Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 25

Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 25 Funahöfða 1 www.notadirbilar.is Elstir á höfðanum - en ferskir Lada Sport 1.7 nýskr. 06/01. Ek. 1 þ. d. grænn 5g. 31“dekk og fl. V. 1.390.000. Áhv. 700.000. R.no. 111422. Ford Explorer LTD 4.0 árg 1996. Ek. 83 þ. svartur ssk. leður og fl. verð 2.390.000. TILBOÐ 1.990.000. R.no. 150882 Pontiac Fiero 2.8 árg. 1988. Ek. aðeins 62 þ. ssk. rauður og fl. einstakur gullmoli. V. 900.000. R.no. 131079 Subaru Impresa 2.0 nýskr. 09/97. Ek. 97 þ. 5g. silfur og fl. V. 1.090.000. Áhv. 600þ. R.no. 110979. AMC Cherokee ltd. nýskr. 01/99. Ek. 44 þ. d. grænn m/öllu og sóllúgu. V. 3.990.000. Áhv. 1.900.000. R. no. 111431. AMC Wrangler Shahara 4.2l árg. 97. Ek. 46 þ. d. blár ssk. plasthús, álfe. og fl. V.1.790.000. R.no. 1114436. VW Bjalla 2.0 basiclane nýskr. 07/97. Ek. 44 þ. rauður 5g. o fl. V. 1.500.000. Áhv. 800.000. R.no. 111437. Subaru Forrester nýskr. 10/97. Ek. 44 þ. d. grænn ssk. og fl. V. 1.550.000. R.no. 111408. BMW 318ia nýskr. 01/99. Ek. 35 þ. d. blár ssk, o. fl. V. 2.250.000. Áhv. 1,600þ. R.no. 111381. Subaru Legacy stw nýskr. 06/01. Ek. 1þ. silfur ssk. og fl. V. 2.390.000. Áhv. 930þ. R. no. 131036 MÁLARINN Árni Rúnar Sverr- isson á langan og samfelldan feril að baki í sýningarhaldi, það langan að hægt er að krefjast þess af hon- um að hann hafi skapað sér afger- andi persónulegan stíl. Sýning hans í Gallerí Reykjavík ber þess ekki nógu skýr merki því Árni er greinilega undir áhrifum frá ýms- um listamönnum, bæði samtíma- mönnum sínum og látnum meist- urum málaralistarinnar. Auk þess er listamaðurinn greinilega að prófa sig áfram með tækni og ólíka beitingu pensilsins og titlar mynd- anna vísa ekki í eina átt heldur. Allt þetta sundurleysi skapar óró- leika inni á sýningunni, sem og inn- an einstakra verka, og kemur niður á heildarsvip sýningarinnar. Sem dæmi um myndir þar sem augljós áhrif má sjá frá verkum annarra listamanna má nefna mynd númer 6, Vatn, sem minnir á ákveðin verk impressionistans Claude Monets, verk númer 9, Landbrot, sem minnir á verk koll- ega hans Tolla, mynd númer 11 er undir áhrifum frá Kristjáni Davíðs- syni, sjá má áhrif frá verkum Svav- ars Guðnasonar og áhrif frá Daða Guðbjörnssyni, bæði hvað varðar skreyti og litanotkun, eru áberandi í fleiri en einu verki, en ég bendi til dæmis á verk númer 7, Kraftur. Þannig fer listamaðurinn í ýmsar áttir í leit sinni að persónulegum stíl. Þrátt fyrir allt þetta verður ekki annað sagt um verkin en að þau séu glaðleg, litrík og lifandi. Árni málar af ástríðu og notar gul- an lit t.d. mikið sem gerir verkin allt annað en drungaleg. Það er hverjum listamanni nauð- synlegt að hafa persónulegan stíl. Persónulegur stíll mótast m.a. eftir umhverfinu, upplifunum lista- mannsins og rannsóknum á verk- um þeirra listamanna sem hann dá- ist að. En að lokum kemur að því að hrista þetta allt saman og fá út einhverja blöndu sem hægt er að kalla eigin stíl. „Auðveldasta“ leið- in er samt að vera maður sjálfur – alltaf! Morgunblaðið/Þóroddur Verk eftir Árna Rúnar. Vertu þú sjálfur MYNDLIST G a l l e r í R e y k j a v í k Opið virka daga kl. 10–18, laug- ardaga kl. 11–16. Til 8. sept. MÁLVERK ÁRNI RÚNAR SVERRISSON Þóroddur Bjarnason Í ÁR er öld liðin frá andláti Gunnars Wennerbergs. Hann var tvívegis kirkjumálaráðherra í Svíþjóð og mik- ils metinn. Hann var líka tónskáld – náttúrutalent – og samdi tónverk fyr- ir kirkjuna. Í dag væri hann senni- lega flestum gleymdur ef ekki væri fyrir þann eina ópus sem hann sór af sér og skammaðist sín fyrir. Það voru Glúntarnir, lagaflokkur um líf mátu- lega kærulausra en afar lífsglaðra stúdenta í Uppsölum um miðja 19. öld. Wennerberg samdi bæði lögin og ljóðin. Glúntarnir nutu gríðarlegra vinsælda hér á landi í áratugi og sönghneigðir herramenn heyrðust gjarnan taka einn eða tvo Glúnta í gleðskap. En hvaða erindi eiga Glúntarnir við okkur í dag? Ólafur Kjartan Sigurðarson og Bergþór Pálsson eru Glúnti og Mag- ister og hafa ráðist í að syngja söngva sína inn á geisladisk en ætla líka að syngja þá á tvennum tónleikum í Salnum, í kvöld og á sunnudagskvöld kl. 20 bæði kvöldin. „Það er kominn tími til að yngra fólk kynnist þessum kátu skemmtilegu söngvum,“ segir Bergþór, „það má segja að við finn- um heilmikið sameiginlegt með þeim og okkar stúdentsárum – það virðist ekki mikið hafa breyst frá því á 19. öld.“ Egill Bjarnason þýddi á sínum tíma texta Wennerbergs á sönghæft mál og þeir eru því sungnir á ís- lensku. „Þetta eru vel þýddir textar,“ segir Ólafur Kjartan, „og þjálir í munni. Egill nær stemmningunni vel.“ Horfa á stúlkurnar úr fjarlægð Í Glúntunum er sungið bæði um skólanámið, sem vill reynast skóla- piltunum erfitt, því þeir þurfa auðvit- að líka að sinna gleðskap. Inn á milli eru afar fallegar náttúrustemmning- ar þar sem þeir félagar njóta fegurð- ar náttúrunnar. En hvað með stelp- urnar? „Þeir horfa á þær úr fjarlægð,“ segir Bergþór, og Ólafur Kjartan bætir við: „Þetta voru menn sem ekki gátu séð fyrir sér að ganga að eiga konu alveg í bráð – ekki fyrr en þeir voru komnir í vinnu og betri efni. Þannig sjá þeir þetta allt í svolít- illi fjarlægð. Maður getur ímyndað sér að úr því að þeir gátu ekki leyft sér að snerta hönd stúlknanna hafi þeir kannski haft meiri tíma til að njóta fegurðarinnar í náttúrunni og verið næmari á hana fyrir vikið.“ Ætlum að sprella svolítið Ólafur Kjartan og Bergþór eru ekki síður glaðsinna félagar en Glúntinn og Magisterinn. „Við Berg- þór sungum saman í La Bohéme og ég hafði að minnsta kosti skemmtun af því að vinna með honum og það hefur haldist áfram yfir í Glúntana.“ „Það er gaman að kynnast þessari ærslafullu stemmningu og það er engin tilviljun að við Ólafur Kjartan höfum báðir valist í hlutverk fugla- fangarans Papagenós í Töfraflaut- unni í Íslensku óperunni.“ „Við erum svoddan fiðurfénaður við Bergþór að það hefðu engir aðrir látið plata sig í að syngja Glúntana, og við reytum af okkur hverja fjöður við þetta!“ segir Ólafur Kjartan. „Við ætlum að gera smásprell á tónleikunum og ekki vera rígbundnir við formlegheitin.“ En hvað ætla Glúntinn og Magisterinn að gera þegar þeir eru orðnir stórir? „Ná í Papagenu.“ „Ganga í Háskólakórinn,“ segja þeir sprellikarlar, og viðtalið er að leysast upp í tóma vitleysu. Bergþór getur ekki stillt sig um að segja okk- ur frá konu sem hann hitti í bænum í gær. „Hún fór að minnast á Óla Kjartan og hvernig hann hefði ein- hvern tíma sungið lagið um Elínu Helenu – af mikilli nautn: „Og ef þið tveir ætlið að fara að syngja nautna- söngva, þá mæti ég!““ Áður en Glúntarnir verða sungnir verður nýr flygill Salarins vígður. Þetta er Steinway-konsertflygill af bestu gerð, sérstaklega valinn af píanóleikurunum Jónasi Ingimund- arsyni og Peter Máté. Flygillinn kostaði um 8 milljónir króna, og var hann greiddur af Byggingarsjóði Tónlistarhúss Kópavogs og Bæjar- sjóði Kópavogs. Það verður Jónas Ingi- mundarson sem vígir flygilinn, en hann leikur með í Glúntum. En áður en að því kemur leikur Jónas Tungl- skinssónötu Beethovens. Ærslafull stemmn- ing hjá Glúntum Morgunblaðið/Ásdís Glúnti og Magister - Ólafur Kjartan Sigurðarson bassi og Bergþór Páls- son baríton bregða á leik í Salnum í kvöld og sunnudagskvöld. MARGIR muna glæsilega tón- leika Guitar Islancio og klarinettu- leikarans Jørgens Svare á síðustu Jazzhátíð. Á miðvikudagskvöldið endurtóku þeir leikinn – næstum; gesturinn var franski fiðlusnilling- urinn Didier Lockwood og efnis- skráin að miklu leyti helguð minn- ingu Stéphane Grappellis. Verkurinn var bara sá að eftir að hafa heyrt Didier flytja þessi lög með Bireli Lagrene og Niels-Henn- ing vantaði þá spennu í hrynleik Guitar Islancio sem snillingar á borð við þá tvímenninga geta byggt upp, þó samspil Didiers og Björns væri oft í heimsklassa. Á tónleikunum með Jørgen var leikur Guitar Is- lancio aftur á móti með þeim brag er hentar Jørgen best. Jørgen er nefni- lega svíngari af lífi og sál, en Didier módernisti. Didier var mikill vinur Stéphane Grappellis, en þeir eru ólíkir fiðl- arar. Didier er mótaður af Coltrane eins og landi hans Jean Luc Ponty og kraftmiklar strokur hans af ætt Stuff Smiths. Það er tónninn líka, oft grófur og rifinn. Þar er hann skyldari Finn Ziegler en Svend As- mussen, sem báðir eru af skóla Stuff – en dálítið penni sem danskra er háttur. Guitar Islancio hóf leikinn á Krummi svaf í klettagjá með fræg- um inngangi Björns og svo sté Did- ier á svið og plokkaði Les valseuses eftir Stéphane. Björn tók sóló á eftir Didier og var strax kominn á flug. Hann hélt sínu í víxlspuna við Did- ier í I got rhythm eftir Gershwin. Þar var hraðinn geigvænlegur, en eins og oftast kom það niður á sveiflunni. Að sjálfsögðu var gírað niður í Nuages eftir Django sem Didier kynnti á íslensku: Ský. Þar lék Gunnar Þórðarsson fallegan sóló af þeirri syngjandi rómantík sem honum er eiginleg. En ég kann bet- ur við túlkun Svend Asmussens á Django, hvort sem það er Nuages eða Minor swing, sem var á seinni hluta efnisskrárinnar. Didier lék tvö önnur lög sem gjarnan eru á efnis- skrá Asmussens, Pent up house eft- ir Sonny Rollins og meistaraballöðu Ellingtons: In a sentimental mood. Það sagði Didier hafa verið síðasta lagið er hann lék með Grappelli og Michel Petrucciani. Túlkun Asmus- sens á þeirri ballöðu jaðrar stundum við væmni, en í þá gryfju féll Didier ekki. Tónninn var rifinn og tættur í upphafi en skírðist er á leið uns hann ljómaði tær og skær. Björn lék sóló sinn af þeirri innlifun sem að- eins er á færi þeirra er hafa fullt vald yfir hljóðfæri sínu jafnt sem tónamáli hins klassíska djass. Didier er mikill húmoristi þó ekki hafi ég kunnað að meta sígaunagleð- ina í Minor swing. Aftur á móti fór hann á kostum í einleikslagi sínu, sem hann kallaði einfaldlega Sóló, og brá fyrir sig árstíðum Vivaldis jafnt og indverskum frösum með viðkomu á Balkanskaga og í Tyrk- landi og leit glaður til sólar í sum- artónunum eða lék dúetta með sjálf- um sér. Húmorinn í Barbizon blues var líka stórskemmtilegur og ópus- inn vel leikinn, jafnt af honum og tríóinu. Hann vitnaði í gríð og erg í barnagælur og notaði vava effektinn eins og brassið í Ellingtonbandinu. Björn, Gunnar og Jón áttu allir góða sólóa. Lokalagið var Spain eftir Chick Corea og þá var farið að hitna í kol- unum og samleikur þeirra fjór- menningar elegant. En það var ekk- ert aukalag því næstu tónleikar áttu að vera byrjaðir og það held ég að sé dálítill ljóður á ráði hinna snjöllu stjórnenda Jazzhátíðar Reykjavíkur að halda tvenna tónleika í sama húsi sama kvöld. Í það minnsta hefði ég þegið dálítið meira af Didier og Guitar Islancio þó farið væri að verkja í eyrun vegna hljóðkerfisins. Tættur, tær og skær DJASS K a f f i R e y k j a v í k Didier Lockwood fiðla, Björn Thor- oddsen og Gunnar Þórðarson gít- arar og Jón Rafnsson bassi. Mið- vikudagskvöldið 5.9. 2001. DIDIER LOCKWOOD OG GUITAR ISLANCIO Vernharður Linnet SÝNING á útskurðarverkum eftir Siggu á Grund, Sigríði Jónu Krist- jánsdóttur, verður opnuð í Sjóminja- safni Íslands, Vesturgötu 8, Hafnar- firði, í dag, föstudag, kl. 17. Verkin eru unnin í tré, horn og hvaltönn. Sigga á Grund býr á Grund í Vill- ingaholtshreppi í Árnessýslu en ólst upp á næsta bæ, Villingaholti. Sigga er að mestu sjálfmenntuð í útskurð- inum en var þó við nám um hálfs árs skeið í City and Guilds Art School of London fyrir fáum árum. Að því loknu vann hún í nokkra mánuði á tréskurðarverkstæði í Englandi. Ár- ið 1997 sótti hún námskeið hér á landi hjá Ian Norbury. Meðal við- fangsefna hennar eru styttur af ýmsu tagi, spænir, tóbakspontur, veggfjalir, skrauthillur, gestabækur, drykkjarhorn, bókahillur og askar. Sigga hefur tekið þátt í mörgum samsýningum og haldið einkasýn- ingar á Selfossi og í Kanada. Sýningin er opin alla daga frá kl. 13-17 fram til 1. október. Tréskurður í Sjóminja- safni Íslands Morgunblaðið/Golli Sigga á Grund kemur fyrir verkum í Sjóminjasafninu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.