Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 17
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 17
ÁRMÚLA 21, 533 2020
HANDKLÆÐAOFNAR
Mikið úrval
handklæðaofna
á baðherbergið.
Stærðir frá 60-181 cm.
ÁFERÐ: HVÍT EÐA
KRÓMLITUÐ.
FJÖLBRAUTASKÓLI Suðurnesja
hefur fengið landspildu við Rósa-
selsvötn til að rækta skóg. Í gær
gróðursettu 30 útskriftarnemar á
haustönn samtals um 300 trjá-
plöntur á landinu.
Gróðursetningin fer fram í sam-
vinnu við Skógræktarfélag Suð-
urnesja sem útvegar land, trjá-
plöntur og annað sem til þarf. Í gær
voru gróðursett alaskavíðir og
greni. Halldór Magnússon, formað-
ur félagsins, kveðst ánægður með
starfskraftinn og vonast til að fleiri
skólar leggi skógræktarstarfinu
lið. Nemendur eins grunnskóla
Reykjanesbæjar, Heiðarskóla, hafa
einnig gróðursett tré á svæðinu.
Ólafur Jón Arnbjörnsson, skóla-
meistari, segir að því stefnt að út-
skriftarnemar fari vor og haust að
vötnunum og gróðursetji um 1000
plöntur á hverju ári. Hann segir að
gaman sé fyrir nemendurna að taka
þátt í að rækta skóg og skilja eftir
sig varanlega eign til gagns og
ánægju fyrir sjálfa sig og aðra íbúa
svæðisins.
Útskrift-
arnemar
rækta skóg
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Hildur Rós Hjartardóttir, Ingibjörg Erla Þórsdóttir og Margrét Arna
Eggertsdóttir, sem allar útskrifast frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja fyrir
jólin, voru í gærmorgun að gróðursetja tré í fyrsta skipti á ævinni. Þeim
fannst gaman og sögðu alltaf áhugavert að prófa eitthvað nýtt.
Reykjanesbær
SÝNING á höggmyndum Erlings
Jónssonar stendur nú yfir í Bíla-
kringlunni, Grófinni 8 í Keflavík.
Sýningin var opnuð á Ljósanótt.
Hún verður opin um helgina en lýkur
14. september.
Erlingur, sem nú stendur á sjö-
tugu, var fyrstur manna útnefndur
listamaður Keflavíkurbæjar. Gerði
hann af því tilefni listaverkið
„Hvorki fugl né fiskur“ sem reist var
í skrúðgarðinum. Þeir sem útnefndir
hafa verið listamenn Keflavíkur og
Reykjanesbæjar fá afsteypu af lista-
verkinu og nöfn þeirra eru skráð á
fótstall styttunnar.
Erlingur starfaði um langt skeið
sem handavinnukennari í Keflavík
og var þá frumkvöðull að stofnun
Baðstofunnar sem er mikilvægur
þáttur í menningarlífi Reykjanes-
bæjar. Síðustu sautján árin hefur
hann starfað að list sinni í Noregi og
jafnframt starfað sem lektor og síðar
prófessor við listaháskóla í Osló.
Hann er félagi í landssamtökum
norskra myndhöggvara og hefur
haldið listsýningar víðsvegar um
Noreg.
Sýningin í Bílakringlunni er opin
alla virka daga frá kl. 8 til 18 og
stendur til 14. sept. Einnig verður
opið nú um helgina frá klukkan 14 til
18.
Morgunblaðið/Jim Smart
Erlingur Jónsson segir frá.
Verk Erlings Jónssonar
sýnd í Bílakringlunni
Reykjanesbær
GOLFVÖLLURINN í Grindavík
hefur verið stækkaður um fjórar
brautir. Stækkunin var formlega tek-
in í notkun um helgina á vígslumóti
þar sem jafnframt var minnst tuttugu
ára afmælis Golfklúbbs Grindavíkur.
Völlurinn er nú þrettán holur að
stærð og hefur uppbygging verið jöfn
og góð án þess að klúbburinn væri að
skuldsetja sig.
Sigurvegarinn í þessu fyrsta móti á
nýjum velli var Gísli Jónsson og í öðru
sæti var Guðmundur Sveinbjörnsson.
Bæjarstjórinn í Grindavík, Einar
Njálsson, kom færandi hendi í tilefni
dagsins og afhenti klúbbnum í afmæl-
isgjöf 500 þúsund króna ávísun frá
Grindavíkurbæ.
Stoltir af golfskálanum
„Næsta stórmót er Kóngsklappar-
mótið sem er elsta opna mótið í
klúbbnum. Við höfum haldið okkur
svolítið við gömlu örnefnin á staðnum
og er það nafn komið þannig til,“ segir
Aðalgeir Jóhannsson, formaður Golf-
klúbbs Grindavíkur. Hann segir að
eftir sé að snyrta nýju brautirnar.
„Eftir þessa reynslu af stækkun held
ég að innan skamms verði þessi völlur
18 holur enda nóg landrými. Við spil-
um á þessum velli allt árið enda völl-
urinn alveg niðri í fjöru en það má
segja að nágrannarnir okkar í fiskeld-
inu bjargi okkur með mest alla vökv-
un.
Félagarnir eru orðnir 150 og jöfn
og góð fjölgun í klúbbnum. Golfskál-
inn okkar er gamalt hreppstjóraset-
ur, byggt 1930, þar á eftir höfðu skát-
ar í Keflavík afnot af húsinu, þá var
það notað sem fjárhús og hlaða. Við
komum að því eftir að það brann en
þá voru aðeins eftir steyptir veggir og
plata. Við erum afskaplega stoltir af
því að hafa bjargað þessu merkilega
húsi“, sagði Aðalgeir Jóhannsson.
Golfklúbbur Grindavíkur heldur upp á tvítugsafmæli
Fjórum
nýjum
brautum
bætt við
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Einar Njálsson bæjarstjóri afhendir Aðalgeiri Jóhannssyni, formanni
Golfklúbbs Grindavíkur, fjárstyrk bæjarins.
Grindavík
SAMFYLKINGIN í Reykjanesbæ
er þessa dagana að kanna vilja
félagsmanna til þess hvernig velja
eigi frambjóðendur á lista flokksins
við sveitarstjórnarkosningar á vori
komanda. Boðið er upp á nokkra
kosti, allt frá uppstillingu uppstill-
ingarnefndar til galopins prófkjörs.
Stjórn Samfylkingarinnar í
Reykjanesbæ hefur sent félags-
mönnum bréf þar sem þeir eru beðn-
ir að segja álit sitt á fyrirkomulagi
uppstillingar. Fólk er beðið að raða
upp fimm eða sex valkostum. Meðal
annars er boðið upp á opið prófkjör,
prófkjör meðal félagsmanna, mis-
munandi gerðir skoðanakönnunar og
kjör uppstillingarnefndar til að setja
saman framboðslista.
Jafnframt er félagsmönnum boðið
að stinga upp á nýjum einstaklingum
í framboð.
Niðurstöður könnunarinnar verða
lagðar fyrir félagsfund sem áformað-
ur er í lok mánaðarins en þar á að
taka ákvörðun um fyrirkomulag
framboðs Samfylkingarinnar.
Könnun hjá Samfylkingunni
Reykjanesbær
GERÐAHREPPUR hefur gefið út
upplýsingamöppu fyrir nýja íbúa
undir heitinu Velkomin í Garðinn.
Fyrirhugað er að þýða útdrátt á
ensku og pólsku vegna þess hversu
margir nýir íbúar koma frá öðrum
löndum.
Að sögn Sigurðar Jónssonar sveit-
arstjóra kom hugmyndin að útgáf-
unni upp á námskeiði sem starfsfólk
Gerðahrepps sótti. Kom þar fram að
fólk sem kæmi nýtt í plássið vissi lít-
ið um hvað þar væri í boði. Var því
ákveðið að ráðast í að safna saman
upplýsingum um starfsemi stofnana
og félaga í sveitarfélaginu og setja
saman í upplýsingamöppu. Að sögn
Sigurðar er þetta tilraun og verður
bætt við upplýsingum og þær upp-
færðar eftir því sem ástæða þykir til.
Nýir íbúar fá upplýsingarnar þeg-
ar þeir skrá sig á hreppsskrifstof-
unni. Í Garðinum er tiltölulega hátt
hlutfall íbúa af erlendu bergi brotið
og telur Sigurður nauðsynlegt að
þýða útdrátt á ensku og pólsku til
þess að upplýsingamappan komi að
fullum notum.
Upplýsing-
ar fyrir
nýja íbúa
Garður