Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 27

Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 27
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 27 Í TILEFNI af viku símenntunar sáum við ástæðu til að segja frá okkar reynslu af og gildi símenntunar fyr- ir fyrirtæki einsog Slippstöðina. Símennt- un má segja að sé grunnur mannauðsins og mannauðurinn grundvöllur vel starf- rækts fyrirtækis. Allt helst þetta í hendur og er mikilvægt í nútíma- samfélagi örrar þróun- ar á flestum sviðum. Á undanförnum ár- um hefur staða ís- lensks skipasmíðaiðn- aðar og málmiðnaðar heldur verið að versna. Menn hafa leitað skýr- inga á þessari þróun og bent á rekstrarumhverfi sem hefur skekkt samkeppnishæfni fyrirtækja í greininni. Ímynd þessara þjónustu- greina hefur farið halloka og menn innan greinarinnar sem utan orðnir samdauna því að stór viðgerðar- verkefni fari úr landi án þess að við getum nokkuð gert í því. Þótt ein- hverra skýringa megi leita í ytra umhverfi þá liggur grunnurinn að lausninni hjá okkur sjálfum, inni í fyrirtækjunum með þekkingu og reynslu starfsfólksins Slippstöðin á Akureyri Fyrir tveimur árum sameinaðist Slippstöðin hf. inn í Stáltak, en rekstur þess félags hefur gengið erfiðlega að undanförnu. Ein þeirra leiða sem farnar voru til að glíma við þessa erfiðleika var að skipta rekstrinum í upphaflegar einingar. Við endurreisn Slippstöðvarinnar leituðum við ráða hjá viðskiptavin- um okkar og fengum þær ábend- ingar að þörf væri fyrir þjónustu okkar, að við þyrftum að tryggja slagkraftinn og viðhalda og þróa þekkingu á okkar sviði. Með þetta að leiðarljósi höfum við tekið á málum fyrirtækisins. Í stað þess að vonast til að verkefnin kæmu til okkar og verða síðan fyrir vonbrigðum, þá fórum við að velta fyrir okkur hvað við gætum gert öðruvísi. Í framhaldi af því höfum við virkjað starfsmenn okkar og samstarfsaðila til að leggja upp með aðra nálgun við verkefni sem sem vænta mátti að hefðu farið úr landi. Með því að kynna okkur stöðu viðskiptavinar okkar og setja okkur í hans spor tókst okkur að greina það sem skipti HANN máli. Með því að virkja starfsmenn okkar betur tókst okkur að finna lausn sem gerir okkur samkeppnishæfa við þau erlendu fyrirtæki sem við höfum verið að glíma við og oftar en ekki þurft að lúta í lægra haldi fyrir. Hugvekjur Í Slippstöðinni búum við yfir miklum mannauði sem felst í mikilli þekkingu og reynslu. Þessi reynsla hefur orðið til í gegnum tæplega 50 ára þjónustu við sjávarútveginn. Þessi þekking býr ekki einvörð- ungu í tæknimönnum okkar, þótt við séum að sjálfsögðu stolt af þeim. Þessi reynsla býr í rúmlega 100 starfsmönnum okkar sem hafa allt upp í 35 ára starfs- reynslu í greininni. Með svokölluðum „hugvekjum“ höfum við sett af stað umræð- ur innan stöðvarinnar sem hafa leyst úr læð- ingi hluta þessarar reynslu sem okkar yngri starfsmenn hafa nýtt sér. Á „hugvekj- um“ setjast faghópar niður og fara yfir gæði, gildi og hættur sem tengjast þeirri þjónustu sem við veit- um. Með hreinskilnum umræðum höfum við fengið sjónarmið og reynslu upp á yfirborðið sem nýtast öllum og náum þannig fram aukn- um gæðum og framleiðni í okkar starfsemi. Virkjun þekkingar Í fyrirtæki eins og Slippstöðinni verður til þekking og reynsla sem menn fara að telja sjálfsagða. Það er fyrst þegar við missum starfs- menn til annarra starfa að við ger- um okkur grein fyrir skarðinu sem myndaðist. Verkamenn hafa sinnt mikilvægum störfum innan stöðv- arinnar í gegnum árin og sérþekk- ing þeirra hefur verið að aukast. Þegar við fórum að skoða leiðir til að auka framleiðni þá varð okkur fljótlega ljóst að mikill veltuhraði starfsmanna í þessari grein gat ver- ið mjög bagalegur fyrir fyrirtækið. Þetta gat m.a. falist í töfum, auk- inni hættu á slysum, göllum og auknum kostnaði. Fjölvirkjar Eins og við þekkjum öll þá skipt- ir fjárhagsleg afkoma einstaklinga miklu máli. Hún er þó ekki það eina sem skiptir máli. Þróun okkar sem einstaklinga, virðing sem við njót- um og atvinnuöryggi skiptir ekki síður máli. Þá fæddist hugmyndin að „fjölvirkjunum“ – kerfisbundinni uppbyggingu einstaklinga með áhuga og reynslu sem ekki höfðu hlotið menntun í iðngreinum. Hug- myndin hefur síðan verið unnin með starfsmönnum okkar, Iðju- Einingu, Félagi málmiðnaðar- manna á Akureyri, Símey og fleiri áhugasömum aðilum. Þótt „fjölvirkjanir“ séu ekki full- skapaðir þá erum við strax farin að njóta ávinnings af þessari þróun, en eins og allir vita þá snýst rekstur um það – að skapa ávinning og þar með forsendur til að greiða sam- keppnishæf laun um leið og við sköpum hluthöfum okkar arðsemi. Lokaorð Sú stefna sem við mótuðum varð- andi þekkingarfyrirtækið Slipp- stöðina og virkjun mannauðs virðist virka ágætlega. Andinn innan stöðvarinnar er á uppleið, við- skiptavinir taka okkur vel og við finnum breytingu gagnvart okkur í umhverfinu. Góð verkefnastaða um þessar mundir hefur gert það að verkum að hugvekjur og önnur uppbyggileg verk hafa þurft að bíða – en það breytir ekki því að skriðan er kom- in af stað og við ætlum okkur að fylgja henni eftir. Þótt við eigum eftir að gera miklu betur á komandi árum þá erum við sannfærð um að við séum á réttri leið, á leið þar sem við mun- um lifa og blómstra á þekkingu. Við hjá Slippstöðinni fögnum því viku símenntunar og munum leggja okkar af mörkum til að hún verði sem best. Virkjun mann- auðs, verðug leið til árangurs Jónatan S. Svavarsson Höfundur er verkfræðingur og hef- ur starfað undanfarna mánuði sem „gestaleiðtogi“ hjá Slippstöðinni á Akureyri. Símenntun Þróun okkar sem ein- staklinga, segir Jónatan S. Svavarsson, virðing sem við njótum og at- vinnuöryggi skiptir ekki síður máli. Í VIKU símenntunarer vert að staldra við og huga að málum sem tengjast símenntun. Starfsþróun er hluti af símenntun og öfugt, þar sem símenntun stuðlar að starfsþróun. En hvað er starfsþróun og hvers virði er hún? Hægt er að lýsa henni útfrá sjónarmiði fyrir- tækis annars vegar og hins vegar starfs- manns. Ef vel á að vera þarf starfsþróun að miða að sameiginlegu markmiði starfsmanns og fyrirtækis þar sem báðir aðilar geta vel við unað. Með aukinni menntun starfsmanns eykst meðal annars hæfni hans og víðsýni sem ætti að teljast fyrirtækinu til tekna. Mikilvægt er að halda vel utan um verðmæti fyrirtækja, svo sem eign- ir, peninga, byggingar og tæki. Mik- il verðmæti eru einnig fólgin í starfsmönnum fyrirtækja. Það má segja að á marga vegu sé erfiðara að halda utan um verðmæti sem fólgin eru í góðum starfsmönnum heldur en þau verðmæti sem eru áþreif- anlegri. Ein af aðalástæðunum er að starfsmenn eru ekki hlutir sem hægt er að meðhöndla eins og hverj- ar aðrar eignir fyrirtækis. Starfs- menn eru manneskjur sem bregðast við áreitum umhverfisins ýmist á já- kvæðan eða neikvæðan hátt allt eftir því hvernig eðli kringumstæðna er. Því má segja að starfsmenn séu við- kvæm verðmæti sem höndla þarf af kostgæfni. Miðað við það og hversu vel þarf að gæta að þeim verðmæt- um má ætla að fyrirtæki sé brýnt að reka markvissa starfsmannastefnu. Ætla má að þeir sem koma að starfsmannamálum fyrirtækja þurfi að sinna ráðgjöf í starfi sínu þar sem mikið er um tengsl við starfsmenn. Ráðgjöf í fyrirtækjum beinist að því að styrkja starfsmannastefnu þess með því að stuðla að því að starfs- maður auki færni í starfi sínu. Færni til að meta þá möguleika sem bjóðast varðandi þjálfun og fræðslu og færni til aukins persónulegs þroska. Ráðgjöf miðar einnig að því að starfsmaður móti sér framtíðar- stefnu varðandi starfsþróun sína. Þeir sem sinna starfsmannamál- um í stærri fyrirtækjum hafa ólíkan menntunarbakgrunn en eru þó flest- ir með háskólapróf. Náms- og starfsráðgjafi (ráðgjafi) býr yfir fag- legri þekkingu til að sinna ráðgjöf auk verkefna er lúta að starfs- mannastjórnun í nútímafyrirtækj- um. Hann hefur víðtæka þekkingu á mennta- og fræðslukerfinu, atvinnu- lífinu og þeim færniskröfum sem það gerir til einstaklinga. Hann býr yfir faglegri viðtalstækni þar sem leitast er við að afla persónulegra upplýsinga til dæmis varðandi vænt- ingar, áhugasvið og getu starfs- manns. Náms- og starfsráðgjafi hef- ur einnig fræðilegan grunn til þess að taka á persónulegum vanda- málum er upp kunna að koma hjá starfsmönnum. Það ræður úrslitum fyrir alla starfsemi fyrirtækja að búa yfir góðum mannafla og gæta að mann- auði sínum. Mannauður fyrirtækja getur verið grundvöllur að hagnaði þeirra. Greinin er byggð á lokaverkefni greinarhöfunda og Guðrúnar Láru Skarphéðinsdóttur sem skrifað var við félagsvísindadeild Háskóla Ís- lands, í náms- og starfsráðgjöf vorið 2000. Starfsþróun og hlutverk ráðgjafa í fyrirtækjum Sigurlaug Elsa Heimisdóttir Símenntun Með aukinni menntun starfsmanns, segja Aníta Jónsdóttir og Sigurlaug Elsa Heimisdóttir, eykst meðal annars hæfni hans og víðsýni sem ætti að teljast fyrirtæk- inu til tekna. Aníta er kennari og náms- og starfs- ráðgjafi að mennt og starfar sem náms- og starfsráðgjafi hjá Reyni – ráðgjafastofu, Akureyri. Sigurlaug Elsa er kennari, náms- og starfsráðgjafi að mennt og er starfs- mannastjóri Pizza Pizza ehf. sem rekur Domino’s Pizza á Íslandi. Aníta Jónsdóttir Í GREIN í laugar- dagsblaði Mbl. 1. sept. stiklaði Sigurður Jóns- son á stóru varðandi mikilvægi aðstöðu til íþróttamála hér á landi. Í grein Sigurðar kemur m.a fram að efling íþróttastarfs barna og unglinga og góð að- staða til slíkrar eflingar á íþróttastarfi sé lykill- inn að forvarnarstarfi. Sigurður hittir þarna naglann á höfuðið í máli sem allir þekkja og vita en því miður virðast margir kjósa að snið- ganga. Þarna er maður sem stendur í stræti með skýr og mikilvæg skila- boð en því miður virðast margir veg- farendur ganga framhjá án þess að aðhafast. Nýlega hefur verið framin gnægð innbrota í Reykjavík og víðar. Það er e.t.v dálítið undarleg tilfinn- ing að velta fyrir sér afbrotahegðun og af hverju þetta fólk sem framdi innbrotin framdi þau yfir höfuð. Þetta fólk framdi þau af neyð. Neyð- in kennir naktri konu að spinna. Háð fíkniefnum, féleysi, neyddist þetta veikgeðja fólk til að gera það sem það gerði og það er sorglegt. Þegar við veltum fyrir okkur rót vandans erum við þá ekki stödd hinum megin á ferl- inu? Þetta fólk var e.t.v börn sem léku sér í íþróttum fyrir fáum árum og höfðu unun af því að mæta á æf- ingar hjá hinum og þessum liðum, en vegna þess að þjálfaramál og aðstaða var í molum ásamt utanaðkomandi aðstæðum, heimilis og fleira sem leiddi til þess að þetta fólk lenti undir í þjóðfélaginu. Við verðum að hafa forgangsatriðin rétt hjá okkur og gera okkur grein fyrir því að mennt- un og þroski þeirra yngstu er það sem skiptir máli. En okkur hættir dálítið til að vera veikgeðja og leiðum hugann að hlutum sem skipta meira máli fyrir okkur sjálf. Knatt- spyrnuleikmenn sem hafa verið það heppnir að hafa haft góða þjálf- ara í yngstu flokkum, þjálfara sem skilur þarfir hvers og eins og getur kennt pollunum um lífið á sama tíma, búa að því í dag. Það er staðreynd að ef okkur sjálfum finnst það vera rétt sem við gerum þá líður okkur vel. Fólk sem fremur innbrot hlýtur að hafa hátt sjálfsálit, annað getur varla verið. Það trúir í blindni að verknaðurinn sé réttur og komi því sjálfu vel. En þetta fólk var eitt sinn lítil börn hlaupandi um malarvelli og spark- andi bolta einhvers staðar á landinu. Margir frægir íþrótta- og sparksér- fræðingar vita og segja að ef árangur á að nást þá þurfi menntunin að byrja sem fyrst. Þú segir ekki 12 ára barni að hlaupa 10 km, þú finnur hvað er best fyrir barnið á þeim stað á þeim tíma, þá nærðu e.t.v árangri til lengri tíma litið. Þá hefst einnig forvarnar- starfið af fullri alvöru. Af fenginni reynslu hefur maður sjálfur tekið eft- ir að þjálfarar í yngri flokkum haldi sig við ákveðinn fjölda leikmanna eingöngu vegna þess að þeir sýna strax hæfileika og einblíni á árangur þeirra í stað þess að hugsa frekar um þroska hvers og eins leikmanns þá og þegar á þeim stað og hugsa um ár- angur til lengri tíma litið. Auðvitað geta ekki allir náð árangri, við lifum ekki í fullkomnum heimi. Þess vegna má færa rök fyrir því af hverju sumir þjálfarar þjást af árangurstengdri „hraðablindu“ og mismuni rétti þeirra sem hæfileikaminni eru. En við getum reynt að stuðla að því að á rétti þeirra hæfileikaminni sé ekki brotið. Ef við lagfærum gallana fyrr, komum við í veg fyrir mistök síðar meir. Uppbygging og efling íþrótta- starfs yfir allt landið er besta for- vörnin gegn fíkniefnum, afbrota- hegðun og öðru böli mannkyns. Þetta er alveg eins í öllu öðru, t.d viðskipt- um ef þarfir hvers og eins viðskipta- vinar eru skoðaðar og reynt er að finna heildarlausn sem snýr að því mun betri árangur nást. Fleiri við- skiptavinir. Rétt eins og ef við eflum íþróttastarfið og bætum aðstöðuna á þeim stöðum þar sem þess er þörf, þá munu fleiri foreldrar koma að horfa á börnin, börnin munu finna fyrir mik- ilvægi og reyna að standa sig vel. Fleiri „viðskiptavinir“, færri vanda- mál. Og um leið stuðlum við að því langtímasjónarmiði að gera sam- félagið sem við lifum í betra. Og það er hægt. Í rótinni leynist upphafið að vandamálunum Þorbjörn Þórðarson Íþróttir Við stuðlum að því langtímasjónarmiði, segir Þorbjörn Þórðarson, að gera samfélagið sem við lifum í betra. Höfundur er nemi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.