Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 41

Morgunblaðið - 07.09.2001, Side 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 41 látur fyrir að hafa fengið að kveðja þig á hinstu stund. Þú lást mikið veik- ur á spítalnum, en þegar ég kom í heimsókn vaknaðir þú og sagðir við mig „ert þú kominn elsku drengurinn minn“. Ég veit ég heiðra best minn- ingu þína afi minn með því að vera sterkur í sorginni því það hefðir þú viljað. Ég á góðar minningar frá í sumar þegar ég var að vinna hjá þér við lag- færingar á bílskúrsþakinu, því þó heilsan væri orðin léleg hjá þér varst þú að dytta að húsinu þínu í allt sum- ar. Við ræddum um margt þessar vik- ur. Þú vildir alltaf vita hvað ég væri að gera og studdir við bakið á mér með mín áhugamál sem var ómetanlegt. Þú varst mér kær, elsku afi minn. Hvíl þú í friði Þinn sonarsonur Vignir. Í dag er mágur minn og vinur Valdimar Aðalsteinsson kvaddur hinstu kveðju. Það eru liðnir meira en fimm áratugir síðan ég kynntist Valla en þá hafði hann tekið upp sambúð með elstu systur minni Jófríði sem hann kvæntist skömmu síðar. Eign- uðust þau einkasoninn Hrein sem hef- ur, ásamt eiginkonu sinni Heiðu og börnum þeirra Dagnýju og Vigni, veitt foreldrum sínum mikinn styrk og stuðning, ekki síst eftir að heilsu þeirra fór að hraka. Stuttu eftir að ég kynntist Valla fór hann að vinna hjá Vélasjóði ríkisins sem viðgerðarmað- ur á skurðgröfum fyrirtækisins. Þetta útheimti mikil ferðalög vítt og breitt um landið. Á þessum ferðum eignað- ist Valli fjölmarga vini, bæði í hópi skurðgröfumanna og bænda og hefur sú vinátta haldist allt fram á þennan dag. Eftir að draga tók úr skurð- greftri á landinu hóf hann störf hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga og vann við standsetningu og viðgerð- ir á hvers konar þungavinnuvélum. Valli lærði bifvélavirkjun en sótti auk þess fjölmörg námskeið hér heima og erlendis í meðferð og umhirðu slíkra tækja. Í öllum sínum störfum vann Valli sér einstaka tiltrú og traust við- skiptavina sinna og starfsfélaga, vegna hæfileika og vandvirkni. Það fundu allir að þar fór maður sem lagði sig allan fram í hverju sem hann tók sér fyrir hendur. Síðustu árin hefur heilsu Valla sí- fellt farið hrakandi en það breytti því ekki að allt til þess síðasta annaðist hann eiginkonu sína af einstakri alúð og umhyggju. Kæri vinur! Þökk fyrir einstaklega ljúf kynni. Megi góðar minningar færa fjölskyldu þinni birtu og yl um ókomna tíð. Ragnar Guðmundsson. Glíman var lengi sú íþrótt er mestr- ar virðingar naut hér. Í dag kveðjum við Valdimar Aðalsteinsson. Hann er fallinn eftir að hafa staðið lengi, rammur að afli í lífsglímunni. Hann valdi sér völl í þeirri byltingu er vé- lorkan tók að vinna hin erfiðustu verkin. Það var heillandi heimur fyrir unga, sterka menn að vinna með vél- unum, sem voru þeim meir en jafn- okar í afköstum. Valdimar vann hjá Vélasjóði þegar mikil átök voru í framræslu og ræktun. Hann vann við að gera við gröfur og vélbúnað og var þannig í vinnu hjá bændum. Á þeim vettvangi vann Valdimar meðan afl entist. Áratugi hjá Sambandinu og fyrirtækjum þess. Oft var unnið við erfið skilyrði þegar vinnuvél bilaði, oft langt frá alfaraleið. Valdimar gekk að hverju verki af skyldurækni og öðlaðist mikla reynslu. Við samstarfsmenn hans, og bændur, fögnuðum hverri leystri þraut. Hann hafði ekki mörg orð um hlutina, handbrögðin voru hans mál. Með honum er genginn traustur mað- ur sem fylgt hefur mikilli byltingu í vélvæðingu landbúnaðarins. Valdi- mar var góður vinnufélagi, tryggur og duglegur. Hann og Fríða byggðu sér fallegt heimili á veðursælum reit í Kópavogi og ólu soninn Hrein og mæðginin trega nú fráfall hans. Í glímu hétu það glímuskellir og með tækninni fylgdu vélaskellir sem nú hljóðna þegar við minnumst góðs manns. Far þú í friði. Gunnar Gunnarsson. Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum föð- urörmum þínum og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu föðurhjarta. Ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga, en sér í lagi þau, sem tárin lauga, og sýndu miskunn öllu því, sem andar, en einkum því, sem böl og voði grandar. (M. Joch.) Elsku amma, hjartans þakkir fyrir samfylgdina. Hvíl þú í friði. Þuríður og Kristján Hans. Kveðja frá Þorrakórnum Sigríður Halldórsdóttir bjó rúma hálfa öld á Orrahóli, sem er í skjóli fjalla í fögrum dal á Fellsströnd. Þar undi hún við bú sitt og byggð, vilja- sterk orkunnar kona, sem gekk að verkum sínum með atorku og dugn- aði eins og hún átti kyn til. SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR ✝ Sigríður Hall-dórsdóttir frá Orrahóli fæddist 12. september 1906 í Magnússkógum í Hvammssveit í Dala- sýslu. Hún lést 2. ágúst og fór útför hennar fram frá Staðarfellskirkju á Fellsströnd 11. ágúst. Ólíklegt er að ís- lenskar húsmæður í sveit á síðustu öld hafi átt margar frístundir þar sem þær gátu helg- að sig öðrum störfum en bústritinu einu sam- an. Sigríður var mjög félagslynd kona og hvað sem öllu búskap- arannríki leið gaf hún sér tíma til að sinna því sem lífgaði upp á mannlífið. Söngurinn var henni hugleikinn og hinn góði og glaði félagsskapur sem hon- um fylgir. Kirkjukórinn og Þorra- kórinn var hennar vettvangur á þessu sviði. Þar var hægt að stilla saman strengi og sameina hugina á vængjum söngsins. Hún lét ekki sitt eftir liggja þegar Þorrakórinn átti í hlut. Það sem einkenndi hana öðru fremur var dugnaður og samvisku- semi, samfara góðu og glöðu viðmóti sem gaf öðrum byr undir væng. Þær dyggðir eru dýrmætar í öllum við- fangsefnum samfélagsins. Þáttur Sigríðar í kórnum er þáttur hins ötula og trausta liðsmanns sem stóð vaktina meðan stætt var. Söngfélagarnir í Þorrakórnum ásamt söngstjóra sínum, Halldóri Þórðarsyni, vilja nú að leiðarlokum þakka stuðninginn og samveru- stundir allar. Með samúðarkveðjum til aðstandenda. Fyrir hönd söngfélaganna. Ástvaldur Magnússon. MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/ sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur afmælis- og minningargreina Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, ARNDÍSAR EINARSDÓTTUR húsmóður, frá Ingunnarstöðum, Kjós. Guðný Guðrún Björnsdóttir, Birgir Hannesson, Kristín Björnsdóttir, Guðmundur K. Stefánsson, Einar Björnsson, Lárus Björnsson, Eva Erlingsdóttir, Finnbogi Björnsson, Ásrún Atladóttir og barnabörn. Þökkum innilega öllum þeim, sem umvöfðu okkur hlýju og samúð með nærveru, blómum, kortum og skeytum vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns og föður okkar, SAMÚELS Ó. STEINBJÖRNSSONAR, Heiðargerði 20, Reykjavík. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki krabba- meinsdeildar 11E Landspítalanum Hringbraut og heimahlynningu Krabbameinsfélagsins fyrir góða umönnun og hlýju. Guðrún Pálsdóttir, Sólveig Samúelsdóttir, Elínborg Íris Samúelsdóttir, Stella Samúelsdóttir, Samúel Orri Samúelsson. Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARÍU JÚLÍÖNU SVEINSDÓTTUR frá Arnardal, Þinghólsbraut 61, Kópavogi. Þórólfur Jónsson, Hólmfríður Þórólfsdóttir, Björn Brekkan Karlsson, Sverrir Þórólfsson, Þórdís Gissurardóttir og ömmubörn. Lokað Vegna jarðarfarar GUNNARS E. SIGURÐSSONAR verður skrif- stofan lokuð frá kl. 12.00 í dag, föstudaginn 7. september. Vinnumálastofnun. Lokað Vegna jarðarfarar GUNNARS E. SIGURÐSSONAR verður skrif- stofan lokuð milli kl. 13.00 og 15.00 í dag, föstudaginn 7. sept- ember. Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR GUNNSTEINSDÓTTIR frá Nesi við Seltjörn, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi, lést á Landspítala Fossvogi þriðjudaginn 4. september. Guðmundur Gunnarsson, Gunnsteinn Guðmundsson, Áslaug I. Skúladóttir, Sólveig Guðmundsdóttir, Ragnar Þorvaldsson, Gunnar Guðmundsson, Margrét Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Lokað Vegna útfarar GUNNARS E. SIGURÐSSONAR verður félags- málaráðuneytið lokað frá kl. 13.00 í dag, föstudag. Félagsmálaráðuneytið, 6. september 2001. Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HALLDÓRS JÓNSSONAR bónda, Broddadalsá. Svava Eysteinsdóttir, Gunnhildur Halldórsdóttir, Sigurkarl Ásmundsson, Ásdís Halldórsdóttir, Pálmi Ásmundsson, Guðrún Halldórsdóttir, Már Sveinbjörnsson, Torfi Halldórsson, Unnur Þorgrímsdóttir, Jón Halldórsson, Svetlana Ivanova Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, sem andaðist aðfaranótt fimmtudagsins 6. september, verður jarðsungin frá Landa- kirkju laugardaginn 15. september kl. 10.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Páll Jóhann Einarsson, Guttormur Pétur Einarsson, Helga Sigurðardóttir, Pétur Einarsson, Birgitte Heide, Sólveig Fríðar Einarsdóttir, Sigfús Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.