Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 6

Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞRÍR hjúkrunarfræðingar, sem starfa á neyðarmóttöku vegna nauðgunar á Landspítalanum í Foss- vogi og voru á útihátíðinni Eldborg á Kaldármelum um síðustu verslunar- mannahelgi, hafa sent landlækni greinargerð um ástandið sem skap- aðist á útihátíðinni og tillögur til úr- bóta. 22 stúlkur hafa nú leitað til neyðarmóttöku vegna nauðgunar um verslunarmannahelgi og voru fjórtán þeirra á Eldborgarhátíðinni. Landlæknisembættið hefur skip- að nefnd sem á að skila tillögum um úrbætur og kröfur um aðbúnað heil- brigðisstarfsfólks á útihátíðum og verður farið yfir skýrsluna þar. Nefndin mun koma með tillögur til starfshóps sem dómsmálaráðherra hefur skipað sem hefur það hlutverk að fara yfir gildandi lög og reglur er snerta skemmtanahald á útihátíðum. Meðal þess sem mjög er gagnrýnt í skýrslunni er að engir samráðs- fundir hafi verið haldnir á Eldborg- arhátíðinni, t.d. hafi ekki verið boðað til fundar þótt lögregla á svæðinu hafi þegar á föstudagskvöldinu vitað af smjörsýru á svæðinu. Lögregla hafi hvorki látið lækna né hjúkrunar- fólk á svæðinu vita að það þyrfti hugsanlega að taka á móti og með- höndla unglinga vegna þess. Fréttir um smjörsýru hafi ekki komið fram fyrr en á mánudag þegar lögregla hafði handtekið sölumann efnisins. Aðstaða fyrir neðan allar hellur á Eldborg Í skýrslunni kemur fram að að- staða sem ætluð var starfsmönnum á Eldborgarhátíðinni hafi verið fyrir neðan allar hellur og að neyðarmót- tökunni hafi ekki verið útveguð sú aðstaða sem gerð var krafa um. Rafmagn og upphitun í skúr sem ætlaður var til neyðarmóttöku vegna nauðgunar hafi t.d. dottið út fyrsta kvöldið og þar hafi ekki verið neitt rennandi vatn að fá. Aðstaðan hafi einnig verið of lítil til að taka á móti og hlúa að skjólstæðingum, hún hafi verið um fjórir fermetrar að stærð og aðeins búin þremur stólum og sól- bekk, sem ekki var hægt að leggja niður vegna þrengsla. Í skýrslunni kemur fram að ein þriggja stúlkna sem leituðu til neyðarmóttökunnar aðfaranótt 5. ágúst hafi nánast verið með ofkælingu og að langan tíma hafi tekið að hita hana upp við þær aðstæður sem þarna voru í boði. Í skýrslunni segir að gerð hafi ver- ið krafa um betri aðstöðu og að tjald- vagn hafi verið fenginn eftir fyrsta sólarhringinn. Hann hafi verið not- aður báðar seinni næturnar. Að- stæður þar hafi heldur ekki verið nógu góðar, t.d. hafi verið of mikið myrkur þar inni til að taka blóðpruf- ur. Einnig gera hjúkrunarfræðing- arnir athugasemdir um hvernig var búið að áfengisdauðum einstakling- um á hátíðinni. Þeir hafi legið á teppi í stálgámi sem var óupphitaður og opinn upp á gátt, með annað teppi of- an á sér. Hjúkrunarfræðingur at- hugaði líkamshita þeirra sem voru í gámnum og segir í skýrslunni að ein- staklingarnir hafi verið ískaldir. Gámurinn var hitaður eftir það, en ekki var brugðist við þeirri kröfu að ungmennin fengju dýnu. Allar útihátíðir verði auglýstar sem fjölskylduhátíðir Í tillögum hjúkrunarfræðinganna er lagt til að allar útihátíðir skuli vera skipulagðar með minnst hálfs árs fyrirvara, þær verði auglýstar sem fjölskylduhátíðir og að gerð verði krafa um skemmtidagskrá fyr- ir alla aldurshópa á þeim. Ungmenn- um undir 18 ára aldri skuli vera óheimill aðgangur nema í fylgd með forráðamönnum, eða ábyrgðar- mönnum, 20 ára eða eldri. Í auglýs- ingaherferð skuli koma skýrt fram að áfengisbann sé á mótssvæðinu og að leitað verði að áfengi. Áfengissala verði jafnframt bönnuð á mótssvæði. Þá leggja hjúkrunarfræðingarnir til að við skipulagningu útihátíða skuli haft samráð við heilbrigðisfull- trúa á viðkomandi svæði um aðstöðu á mótssvæðinu, með tilliti til slysa- hættu og þeirrar aðstöðu sem ætluð er til heilbrigðisþjónustu, í samráði við þá sem taka að sér öryggisþjón- ustu á svæðinu. Sömuleiðis að fari tala mótsgesta langt yfir áætlaðan fjölda verði tryggt að hægt sé að fá viðbótaraðstoð, en á Eldborgarhá- tíðinni hafi hver af hjúkrunarfræð- ingunum þremur einungis nýtt svefnaðstöðu, sem þeim var útveguð, í þrjá tíma hver vegna anna. Þá er lagt til að mótshaldari tryggi í sam- ráði við viðkomandi héraðslækni að viðbúnaður lækna á mótssvæðinu verði nægilegur vegna tilfallandi slysa og óhappa og að miðað verði við að hægt verði að beita þar lífsbjarg- andi aðgerðum. Einnig er lagt til að mótshaldari, fulltrúar heilbrigðisstarfsfólks, björgunarsveita og lögreglu, sem og aðrir skipuleggjendur hittist á und- irbúningstímanum og samþætti vinnubrögð sín. Tryggt verði að sam- ráðsfundir séu haldnir daglega með- an á hátíðinni stendur og að aðgengi að mótshaldara eða staðgengli hans sé ætíð tryggt. Jafnframt að starfs- menn þekki boðleiðir, hafi aðgang að símum, neyðarnúmerum og síma- númerum þjónustuaðila innan og ut- an mótssvæðisins. Margt fleira er gagnrýnt í skýrsl- unni, t.d. að mótsgestum hafi ekki verið gert kleift að komast af svæð- inu yfir mótstímann þar sem engar sætaferðir hafi verið skipulagðar, engin afþreying hafi verið í boði að degi til og að salernisaðstaða og hreinsun rusls hafi verið ófullnægj- andi. Landlækni skilað tillögum til úrbóta 22 stúlkur hafa leitað til neyðarmóttöku vegna nauðgunar um verslunarmannahelgina ÍSLENSKIR flugáhugamenn halda í dag í hópferð á stóra flug- sýningu í London, sem haldin er af Duxford-flugminjasafninu. Í hópnum verða tveir heiðursgestir, þeir Þorsteinn E. Jónsson, fyrr- verandi flugstjóri, og Úlfar Þórð- arson, fyrrverandi augnlæknir, í boði flugfélagsins Atlanta hf. Yfirmenn Duxford-flug- minjasafnsins hafa lýst miklum áhuga á komu Þorsteins á sýn- inguna og aðdáun á ferli hans sem orrustuflugmanns í breska flughernum í síðari heimsstyrjöld- inni. Hafa þeir óskað sérstaklega eftir að fá skipuleggja viðtöl við Þorstein í sjónvarpi, útvarpi og dagblöðum í Bretlandi. Í bréfi sem einn af stjórnendum flug- minjasafnsins sendi Gunnari Þor- steinssyni, fararstjóra hópsins, segir að Þorsteinn eigi að baki glæsilegan feril og er lýst sér- stökum áhuga á ljósmyndatöku af Þorsteini við Mk 5 Spitfire- orrustuflugvél, samskonar vél og Þorsteinn flaug í stríðinu. Stafar ætíð mikill ljómi af orrustu- flugmönnum úr seinna stríðinu. Á myndinni sitja þeir Þorsteinn og Úlfar í gamalli vél frá stríðs- árunum og við vélina stendur Gunnar Þorsteinsson, fararstjóri. Morgunblaðið/RAX Sækjast eftir viðtölum við Þorstein flugkappa ALLS höfðu borist 118 kærur til umhverfisráðuneytisins í gær vegna úrskurðar Skipulagsstofn- unar um umhverfisárif Kára- hnjúkavirkjunar, samkvæmt upp- lýsingum Magnúsar Jóhannessonar, ráðuneytisstjóra í umhverfisráðuneytinu. Kærufrest- ur rann út á miðnætti í fyrrakvöld en að sögn Magnúsar er óvíst hvort fleiri kærur eigi eftir að ber- ast sem póstlagðar voru áður en fresturinn rann út. Lögmenn Austurlands ehf. sendu um 100 kærur til umhverf- isráðherra fyrir hönd Austfirðinga vegna úrskurðar Skipulagsstofn- unar. Í sýnishorni af algengustu stjórnsýslukærunum sem lög- mannsstofan birtir á heimasíðu sinni er því m.a. haldið fram að Skipulagsstofnun hafi gerst sek um valdníðslu í úrskurði sínum. Stofnunin hafi byggt niðurstöðu sína á ólögmætum sjónarmiðum í þeim skilningi, að óeðlilegt mis- ræmi hafi verið á vægi einstakra hagsmuna umhverfishugtaksins. Þá séu þær sönnunarkröfur sem stofnunin geri misjafnar, eftir því hvort um staðhæfingu fram- kvæmdaaðila eða annarra aðila er að ræða. Gildi þar einu hvort þær staðhæfingar lúti að einstökum dýrategundum, náttúrunni að öðru leyti eða landnýtingarmöguleika. Undantekningarlaust leggi Skipu- lagsstofnun til grundvallar þá skoðun sem sé andstæð skoðunum framkvæmdaaðila. Boðið að senda lögmönnunum verkbeiðni um kæru Austfirska lögmannsstofan bauð almenningi upp á þá þjónustu að kæra Kárahnjúkaúrskurðinn og gátu þeir sem vildu sent lögmönn- unum verkbeiðni á Netinu og valið úr nokkrum fyrirfram gefnum málsástæðum eða komið með sína eigin. Fram kemur á heimasíðu Lög- manna Austurlands að kærurnar voru ekki allar samhljóða en boðið var upp á nokkra möguleika, svo sem að kært væri á þeim forsend- um að Skipulagsstofnun hefði ekki tekið nægilegt tillit til hagsmuna austfirsks samfélags, eða að stofn- unin hefði ekki lagt rétt mat á efnahagslegan ávinning þjóðarbús- ins af framkvæmdinni. Úrskurður um umhverfisáhrif Kárahnjúkavirkjunar 118 kærur hafa borist FÉLAGSFUNDUR Geðlækna- félags Íslands sendi í gær Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra ályktun, þar sem mótmælt er harð- lega boðaðri 20% fækkun rúma rúma á bráðadeildum Landspítala- háskólasjúkrahúss. „Félagsmenn hafa miklar áhyggjur af því hvernig niður- skurðarstefna framkvæmdastjórn- ar Landspítala bitnar í vaxandi mæli á geðsjúkum og öðrum sem þurfa á geðheilbrigðisþjónustu að halda á hinum ýmsum stofnunum og deildum Landspítala-háskóla- sjúkrahúss. Hvetja félagsmenn framkvæmdastjórn Landspítala til að fylgja þeirri stefnu heilbrigðis- ráðherra að fækka ekki enn frekar bráðarúmum fyrir geðsjúka heldur leita allra leiða til að laða fagfólk til starfa á geðsviði. Félagsmenn vekja athygli á því að þessar breyt- ingar ganga þvert á tillögur ítar- legrar skýrslu um stefnumótun í geðheilbrigðismálum sem heil- brigðisráðherra lét vinna árið 1998,“ segir í ályktun fundarins. Stjórn félagsins óskað eftir fundi með ráðherra um málið hið fyrsta. Mótmæla 20% fækkun rúma

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.