfingadeild (100%
fastar stöður í dagvinnu með bakvaktaskyldu).
Umsækjendur þurfa að hafa starfsleyfi hjúkrun-
arfræðings og sérnám í svæfingahjúkrun. Lögð
er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og góða
hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Boðin er einstaklingshæfð aðlögun með reynd-
um hjúkrunarfræðingi.
Næsti yfirmaður er hjúkrunardeildarstjóri.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármálaráð-
herra.
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 8.
september nk.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum ásamt
fylgiskjölum með upplýsingum um menntun
og fyrri störf skulu sendar til Ólínu Torfa-
dóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar,
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, Eyrarlands-
vegi, 600 Akureyri, sem veittir allar nánari upp-
lýsingar í síma 463 0271, tölvupóstfang
olina@fsa.is . Öllum umsóknum verður
svarað.