Morgunblaðið - 07.09.2001, Síða 18
LANDIÐ
18 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HUGVITSMAÐURINN Guðmund-
ur Ragnar Guðmundsson hefur
fundið upp nýtt samskiptatæki til
nota milli fjarlægra staða. Tækið,
sem hann nefnir Remotavision,
byggist á búnaði sem settur er upp á
endastöðvum fjarskiptanna.
Búnaðurinn samanstendur af
tveimur kössum, annar eins og bakki
en hinn er eins og djúpur rammi.
Blöð eru lögð í „inn bakkann“ á öðr-
um staðnum en birtast síðan í ramm-
anum á hinum staðnum ríflega degi
síðar.
Remotavision-fjarskiptabúnaður
hefur verið settur upp í Skaftfelli –
menningarmiðstöð á Seyðisfirði og í
kaffihúsinu Gráa kettinum í Reykja-
vík til þess að skapa tengingu þar á
milli.
Guðmundur er þekkktur maður
innan tölvugeirans og hefur unnið
þar margt afrekið. Hann segir hug-
myndina að Remotavision hafa vakn-
að er hann ætlaði sér að koma mynd-
um og skjölum fljótt á milli
Seyðisfjarðar og Reykjavíkur. Fljót-
virkustu leiðina taldi hann í fyrstu
vera um Vefinn. Kostnaður og
tæknilegir gallar komu þó í veg fyrir
að þessi leið væri fær.
Kynning og formleg opnun búnað-
arins var í Skaftfelli – menningar-
miðstöð á Seyðisfirði laugardaginn 1.
september. Öllum er velkomið að
nýta fjarskiptabúnaðinn til sam-
skipta milli þessara staða.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Nýtt tæki til að
tengja Seyðisfjörð
og Reykjavík
Seyðisfjörður
SKÍÐADEILD Leifturs í Ólafs-
firði hélt nýlega skíðamannahóf í
skíðaskálanum í Tindaöxl.
Tilefnið var m.a. að veita Birni
Þór Ólafssyni smáþakklætisvott
fyrir áratuga störf að skíða-
málum í Ólafsfirði. Veitti deildin
honum steinplatta, sem myndaði
útlínur Íslands.
Þá veitti Skíðasamband Íslands
Birni Þór æðsta heiðursmerki
skíðasambandsins, Heiðurskross-
inn. Það var Daníel Jakobsson,
ritari sambandsins, sem veitti
orðuna og kom fram í máli hans
að aðeins örfáir einstaklingar
hafa hlotið þetta æðsta merki
SKÍ.
Morgunblaðið/Haraldur
Björn Þór Ólafsson í Ólafsfirði
hefur verið sæmdur æðstu heið-
ursorðu Skíðasambands Íslands
fyrir störf sín.
Skíða-
frömuður
heiðraður
Ólafsfjörður
NÝTT snyrtihús fyrir ferðafólk við
Drekagil austan undir Dyngjufjöll-
um í Ódáðahrauni var vígt nú fyrir
skömmu.
Ferðafélag Akureyrar hefur rek-
ið þjónustu fyrir ferðafólk við
Drekagil allt frá árinu 1968 þegar
félagið reisti þar skálann Dreka.
Við Drekagil hafa til þessa einungis
verið þurrsalerni og engin baðað-
staða.
Vorið 2001 byggði Ferðafélag
Akureyrar vandað snyrtihús á Ak-
ureyri, 44 fm að stærð. Í húsinu eru
sex vatnssalerni: fjögur fyrir al-
menning, eitt með sérstöku aðgengi
fyrir fatlaða og eitt fyrir starfsfólk.
Þá eru tvær gaskyntar sturtur í
snyrtihúsinu, auk geymslurýmis.
Yfirsmiður við byggingu hússins
var Hilmar Antonsson.
Föstudaginn 10. ágúst 2001 var
snyrtihúsið flutt á stórum flutninga-
bíl frá Akureyri að Drekagili. Dag-
inn eftir var húsið fest niður á und-
irstöður og vatns- og skólplagnir
tengdar. Snyrtihúsið var síðan vígt
sunnudaginn 12. ágúst. Tómas Ingi
Olrich, alþingismaður og formaður
Ferðamálaráðs Íslands, flutti þar
ávarp og opnaði húsið formlega.
Snyrtihúsið verður opið yfir sum-
armánuðina, frá seinni hluta júní og
fram í byrjun september, meðan
skálavarsla er við Drekagil.
Tómas Ingi Olrich, alþingismað-
ur og formaður Ferðamálaráðs
Íslands, opnar snyrtihús Ferða-
félags Akureyrar við Drekagil.
Nýtt snyrtihús
við Drekagil vígt
Hálendið
Morgunblaðið/Ingvar Teitsson
Vinnuhópurinn frá Ferðafélagi Akureyrar sem gekk frá snyrtihúsinu við Drekagil. Með hópnum á myndinni er
Tómas Ingi Olrich, alþingismaður og formaður Ferðamálaráðs Íslands.
SIGRÍÐUR Gísladóttir, myndlistarmaður og fyrrver-
andi hótelstýra á Búðum, tók fyrstu skóflustunguna
að nýju hóteli á Búðum síðastliðinn sunnudag í blíð-
skaparveðri. Fjöldi gesta var viðstaddur athöfnina,
bæði úr Reykjavík og Snæfellsbæ. Var það mál
manna að mikil fengur væri að nýju hóteli á Búðum
og vænta menn þess að þar verði hægt að byggja
upp svipaðan sjarma og einkenndi gamla hótelið.
Eigendur og forsvarsmenn Hótel Búða höfðu sett
upp veislutjald þar sem gat að líta teikningar af
fyrirhugaðri hótelbyggingu og arkitekt hússins
kynnti þær fyrir gestum meðan þeir gæddu sér á
grillmat og öðrum veitingum sem boðið var upp
á.
Fyrsta skóflustungan
Hellnar/Snæfellsbær