Morgunblaðið - 07.09.2001, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 07.09.2001, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BORGARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að vísa tillögu Ólafs F. Magnússonar varðandi fyrirhugaða Kárahnjúka- virkjun til borgarráðs eftir um þriggja tíma umræðu um tillöguna. Ólafur F. Magnússon (D) lagði til, með vísan til samþykktar borgar- stjórnar Reykjavíkur frá 21. júní sl. og úrskurðar Skipulagsstofnunar frá 1. ágúst sl., þar sem lagst er gegn fyrirhugaðri Kárahnjúkavirkjun vegna verulegra og óafturkræfra umhverfisáhrifa hennar, að borgar- stjórn Reykjavíkur lýsti andstöðu sinni við þátttöku Reykjavíkurborg- ar í framkvæmdinni. Hann sagði tímabært að Reykjavíkurborg stigi skrefið til fulls og hafnaði umræddri virkjun og greindi frá því að samtök eins og Umhverfisverndarsamtök Íslands og Náttúruverndarsamtök Íslands hefðu lýst yfir ánægju sinni með tillöguna. Mikil umræða Mikil og löng umræða varð um til- löguna og féllu stór orð á stundum. Alfreð Þorsteinsson (R) minnti á að borgarstjórn Reykjavíkur væri ekki örlagavaldur í málinu því ákvörðun um virkjanamál væri tekin í stjórn Landsvirkjunar og á Alþingi. Borg- arstjórn hefði kosið fulltrúa í stjórn Landsvirkjunar og ætlast væri til þess að þeir fjölluðu um þessi mál þar fyrir hönd borgarinnar og kæm- ust að niðurstöðu án íhlutunar borg- arstjórnar. Hann lýsti yfir mikilli andstöðu við tillöguna og sagðist vita að hún nyti ekki stuðnings meiri- hluta borgarfulltrúa. Um stórt mál væri að ræða og lagði hann til að til- lögunni yrði vísað til borgarráðs. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson (D) sagði ljóst að skiptar skoðanir væru um málið en hann sagðist vita að níu og jafnvel 10 borgarfulltrúar væru ósamþykkir tillögunni og myndu greiða atkvæði gegn henni. Hann taldi heppilegast að borgarstjórn tæki afstöðu í málinu, ef ekki á þess- um fundi þá á þeim næsta, því yrði málinu vísað til borgarráðs væri lík- legt að það gleymdist ofan í skúffu. Helgi Hjörvar (R) var á öndverð- um meiði og sagði að það gætu ekki verið trúarbrögð að það yrði að virkja á tilteknum stað á landinu. Hann sagði að borgarstjórn ætti aðra aðkomu að málinu og vitnaði m.a. í reglugerð um Landsvirkjun varðandi skuldbindingar og sagði að borgarstjórn þyrfti að gefa sam- þykki fyrir þeim skuldbreytingum sem um væri að ræða. Hann sagði ennfremur að sveitarsjóði væri óheimilt að gangast í ábyrgðir fyrir öðrum skuldbindingum en sveitar- sjóðsins sjálfs og stofnana hans. Hann sagði að raða þyrfti virkjunum í forgangsröð og virkja samkvæmt henni. Anna Geirsdóttir (R) sagðist vera efnislega samþykk tillögunni en Júlíus Vífill Ingvarsson (D) sagðist styðja fyrirhugaða Kárahnjúkavirkj- un eindregið og vera á móti tillög- unni. Hann sagði að Helgi Hjörvar ætti að segja sig úr stjórn Lands- virkjunar. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóritók upp hanskann fyrir Helga og sagði að málflutning- ur Júlíusar Vífils væri honum og sjálfstæðismönnum til skammar. Helgi Pétursson (R) sagðist vera mótfallinn tillögunni en lýsti yfir fullu trausti á alla fulltrúa borgar- stjórnar í stjórn Landsvirkjunar. Sigrún Magnúsdóttir (R) sagði ekki rétt að tillaga eins og væri til um- ræðu væri flutt í borgarstjórn á þessu stigi, en í atkvæðagreiðslu voru níu borgarfulltrúar samþykkir því að vísa henni til borgarráðs en sex sjálfstæðismenn voru á móti. Skynsamlegasta leiðin Ólafur F. Magnússon sagði að eins og hlutirnir hefðu þróast á fundinum hefði niðurstaðan ekki komið á óvart og því væri hann eftir atvikum sáttur við afgreiðslu málsins. „Auðvitað hefði ég viljað að borgarstjórn Reykjavíkur endurspeglaði með skýrum hætti vilja meirihluta borg- arbúa, en það virðist nokkuð málum blandið hvort svo sé þannig að ég taldi í stöðunni farsælast og skyn- samlegast að menn sameinuðust um að vísa þessu máli til borgarráðs til nánari skoðunar.“ Morgunblaðið/Golli Júlíus Vífill Ingvarsson til vinstri og Helgi Hjörvar til hægri háðu mikla rimmu á fundi borgarstjórnar í gær- kvöldi en á milli þeirra er Gunnar Eydal, skrifstofustjóri borgarstjórnar. Fyrirhuguð Kárahnjúkavirkjun rædd í borgarstjórn Tillögu um andstöðu vísað til borgarráðs Á ÞRIÐJA tug ökumanna var stöðv- aður fyrir of hraðan akstur í Kópa- vogi í gær. Nú stendur yfir sam- vinnuverkefni milli lögreglunnar í Kópavogi og umferðardeildar ríkis- lögreglustjóra þar sem fylgst er með ökuhraðanum í bænum. Sérstaklega er fylgst með umferðinni í skóla- hverfum. Að sögn lögreglu er ökuhraðinn víða allt of mikill og eru dæmi um að ökumenn séu teknir á allt að 90 km hraða á götum þar sem leyfður há- markshraði er 50 km á klst. Þá er það áhyggjuefni lögreglu að margir ökumenn eru að tala í símann og því ekki með hugann við aksturinn. Á þriðja tug tekinn fyrir hraðakstur BORGARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær að fresta afgreiðslu tillögu frá borgarfulltrúum Reykjavíkurlistans varðandi það að borgarstjórn óski eft- ir viðræðum við ríkisstjórn um að stjórn staðbundinnar löggæslu í Reykjavík flytjist hið fyrsta frá ríki til borgar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri fylgdi tillögunni úr hlaði. Hún sagði tímabært að borgin tæki við umræddri löggæslu því ríkisvaldið veitti ekki næga þjónustu á þessu sviði. Umræða í þessa veru hefði verið látlaus frá a.m.k. 1988, þar sem fram hefði komið óánægja borgara og borgaryfirvalda með þjónustuna í lög- gæslumálum í borginni. Hún benti á að í nóvember 1994 hefðu sjálfstæð- ismenn lagt fram tillögu í borgar- stjórn um að sveitarfélögum yrði veitt heimild til að hafa með höndum stjórn staðbundinnar löggæslu. Þá hefði Gunnar Jóhann Birgisson m.a. sagt í framsögu með tillögunni að „við get- um ekki verið endalaust í þeirri stöðu að þurfa sífellt að vera að skora á dómsmálayfirvöld eða ríkisvaldið að gera betur. Við hljótum einhvern tím- ann að þurfa að standa upp og segja bara einfaldlega: Ríkisvaldið hefur brugðist skyldum sínum. Við viljum taka þetta verkefni að okkur.“ Borg- arstjóri bætti við að þessi orð ættu líka við nú, sjö árum síðar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagði að sjálfstæðismenn hefðu alltaf verið opnir fyrir þessari breytingu. Hann áréttaði samt að lögreglan hefði unnið þarft verk og staðið sig vel og mik- ilvægt væri að Reykjavíkurborg og lögreglan ættu gott samstarf. Hann sagði að sjálfstæðismenn vildu skoða tillöguna rækilega, rétt væri að borg- arfulltrúar fengju meiri tíma til að kynna sér málið og óskaði eftir að af- greiðslu þess yrði frestað milli funda. Stjórn staðbundinnar löggæslu frá ríki til borgar Afgreiðslu frestað í borgarstjórn MIKILL fjöldi fólks var saman kominn í Laugardalshöll við opn- un sýningarinnar Heimilið og Is- landica 2001 í gærdag. Búist er við allt að þrjátíu þúsund gestum um helgina en sýningin er opin fram á mánudagskvöld. Á sýningunni kynnir fjöldi aðila vörur sínar og þjónustu er tengj- ast heimilinu og hestum. Þjónusta við fjármál, tryggingar og tóm- stundir fjölskyldunnar er meðal annars kynnt en auk þess eru til sýnis búsáhöld, húsgögn, innrétt- ingar og íslensk hönnun og hand- verk. Hluti sýningarinnar er helgaður íslenska hestinum og ýmsar vörur, svo sem fatnaður og reiðtygi og þjónusta á borð við reiðnámskeið og hestaleigur kynntar. Margskonar afþreying er í boði og er sérstakt leiksvæði fyrir börnin við Laugardalshöllina, svo og tívolí. Þá verður teymt undir börnum í Skautahöllinni og á kvöldin bregða leikarar og hross þar á leik í verkinu Hestagaldrar. Húsdýra- og fjölskyldugarðurinn er opinn fyrir sýningargesti alla helgina. Heimilið og Islandica er opin til 22 í kvöld, 10-19 á laugardag og sunnudag og frá 16-22 á mánudag. Morgunblaðið/Golli Gestir virða fyrir sér íslenska fatahönnun. Búist við allt að 30 þúsund gestum Heimilið og Islandica 2001 opnuð í Laugardalnum í gær FJÓRIR menn um tvítugt voru handteknir í fyrrinótt fyrir inn- brot í Árbæjarskóla. Mennirnir stálu fimm fartölvum og voru handteknir á bifreið við Vatns- endablett að lokinni eftirför lögreglu. Árvökull íbúi í nágrenni Ár- bæjarskóla varð var við grun- samlegar mannaferðir við skól- ann og tilkynnti málið þegar í stað til lögreglu. Fór lögregu- bíll strax á staðinn. Þrír mannanna hafa óveru- lega komið við sögu lögregl- unnar en einn þeirra á nokkru lengri afbrotaferil. Handtekn- ir eftir innbrot

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.