Morgunblaðið - 07.09.2001, Qupperneq 40
MINNINGAR
40 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Valdimar Niku-lás Aðalsteinsson
fæddist á Lokastíg
14 í Reykjavík 10.
október 1924. Hann
lést á Hjartadeild
Landspítalans við
Hringbraut 28.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Aðalsteinn Jónsson,
f. 28. ágúst 1901, d.
af slysförum á Ísa-
firði 1973, og Þor-
gerður Árnadóttir,
f. 7.11. 1902, d. á
Elliheimilinu Grund
í Reykjavík 1976. Valdimar var
elstur sex systkina, næstur kom
Rafn, f. 1925, látinn, Páll, f. 1927,
býr í Reykjavík, Rut, f. 1928, bú-
sett í Bandaríkjunum, Björg, f.
1933, býr í Reykjavík og Steina,
f. 1937, býr í Hveragerði. Ætt-
leggur móður hans var í Mýrdal
og af Snæfellsnesi, en föður hans
af Síðunni, Skaftár-
tungu og úr Árnes-
sýslu. Eftirlifandi
eiginkona Valdi-
mars er Jófríður M.
Guðmundsdóttir, f.
að Leiðólfsstöðum í
Laxárdal 17. sept-
ember árið 1913.
Sonur þeirra er
Hreinn Valdimars-
son, f. 2.10. 1952,
kvæntur Heiðu
Björk Rúnarsdótt-
ur, f. 1.7. 1955. Börn
þeirra eru Dagný
Björk, f. 6.9. 1975,
og Vignir, f. 5.7. 1980.
Valdimar fæddist í Reykjavík
og bjó þar og í Almannadal á sín-
um yngri árum. Frá 1957 bjó
hann í Kópavogi, fyrst á Hlíð-
arvegi en síðar á Hrauntungu 40.
Útför Valdimars fer fram frá
Kópavogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Það er víst sama hvað maður reynir
að undirbúa sig og telja sér trú um að
það eina örugga í þessu lífi sé dauð-
inn, sérstaklega þegar veikindi hafa
hrjáð og lítil von hefur verið um bata,
það er þá fyrst þegar stundin rennur
upp og allt er afstaðið, að maður finn-
ur ef til vill orðin sem aldrei voru
sögð, en vildi svo gjarnan hafa sagt.
Ég var svo lánsamur að eiga nokkr-
ar góðar stundir með honum pabba
mínum á undanförnum árum þar sem
við spjölluðum saman um liðinn tíma.
Það var ekki auðvelt að toga upp úr
honum sögur eða æviferil frekar en
gerist og gengur með hans kynslóð
sem lítillætið einkennir.
Fjölskylda pabba bjó lengst af í
Reykjavík og nágrenni. Hann var
fimm ára þegar þau bjuggu í ná-
munda við gömlu sundlaugarnar í
Laugardal og það varð til þess að
hann var orðinn vel syndur sex ára
gamall. Hann sagði mér, með nokkru
stolti, að Páll faðir Erlings sundkappa
hafi kennt sér sundtökin. Þessi sund-
kennsla virðist hafa dugað vel, í það
minnsta þegar hann, einhverntímann
upp úr tvítugu, tók út af togara í
vondu veðri og þurfti að halda sér á
floti í langan tíma uns honum var
bjargað.
Ég man líka vel eftir því þegar ég
var fyrst sendur, átta ára á sundnám-
skeið í Sundhöll Reykjavíkur, hvað
hann lagði mikla áherslu á að fylgjast
með árangrinum. Það stóð heldur
ekki á aðgerðum þegar í ljós kom að
lítið hafði miðað, þá tók hann mig úr
tíma og fór með mig beint til Jóns
Inga, sem einmitt hafði kennt pabba
löngu áður í Austurbæjarskólanum,
og þar varð ég flugsyndur á viku.
Pabbi mun hafa verið nokkur sumur
hjá ömmu sinni Sigurbjörgu Hans-
dóttur á Eyrabakka en hún bjó í húsi
sem nefndist Sauðhús, þetta hefur
líklega verið á árunum 1931 til 35.
Hann átti margar góðar minningar
frá þessum tíma um ógleymanlega
fjöruleiki með vini sínum og leikfélaga
Guðmundi Lárussyni sem hann
kynntist á Eyrarbakka.
Það var uppúr 1930 sem Aðalsteinn
afi fór að byggja sumarbústað rétt
fyrir ofan Rauðavatn við dalverpi það
sem heitir Almannadalur og er beint
handan Rauðhóla. Fyrst í stað átti
fjölskyldan einungis sumardvöl í bú-
staðnum en síðar fór dvölin að lengj-
ast fram á veturna og loks var flutt al-
farið uppí Almannadal. Barnmargar
fjölskyldur áttu erfitt með að fá íbúð-
arhúsnæði í Reykjavík á þessum ár-
um og leituðu því eftir að fá að reisa
bústaði fyrir utan bæinn.
Þetta hefur verið á árunum áður en
strætisvagnarnir hófu sumarakstur
upp að Lögbergi. Hann sagði að
barnaskólaganga eldri systkinanna
hefði verið með þeim hætti að þau hafi
þurft að ganga í öllum veðrum ofan úr
Almannadal niður að Rafstöð við El-
liðaár. Það var lagt af stað klukkan
hálfsex, gangan tók um tvo tíma og
passaði þá að ná vagni við Rafstöðina
klukkan hálfátta sem gekk upp að
Austurbæjarskóla.
Árið 1943 slíta Aðalsteinn og Þor-
gerður samvistir, það kom því
snemma í hlut pabba, sem elsta systk-
inis að aðstoða við framfærslu heim-
ilisins. Eftir blaðasölu á barna- og
unglingsárum fór hann á sjóinn.
Hann ræður sig á línubát á fyrri hluta
stríðsáranna og vann einnig nokkra
vetur í vélsmiðjunni Hamri, mest við
skipaviðgerðir.
Þá vann hann sem vörubílstjóri og
keyrði meðal annars rauðamöl úr
Rauðhólum í flugvöllinn í Vatnsmýr-
inni sem þá var í byggingu. Uppúr tví-
tugu flytur hann til Hveragerðis og
fer að vinna með föður sínum við að
reisa gróðurhús meðal annars fyrir
Garðyrkjuskólann að Reykjum.
Í kringum 1948 flytur hann aftur til
Reykjavíkur og það er væntanlega
um það leyti sem hann kynninst svif-
fluginu. Draumur um svifflugréttindi
gat ekki ræst því að á unglingsárum
hafði hann fengið slysaskot í augað og
hafði alla tíð slæma sjón á því auga.
Hann sagði mér að Úlfar Þórðason,
sem þá var byrjaður að praktisera,
ungur augnlæknir í Reykjavík, hafi
með snarræði bjargað auganu og var
hann Úlfari alla tíð afar þakklátur
fyrir. Flugáhuginnn hélst og það eru
góðar minningar sem ungur drengur
á með föður sínum þegar stöku sinn-
um voru haldnar flugsýningar úti á
gamla Reykjavíkurflugvelli. Í
Reykjavík kynnist hann dalamær
ættaðri úr Laxár- og Hörðudal, Jó-
fríði Margréti Guðmundsdóttur, móð-
ur minni, Þau hefja sambúð í kringum
1950. Árið 1954 hóf hann störf hjá
Vélasjóði ríkisins, sem hafði með
höndum viðhald og viðgerðir á skurð-
gröfum þeim sem voru notaðar við
framræslu mýra og votlendis til
bættra ræktunarskilyrða um land allt
á sjötta og sjöunda áratugnum. Starf-
ið fólst aðallega í því að keyra gröfur á
staði þar sem ræsa átti fram, til þess
voru notaðir tíu hjóla Dimond-trukk-
ar sem drógu vagna. Þessar ferðir
tóku oft langan tíma og sem dæmi
sagði pabbi að ferð með skurðgröfu
vestur á Barðaströnd hefði tekið hátt
í fjóra sólarhringa. Einnig var oft
staðið í viðgerðum á þessum gröfum
þar sem þær voru á kafi ofan í mýri
langt frá bæjum og var þá sjaldnast
verið að hugsa um hvíldar- eða mat-
artíma. Á þessum árum var pabbi oft
við vinnu sína úti á landi dögum og
vikum saman og þó ýmislegt breyttist
þegar hann fór að vinna hjá Sam-
bandinu, enda voru það önnur tæki
sem hann sinnti þar, þá komu tímar
sem hann var lengi fjarverandi frá
sínu heimili. Þessar fjarverur gerðu
það að verkum að við pabbi höfðum
ekki margar stundir saman fyrr en
hann fór að hægja ferðina í sínu
brauðstriti. Það var okkur báðum
mikilvægt að fá tækifæri til að kynn-
ast upp á nýtt á fullorðinsárum. Á
þessum árum dreif pabbi sig í að ná
sér í fagréttindi. Það má segja að þá
hafi einnig komið í ljós ný hlið á hon-
um sem var áhugi hans fyrir ýmsum
félagsmálum. Hann var félagi í Forn-
bílaklúbbnum, Landssamtökum
hjartasjúklinga og Bíliðnafélaginu.
Þessum félögum lagði hann lið eftir
bestu getu og var annt um framgang
þeirra. Á sinni löngu starfsævi kynnt-
ist pabbi mörgum góðum mönnum,
bæði vinnufélögum og bændum úti
um land allt og hófust þar kynni sem
haldist hafa og orðið að traustum vin-
skap.
Við flytjum á Óðinsgötu 7 um 1955
og þar man ég fyrst almennilega eftir
mér. Það er svo haustið 1957 sem flutt
er í Kópavoginn. Pabbi og mamma
festa kaup á litlu húsi í þríbýli á Hlíð-
arvegi 17, sem fékk síðar númerið 27,
þar bjuggum við í rúmlega tíu ár eða
þar til við fluttum á Hrauntungu 40 í
nýtt einbýlishús sem fjölskyldan
reisti.
Árið 1963 hóf hann störf hjá véla-
deild Sambands íslenskra samvinnu-
félaga, SÍS, við viðgerðir og stand-
setningar á ýmiss konar búvélum.
Starfið gekk meðal annars út á að
vera í tengslum við og ferðast til
bænda í sveitum landsins og þróuðust
þar enn frekar þau tengsl sem kom-
ust á meðan hann vann hjá Vélasjóði.
Í samtölum við gamla vini og félaga á
liðnum dögum kom í ljós að þessir
menn höfðu metið hann að verðleik-
um og töldu hann mjög færan í sínu
fagi. Pabbi átti því láni að fagna að
eignast marga góða vinnufélaga á
sinni löngu starfsævi sem hann hélt
góðu sambandi.
Hann var duglegur að rækta þessi
vináttusambönd meðan þrek og
heilsa leyfði. Ég vil að endingu þakka
fyrir allar góðu stundirnar sem við
áttum saman, einnig verð ég að þakka
fyrir hvatningu og frábæra hjálp, sem
var ómetanleg.
Guð blessi minningu þína. Þinn
sonur,
Hreinn.
Elsku Valli minn, þá er komið að
hinstu kveðjustund. Þótt þú værir bú-
inn að vera veikburða undanfarnar
vikur hélt ég að við ættum eftir að
hafa þig hjá okkur um nána framtíð,
en auðvitað var það ekki raunsæ ósk.
Þú varst búinn að vera veill fyrir
hjarta lengi og á síðustu árum hafði
mikið dregið af þér, en þó varstu
óbugaður andlega. Ég kynntist þér
fyrst fyrir um þrjátíu árum þegar ég
og sonur þinn fórum að slá okkur upp
saman. Við vorum ekki búin að vera
saman lengi þegar ég flutti inn á
heimili ykkar Fríðu. Þið tókuð mér
vel frá fyrsta degi og vilduð allt fyrir
okkur unga fólkið gera. Við bjuggum
enn hjá ykkur þegar dóttir okkar
fæddist, hún Dagný Björk. Það var
notalegt að sjá hvað þið báruð mikla
umhyggju fyrir henni, enda ykkar
fyrsta barnabarn. Hún átti síðan eftir
að vera mikið hjá ykkur næstu árin
þegar við foreldrarnir vorum að
vinna. Þegar við lögðum út í okkar
fyrstu íbúðarkaup var gott að eiga þig
að, Valli minn. Þú komst ósjaldan með
okkur upp í íbúð að vinna og þegar
leið að flutningi varst þú þar öllum
stundum að mála og aðstoða við
standsetningu.
Þú varst nú ekki mikið fyrir að tjá
tilfinningar þínar í orði en lést þess í
stað verkin tala. Þú áttir alltaf hlý orð
í okkar garð og ég hef ætíð fundið að
þú vildir okkur allt hið besta. Fimm
árum síðar fæddist sonarsonur þinn,
hann Vignir. Það leið því ekki langur
tími þar til við þurftum að fara að
huga að stærra húsnæði. En á þess-
um árum ferðuðumst við með ykkur
Fríðu til útlanda með börnin tvisvar.
Það voru skemmtilegar ferðir og gáfu
okkur tækifæri til að njóta samvista í
notalegu fríi. Frá þessum ferðum eig-
um við ótal skemmtilegar minningar
svo og úr allnokkrum sumarbústaða-
ferðum um landið. Þegar við hjónin
ákváðum að leggja út í það ævintýri
að byggja okkur hús þá minnist ég
þess ekki að þú hafi nokkur tímann
reynt að draga úr okkur kjarkinn,
þvert á móti. Þá sem fyrr varst þú
stoð okkar og stytta. Oft þegar við
komum á morgnana í bygginguna þá
varst þú mættur, og þegar við fórum
heim á kvöldin þá varst þú enn að,
þrátt fyrir að hafa unnið langan og
strangan vinnudag. Þú vaktir yfir
okkur þessi ár og kunnir svo sann-
arlega til verka, enda hafðir þú byggt
þitt hús, í Hrauntungu 40, fyrr á æv-
inni. Það vill nú gjarnan vera háttur
þeirra sem eldri eru að vilja stýra
þeim yngri, en ég minnist þess aldrei
að þú hafir reynt það, þvert á móti
hvattir þú okkur og studdir. Ég veit
fyrir víst, Valli minn, að þessu æv-
intýri okkar með húsbygginguna
hefði ekki lokið jafnfarsællega og
raunin varð ef þín hefði ekki notið við.
Ég hvíslaði því að þér á dánarbeðinu,
að þú værir einn þeirra manna sem
ættir að fá orðu fyrir þrautseigju og
dugnað og ég vona að himnafaðirinn
hafi verið að hlusta. En þótt við vær-
um flutt inn í nýja húsið okkar var
margt eftir sem hefur verið gripið í á
liðnum árum og alltaf vildir þú fá að
fylgjast með og helst taka þátt. Þú
fékkst slæmt hjartaáfall fyrir um 9
árum en það stoppaði þig ekki í að
koma og vera með okkur í fram-
kvæmdum. Manstu þegar Hreinn var
að smíða þakkantinn eitt sumarið og
þú komst til að vera með í því, sama
hvað við reyndum til að fá þig til að
taka því rólega? En við áttum fleira
sameiginlegt, t.d. kartöflurækt. Þið
Fríða höfðuð haft garð lengi og þegar
við Hreinn fórum að búa var það sjálf-
gefið að við tækjum þátt í því. Þú
hélst utan um þann þátt í mörg ár,
sást um að panta jarðhúsin og garð-
inn á vorin og ákveða hvenær farið
væri í niðursetningu. Þetta voru góð-
ar stundir sem við áttum með ykkur
Fríðu. Fyrstu árin vorum við með
garða þar sem nú er Arnarsmári og
það hverfi. Þarna var yndislegur mói
og börnin undu sér vel með okkur.
Það var farið með nesti og dvalið dag-
langt. Það var síðast í vor sem þú
komst með okkur í garðinn þótt þú
værir ákveðinn í því þá að þú ætlaðir
ekki að setja neitt niður. Þú sagðist
vera orðinn svo linur við að elda og
einn í heimili. Ég má til með að nefna
það hér hvað þú komst mér oft á óvart
þegar þú varst að færa okkur gjafir,
alltaf voru þetta smekklegir hlutir og
valdir af natni, eins og þér einum var
lagið. Á liðnum árum hafðir þú oft
þurft að fara inn á hjartadeild Land-
spítalans til að láta hlúa að þér. Þú tal-
aðir oft um hvað þér þætti gott að
geta leitað til þess góða fólks sem þar
vann, bæði lækna og hjúkrunarfólks.
Síðustu árin þáðuð þið hjónin aðstoð
frá heimilishjálpinni og heimahjúkr-
un í Kópavogi. Þessar góðu konur
léttu mikið undir með þér þegar þrek-
ið fór þverrandi. Á þessum árum var
Fríða einnig heilsuveil. Allt þetta
reyndi mikið á þrek þitt, en aldrei
kvartaðir þú. Ef þú dvaldir á spítala í
einhvern tíma var þitt eina áhyggju-
efni að einhver hugsaði um Fríðu.
Það má segja að umhyggju þinni
hafi engin takmörk verið sett enda
voruð þið einkar samrýnd hjón og
máttuð helst ekki af hvort öðru sjá.
Fríða fór í Sunnuhlíð til dvalar sl.
haust og að vissu leyti var þér það
þungbært, það veit ég, en þú hrein-
lega réðir ekki við meira en að sjá um
sjálfan þig. En þótt hún væri komin á
stað þar sem hugsað er vel um hana
og hún nýtur öryggis varst þú aldrei í
rónni nema fara til hennar tvisvar og
stundum þrisvar á dag. Þér fannst
það ekki mega vera minna.
Að lokum, elskulegi tengdapabbi,
takk fyrir alla þína elsku og um-
hyggju, af framgöngu þinni í lífinu má
margt læra. Þú varst alltaf heill í öllu
sem þú tókst þér fyrir hendur. Guð
blessi minningu þína.
Þín tengdadóttir
Heiða Björk.
Elsku afi minn. Þú ert ein sú ynd-
islegasta manneskja sem ég hef
kynnst. Það hefði enginn getað átt
betri afa en ég. Það er svo erfitt að
sætta sig við það að þú sért dáinn, ég
á alltaf von á því að þú hringir eða kík-
ir í heimsókn eins og þú varst vanur
að gera, en þú ert hjá okkur í anda.
Þegar pabbi hringdi í mig á laugar-
dagskvöldið 25. ágúst og sagðir mér
að þú værir á gjörgæslu og ástandið
væri alvarlegt, þá sagði ég við sjálfa
mig að þetta hlyti að vera misskiln-
ingur „það kemur ekkert fyrir afa
minn“ og á mánudagskvöldið þá var
ég viss um að þú myndir ná þér. Við
sátum hjá þér þar til þú sofnaðir og
fórum með þá von í hjarta að þetta
færi allt vel. En Guð ákvað að kalla
þig til sín þessa nótt og þú vaknaðir
ekki aftur. Ég þakka fyrir það að hafa
fengið að vera hjá þér þessa síðustu
stund áður en þú sofnaðir og þegar ég
fór þá svafstu svo vært að ég vissi að
þér leið ekki lengur jafn illa og und-
anfarna daga.
Einhverstaðar heyrði ég að maður
ætti að tileinka sér það góða í fari
þeirra sem falla frá til að viðhalda því
göfuga í heiminum. Afi minn, ég mun
horfa og hugsa til þín til að bæta sjálfa
mig og hjálpa öðrum.
Ef einhver þurfti aðstoð þá varst
þú ávallt tilbúinn að hjálpa og oftast
óumbeðinn. Mér þykir svo vænt um
þig elsku afi minn og mér finnst svo
erfitt að sætta mig við fráfall þitt. Það
er stórt skarð í lífi okkar og fjölskyldu
sem ógerlegt verður að fylla upp í. Þú
hefur alltaf verið til staðar fyrir okkur
og enginn hefði getað hugsað betur
um ömmu þegar henni fór að hraka.
Hún var alltaf efst í huga þér og þú
vildir allt fyrir hana gera, hennar
missir er mikill. Ég var að fletta í
gegnum gamlar myndir og fann
mynd af þér og mér sem þú hafðir
gefið mér, hún var tekin 17. júní 1978 í
Danmörku. Ég hef verið tæplega 3ja
ára, þannig að ég man ekki beint eftir
þessum degi en í kjölfarið rifjuðust
upp ósköpin öll af minningum. Ég
man alltaf eftir því þegar við fórum á
fornbílasýningu niður í bæ á 17. júní
og þú þekktir alla sem voru að halda
sýninguna og við fengum að setjast
uppí bílana og þú sagðir mér allt um
sögu þeirra. Þegar við vorum svo að
keyra heim þá sungum við hástöfum
„Hæ, hó, jibbý jey, það er kominn 17.
júní“ og skemmtum okkur svo vel. Og
ég held að við munum alltaf hugsa til
þín þegar við borðum möndluísinn á
jólunum. Þú fékkst yfirleitt alltaf
möndluna og geymdir hana þá alltaf
upp í þér þar til ísinn var búinn og
enginn skildi neitt í neinu, hvar var
mandlan? Stundum þegar lítið var
eftir af ísnum þá varð okkur litið á þig
og þá settir þú bara upp sakleysisleg-
an svip og spurðir „hvað?“ og þá
héldu allir áfram að háma í sig ísinn í
von um möndlu. Þú varst alltaf svo
góður við hundinn okkar hann Marco
og gafst þér alltaf tíma til að klappa
honum og leika við hann og hann hélt
mikið uppá þig og varð alltaf óskap-
lega glaður að fá þig í heimsókn. Það
er svo sárt að þurfa að kveðja þig
elstu afi minn, en ég veit að þér líður
vel núna og við munum hittast aftur.
Takk fyrir alla hjálpina og stuðning-
inn og hlýjuna sem þú sýndir mér og
öllum í kringum þig. Minningin um
góðan mann lifir lengi. Ég bið Guð að
gefa þér góða heimkomu. Hvíl í friði.
Þín sonardóttir
Dagný.
Elsku afi minn nú ert þú farinn frá
okkur. Ég mun alltaf hugsa til þín
með hlýhug og söknuði. Ég er þakk-
VALDIMAR
NIKULÁS
AÐALSTEINSSON
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.