Morgunblaðið - 07.09.2001, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 07.09.2001, Qupperneq 50
DAGBÓK 50 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Skjold kemur í dag. Skógarfoss og Mánafoss fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Karelia fer í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Leikfimi kl. 9. Bingó kl.14. Skrán- ing stendur yfir í eftirtalin námskeið: postulínsmálningu, myndmennt, ensku, bók- band, bútasaum, leir- kerasmíði. Vinnustofan er opin alla virka daga frá kl. 9-16:30 leiðbein- andi alltaf á staðnum. Leikfimi mánudaga og föstudaga kl. 9. Boccia mánudaga og fimmtu- daga kl. 11. Hádeg- ismatur alla virka daga kl. 12, kaffi kl.15 heima- bakað með kaffinu. Bað- þjónusta mánudaga, þriðjudaga og fimmtu- daga, tímapantanir. Hárgreiðslu- og fótaað- gerðastofur eru opnar alla virka daga, tíma- pantanir. Dans hjá Sig- valda hefst þriðjudaginn 2.október. Árskógar 4. Kl. 13-16:30 opin smíðastofan. Allar upplýsingar í síma 535- 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8- 16 hárgreiðsla, kl. 8:30- 12:30 böðun, kl. 9-12 bókband, kl. 9-16 handa- vinna og fótaaðgerð, kl.13-16 vefnaður og spilað í sal. Haustlitaferð verður þriðjudaginn 25. september kl. 13. Ekið um Kjósarskarð til Þing- valla. Farið um Grafning og Línuveg heim. Kaffi- borð í Nesbúð. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Kl. 9-12 aðstoð við böðun, kl. 9- 9:45 hárgreiðslustofan opin, kl. 9 opin handa- vinnustofan. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20:30. Réttarferð. Farið verður í Reykjarétt á Skeiðum laugardaginn 15. sept- ember. Farið verður frá Gjábakka kl. 9 og Gull- smára kl 9:15. Boðið verður upp á kjötsúpu í ferðinni. Væntanlegir þátttakendur skrái sig sem fyrst á þáttökulista í Gjábakka, sími 554-3400 og í Gullsmára,sími 564- 5260. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10-12 verslunin opin, kl. 10:30 sr. Tómas Sveins- son, kl. 13. „Opið hús“, spilað á spil. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Bridge kl. 13:30. Félags- miðstöðin er opin alla daga frá kl. 13-17. Inn- ritun á myndlistar- námskeið hjá Rebekku. Dagferð 13. sept. Inn- ritun og upplýsingar í Hraunseli. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga kl. 10-13. Matur í hádeginu Opið hús verður laugardaginn 8. september kl. 13:30. í Ásgarði Glæsibæ þar sem félagsstarfið verður kynnt. Söngur, danssýn- ing, leikstarfsemi og fl. Haustfagnaður FEB og ferðakynning Heims- ferða verða haldin föstu- daginn 14. september. Húsið opnað kl. 18:30, veislustjóri Sigurður Guðmundsson, matur, Ekkókórinn syngur, leikarar úr Snúð og Snældu skemmta, ferða- kynningar, happdrætti, Hjördís Geirs og Guð- mundur Haukur sjá um dansinn. Haustlitaferð til Þingvalla 22. sept- ember kvöldverður og dansleikur í Básnum. Leiðsögn Pálína Jóns- dóttir og Ólöf Þórarins- dóttir. Skráning hafin. Farið verður til Kan- aríeyja 20. nóvember á sérstökum vild- arkjörum. Upplýsingar og skráning á skrifstof- unni. Silfurlínan er opin á mánu-og mið- vikudögum kl. 10-12. Upplýsingar á skrifstofu FEB kl. 10-16 s. 588- 2111. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9-16:30 myndlist og rósamálun á tré, kl. 9-13 hárgreiðsla, kl. 9:30 gönguhópur, kl. 14 brids. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9-16:30 vinnustofur opnar kl. 9:30 boccia, frá hádegi spilasalur opinn kl. 14. Kóræfing hjá Gerðubergskór, nýir félagar velkomnir, á þriðjudag byrjar gler- skurður umsjón Helga Vilmundardóttir, mið- vikudaginn 3. okt byrja gamlir leikir og dansar, umsjón Helga Þórarins- dóttir. Veitingar í veit- ingabúð Gerðubergs. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575-7720. Hraunbær 105. Kl. 9-12 baðþjónusta, kl. 9-17 hárgreiðsla, kl. 9 handa- vinna, bútasaumur, kl. 10-12 pútt, kl. 11-12 leik- fimi og spurt og spjallað, bingó kl. 14. Kaffiveit- ingar. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 baðþjónusta og hár- greiðsla, kl. 11 leikfimi. Norðurbrún 1. Kl. 9-13 tréskurður, kl. 9-17 hár- greiðsla, kl. 10 ganga. Leirnámskeið hefst fimmtudaginn 5. októ- ber, frá kl. 10-15. Inn- ritun stendur yfir, tak- markaður fjöldi. Upplýsingar í síma 568- 6960. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9:15 handavinna, kl. 13:30 sungið við flyg- ilinn, kl. 14:30 kaffi og dansað í aðalsal. Ferða- kynning til Kýpur kl. 15, kynnir Árni Norðfjörð skemmtanastjóri og fleiri, haust og vetr- arferðir á vegum ferða- skrifstofunnar Sólar. Árni mun einnig spila nokkur lög á harm- onikku. Happdrætti, gildir sem innborgun í ferð. Dansað við lagaval Sigvalda. Pönnukökur með rjóma í kaffitím- anum. Kóræfingar hefj- ast mánud. 17. sept. Tréútskurður hefst mið- vikudaginn 12. sept- ember. Almenn handa- vinna er byrjuð eftir sumarleyfi. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan og hárgreiðsla, kl. 9:30 bókband og morg- unstund, kl. 10 leikfimi og fótaaðgerð, kl. 13:30 bingó. Öll starfsemi í stöðinni er hafin og skráning í eftirfarandi námskeið stendur yfir, bókband, bútasaumur, glerbræðsla, gler- skurður, körfugerð, leir- mótun og smíði. Vita- torgskórinn byrjar æfingar 5. september kl. 15:30, nýir félagar vel- komnir. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Brids kl. 13:15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13 kl. 10 á laugardögum. Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur á morgun kl. 21 í Konna- koti Hverfisgötu 105, Nýjir félagar velkomnir. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga. Ungt fólk með ungana sína. Hitt Húsið býður ungum foreldrum (um 16-25 ára) að mæta með börnin sín á laug- ardögum kl. 15-17 á Geysi, Kakóbar, Að- alstræti 2 (gengið inn Vesturgötumegin). Opið hús og kaffi á könnunni, djús, leikföng og dýnur fyrir börnin. Minningarkort Minningarkort ABC hjálparstarfs eru af- greidd á skrifstofu ABC hjálparstarfs í Sóltúni 3, Reykjavík í síma 561- 6117. Minningargjafir greiðast með gíróseðli eða greiðslukorti. Allur ágóði fer til hjálpar nauðstöddum börnum. Minningarkort Barna- heilla til stuðnings mál- efnum barna fást af- greidd á skrifstofu samtakanna á Lauga- vegi 7 eða í síma 561- 0545. Gíróþjónusta. Barnaspítali Hringsins. Upplýsingar um minn- ingarkort Barnaspít- alasjóðs Hringsins fást hjá Kvenfélagi Hrings- ins í síma 551-4080. Kortin fást í flestum apótekum á höfuðborg- arsvæðinu. Bergmál, líknar og vinafélag. Minning- arkort til stuðnings or- lofsvikna fyrir krabba- meinssjúka og langveika fást í síma 587-5566, alla daga fyrir hádegi. Í dag er föstudagur 7. september, 250. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Legg kapp á að reynast hæfur fyrir Guði sem verkamaður, er ekki þarf að skammast sín og fer rétt með orð sannleikans. (II.Tím. 2, 15.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 labba, 4 kjöts, 7 vesling- ur, 8 trylltur, 9 jurt, 11 nálægð, 13 fugl, 14 væl, 15 óhreinlyndi, 17 Ísland, 20 fugl, 22 heyið, 23 sér, 24 kerling, 25 ljósglætan. LÓÐRÉTT: 1 illkvittin, 2 málm- blanda, 3 forar, 4 hrör- legt hús, 5 ber, 6 dimm ský, 10 fljót, 12 fens, 13 amboð, 15 snauð, 16 hljóðfæri, 18 upptök, 19 líffærin, 20 ilma, 21 slæmt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 víðlendið, 8 skútu, 9 skjól, 10 net, 11 merla, 13 innan, 15 borðs, 18 elgur, 21 egg, 22 gilin, 23 Iðunn, 24 snautlegt. Lóðrétt: 2 íbúar, 3 launa, 4 nisti, 5 iðjan, 6 ýsum, 7 flón, 12 lýð, 14 nál, 15 buga, 16 rolan, 17 sendu, 18 Egill, 19 grugg, 20 rönd. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Víkverji skrifar... VÍKVERJI hefur löngum veriðaðdáandi sænska húsgagna- framleiðandans Ikea. Fyrirtækið hef- ur boðið upp á skemmtilega hönnun á hagstæðu verði og tekur tillit til þarfa breiðs hóps, tekjuhárra og -lágra, barna og fullorðinna o.s.frv. Að mörgu leyti vann stofnandi Ikea, Ingvar Kamprad, svipað brautryðj- andastarf og Pálmi Jónsson í Hag- kaupum; gerði öllum almenningi kleift að eignast ódýra gæðavöru. Nú, þegar verðbólgudraugurinn virðist vera í svefnrofunum og ýmis fyrir- tæki grípa hinar og þessar afsakanir til að hækka verð fegins hendi, veitir Ikea „verðöryggi“ í heilt ár. Að vísu er málvilla á forsíðu nýja Ikea-bæk- lingsins, sem borinn var í hús fyrir skemmstu: „Verðin gilda til 31. ágúst 2002.“ Víkverji stendur fast á því, rétt eins og orðabókin, að orðið verð sé eingöngu til í eintölu. Hvað um það, Ikea fær prik fyrir að skuldbinda sig til að hækka ekki verðið í heilt ár. x x x VEITINGAMENN hafa margirhverjir átt í mesta basli með að uppfylla ákvæði nýju tóbaksvarnar- laganna um reyklaus svæði á veit- ingastöðum. Eigendur Hard Rock Café í Kringlunni hafa sjálfsagt verið hæstánægðir með sjálfa sig að geta útbúið reykingasvæði í útjaðri veit- ingastaðarins, þannig að aðgangur að reyklausa svæðinu þurfi ekki að liggja um svæði þar sem fólk reykir. Sá galli er þó á gjöf Njarðar, að reyk- ingamennirnir sitja úti við göngugöt- una í miðju Kringlunnar og spúa þar eiturgufum út yfir saklausan almúg- ann, sem á leið hjá. Þetta er án efa brot á ákvæðum nýju laganna um að tóbaksreykingar skuli vera „óheimil- ar í þeim hluta af húsnæði stofnana, fyrirtækja og annarra þar sem al- menningur leitar aðgangs í sambandi við afgreiðslu eða þjónustu sem þess- ir aðilar veita.“ Aukinheldur finnst Víkverja það vera skortur á nær- gætni við reykingafólkið að láta það sitja svona berskjaldað og kinnfiska- sogið við þessa ömurlegu iðju, tób- aksreykingarnar. Slíkt á frekar að eiga sér stað í lokuðum herbergjum, þannig að tóbaksneytendur séu varð- ir fyrir illum augnagotum frá vegfar- endum og þeirri geðshræringu, sem gæti orsakazt í kjölfarið. x x x NÝBAKAÐIR foreldrar hafahrósað mjög „Hreiðrinu“ svo- kallaða á fæðingardeild Landspítal- ans í eyru Víkverja. Á einum gangi hafa verið útbúin nokkur „fjölskyldu- herbergi“ þar sem foreldrar geta eytt saman klukkustundunum eftir fæð- inguna með nýja barninu sínu í ró og næði – að því gefnu að fæðingin hafi gengið eðlilega fyrir sig. Einkum og sér í lagi þykir þetta mikil breyting fyrir pabbana, sem áður voru sendir heim kalnir á hjarta eftir að fæðingin var afstaðin, en geta nú kúrt með konu sinni og horft klukkustundum saman hugfangnir á nýja krílið og tekið þátt í umönnun þess strax frá „blautu barnsbeini“. Reyndar þykir mömmunum breytingin góð líka; að hafa fjölskylduna út af fyrir sig í stað þess að liggja á stofu með mörgum öðrum mömmum og ungunum þeirra. Nú er fólki líka gert kleift að komast heim fáeinum klukkustundum eftir fæðinguna og njóta heimaþjónustu ljósmæðra. Þeir, sem prófað hafa, eiga varla nógu sterk orð til að hrósa ljósmæðrunum, sem koma í heima- hús og hjálpa foreldrum í gegnum fyrstu sólarhringana – og segjast (a.m.k. um sinn) borga skattana sína glaðir í bragði eftir að hafa fengið þessa fyrirmyndarþjónustu hjá heil- brigðiskerfinu. HÉR fyrr á öldum hraktist upp í óbyggðir það fólk sem samfélagið hafnaði af ein- hverjum ástæðum. Það er rétt hægt að ímynda sér hvers konar líf það var þá í kulda og vosbúð. Síðustu dagana hefur verið mikið fjallað í fjölmiðlum um heimilislaust fólk hér í borginni og hafa fjölmiðlar gert þessu vandamáli góð skil. Ég las viðtal í Morg- unblaðinu við Láru Björns- dóttur hjá félagsþjónust- unni þar sem hún lýsir þessu slæma ástandi í hús- næðismálum. Hún segir þetta þungbært fólki sem vinnur hjá félagsþjónust- unni og það get ég vel skilið. Við sem erum í stjórn sam- taka gegn fátækt höfum líka kynnst því hversu hræðilegt ástandið er. Það eru sjúklingar sem ráfa hér um götur og einstæðar mæður hrekjast með börn sín milli vina og vanda- manna. Móðir 5 ára drengs sagði mér að hann væri kominn með svefntruflanir af þessu öryggisleysi að eiga hvergi heima. Það hringdi líka til mín kona um áttrætt. Í rúmt ár var hún búin að vera með ættingja inni á sér í lítilli þriggja her- bergja íbúð. Þessir ættingj- ar hennar eru að bíða eftir íbúð hjá félagsþjónustunni. Hún sagði að þótt hún væri öll af vilja gerð að hjálpa sínum nánustu væri hún orðin þreytt á þessu ástandi því hún væri orðin svo lasin. Það reynir á fjölskyldu- og vináttubönd þegar ástandið er svona. Það er hart til þess að vita að á 21. öld skuli enn vera til útilegufólk. Úti- legufólk nútímans fer ekki lengur upp í óbyggðir – óbyggðir dagsins í dag eru höfuðborgin. Ég vil skora á stjórnvöld að fara nú að taka til hendinni og virki- lega gera eitthvað raunhæft til að hjálpa þessu fólki. Sigrún Ármanns Reynisdóttir, formaður Samtaka gegn fátækt. Myllan – þakklæti til starfsfólks ÉG keypti brauð frá Myll- unni sem ég var ekki ánægð með. Ég var á báðum áttum hvort ég ætti að kvarta við Mylluna en gerði það. Ég talaði við stúlku þar sem heitir Linda. Hún tók mér mjög vel og þakkaði mér og sagði að ég hefði gert rétt því Myllan vildi sýna góða þjónustu og ef eitthvað væri að þá væru þau þakklát fyr- ir að vera látin vita. Í sára- bætur sendu þau ungan mann, Ástþór, með brauð og kökur handa mér. Vil ég þakka bæði Lindu og Ást- þóri fyrir sendinguna. Stella. Hákarlalýsi LESANDI vildi benda fólki á að hákarlalýsi hafi reynst psoriasis-sjúklingum mjög vel og segir að það fáist í töfluformi í apótekum og heilsubúðum. Svamprúllur VEIT einhver hvar hægt er að fá svamprúllur í hárið, þ.e. rúllur sem eru góðar til að sofa með. Þeir sem geta gefið upplýsingar vinsam- lega hringið í Kollu í síma 554-2307. Þakklæti ÉG vil koma á framfæri þakklæti fyrir góða umönn- um og þjónustu hjá Nudd- stofunni í Hamraborginni. Inga. Tapað/fundið Kúlutré týndist LÍTIÐ, sígrænt kúlutré var tekið úr steinkeri í garði við Otrateig 34 aðfaranótt fimmtudagsins 30. ágúst. Ef einhver hefur orðið var við þetta og getur gefið upp- lýsingar er hann vinsam- lega beðinn að hafa sam- band við húsráðendur á Otrateigi 34. Baktaska o.fl. týndist við Laugardalslaug BLÁ Adidas-baktaska sem í voru m.a. Guess-stálúr, GSM-sími, snyrtitaska, budda, lyklar o.fl. ásamt fatnaði af unglingsstúlku og stóru svörtu handklæði með mynd af tveimur stórum tígrisdýrum, týndist fimmtudaginn 30. ágúst í eða við Laugardalssund- laug. Þeir sem gætu gefið einhverjar upplýsingar eru beðnir að hafa samband við Guðlaugu í síma 581-4731 eða Stefán í síma 692-7717. Dýrahald Tíkin Júlla týndist FÖSTUDAGINN 24. ágúst týndist tíkin Júlla. Hún er brún með hvíta bringu, hvítar lappir og svart trýni. Hún er með ól og merkt. Þeir sem hafa orðið hennar varir hafi samband í síma 865-5860 eða 869-6711. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Útilegufólk á 21. öld

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.