Vísir - 10.07.1979, Page 24

Vísir - 10.07.1979, Page 24
SpásvæOi Veðurstofu Islands eru þessi: 1. Faxaflói, 2. Breiðafjörð- ur. 3. Vestfirðir. 4. Norður- land, 5. Norðausturland. 6. Austfirðir. 7. Suðausturland. 8. Suðvesturland. veðurspá 400 km V af Reykjanesi er 990 mb lægð og frá henni lægðardrag NA um Vest- firði.Litið eitt hlýnar i veöri norðanlands. SV-land til Breiöafjarðar og miöin: S og SV gola eða kaldi og skúrir á dag en: S og SV gola eða kaldi og skúrir á dag en úrkomulitið í nótt. SA gola eða kaldi og rigning i fyrra- málið. V-firðir og miðin: NA gola og sfðan breytileg átt. Vlða rigning eða súld. N-land og miöin: Breytileg átt, rigning I fyrstu en annars Seða SV gola eða kaldi. Skúr- ir vestan til en bjart með köfl- um austan til. NA-land A-firðir og miðin: S og SV gola bjart með köflum til landsins en þokubakkar á miðum. SA-land og miðin: SV kaldi og skúrir í dag. S gola, þurrt aðmestu til landsins, en þoku- bakkar á miðunum þegar liður á nóttina. veðrið hér op har Veörið kl. 6 i morgun: Akureyri skýjað 7, Bergen hálfskýjað 12, Kaupmanna- höfnskýjað 14, Oslóskýjað 18, Reykjavik skúrir 7, Stokk- hólmur skýjað 15, Þórshöfn rigning 10. Veðrið kl. 18 i gær: Aþena rigning 24, Berlínskúr- ir 18, Chicago léttskýjað 26, Feneyjar léttskýjað 23, Frankfurt skúrir 16, Núklétt- skýjað 7, London skýja 19, Luxemburg skýjað 16, Las Palmas heiðrikt 24, Maliorka heiðrikt 28, Montreai léttskýjað 27, Washington léttskýjað 22, Paris skýjað 19, Róm léttskýjað 25, Malaga heiðrikt 27, Vin skýjað 18, Winnipeg skýjað 30. LOKISEGIR t viötaii við Timann segir Svavar Gestsson að kannski þurfi bráðum aö byggja hest- hús við Arnarhvoi þar sem orkukreppan gæti knúiö okkur tO aö fara riðandi I vinnuna. Er ekki ráð fyrir umhverfis- verndarmenn aö mótmæla strax fyrirhuguöum hesthús- byggingum? Matreiöslumenn boöa vakta- og yfirvinnubann: „EINS GOTI AÐ LOKA FYRIRTÆKINU” - seglr Konráð Guðmundsson hðtelstlöri á Sögu - verkbann á matreiðslumenn Stjórn og trúnaðarmannaráð Félags matreiðslu- manna héldu fund i gær, og var þar ákveðið að verða við áskorun félagsmanna um að samþykkt yrði að setja vakta- og yfirvinnubann. Kemur bann- ið til framkvæmda frá og með 18. júli næstkomandi. Engin atkvæði voru greidd á móti samþykktinni en tveir sátu hins vegar hjá við atkvæða- greiðsluna. A fundinum var kosin þriggja manna verkfallsnefnd, sem ætlað er að sjá um fram- kvæmd aðgerðanna. Forsvars- maður nefndarinnar er Sigurður Sumarliðason, matreiðslumaður, sem vinnur hjá Flugleiðum i Keflavik. Visir náði tali af Konráð Guð- mundssyni, hótelstjóra á Hótel Sögu i morgun, til að leita álits hans á væntanlegum aðgerðum matreiðslumanna. Sagðist hann ekki skilja, hvaða rétt mat- reiðslumenn telji sig hafa til að Matreiöslumenn að störfum á Hótel Esju I morgun. Veitingamenn ræða iokun fyrirtækjanna komi boðað vaktavinnubann kokka til fram- kvæmda. (Vlsism. GVA) setja vaktavinnubann, þvi að samkvæmt gildandi kjarasamn- ingum skuli vaktir ákveðnar fyrir minnst mánuð i senn, og verði þvi að tilkynna allar breytingar á þeim með mánaðarfyrirvara. „Yfirvinnubannið brýtur á hinn bóginn ekki i bág við samninga”, sagði Konráð. ,,Verkbann eina leiðin” „Ef af þessu verður er eins gott að loka fyrirtækinu”, hélt hann á- fram. „70-75% af viðskiptum veit- ingahúsa eru bundin við kvöldin. Hætti matreiðslumenn að vinna á vöktum, virðist mér við i Sambandi veitinga- og gistihúsa- eigenda ekki eiga aðra leið færa en að setja verkbann, og loka eld- húsum alveg”. Konráð kvaðst ekki telja að með þessu tækist matreiðslu- mönnum að knýja fram gerðar- dóm samkvæmt þeim skilyrðum, sem þeirhefðu sett fram. „Skort- ur hefur verið á matreiðslumönn- um undanfarið, og hafa margir þeirra yfirgefið veitinga- og gisti- húsin og ráðið sig til mötuneyta og spitala, bæði hjá einkaaðilum og þvi opinbera, vegna þess, að slik störf eru rólegri og vinnutim- inn reglulegri. Við höfum þvi reynt að halda mönnum á veit- inga- og gistihúsum með þvi að veita þeim ýmis hlunnindi og yfirborganir. Fari kjarasamning- arnir i gerðardóm viljum við að tekið sé tillit til hlunninda og yfir- borgana. Matreiðslumenn virðast hins vegar vilja, að yfirborgan- irnar verði settar inn i samning- ana fyrir félagið, og ekkert tillit tekið til hlunninda”. —AHO SKÝRSLAN FRÁ SRI LANKA ENN ÖKOMIN 1 morgun höfðu enn ekki borist nein formleg skilaboð frá Sri Lanka um að störfum rannsóknardómarans sem skipaður var af þarlendum yfirvöldum til að kanna flugslysiö væri lokið og að niðurstöður hans hefðu verið kynntar opinberlega. Þetta kom fram f samtali við Leif Magnússon framkvæmdastjóra flugrekstrardeildar Flugieiða i morg- un. Þrátt fyrir endurtekin loforð yfirvalda á Sri Lanka þess efnis að niðurstööur rannsóknardóm- arans yrðu sendar til umsagnar islensku rannsóknarnefndarinn- ar, bólar ekkert á skýrslunni. Eina vitneskjan sem fyrir liggur um téða skýrslu eru fréttir sem AP-fréttastofan sendi frá sér á sunnudag. Flugleiðir sendu I gær skeyti til stjórnvalda á Sri Lanka þar sem óskað var staðfestingar á þeim fréttum sem hingað hafa borist siðustu daga varðandi þetta mál. I skeyti Flugleiða segir meðal annars: „Ef niðurstöð- ur skýrslu yðar eru eins og til- greint er I umræddri AP-ffétt, viljum við hér með formlega staðfesta að við erumálandstæðri skoðun um leið og við staðfest- um fyrri yfirlýsingar þess efnis að frumorsök slyssins sé áátand tækjabúnaðar i þjónustu Kati- manake flugvallar, eins og það var á tima flugslyssins. Að þvi er við best vitum hefur enginn vitnisburður borist sem hrekur þessa megin-niðurstöðu.” — GEK Eldur i Grundarfiröi Eldur kom upp i einbýlishúsi við Borgarbraut i Grundarfirði laust eftir. klukkan niu i gærkvöldi.Þeg- ar lögregla og slökkviliö komu á vettvang lagði mikinn reyk fir efri hæð hússins en eldur reyndist þó ekki eins mikill og á horfðist i fyrstu 1 ljós kom að kviknað hafði i geymsluherbergi á hæð- inni og gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins. Skemmdir urðu nokkrar á hæðinni aðallega af völdum reyks og vatns en lög- reglan telur að kviknað hafi i út- frá rafmagni. Sv.G. Steingrlmur dómsmálaráöherra um sklpan Jóns Skaftasonar i embættl yflrborgarfðgeta: „BETRA AB FA MANN UTAN FRA TIL AD GERA BREYTINGAR” „Ég heid aö það þurfi að gera ansi viðtækar breytingar á borgarfó- getaembættinu bæði í samræmi við nýsamþykkt lög og breytta tima,” sagöi Steingrlmur Hermannsson dómsmálaráðherra I samtaii við VIsi I morgun. „Þarna þarf að taka upp ýmiss konar nútimatækni og ég taldi þvi að mörgu leyti betra að fá I þetta embætti mann utan frá.” Steingrimur hefur sem kunnugt er af fréttum veitt Jóni Skafta- syni fyrrum alþingismanni og flokksbróður sinum embætti yfir- borgarfógeta. Unnsteinn Beck borgarfógeti hefur vegna þessar- ar veitingar sagt upp starfi sinu og látið hafa eftir sér að dóms- málaráðherra sé með veitingunni að leysa innbyrðis flokksmál. Visir innti Steingrim eftir þvi i morgun hvort sú væri raunin og kvaðst hann hafa verið með aðra hluti i huga þegar hann veitti em- bættið. „Ég vil taka það fram,” sagði Steingrimur, „að allir sem sóttu um þetta starf eru að minu mati prýðilega færir og ég skoðaði þetta mjög vandlega. Yfirborgar- fógetaembættið er i raun og veru fyrstog fremst stjórnunarlegs eöl- is og þetta embætti kallar fyrst og fremst á góðan stjórnanda, sem ég er ekki þar með að segja að aðrir umsækjendur hafi ekki verið. Ég lit hins vegar svo á aö mað- ur með hæstaréttarpróf og marg- ra ára þingreynslu hafi margt til brunns að bera og ýmsa þá reynslu sem gagnleg er i þessu efni.” Steingrimur kvað það skoðun sina að Islendingar gerðu alltof litið af þvi að færa menn á milli embætta. „Menn sitja alltof lengi i sama embættinu,” sagði hann og benti á að ýmsar þjóðir m.a. Bandarikjamenn, heföu þann sið að færa menn með föstu millibili á milli embætta. — Gsal. k.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.