Morgunblaðið - 07.09.2001, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 45
HANNES Hlífar Stefánsson
heldur enn forystunni í landsliðs-
flokki á Skákþingi Íslands þegar
þrjár umferðir eru til loka móts-
ins. Hann gerði jafntefli við Stef-
án Kristjánsson í sjöttu umferð,
en helstu keppinautar Hannesar
gerðu einnig jafntefli, þannig að
hann heldur enn hálfs vinnings
forystu. Enn er þó of snemmt að
spá fyrir um úrslit mótsins, því
baráttan er hörð og jöfn. Þannig
er einungis eins vinnings munur á
þriðja efsta sætinu og því næst-
neðsta. Sjötta umferðin var mjög
spennandi eins og fyrri umferðir
mótsins. Bragi Þorfinnsson stýrði
hvítu mönnunum til sigurs af
miklu öryggi eftir að Arnar
Gunnarsson vék út af alfaraleið-
um strax í sjötta leik og lenti í
erfiðri klípu. Jón Viktor Gunn-
arsson varð einnig að játa sig
sigraðan eftir að hafa lent í af-
brigði sem Sigurbjörn Björnsson
hafði betri þekkingu á. Sigur-
björn, sem hafði svart, fékk yf-
irburðastöðu og innbyrti vinning-
inn í 43 leikjum. Einna mesta
athygli vakti skák þeirra Jóns
Garðars og Björns Þorfinnssonar.
Björn sýndi enn á ný að hann er
háll sem áll og gefst ekki upp fyrr
en í fulla hnefana. Jón Garðar
fékk yfirburðastöðu í skákinni og
Björn lenti í erfiðu endatafli með
hrók gegn hróki og riddara Jóns
Garðars. Björn hafði tvö peð, en
Jón Garðar eitt. Það virtist ekki
leika vafi á því, að Björn var kom-
inn með tapað tafl, en
engu að síður tókst
honum að ná jafntefli
eftir harða baráttu.
Nú þarf Björn að ná
tveimur vinningum
úr síðustu þremur
umferðunum til að ná
alþjóðlegum áfanga.
Úrslit sjöttu umferð-
ar:
Jón G. Viðarss. –
Björn Þorfinnss.
½–½
Bragi Þorfinnss. –
Arnar Gunnarss. 1–0
Stefán Kristjánss.
– Hannes H. Stef-
ánss. ½–½
Jón V. Gunnarss. – Sigurbjörn
Björnss. 0–1
Lenka Ptacnikova – Þröstur
Þórhallss. ½–½
Sjöunda umferð var tefld í
gærkvöldi, en áttunda og næst-
síðasta umferð verður tefld í
kvöld og hefst taflið kl. 17 í
íþróttahúsinu við Strandgötu í
Hafnarfirði. Þá mætast m.a. Jón
Garðar og Hannes, Stefán og
Þröstur og Lenka og Bragi.
Áhorfendur eru velkomnir. Ní-
unda og síðasta umferð verður
síðan tefld á morgun, laugardag,
og hefst hún fyrr en aðrar um-
ferðir eða kl. 13. Ítarlegar upp-
lýsingar um mótið má finna á
skak.is, sem jafnframt vísar á
prýðilega heimasíðu mótsins.
Hellir og TR í úrslitum
hraðskákkeppninnar
Hraðskákkeppni taflfélaga nýt-
ur sívaxandi vinsælda og að þessu
sinni taka 12 lið þátt í keppninni.
Enn á ný eru það Taflfélagið
Hellir og Taflfélag Reykjavíkur
sem mætast í úrslitum keppninn-
ar. Hellir vann öruggan sigur á
Skákfélagi Akur-
eyrar í undanúrslit-
um og svipað varð
uppi á teningnum í
viðureign Taflfélags
Reykjavíkur og
Taflfélags Garða-
bæjar. Hellir á
heimavöll í úrslita-
keppninni, en ekki
er búið að ákveða
dagsetningu. Yfir-
dómari í keppninni
er Ólafur S. Ás-
grímsson.
Þetta er í sjöunda
skiptið sem þessi
keppni fer fram.
Hellir hefur sigrað
þrívegis, TR tvívegis og Skák-
félag Hafnarfjarðar einu sinni.
Bikarmót
Plúsferða
Taflfélag Garðabæjar og Plús-
ferðir bjóða nú í fyrsta sinn til
Bikarmóts Plúsferða. Öll sterk-
ustu taflfélög landsins taka þátt í
keppninni auk landsliðssveita.
Keppt verður í 6 manna sveitum
og tefldar verða atskákir. Um er
að ræða útsláttarkeppni, sem
hefst á forkeppni. Þar eigast við:
Skákfélag KR – Hrókurinn–B
Skákf. Reykjanesb. – Tafld.
Bolungarv.
Viðureignir í forkeppninni
munu fara fram á tímabilinu 10.–
15. september. Viðureignir í 16
liða úrslitum hefjast síðan 15.
september.
Ítarlega og skemmtilega um-
fjöllun má finna um þessa keppni
á nýrri og glæsilegri heimasíðu
Taflfélags Garðabæjar: www.-
tgchess.com.
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar
heldur forystunni
í landsliðsflokki
SKÁK
H a f n a r f j ö r ð u r
31.8–8.9. 2001
SKÁKÞING
ÍSLANDS
Hannes Hlífar
Stefánsson
Craniosacral
The Upledger Institute UK mun halda grunn-
námskeið í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeð-
ferð 5.—8. október nk. Nánari upplýsingar fást
á www.craniosacral.is eða hafa samband við
Ágúst hjá UIUK, 2 Marshall place, Perth, PH2
8AH, Skotland, sími 0044 1738 444404.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Tilboð
Tilboð óskast í lager, hluta af innréttingum og
búnaði í eigu þrotabús Möppudýrsins ehf., kt.
490198-2379. Möppudýrið var bóka- og gjafavöru-
verslun í Sunnuhlíð á Akureyri. Innkaupsverð lag-
ers er talið að hámarki 5.000.000.
Tilboð í ofangreindar eignir sendist til skiptastjóra
fyrir miðvikudaginn 12. september nk.
Nánari upplýsingar veitir Margrét María Sigurðar-
dóttir, skiptastjóri, í síma 464 0404 eða 862 0414,
fax 464 0403, netf. mms@isl.is .
KENNSLAUPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Ásklif 3, Stykkishólmi, þingl. eig. Ásklif ehf., gerðarbeiðandi Íbúða-
lánasjóður, föstudaginn 14. september 2001 kl. 11.00.
Ásklif 3A, Stykkishólmi, þingl. eig. Ásklif ehf., gerðarbeiðandi Íbúða-
lánasjóður, föstudaginn 14. september 2001 kl. 11.15.
Háarif 13, 2. hæð, Snæfellsbæ, þingl. eig. Jón Bjarni Andrésson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóður sjómanna, föstu-
daginn 14. september 2001 kl. 14.00.
Sýslumaður Snæfellinga,
7. september 2001.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R