Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 26

Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 26
LISTIR/KVIKMYNDIR 26 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ FRUMSÝNINGAR Swordfish Bíóhöllin, Kringlubíó, Bíóborgin. Town and Country Háskólabíó. Heartbreakers Stjörnubíó, Laugarásbíó. Shrek Bandarísk. 2001. Leikstjórar Andrew And- erson, Vicky Jenson: Handrit: Ted Elliott, ofl. Teiknimynd. Fjörug og væmnislaus ævintýra- mynd um hressari teknimyndafígúrur en menn eiga almennt að venjast. Pottþétt skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Bíóhöllin, Laugarásbíó, Kringlubíó. Tilsammans Sænsk. 2001. Leikstjóri og handrit: Lukas Moodyson. Aðalleikendur: Lisa Lindgren, Michael Nyqvist, Gustaf Hammarslen. Tragi- kómedía frá lauslátum tímum kommúna, blómabarna og frjálsra ásta í pipraðri Gautaborg. Leikur, handrit, leikstjórn í óvenju góðum höndum.  Háskólabíó. Planet of the Apes Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Tim Burton. Handrit: William Broyles o.fl. Aðalleikendur: Mark Wahlberg, Tim Roth, Helena Bonham Carter. „Endursköpun“ Burtons tekst ágæt- lega að fráslepptum endinum en hefur ekki sömu vikt og fyrri myndin. Wahlberg ágætur í Heston-rullunni en bestur er þó Tim Roth sem sérstaklega úrillur api.  Háskólabíó, Bíóhöllin, Kringlubíó, Laug- arásbíó, Regnboginn, Nýja bíó Keflavík, Borgarbíó Akureyri. Blow Dry Bresk/bandarísk. 2000. Leikstjórn: Paddy Breathnach. Handrit: Simon Beaufog. Aðal- leikendur: Alan Rickman, Natasha Richard- son og Rachel Griffiths. Gamandrama sem ristir aldrei djúpt en heldur góðum dampi með sínum skrautlegu persónum úr heimi hárgreiðslunnar.  Stjörnubíó. Bliktende lygter Dönsk. 2000. Leikstjórn og handrit: Anders Thomas Jensen. Aðalleikendur: Sören Pil- mark, Mads Mikkelsen, Nikolaj Lin Kaas. Vel gerð, á köflum vel leikin og skrifuð en graut- arleg, oft óþægileg, dönsk ofbeldisgrínmynd um fjóra smákrimma á flótta undan fær- eyskum óbótamanni og sjálfum sér.  Laugarásbíó. Bridget Jones Diary Bresk. 2001. Leikstjóri: Sharom Maguire. Handrit: Helen Fielding. Aðalhlutverk: Renée Zellweger, Hugh Grant, Colin Firth, Jim Broadbent. Sagan um ástamál Bridget verð- ur að hæfilega fyndinni, rómantískri gam- anmynd. Zellweger gerir margt gott í titilhlut- verkinu.  Bíóhöllin, Háskólabíó. The Fast and the Furious Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Bob Cohen. Handrit: Del Monte. Aðalleikendur: Vin Dies- el, Paul Walker, Jordana Brewster. Kappakst- ursmynd sem heldur manni við efnið og verður á endanum sæmilegasta sumaraf- þreying.  Háskólabíó, Bíóborgin, Bíóhöllin, Kringlu- bíó, Nýja bíó, Akureyri, Nýja bíó, Keflavík. Jurassic Park III Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Joe Johnston. Handrit: Peter Buchman, ofl. Aðalleikarar: Sam Neill, Villiam H. Macy, Téa Leoni. Fanta- góð della sem slær hátt upp í fyrstu myndina að gæðum. Fátt nýtt en allt er fagmannlega gert, spennan góð og leikararnir fínir.  Háskólabíó, Borgarbíó Akureyri. Rush Hour 2 Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Brett Ratner. Handrit: Jeff Nathanson. Aðalleikendur: Jackie Chan, Chris Tucker, John Lone. Þeir ná vel saman, bardagajaxlinn og vélbyssu- kjafturinn, annað skiptir ekki máli í grín- og spennumynd þar sem þeir endasendast frá Hong Kong til Vegas.  Laugarásbíó, Regnboginn. Virgin Suicide Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit: Sofia Coppola. Aðalleikendur: Kirsten Dunst, Josh Hartnett, James Woods, Kath- leen Turner. Ljóðrænar og tregafullar æsku- minningar um drauma sem breyttust í mar- tröð. Vel leikin og gerð en skortir herslu- muninn á flestum sviðum.  Háskólabíó. Kiss of the Dragon Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Chris Nahon. Handrit: Luc Besson. Aðalleikendur: Jet Li, Bridget Fonda. Klisjukennd og einfeldnings- leg saga um spillta varðstjórann, þöglu hetj- una og hjartagóðu hóruna. Bardagatriðin eru fín, Jet Li flottur en myndin mætti hafa eitt- hvað fleira til að bera en það. Bíóborgin, Bíóhöllin, Kringlubíó. Cats & Dogs Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Lawrence Gut- erman. Handrit: John Rena. Aðalraddir: Alec Baldwin, Sean Hayes, Susan Sarandon. Ein- föld saga og spennandi fyrir krakka. Annars ósköp klisjukennd og illa leikstýrð. Bíóhöllin, Kringlubíó, Nýja Bíó Akureyri. Animal Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit: Luke Greenfield. Aðalhlutverk: Rob Schneider, Colleen Haskell, John C. McGinley Regnboginn. Antitrust Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Pet- er Howell. Aðalleikendur: Ryan Phillippe, Tim Robbins, Claire Forlani. Það eru áhugaverðir punktar í handriti, en hún er því miður bæði leiðinleg og illa leikin. Bíóborgin. Brother Japönsk. 2001. Handrit og leikstjórn: Tak- eshi Kitano. Aðalhlutverk: Takeshi Kitano, Omar Epps. Yfirgengileg gangstermynd sem sækir sitthvað úr Scarface, en er hálfgert furðuverk. Bíóborgin. Evolution Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Ivan Reitman. Handrit: Abraham Vincente Nicholas. Aðal- leikendur: David Duchovny, Juliane Moore, Orlando Jones. Loftsteinn hrapar á Jörðina og getur af sér furðuskepnur í mislukkaðri gamanmynd Stjörnubíó. Dr Dolittle 2 Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit Steve Carr. Aðalleikendur Eddie Murphy, Jeffrey Jones, Kevin Pollak, Kristen Wilson. Agalega slök mynd um dýralækninn vinsæla. Sagan er of einföld og óáhugaverð og húmorinn lé- legur og ósmekklegur. Eddie Murphy má fara að hugsa sinn gang.  Regnboginn. Scary Movie 2 Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Keenan Ivory Wayans. Aðalhlutverk Keenan Ivory, Damon og Marlon Wayans. Útþynntum bröndurum fyrri myndaarinnar gengur illa að toga upp munnvikin og enginn er söguþráð- urinn til að fylgjast með. Nú er illt í efni. ½ Regnboginn. Bíóin í borginni Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir MAX (Sigourney Weaver) og Page (Jennifer Love Hewitt) eru sérlega snjallir svikahrappar, móðir og dótt- ir sem svíkja og pretta grunlausa, ríka menn. Þær eru einmitt með svikaplan í gangi sem þær beita sígarettumill- ann William B. Tensy (Gene Hackman), þeg- ar dóttirin gerir það sem hún hefði betur lát- ið ógert, verður ást- fangin. Brátt taka hlutirnir að gerast flóknari en þær hugðu, hefndar- þyrstur fyrrum eigin- maður er á hælum þeirra, þær finna lík í skotti bifreiðar sinnar og nýjasta svikamyllan er að hrynja til grunna. Þannig er söguþráð- urinn í bandarísku gamanmyndinni Heartbreakers, sem frumsýnd er í dag í Stjörnubíói og Laugarásbíói. Með aðalhlutverk- in fara Sigourney Weaver, Jennifer Love Hewitt, Gene Hackman, Jason Lee, Ray Liotta og Anne Bancroft. Leikstjóri er David Mirkin. „Það er eitthvað heillandi við Max og Page vegna þess að þær eru að reyna að hafa í sig og á, rétt eins og aðrir“ segir Weaver um aðalpersón- ur myndarinnar. „Það bara vill svo til að aðferðin sem þær nota er full- komlega óheiðarleg.“ Hún segir að í kjarna sögunnar sé að finna mjög tilfinningaþrungið samband milli móður og dóttur. „Það neistar oft á milli þeirra vegna þess að Max vill ekki missa dóttur sína frá sér en stúlkan vill standa á eigin fót- um. Þetta er vandamál sem ég held að allir foreldrar standi frammi fyrir. Það skiptir á endanum ekki máli hvernig þær fara að því að afla sér tekna, það er samband þeirra sem mestu máli skiptir.“ Og Weaver heldur áfram: „Bæði Max og Page eru sjálfstæðar, sterkar konur. Þær skipuleggja og gera áætlanir. Max er mjög öguð og ég kann vel við það í fari hennar. Henni finnst það mikil mistök þegar dóttirin eignast kærasta vegna þess að hún heldur að Page sé að gera sömu mistökin og hún sjálf gerði mörgum árum áður. Ég held að foreldrar séu alltaf hræddir við það.“ Jennifer Love Hewitt er kunn m.a. úr unglingahrollvekjunni I Know What You Did Last Summer og hún segir persónu sína í myndinni „eig- inlega til fyrirmyndar vegna þess að hún er ung kona sem veit hvað hún vill“. Leikarar: Sigourney Weaver, Jennifer Love Hewitt, Gene Hackman, Jason Lee, Ray Liotta og Anne Bancroft. Leikstjóri: David Mirkin (Romy and Michele’s High School Reunion). Svikaparið Stjörnubíó og Laugarásbíó frumsýna gamanmyndina Heartbreakers með Sigourney Weaver og Gene Hackman. Sigourney Weaver í hlutverki sínu í kvik- myndinni Heart- breakers. GABRIEL Shear (John Travolta) er stórtækur þjófur sem vill finna leið inn í tölvukerfi hins opinbera og stela úr sjóðum þess. Hann fær mikinn tölvufræðing, Stanley Jobson (Hugh Jackman), í lið með sér en hann er al- ræmdur tölvuþrjótur og hefur m.a. verið að stríða þeim hjá Alríkislög- reglunni þannig að honum er nú meinað að koma nálægt tölvum. Hann býr einsamall í húsvagni og tregar dóttur sína sem hann fær ekki að um- gangast eftir slæman skilnað. Aðstoðarmaður Gabriels er Ginger (Halle Berry) og hún lokkar Stanley til samstarfs með loforði um að hún muni hjálpa honum að komast í sam- band við dótturina og byrja nýtt líf. En Stanley kemst brátt að því að ekk- ert er eins og sýnist. Þannig er söguþráðurinn í spennu- myndinni Swordfish sem frumsýnd er í dag í fimm kvikmyndahúsum. Með aðalhlutverkin fara John Travolta, Hugh Jackman, Halle Berry, Don Cheadle, Vinnie Jones, Sam Shepard og Camryn Grimes. Leikstjóri er Dominic Sena. Framleiðandi er Joel Silver en handritið gerir Skip Woods. „Aðalspurningin í Swordfish snýst um það hvað vakir raunverulega fyrir persónunum,“ segir framleiðandinn Silver, sem kunnur er fyrir hasar- myndir sínar og nú síðast The Matrix. „Áhorfendur eru sífellt að velta því fyrir sér því enginn er það sem hann sýnist vera. Hver er vondur? Hver er góður? Gabriel er ekki hetjan í mynd- inni en er hann í raun vond persóna? Stanley er góði gæinn en hversu góð- ur er hann?“ „Gabriel er greinilega einhvers konar njósnari eða fyrrverandi njósn- ari,“ segir Travolta um manninn sem hann leikur í Swordfish. „Maður fær það á tilfinninguna að hann sé einhver annar en hann vill vera láta. Í útliti er hann eins og evrópskur kvennabósi en það þarf ekki endilega að þýða að hann sé það. Í hans huga er hann alls ekki vondi gæinn.“ Og áfram heldur Travolta: „Gabriel er einskonar föðurlandsvinur. Hann hefur sínar hugmyndir um hvernig best er að fást við alþjóðlega hryðju- verkamenn en það kostar mikla pen- inga að fást við slíka þrjóta og þar kemur Stanley til sögunnar.“ Ástralinn Hugh Jackman lýsir sinni persónu í myndinni sem hvers- dagslegum manni sem hafi lag á tölv- um og sé einn besti tölvuþrjótur í heimi. „Það eina sem hann lifir fyrir er dóttirin en hann fær ekki að um- gangast hana svo hann er mjög ör- væntingarfullur þegar við hittum hann fyrst.“ Leikarar: John Travolta, Hugh Jackman, Halle Berry, Don Cheadle, Vinnie Jones, Sam Shepard og Camryn Grimes. Leikstjóri: Dominic Sena (Gone in 60 Seconds). Af Travolta, tölvuþjófi og torræðum persónum Bíóhöllin, Kringlubíó, Bíóborgin, Nýja bíó Keflavík og Nýja bíó Akureyri frum- sýna nýjustu myndina með John Travolta, Swordfish. Atriði úr spennumyndinni Swordfish með John Travolta. Á YFIRBORÐINU gæti lífið ekki verið betra fyrir Porter, eiginkonu hans, Ellie, og bestu vini þeirra, Griffin og Monu. Þau eru öllsömul vel stæð, fljúga til Parísar á Concorde, stunda golf, eru meðlimir í fínum sveitaklúbbi, eiga stórkostlegar íbúð- ir í New York og halda glæsileg sam- kvæmi. Hins vegar er ekki allt eins og sýn- ist. Griffin, besti vinur Porters, við- urkennir einn daginn að hann haldi framhjá konu sinni, Monu. Við þessar fréttir snýst líf Porters algerlega á hvolf. Ekki er nóg með að hann frétti af því að Griffin lifi mjög gefandi, jafnvel villtu kynlífi, heldur er það sama að segja um börnin hans upp- komin og þjónustustúlkuna þeirra og reyndar um það bil alla nema hann sjálfan. Porter ákveður að láta til skarar skríða og leita þess sem hann telur að vanti svo sárlega í líf sitt og reynir hvað hann getur að halda framhjá eiginkonu sinni. Hann tekur að búa hjá vini sínum í skíðabæ í Sólardal í Idaho og kemst brátt að því að hugmyndir Griffins um gifturík sambönd eru að breytast. Þannig er söguþráðurinn í banda- rísku gamanmyndinni Town and Country, sem frumsýnd er í Háskóla- bíói í dag. Hún er með hóp þekktra leikara í aðalhlutverkum eins og Warren Beatty, Diane Keaton, Andie MacDowell, Garry Shandling, Jenna Elfman, Nastassja Kinski og Goldie Hawn en leikstjóri er Peter Chelsom. Handritið gera þeir Michael Laugh- lin og Buck Henry. Warren Beatty á að baki allglæst- an feril í Hollywood. Hann er fæddur árið 1937 og fór snemma út í leik- listina. Fyrsta bíómyndin hans var Splendor in the Grass árið 1961. Hann vakti strax athygli sem efnileg- ur leikari og ekki spillti fyrir að pilt- urinn var fríður sýnum. Nokkrar myndir fylgdu í kjölfarið en það var með gangstermyndinni Bonnie og Clyde, sem Beatty varð stórstjarna í Hollywood. Hann lék bankaræningjann Clyde og fram- leiddi myndina einnig en hún naut gríðarlegra vinsælda á hippatíman- um. Beatty hefur löngum verið fram- leiðandi og leikstjóri auk þess að leika og er Reds sú mynd sem hvað lengst mun halda nafni hans á lofti en hann gerði hana árið 1981 og fjallaði hún um bandarískan blaðamann sem upplifði byltinguna í Rússlandi árið 1917. Leikarar: Warren Beatty, Diane Keaton, Andie MacDowell, Garry Shandling, Jenna Elfman, Nastassja Kinski og Gold- ie Hawn. Leikstjóri: Peter Chelsom (The Mighty). Fína fólkið og framhjáhaldið Háskólabíó frumsýnir bandarísku bíó- myndina Town and Country með Warren Beatty, Diane Keaton og Goldie Hawn. Diane Keaton og Goldie Hawn í hlutverkum sínum í Town and Country.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.