Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 14

Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MIKILL meirihluti íbúa í Mosfellsbæ er ánægður með sorphirðu í bænum ef marka má viðhorfskönnun sem send var út á vegum Staðardag- skrár 21 í júní síðastliðnum. Skiptar skoðanir eru um ástand gatna og bílastæða en dýraeftirlit í bænum er ófull- nægjandi að mati flestra svar- enda. Sendur var út spurninga- listi til allra heimila og fyrir- tækja í bænum og bárust svör frá 165 aðilum sem er um það bil 10% af heimilum í bænum. Spurt var um álit á hreins- un og hirðingu á gróðri og opnum svæðum, um akvegi, bílastæði, gangstíga, reiðleið- ir og snjómokstur. Þá var spurt um umhverfi skólanna og annarra opinberra mann- virkja, einnig um sorphirðu og dýrahald og að lokum um hvað annað væri hægt að gera til að fegra og bæta bæinn. Ánægja með hreinsun og hirðingu grasflata Í heildina séð er fólk nokk- uð ánægt með hreinsun og hirðingu grasflata og beða og hið sama má segja um trjá- plöntun í hverfum bæjarins. Meirihluti svarenda telur ástand gatna og bílastæða gott þó að skoðanir séu skipt- ar í því máli. Hið sama má segja um snjómokstur en í at- hugasemdum kemur fram að betur megi moka gangstéttir, ekki eigi að moka fyrir inn- keyrslur og að litlar götur séu stundum látnar bíða of lengi eftir mokstri. Margir hafa sitthvað að at- huga við gangstéttir og kant- steina en í greinargerð frá að- standendum könnunarinnar segir að oft hafi athugasemdir lotið að stígum sem búið er að malbika frá því að könnunin var gerð. Flestir töldu sig komast leiðar sinnar á reiðhjóli en rúmur helmingur svarenda hafði ekki skoðun á reiðstíg- um. Þeir sem tóku afstöðu skiptust um það bil til helm- inga eftir því hvort þeir teldu reiðstíga fullnægjandi eða ekki. Nokkrir nefndu að reið- stígar hlytu að vera ófull- nægjandi vegna þess að hestamenn notuðu göngustíg- ana of mikið sem reiðgötur. Sorpgjald fari eftir þyngd og flokkun auðvelduð Hvað varðar sorphirðu í bænum þá var meirihluti ánægður með hana. Einstaka íbúi vildi þó hafa betri mögu- leika á að losna við flokkað sorp og að sorpgjaldið ætti að fara eftir þyngd svo að þeir sem stæðu sig vel í sorpflokk- un þyrftu ekki að borga fyrir hina. Mikill meirihluti taldi að dýraeftirlit væri ófullnægj- andi og höfðu orð á að lausa- ganga katta og hunda væri ófullnægjandi. Bent var á að mikið væri af lausum köttum og hundum og athugasemd kom um að hrossaskítur væri víða á göngustígum. Loks var spurt hvort við- komandi vissi hvað Staðar- dagskrá 21 væri og töldu 77 prósent sig vita það en 75 pró- sent aðspurðra voru á því að Mosfellsbær tæki þátt í henni. Jóhanna B. Magnúsdóttir, verkefnisstjóri Staðardag- skrár 21 í Mosfellsbæ segir að þar sem svörunin hafi ekki verið meiri en raun ber vitni sé ljóst að ekki sé um afger- andi niðurstöður að ræða. „Engu að síður er þetta góð vísbending auk þess sem við fáum mjög margar góðar at- hugasemdir um hvað megi betur fara. Þarna er mikið af athugasemdum um að það megi laga enda á gangstétt og ýmislegt þess háttar sem er gott að fá en eru kannski ekki stórmál.“ Hún segir að nú sé rætt um það hvernig verði brugðist við þeim athugsemdum sem fram komu í könnuninni. „Meðal annars komu fram sterkar skoðanir varðandi dýrahaldið og þá munum við fara í það að ræða um reglurnar, hvernig þær eru og efla eftirlitið.“ Aðspurð segir hún að hrossaskítur á göngustígum sé líklega sérmosfellskt vandamál enda mikið um hestamenn í bæjarfélaginu. „Það er nú verið að vinna mik- ið í göngustígunum og stígum almennt og þá mun þetta verða merkt betur og hesta- mönnum bent á hvaða leiðir þeir geta farið í staðinn. Sums staðar vitum við um veika hlekki sem þarf að laga varð- andi reiðleiðirnar.“ Hverfissamtök verði far– vegur fyrir athugasemdir Þetta er í fyrsta sinn sem slík könnun er send út til íbúa bæjarins en að sögn Jóhönnu getur verið að annar háttur verði hafður á í framtíðinni. „Þetta verður kynnt á svoköll- uðum hverfisfundum sem bæjarstjóri hefur haldið und- anfarin ár og verða nú í haust. Þar munum við hvetja til þess að það verði stofnuð hverfa- samtök og þá viljum við helst að þessar upplýsingar og þessar athugasemdir fari í þann farveg,“ segir hún. Könnun á viðhorfi bæjarbúa til umhverfis þeirra og bæjarfélagsins Telja dýraeftirlit ófullnægjandi Mosfellsbær GAMLA pósthúsið og lög- reglustöðin, sem standa við Pósthússtræti 5 og 3, hafa ver- ið auglýst til leigu en það er Íslandspóstur sem er eigandi húsanna. Til stendur að leigja húsin í einu eða tvennu lagi að undan- skilinni aðalgötuhæð póst- hússins ásamt kjallara og porti á bak við. Húsið við Pósthússtræti 3 var byggt árið 1880 sem lög- reglustöð og var notað sem slíkt um áratuga skeið. Í greinargerð frá Eignamiðlun- inni, sem sér um að leigja út húsið, segir að unnið hafi verið að endurnýjun á húsinu innan- húss og kappkostað að koma því í upprunanlegt horf þó ekki sé búið að endurnýja það allt. Innangengt er úr húsinu yf- ir í Pósthússtræti 5 þar sem gamla miðbæjarpósthúsið var en það var byggt árið 1915. Þar eru 2. og 3. hæð hússins til leigu auk riss og hafa hæðirn- ar báðar verið endurnýjaðar. Að sögn Sverris Kristins- sonar hjá Eignamiðluninni hefur Íslandspóstur hug á að hafa þarna vistvæna starfsemi sem fellur vel að miðborginni. Aðspurður segist hann því ekki gera ráð fyrir að þarna kæmi veitingastaður eða áþekk starfsemi. Húsin eru laus til leigu nú þegar. Gamla pósthúsið og lögreglustöðin til leigu Óskað eftir vistvænni starfsemi í húsið Miðborg Morgunblaðið/Ásdís Gamla lögreglustöðin og pósthúsið sem nú er til leigu. LEIKSKÓLINN Tjarnarás var opnaður með pomp og prakt á mánudag og þessa dagana eru námfús börn að stíga sín fyrstu skref í leikskólanum. Um er að ræða fjögurra deilda, einkarek- inn leikskóla og er áætlað að þar geti verið 90 börn samtímis. Það eru Íslensku menntasamtökin sem reka Tjarnarás en leikskólastjóri er Hjördís Fenger. Morgunblaðið/Ásdís Úti að leika á nýjum stað Hafnarfjörður SKIPULAGS- og byggingar- nefnd Reykjavíkur hefur samþykkt að auglýsa breyt- ingu á aðalskipulagi og deili- skipulagi vegna færslu Hring- brautar milli Bjarkargötu og Rauðarárstígs. Í afgreiðslu nefndarinnar var málinu vísað til borgarráðs. Breyting á skipulagi verði auglýst Hringbraut RÚMAR tvær vikur eru nú í að umferð verði hleypt á mis- lægu gatnamótin á mótum Reykjanesbrautar og Breið- holtsbrautar sem nú eru í smíðum. Að sögn Magnúsar Einars- sonar, umsjónarmanns hjá Vegagerðinni, er stefnt að því að koma umferð á gatnamótin þann 22. september. „Það er allt á fullum dampi núna. Ég held að það sé yfir 100 manns á svæðinu og ætli það séu ekki um 50 tæki þarna að snúast,“ segir hann. Inni í þeim framkvæmdum sem stefnt er að því að klára í haust, er brúin sjálf auk gönguleiða sem m.a. tengja Árskóga við Mjódd. „Næsta vor göngum við svo frá gróðri og landmótun þarna í kring,“ segir Magnús. Hann segir umferð á svæð- inu hafa gengið vel fyrir sig þrátt fyrir umfang fram- kvæmdanna og býst við að svo verði áfram. Fjárhagsáætlanir virðast einnig ætla að standast að sögn Magnúsar en um er að ræða framkvæmdir fyrir rúman milljarð króna. Hundrað manns og 50 vinnuvélar Mjódd Morgunblaðið/RAX ♦ ♦ ♦ UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur milli Hafnar- fjarðarbæjar og FM-húsa ehf. um byggingu og rekstur hús- næðis fyrir leikskóla á Hörðu- völlum. Um er að ræða einka- framkvæmd en Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, undirritaði samninginn sl. mánudag með fyrirvara um samþykki bæj- arstjórnar. Leikskóli í einkafram- kvæmd Hörðuvellir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.