Vísir - 10.07.1979, Síða 9

Vísir - 10.07.1979, Síða 9
VISIR Þriðjudagur 10. júli 1979. 9 Fundur ullarframleiðenda á Esju: Saumaslofurnar vantar 600 á árl Fjölmennt var á f undi forráðamanna f ramleiðenda og útflytjenda ullarvara á Hótel Esju í gær. Kom hin almenna þátttaka umsjónarmönnum fundarins frá Útf lutningsmiðstöð iðnaðarins sýnilega á óvart, því að bæta þurfti við þá f immtíu stóla sem fyrir voru í saln- um og hölluðu menn sér þó enn upp að veggjum vegna plássieysis. Gunnar Mack og Sigurður Ingólfsson komu til fundar framleiðenda og útflytjenda ullarvara og héldu erindi um þróun verðlags og kostnaðar i ullariðnaði á undanförnum mánuðum, Gunnar fvrir hönd Hag- vangs h.f. en Sigurður fyrir hönd Ilannars s.f. Mvnd þessi var tekin er Gunnar flutti erindi sitt. Visis- mynd: ÞG Starfsmenn Hagvangs hf. og Hannars s.f., þeir Gunnar Mack og Sigurður Ingólfsson héldu sitthvort erindið þar sem fundarmönnum var gerð grein fyrir niðurstöðum athugana þessara fyrirtækja á þróun verðlags og kostnaðar i ullar- iðnaði á undanförnum mánuðum og áhrifum hennar á afkomu saumastofa. t erindi sinu gaf Gunnar Mack yfirlit yfir verðlags- og kostnaðar- breytingar, frá þvi verðút- reikningur var gerður i október á siðasta ári fram til dagsins i dag. Gunnar bar saman hlut- fallslegar breytingar á Banda- rikjadollar og breytilegum kostnaði við framleiðslu á ullar- fatnaði. Miðaði hann við meðal- skráningu Bandarikjadollars i hverjum mánuði, meðalverð prjónavoðar, sem er langstærsti hluti efniskostnaðar, og launa- kostnað samkvæmt 2. taxta Iðju eftir niu mánuði i starfi. Kom i ljós að á þessu timabili hefur launakostnaður hækkað um rúm 30% efniskostnaður um tæp 25%, en gengi dollarans um 11%. Bilið á milli breytilega kostnaðarins annars vegar og dollarans hins vegar fer þvi si- fellt breikkandi. Einnig taprekstur á garn- framleiöslu Sigurður Ingólfsson frá Hannari sagði að eins og sjá mætti á yfirliti Gunnars hefðu saumastofurnar i islenskum ullariðnaði orðið að taka á sig kostnaðarhækkanir umfram verðhækkanir á sinum vörum. I undantekningartilfellum hefðu stofurnar samið við söluaðila um að binda verð við kostnaðar- hækkanir og lenti þá vandamál- ið á söluaðilanum. „Hækkanir á garnverði virðast fljótt á litið hafa fylgt kostnaðarhækkunum, en sé betur að gáð var búið að frysta garnverðá árinu 1978 frá 1. júli” sagði Sigurður. ,,Má þvi álykta að fyrir liggi i dag álika hækkunarþörf hjá garnfram- leiðendum og var i október og er þvi trúlega einnig taprekstur á þeim lið”. Stöðugt sígur á ógæfu- hliðina Athugun var gerð á áhrifum verðlags og Jcostnaðarþróunar á afkomu sex saumastofa og kom i ljós að stöðugt hefur sigið á ógæfuhiiðina siðan i október i fyrra. Þá var söluverðmæti þessara stofa miðað við árs- framleiðslu um 696 milljónir króna. Að lokinni greiðslu á efnis- og launakostnaði voru eft- ir um 138 milljónir króna. A timabilinu janúar-mars i ár voru þessar tölur 737 og 115 milljónir króna. Um mánaða- mótin júni-júli var söluverð- mæti 773 milljónir króna en 66 milljónir afgangs upp i fastan kostnað sem er um 8.6% af sölu- verðmæti. Til samanburðar gerði Sigurður grein fyrir þvi hvert söluverðmæti stofanna hefði orðið ef hlutföll verðs og kostnaðar hefðu haldist i hendur og framlegðin haldið sinum hluta. Söluverðmætið hefði þá verið 881 milljón króna miðað við ársframleiðslu eða um 14% hærra en raun ber vitni. „Munurinn er 108 milljónir króna og ef við gerum ráð fyrir að þessar stofur framleiði um 20% af heildarframleiðslu út- flutnings saumastofa landsins vantar i heild 5-6 hundruð milljónir á ári til að allar stofurnar haldi sinum hlut” sagði Sigurður. „Rétt er að vekja athygli á að framlegð sú, sem næðist, ef hlutföll verðs og kostnaðar hefðu haldist i hend- ur, samsvarar 1238 krónum á klukkustund og er það talsvert lægra en reiknað er með að meðalstofa þurfi til að standa undir sér og hafa eðlilega af- komu til áframhaldandi upp- byggingar. Sú viðmiðunartaia er nú i kring um 2000 krónur á klukkustund”. „ Iðnaðarráðuneytinu skylt að beita sér fyrir lausn vandans". Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra, sótti fundinn, en auk hans komu þangað full- trúar frá Viðskiptaráðuneyti, Fjármálaráðuneyti, Land- búnaðarráðuneyti og Félags- málaráðuneyti. Hjörleifur hélt stutta tölu að loknum erindun- um, enda þótt hann segðist að visu hafa komið til fundarins aðallega til að hlusta. Bætti hann þvi við að hann teldi að augu manna væru nú óðum að opnast fyrir nauðsyn þess að taka tillit til hagsmuna iðnaðar- ins, og láta þá ekki hverfa i skuggann fyrir hagsmunum sjávarútvegs. „Mikið og öflugt starf hefur verið unnið i þessari iðngrein, ullariðnaðinum, sem orðin er að heita má burðarás islensks iðnaðar og teljum við i ráðu- neytinu okkur skylt að beita okkur fyrir lausn vandans sem að steðjar” sagði Hjörleifur. Einnig minnti hann á tilvist samstarfsnefndar ráðuneyt- anna og kvaðst vona að niður- stöður af starfi hennar lægju fyrir áður en langt um liði. Ingi Tryggvason verkefnis- stjóri hjá útflutningsmiðstöð iðnaðarins, tók undir orð Hjör- leifs og sagði það vera ráð á þessum siðustu og verstu timum orkukreppu að styöja grein eins og ullariðnaðinn sem væri spar- söm á orkuna. „Og heldur þar að auki á okkur hita” svaraði Hjörleifur. Útf lutningsverðmæti gæti numið 10 milljörðum á árinu I lok fundarins var samþykkt ályktun þar sem segir meðal annars, að útflutningsverðmæti islenskra ullarvara geti numið allt að 10 milljörðum króna á þessu ári ef hægt verður að standa við gerða samninga. Hins vegar hljóti einhver fyrir- tæki að hætta starfsemi, verði ekkert að gert og mundi það leiða til atvinnuleysis og van- efnda á gerðum sölusamning- um. Fundurinn skorar þvi á rikis- stjórnina að taka vandamál ullariðnaðarins til tafarlausrar úrlausnar. Telur hann frumskil- yrði að gengisskráning islensku krónunnar sé látin fylgja kostnaðarþróun innanlands. Þá verði uppsafnaður söluskattur af útf lutningsfram leiðslu greiddur jafnskjótt og varan fer úr landi, til þess að rétta við samkeppnisaðstöðuna gagnvart erlendum keppinautum sem engan söluskatt greiða. Loks er lögð áhersla á að útflutnings- iðnaðurinn sitji við sama borð og sjávarútvegur um greiðslu opinberra gjalda eða fái að öðrum kosti bættan þann að- stöðumun sem greiðsla þeirra veldur. —AHO „Hef orðlð var við mikfnn kvíða hjá starfsfðlkinu” - segir zophonías zophoníasson, framkvæmdastjóri Pólarprjóns á Blönduósi Zophonias er formaður Sam- taka prjóna- og saumastofa á Norðurlandi en að þeim sam- tökum standa tiu fyrirtæki. „Starfsfólk fyrirtækjanna úti á landi er farið að gera sér grein fyrir hinum gifurlega vanda, sem að ullariðnaðinum steðjar og i minu fyrirtæki tal- ar fólk og spyr mikið um ástandið. Við förum i sumarfri um næstu helgi og ég hef orðið var við hræðslu um að fyrirtækið opni ef til vill ekkert að þvi loknu. Á hinn bóginn virðist mér allir aðilar vera sammála um að þreyja þorrann eins lengi og unnt er, reyna allar hugsanlegar leiðir til úr- lausnar, áður en gripið verði til þess örþrifaráðs að loka fyrirtækjunum”. Við náðum tali af Zophoniasi Zophoniassyni, framkvæmda- stjóra prjóna- og saumastofunn- ar Pólarprjóns á Blönduósi á fundinum á Hótel Esju. Auk þess að framleiða prjónavoð fyrir eigin saumastofu sér Pólarprjón tiu öðrum sauma- stofum á landinu fyrir voð. „Mig grunar að menn geri sér almennt ekki grein fyrir þvi hversu margt fólk byggir af- komu slna á þessum iðnaöi” sagði Zophonlas. „I Pólarprjóni vinna nú um sjötiu manns, en ibúar Blönduóss eru alls 900. Ég trúi ekki öðru en að stjórnvöld taki I taumana og vona, að það verði fljótlega, þvl að timinn er naumur. Mikil eftirsjá væri að ullarframleiðslunni til út- flutnings ef hún legðist niður, vegna þess hversu mikils virði hún er þjóðhagslega. Sést þaö best á þvi að ullarfram- leiðendurnir hafa varla við að fullnægja eftirspurn á heims- markaði”. „Ailir aðiiar viröast vera sammála um að þreyja þorrann eins lengi og unnt er og reyna allar hugsanlegar leiðir til úrlausnar áður en gripið veröi til þess örþrifaráðs að loka fyrirtækjunum” sagði Zophonfas. Vísismynd: ÞG. Aðilarnir hafa sam- stöðu um ýmis hags- munamál „Aðilar að samtökunum hafa samstöðu um ýmis hagsmuna- mál”, sagði Zophonias. „Fyrir- tækin gera innkaup til fram- leiðslunnar i sameiningu til þess að komast að betri kjörum og taka að sér verkefni fyrir út- flutningsfyrirtækin sem ein heild en skipta þeim siðan bróðurlega á milli sin. Við höf- um hugleitt að efla fyrirtækin með þvi að sjá að nokkru leyti um útflutninginn á eigin spýt- ur”. „Ekki er ætlunin að við flytj- um allt út sjálfir, en við teljum að við stæðum betur að vigi ef við hefðum þar hönd i bagga i auknum mæli. Samtök sem þessi eru ennfremur að þvi leyti góð að þau auðvelda samskipti við hið opinbera. Meira mark er tekið á okkur eftir aö við sam- einuðumst og hófum að koma fram út á við sem einn aðili”. —AHO

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.