Morgunblaðið - 07.09.2001, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 07.09.2001, Qupperneq 29
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 29 HUELLA Teg. HPH 332 Litir: Blár, brúnn og svartur Stærðir 35-41 Verð 16.990 HUELLA Teg. 322 Litir: Beige, brúnn, svartur og vínrauður Stærðir 35-41 Verð 16.900 ZINDA Teg. HPH 7031 Litir: Brúnn og svartur Stærðir 36-41 Verð 16.990 HUELLA Teg. HPH 336 Litir: Svartur og svart lakk Stærðir 35-41 Verð 16.990 Full búð af nýjum stígvélum HUELLA Teg. HPH 248 Litir: Brúnn, svartur, vínr/lakk og svart lakk Stærðir 35-41 Verð 14.990 HUELLA Teg. HPH 1057 Litir: Brúnn og svartur Stærð 35-41 Verð 16.990 Domus - Kringlan - Akureyri Á ÝMSU hefur gengið síðan Skipu- lagsstofnun kvað upp sögulegan úr- skurð um að hafna Kárahnúkavirkjun vegna umtalsverðra umhverfisáhrifa. Þetta er í annað sinn frá 1994 sem Skipulagsstofnun hafnar fram- kvæmd. Í u.þ.b. 130 tilvikum hefur framkvæmd verið leyfð, þótt oft á tíð- um hafi framkvæmdaaðila verið sett frekari skilyrði af stofnuninni eða af umhverfisráðherra eftir kæruferli. Í vor lagði Landsvirkjun fram matsskýrslu vegna Kárahnúkavirkj- unar. Matsskýrslan var þrekvirki að því leyti að þar var gerð heiðarleg til- raun, miðað við allt of þröng tíma- mörk, til að varpa ljósi á áhrif þessara tröllauknu framkvæmda. Skýrslan gaf nokkuð glögga mynd af beinum umhverfisáhrifum, t.d. hvað hyrfi í eitt skipti fyrir öll undir lón, vegi, námur og haugstæði. Eins og gefur að skilja var skýrslan þynnri þegar kom að því að leggja mat á áhrif mestu árflutninga, vatnsveitufram- kvæmda og gangagerðar í sögu landsins, að ekki sé talað um uppsöfn- uð langtímaáhrif á lífríki og umhverfi næstu áratugi og aldir. Athygli vakti að Landsvirkjun óskaði eftir því að Kárahnúkavirkjun yrði metin á eigin forsendum, þ.e. óháð álveri í Reyð- arfirði. Umhverfisáhrif Kára- hnúkavirkjunar Áður en lengra er haldið er rétt að tína til nokkrar magntölur úr mats- skýrslunni: stíflur (8,4 km, efni 14.750.000 m3), lón (67 km2), námur (1,5 km2, efni 11.948.000 m3), haug- svæði (1.46 km2, efni 4.650.000 m3), göng (78,8 km – Hvalfjarðargöng eru 5,7 km), heildaráhrifasvæði (2.000 km2 – eða sem samsvarar öllu land- námi Ingólfs). Helstu umhverfisáhrif sem skýrsl- an greindi frá voru eftirfarandi: 40 km2 af hálendisgróðri hverfur undir vatn og mannvirki; sandfok eykst inn á Vesturöræfi; vorbeit, burðarsvæði og farleiðir um helmings íslenska hreindýrastofnsins eru í hættu; heimssögulegar jarðmyndanir hverfa; stærsta víðerni Evrópu skerð- ist um 925 km2; einstök landslags- og gróðurheild rofnar; Hafrahvamma- gljúfur verða þveruð með 180 m hárri stíflu; friðland í Kringilsárrana skerð- ist um fjórðung; tugir fossa hverfa; 6–8 ár þorna upp; rennsli Jökulsár á Dal minnkar, rennsli í Jökulsá í Fljótsdal eykst; aur í Lagarfljóti eykst og lífsskilyrði versna; vatns- staða hækkar í Lagarfljóti og nær- svæði blotna; stærsta sellátur á Aust- ur- og Norðausturlandi er í hættu; áhrif á lífríki í sjó óviss. Síðar var m.a. bent á að gróðurlendi á 2–300 km2 svæði muni breytast varanlega vegna vatnsflutninga; uppblástur frá lóninu væri líklega stórlega vanmetinn (tal- að um hugsanlegt umhverfisslys); áhrif á lífríki sjávar væru sennilega vanmetin (aftur talað um hugsanlegt umhverfisslys); ekki væri gerð nægi- leg grein fyrir vinnslu og frágangi náma; og svo mætti lengi telja. Þegar kom að væntanlegum efna- hagslegum ávinningi virkjunarinnar var skýrsla Landsvirkjunar ósann- færandi, auk þess sem vandséð er að efnahagslegur ávinningur geti við nú- verandi aðstæður réttlætt slíka fórn hjá einni ríkustu þjóð heimsins. Það var því ekki hægt fyrir Skipulags- stofnun að komast að annarri niður- stöðu. Allir sem halda öðru fram eru annaðhvort illa upplýstir um málið í heild sinni, blindir á náttúruverðmæti eða vísvitandi að tala gegn betri vit- und. Viðbrögð ráðamanna Í stað þessa að þakka Skipulags- stofnun fyrir að hindra óþörf og óaft- urkræf umhverfisspjöll, og í stað þess að taka Landsvirkjun á beinið fyrir að seilast allt of langt gegn náttúru landsins, hafa oddvitar framkvæmda- valdsins lagst í ósæmandi rógsvíking. Þeir hafa vænt Skipulagsstofnun um hlutdrægni sem er fjarstæða miðað við staðreyndir málsins og fyrri úr- skurði stofnunarinnar. Þeir hafa stutt ásökun um lögbrot með fráleitri og langsóttri lögskýringu. Þeir hafa látið að því liggja að Kára- hnúkavirkjun í útfærslu Landsvirkjunar sé eini raunverulegi virkjana- kosturinn sem eftir er þegar opinberar tölur sýna að Kárahnúka- virkjun tekur um 10% af virkjanlegri vatnsorku landsins og möguleikar eru á virkjun jökulánna norðan Vatnajökuls í eigin farvegi. Þeir hafa sagt að umhverfisráðu- neytið geti lagt sjálf- stætt faglegt mat á mál- ið, þegar flestar fag- stofnanir landsins og drjúgur hluti okkar bestu náttúru- fræðinga hafa átt hlut í úrskurðinum. Þeir hafa kvartað undan því að mátt- ur „kontórista“ sé mikill, og nú síðast (sunnud. 2.9.) lét hæstvirtur utanrík- isráðherra að því liggja í útvarpsvið- tali að völd embættismanna (les Skipulagsstofnun) væru orðin hættu- leg lýðræðinu í landinu! Ég vona að hæstvirtur utan- ríkisráðherra trúi ekki sínum eigin orðum. Er það hættulegt lýðræðinu ef ríkisstofnanir fara eftir nýjum lögum sem réttkjörnir stjórn- málamenn hafa sett? Er lýðræðið ein- ungis að störfum í Stjórnarráðinu? Ég vona að hæstvirtur utanríkisráð- herra trúi því ekki í alvöru að t.d. hann, sem fyrsti þingmaður Austur- lands og ákafur talsmaður virkjana og stóriðju, geti tekið hlutlausari, faglegri eða lýðræðislegri ákvörðun en Skipulags- stofnun um þessa fram- kvæmd sem mun hafa áhrif á land og lýð löngu eftir að hann er allur. Ég vona a.m.k. að hann láti sér ekki detta í hug að snúa við úr- skurði stofnunarinnar án þess þá fyrst að sækja endurnýjað um- boð til þjóðarinnar. Slíkt væri ógn við lýð- ræðið. Málið liggur ljóst fyrir Málið er einfalt. Skipulagsstofnun hefur með faglegum og lýðræðisleg- um hætti, eftir ítarlega rökstuddan úrskurð, komist að því að virkjun Kárahnúka eins og Landsvirkjun leggur málið fyrir sé óviðunandi vegna umtalsverðra umhverfisáhrifa. Nú þarf Landsvirkjun að hugsa málið upp á nýtt og koma með raunhæfari tillögur um virkjunarkosti (af nógu er að taka), sem ekki ganga svo harka- lega á rétt náttúrunnar. Vonandi standast þeir kostir umhverfismat og Austfirðingar fá sitt álver eftir lýð- ræðislegum og umhverfisvænum leið- um. Er Skipulagsstofnun ógn við lýðræðið? Snorri Baldursson Umhverfismál Í stað þess að þakka Skipulagsstofnun fyrir að hindra óafturkræf og óþörf umhverfis- spjöll, segir Snorri Baldursson, hafa odd- vitar framkvæmda- valdsins lagst í ósæm- andi rógsvíking. Höfundur er líffræðingur og áhuga- maður um náttúruvernd og lýðræði. Gjafavara – matar- og kaffistell . All ir verðflokkar. - Gæðavara Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.