Morgunblaðið - 07.09.2001, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 07.09.2001, Qupperneq 19
inni sitja Bjarni Ármannsson, Sig- urður Atli Jónsson, Tryggvi Pálsson, Þorkell Sigurlaugsson, Ró- bert Agnarsson, Þorgeir Eyjólfsson og Jón Arnalds. Stefnt er að skráningu hlutabréfa í Símanum eftir að sölu til almenn- ings og tilboðssölu lýkur en salan fer fram dagana 19.-21. september. Kjölfestufjárfesti skylt að gera yfirtökutilboð? Landssíminn hefur tilkynnt um, eins og kunnugt er orðið, að sá kjöl- festufjárfestir sem kemur til með að eignast 25% eignarhlut í félaginu fyrir árslok og möguleika á 10% hlut að ári liðnu fái meirihluta stjórnarmanna félagsins, eða fjóra af sjö. Í reglugerð nr. 432/1999 um yf- irtökutilboð í opinberlega skráðum hlutafélögum segir að hafi aðili öðl- ast rétt til að tilnefna meirihluta stjórnar félags, eða hafi á grundvelli samnings við aðra hluthafa rétt til að ráða yfir sem nemur 50% at- kvæða í félaginu þá beri honum skylda til þess að gera minnihluta yfirtökutilboð í hlutabréf sín. Hreinn Loftsson, formaður fram- kvæmdanefndar um einkavæðingu, vildi í gær ekki tjá sig um málið en vísaði á skráningar- og útboðslýs- ingu Landssímans sem birt verður í næstu viku. Síminn sæk- ir um undan- þágu til VÞÍ LANDSSÍMI Íslands hefur sótt um undanþágu til skráningar hluta- bréfa á Verðbréfaþingi Íslands þar sem einungis 24% hlutafjár verða seld á næstunni. Beiðnin verður tekin til umfjöllunar á stjórnarfundi Verðbréfaþings á mánudag. Í reglum um skráningu verðbréfa á Verðbréfaþingi Íslands, 9. grein, eru tíunduð skilyrði fyrir skráningu hlutabréfa á Aðallista. Meðal skil- yrða er að dreifing eignarhalds skuli vera þannig að a.m.k 25% hlutabréfanna og atkvæðisréttar séu í eigu almennra fjárfesta. „Með almennum fjárfestum er átt við aðra aðila en stjórn, lykilstjórnend- ur og einstaka hluthafa sem eiga 10% eða meira, sem og aðila fjár- hagslega tengda þeim, svo sem maka, sambýlinga og ólögráða börn, svo og móður- eða dótturfélög. Eignarhald almennra fjárfesta skal dreifast á að minnsta kosti 300 hlut- hafa.“ Þá segir í greininni að stjórn Verðbréfaþings geti veitt tíma- bundna undanþágu frá skilyrðum um dreifingu,mæli rök með því. Enginn vanhæfur Samkvæmt upplýsingum frá VÞÍ er enginn stjórnarmaður þingsins talinn vanhæfur og ekki er talin ástæða til að þeir stjórnarmenn sem tengjast Íslandssíma víki sæti þeg- ar fjallað verður um málið. Í stjórn- Reuters Jack Welch er talinn einn mikilhæfasti stjórnandi sinnar kynslóðar. JACK Welch, forstjóri General Electric, lætur af störfum í dag eft- ir að hafa stjórnað félaginu í tvo áratugi. Jeffrey R. Immelt tekur við af Welch sem forstjóri GE en segja má að yngri kynslóð stjórn- enda sé nú smám saman að taka við stjórn fyrirtækisins, segir í grein Business Week. Welch hefur náð gríðarlegum árangri sem stjórn- andi General Electrics og nú velta menn fyrir sér hvort hinir yngri stjórnendur General muni halda á lofti stjórnunarstíl Welchs eða breyta til. Welch kom auga á og innleiddi nær alla helstu þætti sem einkenna nú rekstur stórfyrirtækja: al- þjóðavæðingu, gæði vöru, áhersl- una á þjónustu í stað framleiðslu og möguleikana á viðskiptum á Net- inu. Þar fyrir utan hafa menn dáðst að því hvernig honum hefur tekist að laða fram krafta og hug- myndaauðgi ótrúlegs fjölda starfs- manna víðs vegar um heiminn. Sjálfur hefur Welch sagt að mik- ilvægasta skrefið á stjórnunarferli sínum hafi verið að hætta að líta til landmæra heldur heimsins alls. Tími nýs stjórnunarstíls runninn upp? Welch hefur samt fúslega við- urkennt að hafa gert mörg mistök á ferli sínum en hinn mikli árangur hans blasir hins vegar við í tölum: Frá 1982 og þangað til í fyrra hefur arðgreiðsla til hluthafa verið 25%. Sá sem keypti hlut í General fyrir 10.000 dali árið 1982 væri 677 þús- und dölum ríkari nú en til sam- anburðar má nefna að meðaltalið fyrir S&P fyrir sama tímabil er 194 þúsund dalir. Sumir segja að tími stjórnenda á borð við Welch sé að mörgu leyti að hverfa og sjálfur hefur Welch sagt: „Stjórn fyr- irtækja mun í framtíðinni miklu síð- ur byggjast á stjórn og forystuhæfi- leikum eins manns. Það verður miklu meira um samráð og sam- vinnu meðal stjórnenda og starfs- manna.“ Welch hættir hjá General Electrics VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 19 ÚTVEGSBÆNDAFÉLAG Vest- mannaeyja krefst þess að fram fari opinber rannsókn á verðmyndun á gasolíu til fiskiskipa á Íslandi. Aðal- fundur félagsins hefur samþykkt ályktun þess efnis. Formaður þess, Magnús Kristinsson, segir að það sé eina leiðin að biðja um opinbera rann- sókn. Það dugi ekki lengur að stjórn- endur olíufélaganna komizt upp með það að svara því ekki af hverju Fær- eyingar geti boðið miklu ódýrari olíu. „Það er athyglivert að þegar við komum með olíuskip hingað til lands í desembermánuði í fyrra voru olíu- félögin allt í einu tilbúin að lækka verðið um 3 til 4 krónur en síðan hef- ur ekkert gerzt. Maður er alveg bú- inn að fá nóg og spyr sig að því hvort ekki sé rétt að fara að afskipa afurð- um okkar í Færeyjum til að taka olíu. Það skiptir milljónum króna fyrir stórt og eyðslufrekt skip. Það má taka dæmi af Huginn VE. Hann land- aði tæpum 2.000 tonnum af kolmunna í Færeyjum um daginn og tók þar 350.000 lítra af olíu. Það kostaði fjór- um milljónum krónum minna en að taka sama magn á Íslandi,“ segir Magnús Kristinsson. Olíuverð til fiskiskipa 43% hærra á Íslandi en í Færeyjum Ályktun félagsins er svohljóðandi: „Útvegsbændafélag mótmælir harð- lega þeirri verðlagningu sem er á olíu hér á landi. Á einu ári hefur olíuverð til skipa hækkað um 30% á sama tíma og viðmiðunarverð á gasolíu erlendis hefur einungis hækkað um 2,5% að teknu tilliti til gengisbreytinga á krónunni. Í dollurum reiknað hefur viðmiðunarverð á gasolíu á erlendum markaði lækkað um 17% á sama tíma. Verð á algengustu brennsluolíu til skipa er núna í byrjun september um 30 krónur lítrinn en sambærileg olía í Færeyjum er á 21 krónu hver lítri. Þannig er verðið hér á landi um 43% hærra en íslenzk fiskiskip geta keypt olíuna á í Færeyjum. Útvegsbændafélag Vestmanna- eyja skorar á samkeppnisyfirvöld að hlutast til um að verðlagning íslenzku olíufélaganna á brennsluolíu til fiski- skipa verði könnuð.“ Tilfærslu aflamarks til þorsk- aflahámarksbáta mótmælt Útvegsbændafélagið mótmælir einnig harðlega þeirri ákvörðun sjáv- arútvegsráðherra að svipta útgerðir aflamarksskipa aflahlutdeild í ýsu, steinbít og ufsa og færa útgerðum þorskaflahámarksbáta. „Þessi tilflutningur frá aflamarks- skipum í Vestmannaeyjum í ofan- greindum tegundum nemur á 600 og 700 tonnum, þar af tæpum 600 tonn- um af ýsu og er ekki bætandi á allar þær veiðiheimildir í þorski sem farið hafa frá aflamarksskipunum undan- farin ár. Útgerðir í Vestmannaeyjum hafa séð á bak verulegum aflaheimildum vegna gegndarlausra veiða króka- báta. Þannig hafa sjómenn og fisk- vinnslufólk í Vestmannaeyjum séð á bak störfum sínum og bæjarfélagið orðið af miklum tekjum. Hvorki fyr- irtæki né almenningur í Vestmanna- eyjum mega við frekar geðþótta- skerðingu stjórnvalda í þessu efni,“ segir í ályktun fundarins. Flýja mikla veiði Loks skoraði fundurinn á sjávarút- vegsráðherra að endurskoða úthlut- un á ufsa og ýsu með aukningu í huga: „Það hefur sýnt sig að undan- farin tvö haust hefur verið mikil ufsa og ýsugengd við suðurströndina. Núna síðustu daga hefur það borið við að skip hafi þurft að flýja undan mikilli veiði.“ Krefjast opinberrar rannsóknar á verðmyndun á olíu FÉLAG viðskipta- og hagfræðinga stendur fyrir opnum hádegisverðar- fundi þriðjudaginn 11. september nk. kl: 12-13:30 á Radisson SAS, Hótel Sögu, Ársal, 2. hæð. Á fund- inum verður fjallað um hvort fyrir- tæki gangi of langt í markaðssetn- ingu og rýri þar með traust hluthafanna. Fyrirlesarar á fundinum eru: Finnur Sveinbjörnsson fram- kvæmdastjóri Verðbréfaþings Ís- lands og Sigurður Atli Jónsson for- stjóri Landsbréfa. Traust hluthafa horfið? Fjármögnunarfyrirtækið Lýs- ing hf. skilaði 43,1 milljónar króna hagnaði eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins, en hagnaðurinn á sama tíma í fyrra nam 78,6 milljónum króna. Hagnaðurinn dregst því saman um rúm 45% á milli tímabila. Útlán Lýsingar hf. námu alls 16.810 milljónum króna sem er aukning um rúma tvo milljarða frá áramótum þegar útlán námu 14.526 milljónum króna. Heildareignir Lýsingar eru upp á tæpa 17,7 milljarða króna en voru 15,6 milljarðar um áramót. Eigið fé er 1.365 milljónir króna en var 1.255 milljónir um áramót. Eiginfjárhlutfall er 9,91% en var 10,48% á sama tíma í fyrra og arðsemi eigin fjár lækkar úr 12,6% um mitt ár í fyrra í 6,9% nú. Hagnaður Lýsingar dregst saman

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.