Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 2

Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 2
Alfreð Gíslason, þjálfari þýsku meistaranna, spáir í spilin / C2 Fjölnismenn verða með á Íslands- mótinu í handknattleik / C1 8 SÍÐUR Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR Sérblöð í dag FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Á FÖSTUDÖGUM RÚMUR mánuður er nú þar til nýja versl- unarmiðstöðin í Smáralind verður opnuð, 10. október, kl. 10.10. Alls nær húsnæði Smáralind- ar yfir 63 þúsund fermetra. Heildarflötur þaks byggingarinnar er um 25.000 fermetrar. Heild- arstærð lóðarinnar er um 115 þúsund fermetrar, verða 70 þúsund fermetrar lagðir malbiki og 10 þúsund fermetrar hellulagðir. Framkvæmdir eru á áætlun skv. upplýsingum forsvarsmanna framkvæmda og hundruð iðn- aðarmanna keppast við frágang innréttinga í verslunum og á byggingarsvæðinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stórbyggingar sem risið hafa á undanförnum árum í Smáranum eru smáar að sjá í samanburði við hina nýju verslunarmiðstöð í Smáralindinni. Smáralind opnuð eftir rúman mánuð SÝSLUMAÐURINN í Reykjavík auglýsir laus störf tveggja aðal- stefnuvotta og tveggja varastefnu- votta í umdæminu í Lögbirtinga- blaðinu 5. september síðastliðinn. Í auglýsingunni eru tilgreind skilyrði fyrir starfsgengi umsækj- enda eins og þau eru upptalin í 81. gr. laga um meðferð einkamála í héraði en þar segir að ekki megi skipa mann stefnuvott „nema hann sé orðinn 25 ára að aldri, hafi óflekkað mannorð og sé svo heill og hraustur að hann geti gegnt starf- anum“. Mikið ábyrgðarstarf og álag Spurður um skýringar á þessu skilyrði um heilbrigði og hreysti stefnuvotta sagðist Rúnar Guð- jónsson sýslumaður ekki þekkja sögu þessa orðalags í einkamála- lögunum, en þau væru að stofni til frá árinu 1936. Margt væri sér- kennilega orðað í lögum, ,,en hitt er annað mál að þetta er mikið ábyrgðarstarf og menn þurfa að vera alveg klárir í kollinum og hraustir andlega, og reyndar lík- amlega hraustir líka, vegna þess að það er heilmikið álag að hendast á milli húsa og birta stefnur. Ég held því að það sé bæði gömul saga og ný að þetta þurfi að vera með þess- um hætti, en orðalag [auglýsingar- innar] er tekið beint upp úr lög- unum“, sagði hann. Samkvæmt upplýsingum Rún- ars er þetta í fyrsta skipti sem starf stefnuvotta og varastefnuvotta er auglýst opinberlega laust til um- sóknar. Umsóknum um starfið skal skila til skrifstofustjóra Sýslu- mannsembættisins fyrir 15. sept- ember. Skulu vera heil- ir og hraustir Sýslumaðurinn í Reykjavík auglýsir eftir stefnuvottum SAMKVÆMT upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var ágústmánuður fremur hlýr og sólríkur sunnan- og vestan- lands en á norðan- og aust- anverðu landinu var svalara, minna sólfar en ekki úrkomu- samara. Hitafar það sem af er sumri hefur verið jafnt, hvorki kalt né hlýtt, og sólfar meira en venja er. Í byrjun júní var fremur kalt en sá mánuður var þurrastur og sólríkastur en júlí var vætusamastur, einkum sunnanlands. Meðal- hiti sumarsins frá júní til ágúst var 10,3 gráður í Reykjavík, sem er 0,3 gráður yfir meðallagi, en 9,6 gráður á Akureyri, sem er 0,3 gráður undir meðallagi. Hitinn fór hæst í 17,4 stig í Reykjavík Hæsti hiti sumarsins í Reykjavík var 17,4 gráður, sem er 1,5 gráður undir með- altali. Hæsti hiti sumars hefur aðeins 18 sinnum verið jafn- lágur eða lægri síðustu 78 ár. Hæsti hiti var einnig óvenju- lega lágur á Akureyri en þar var hann 20,2 gráður og hefur aðeins verið lægri 11 af síð- ustu 73 sumrum, segir í yf- irliti frá Veðurstofu Íslands. Sólfar yfir með- allagi í sumar REYKVÍSKIR karlar og konur á miðjum aldri voru bæði hærri og þyngri árið 1994 en Reykvíkingar á sama aldri voru árið 1975. Hlutfall of feitra meira en tvöfald- aðist hjá konum á tímabilinu. Hlut- fall ofþyngdar meðal karla óx um 6–7 prósentustig á tímabilinu, 53–54% karla í báðum aldurshópum voru of þung í lokin en 46% í upphafi. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Hólmfríðar Þorgeirsdóttur, Lauf- eyjar Steingrímsdóttur, Arnar Ólafssonar og Vilmundar Guðnason- ar á þróun ofþyngdar og offitu meðal 45–64 ára Reykvíkinga á árunum 1975–1994, sem greint er frá í nýj- asta tölublaði Læknablaðsins. Til rannsóknarinnar voru notaðar tölur frá Hjartavernd og MONICA- rannsókninni, sem er fjölþjóðleg rannsókn sem Íslendingar taka þátt í. Einungis voru notaðar tölur úr fyrstu heimsókn hvers og eins og voru tveir aldurshópar rannsakaðir, 45–54 ára og 55–64 ára. Samanburð- urinn er gerður meðal jafngamalla einstaklinga á tímabilinu og er því um að ræða breytingu milli árganga, ekki er um að ræða að þyngd aukist eftir því sem aldurinn færist yfir. Í greininni segir að aukin þyngd og offita verði vart skýrð með breyttu mataræði, nærtækasta skýr- ingin sé minni hreyfing fólks við dag- legar athafnir og störf. Tvöföldun hjá yngri körlum Nærri lætur að í lok tímabilsins séu um 70% karla í báðum aldurs- hópum og í eldri hópi kvenna ann- aðhvort of þung eða feit, miðað við viðmiðunarmörk Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar. Í yngri hópi kvenna var þetta hlutfall 54%. Hlutfall offitu nær tvöfaldaðist í yngri hópi karla, það fer úr 10,4% í upphafi tímabilsins í 19,2% í lok þess. Breytingin var ekki tölfræðilega marktæk í eldri hópi karla. Hjá kon- um fer hlutfallið hjá yngri konum úr 8,6% í 14,6% en í eldri hópnum úr 11,2% í 24,5%. Karlar jafnt sem konur, í báðum aldurshópum, eru um 2–3 cm hærri í lok tímabilsins en einstaklingar í upphafi þess. Þyngdin eykst meira á tímabilinu en hægt er að skýra með aukinni hæð. Karlar voru um 6 kg þyngri í báðum aldurshópum í lok tímabilsins en í upphafi þess. Þyngd- araukning í yngri aldurshópi kvenna var 6,7 kg og 7,6 kg í þeim eldri. Kon- urnar hafa þyngst meira en karlarn- ir, þótt rannsóknartímabil þeirra sé um þremur árum styttra. Í grein fjórmenninganna í Lækna- blaðinu segir að þessi aukning offitu og ofþyngdar meðal miðaldra Reyk- víkinga sé sambærileg þeirri þróun sem hefur átt sér stað á Vesturlönd- um undanfarið. Mikilvægt sé að snúa þessari þróun við, leggja áherslu á forvarnir og stuðla að heilbrigðari lifnaðarháttum. Ofþyngd og offita miðaldra Reykvíkinga 1975–1994 Hlutfall of feitra kvenna tvöfaldaðist

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.