Vísir - 30.07.1979, Síða 4
4
VÍSIR
Mánudagur 30. júli
sJUQátaB,
Bílaleiga Akureyrar
Reykjavik: Siðumúla 33, simi 86915
Akureyri: Simar 96-21715 • 96-23515
VW-1303, VW-sendiferðobilar,
VW-Microbus - 9 sœta, Opel Ascona, Mazda.
Toyota, Amigo, Loda Topas, 7-9 manna
Land Rover, Range Rover, Blazer, Scout
InterRent
iR
ÆTLID PER I FERÐALAG ERLENDIS?
VER PÖNTUM BILINN FYRIR YÐUR.
HVAR SEM ER I HEIMINUM!
eíísJpiáfflí
^BRAUÐ''
^BORGy
Njálsgötu 112,
símar 18680 & 16513.
Smurða brauðiö er
sérgrein okkar.
Tízkuklippingar
Permanent Hártoppar
Snyrtivörur
Fljót og góð,þjónusta
Rakarastofan
HÁRBÆR
Laugaveg 168 sími 21466
Sveinn Arnason
Þóranna Andrésdóttir
é
Sparið hundruð
þúsunda
með endurryðvörn
á 2ja ara fresti
RYÐVÓRN S.F.
Grensósvegi 18
Simi 30945
Sparið tugþúsundir
með mótor- og
hjólastillingu
einu sinni ó óri
\BÍL
m
BÍLASKOÐUN
„&STILLING
f S f 3-100
SKÚLAGOTU32
1979.
Lowell Geopge og Llttle Feat
Við skildum siðast við Lowell
George er hann var hættur i
Mothers og stofnaði Little Feat
ásamt þeim Richie Hayward,
Bill Payneog RoyEstrada. Þeir
gerðu plötsamning við Warner
Brothers og kom fyrsta stóra
platan út i ársbyrjun 1970. Plat-
an fékk mjög góða döma og
sagði t.d. Ed Ward hjá Rolling
Stone, að piatan væri meistara-
verk. En þrátt fyrir góða dóma
náði hún ekki eyrum plötukaup-
enda og seldist litið.
Tveimur árum siðar kom svo
önnur plata, „Sailin’ Shoes” og
þar var sama sagan með hana,
frábærir dómar, en afleit sala.
Um þetta leyti hættir Roy Est-
rada og i hljómsveitina koma
þrir nýir, þeir Kenny Gradney,
Sam Ciayton og Paul Barrere,
sem sagt Little Feat voru orðnir
sex og ^íkkert gekk með frama
hljómsveitarinnar. En Lowell
hafði tröllatrú á hljómsveitinni
og tókst einhvern veginn að
halda henni gangandi. Þriðja
platan kom út 1973, Dixie Chick-
en, en þrátt fyrir frábær gæði
seldist hún ekkert og fjárhagur
hljómsveitarinnar varð svo
bágur að Lowell stakk upp á þvi
að þeir fengju sér vinnu og spil-
uðu i fristundum. Sem sagt
Little Feat voru að lognast út af
og plötufyrirtæki þeirra var bú-
ið að missa allan áhuga á þeim.
En einhverra hluta vegna
tórðu þeir áfram, kannski vegna
dugnaðar umboðsmanns þeirra,
Bob Carallo, sem gat útvegað
þeim mjög ódyrt stúdio og þar
Lowell George
tóku þeir upp enn eitt snilldar-
verkið, Feats Don’t Fail Me
Now, og viti menn, Little Feat
fóru að seljast, að visu ekki
mikið, en það var greinilegt að
áhugi á þeim fór vaxandi.
Um þetta leyti fóru þeir til
Englands i hljómleikaferðalag
sem upphitunarhljómsveit fyrir
Doobie Brothers og gerðu allt
vitlaust, annað eins hafði ekki
skeð, óþekkta upphitunarhljóm-
sveitin var orðin forsiðufrétt
bresku blaðanna og Lowell
George allra uppáhald. Þar með
var isinn brotinn, Little Feat
orðin stórhljómsveit.
Sagan endurtók sig i Banda-
rikjunum ogþegar 5. Little Feat
platan kom út, The Last Record
Album fór hún hátt á lista, bæði
i Bretlandi og Bandarikjunum.
Siðan þá hafa komið tvær plöt-
ur, Time Loves A Hero og
hljómleikaplatan Waiting For
Columbus. Fyrir nokkrum mán-
uðum hljóðrituðu þeir plötu sem
er væntanleg fljótlega, en eftir
þá upptöku hætti Lowell og hóf
sólóferil. Hann gaf út stórgóða
plötu, Thanks, I’ll Eat It Here,
og var að byrja hljómleikaferð
er hannlést úr hjartaslagi þann
29. júni sl.
Það er mikil eftirsjá I Lowell
George, hann var gæddur mikl-
um hæfileikum sem söngvari,
gítarleikari og lagasmiður, eins
og plötur Little Feat bera glöggt
vitni og verður hans minnst sem
leiðtoga og andlegs föður einnar
bestu hljómsveitar Bandarikj-
anna á þessum áratug.
Bee Gees
lokslns
ð hl|ðm-
lelkaferö
Um þessar mundir þræða þeir
Bee Gees bræður allar helstu og
stærstu hljómleikahallir Banda-
rikjanna og Kanada. Engan
þarf að undra að Bee Gees hafa
fengiö frábærar undirtektir á
þessu hljómleikaferðalagi enda
hefur hljómsveitin ekki farið i
svo viðamikla ferð um nokkurra
ára skeið. Aödáendur hafa
greinilega lengi beðið og fjöl-
menna nú og fylla 50 þúsund
manna hallir þar sem stjörn-
urnar koma fram. Allóvænt at-
vik gerðist i Houston, þegar Bee
Gees komu þar fram á Summ-
it-iþróttaleikvanginum. Þegar
John Travotta með Bee Gees á sviði.
hljómsveitin hóf að leika hið
þekkta lag „You Should be
Dancing” sté engipn annar en
John Travolta upp á sviðið, söng
með þeim þetta lag og var
myndin hér að ofan tekin við
það tækifæri. En Travolta mun
vera að leika i nýrri kvikmynd
þarna i Houston.
Gilt Edge EIGUM FYRIRLIGGJANDI (cJm](c
CarDetS «f munatruðum gólfftoppum ó lager Pornptc-
Axminster og Wilton veffnaðwr. ^
VERIÐ Efl>ÍS 80% ul1, 20% nnlon 100% acryl
VELKOMIN
carpefts oo
intemational
company
SMIDJUVEGI6 SÍMI44544