Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 16
AKUREYRI
16 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRYSTITOGARINN Mánaberg
ÓF 42 kom til heimahafnar í Ólafs-
firði á sunnudag með mesta afla-
verðmæti sem togarinn hefur fengið
í 14 ára sögu sinni.
Aflaverðmætið er um það bil 136
milljónir króna. Mánaberg fór út í
þessa veiðiferð þann 31. júlí og kom á
sunnudag og tók veiðiferðin því 32
daga.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Mánaberg við bryggju í Ólafsfirði eftir mettúr.
Metveiði hjá
Mánabergi ÓF
FRAMKVÆMDIR við dýpkun
Fiskihafnarinnar á Akureyri eru
hafnar en það er Björgun ehf.
sem vinnur verkið. Fyrirtækið
átti eina tilboðið í verkið og hljóð-
aði það upp á 22,5 milljónir
króna, eða 83% af kostnaðar-
áætlun.
Alls verður dælt upp 58.000
rúmmetrum af efni úr höfninni og
er það flutt á fyllingar norðan við
flotkvína hjá Slippstöðinni og í
Krossnes. Dýpkunarskipið Perla
er notað til verksins en verklok
eru áætluð 1. desember nk.
Morgunblaðið/Kristján
Efni úr Fiskihöfninni dælt úr dýpkunarskipinu Perlu.
Fiskihöfnin dýpkuð
ELLEFU umsóknir bárust um
stöðu forstöðumanns Framkvæmda-
miðstöðvar Akureyrarbæjar. Hér er
um nýja stöðu að ræða en Fram-
kvæmdamiðstöð fer með daglega
stjórnun framkvæmda á vegum bæj-
arins og heyrir undir framkvæmda-
deild.
Umsækjendur um stöðuna eru;
Aðalgeir Hólmsteinsson, Benedikt
Guðmundsson, Bjarni Jón Matthías-
son, Friðleifur Ingi Brynjarsson,
Guðni P. Kristjánsson, Jón Birgir
Gunnlaugsson, Lárus Páll Pálsson,
Reynir Hugason, Tryggvi Marinós-
son, Stefán Kristján Pálsson og
Sveinn Björnsson.
Unnið er að því að endurskipu-
leggja starfsemi umhverfis- og
tæknisviðs bæjarins. Forstöðumað-
ur framkvæmdamiðstöðvar hefur
umsjón með daglegum rekstri mið-
stöðvarinnr ásamt verklegum fram-
kvæmdum. Helstu verkefni fram-
kvæmdamiðstöðvar eru rekstur og
viðhald opinna svæða, garða, gatna,
holræsa, véla og tækja ásamt sorp-
hreinsun.
Forstöðumaður Framkvæmda-
miðstöðvar Akureyrarbæjar
Ellefu umsóknir
um stöðuna
BÆJARRÁÐ Akureyrar hafnaði
enn og aftur tilboðum í endurbætur
á Hafnarstræti/göngugötu á fundi
sínum í gær. Ásgeir Magnússon,
formaður bæjarráðs, sagði að þessi
niðurstaða þýddi að sínu mati að
ekki yrði ráðist í þessar fram-
kvæmdir nú í haust eins og til stóð.
„Tilboðin eru vel yfir kostnaðar-
áætlun og það var búið að ræða við
þessa aðila um stöðu málsins og
ákveðið að bjóða verkið út aftur.
Þegar verkið er svo boðið út aftur
koma menn með nákvæmlega sömu
tölurnar en þó búnir að hræra í
þeim með einhverjum hætti. Ég sé
því ekki hvers vegna okkur ætti að
vera fært að taka tilboðunum núna,
sem okkur var ekki fært að taka á
sínum tíma. Bæjarráð tók aðeins
ákvörðun um að hafna tilboðunum
en það hefur ekki verið tekin nein
ákvörðun um framhaldið,“ sagði
Ásgeir.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hafði framkvæmda-
ráð hafnað báðum tilboðunum sem
bárust í verkið í byrjun ágúst.
Hálfum mánuði síðar samþykkti
framkvæmdaráð að leggja til við
bæjarráð að gengið yrði til samn-
inga við lægstbjóðanda á grundvelli
tilboðs fyrirtækisins og þá með til-
liti til breytinga sem nauðsynlegt
var að gera á hönnun verksins.
Þessu hafnaði bæjarráð í síðustu
viku og samþykkti að bjóða verkið
út að nýju í lokuðu útboði milli
þeirra tveggja aðila sem buðu í
verkið. Tilboðin voru á nánast
sömu nótum og í fyrra skiptið og
hafnaði bæjarráð þeim báðum á
fundi sínum í gær.
G. Hjálmarsson hf. bauð tæpar
49 milljónir króna í bæði skiptin,
eða 133% af kostnaðaráætlun, en
GV-gröfur ehf. buðu rúmar 62
milljónir króna í seinna útboðinu,
eða um 168% af kostnaðaráætlun,
og hafði fyrirtækið lækkað sig um
tvær milljónir króna frá fyrra til-
boðinu. Einnig sendi fyrirtækið
þrjú frávikstilboð í seinna skiptið.
Kostnaðaráætlun bæjarins hljóðaði
upp á tæpar 37 milljónir króna.
Enn hafnar bæjarráð tilboðum í
Hafnarstræti/göngugötu
Framkvæmdir
hefjast ekki í haust
HALLDÓRA Helgadóttir myndlist-
arkona opnar sýningu á olíumálverk-
um í glugga Samlagsins í Kaup-
vangsstræti, Listagili á laugardag, 8.
september.
Sýningin mun standa til og með
23. september og er öllum sýnileg
sem leið eiga um Gilið hvenær sem
er sólarhrings. Þetta er þriðja einka-
sýning Halldóru sem lauk námi frá
Myndlistarskólanum á Akureyri
vorið 2000 og hefur starfað að mynd-
list síðan.
Halldóra sýnir
í Glugganum
♦ ♦ ♦
MIKILVÆGT er að tölvutengingar
um allt Norðurland eystra verði
stórbættar svo jafna megi aðstöðu til
náms að mati aðalfundar Eyþings,
samtaka sveitarfélaga í Eyjafjarðar-
og Þingeyjarsýslum.
Nettengingar eru í algerum
ólestri víða á svæðinu, tengingar eru
seinvirkar og gera þarf ítrekaðar til-
raunir til að ná sambandi. Þegar það
loks næst er hraðinn mun minni en
þar sem tengingar virka á eðlilegan
hátt. Sambandið rofnar hvað eftir
annað og af því hlýst mikill kostn-
aðarauki. „Þessum málum þarf að
kippa í liðinn hið fyrsta. Ekki er
nægjanlegt að þetta sé á 2–5 ára
áætlun hjá Símanum, vegna þeirrar
öru þróunar og tæknimöguleika sem
nú eru í boði,“ segir í greinargerð
með ályktun um jöfnun aðstöðu til
náms sem samþykkt var á aðalfund-
inum.
Aðalfundur Eyþings
Netteng-
ingar víða
í ólestri
♦ ♦ ♦
TILKYNNING TIL VIÐSKIPTAMANNA
JÓNASAR ÞORSTEINSSONAR EHF.
AKUREYRI
Félagið Jónas Þorsteinsson ehf. var stofnað á árinu 1993 til
að annast ýmsa þjónustu við sjávarútveginn, svo sem
viðgerðir og stillingu áttavita og sölu á sjókortum og ýmsum
vörum til sjávarútvegsfyrirtækja. Aðaleigendur félagsins voru
Jónas Þorsteinsson og Halldór Hallgrímsson.
Nú hefur tekist samkomulag um kaup Magnúsar Hafsteins
Skaftasonar á félaginu og tekur hann við rekstri þess frá og
með 1. september 2001.
Við fyrri eigendur viljum hér með þakka viðskiptavinum okkar
fyrir traust og góð viðskipti á liðnum árum og væntum við og
hinn nýi eigandi þess að fyrirtækið njóti áfram þessara
viðskipta.
Akureyri 31. ágúst 2001.
Jónas Þorsteinsson,
Halldór Hallgrímsson,
Magnús Hafsteinn Skaftason.
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is