Vísir - 30.07.1979, Síða 9
Mánudagur 30. júli 1979.
* «
" * * 1
Hafralækjarskóli
Stutt heimsökn í sumarbúðir nemenda Öskjuhlíðarsköla:
1 Hafralækjarskóla i Suöur-
Þingeyjarsýslu eru nú starf-
ræktar sumarbúöir annaö áriö i
röö fyrir nemendur öskju-
hliðarskóla og hliðstæðra stofn-
ana. Visismenn litu bar viö i
gærmorgun um niuleytiö og
krakkarnir voru þá i seinna lagi
að mæta i morgunverðinn, enda
nýkomin,til þess að gera, úr
heilmikilli reisu til Akureyrar.
Klukkan var farin að nálgast
miönættið þegar hópurinn kom
úr ferðinni.
Samt var ekki að sjá syfjuleg-
an svip né ferðaþreytu á nokkru
andliti. Krakkarnir komu niður
stigann úr svefnálmunum og
þau tiðindi spurðust fljótt að
blaðamenn væru komnir á stað-
inn. Þau hópuðust kringum
gestina og sögðu sögu ferðar-
innar deginum áður, hvert sem
betur gat.
„Voöa gaman"
„Þaö var voða gaman” var
samdóma álit þeirra allra, en
hvort það var skemmtilegast að
sjá Goðafoss, skoða andapollinn
eöa boröa i skóginum, — um þaö
voru skiptar skoöanir. Það
mátti bara heyra að ferðin öll
hafi tekist prýðilega i alla staði
og öll verið mjög skemmtileg,
en bara mismunandi skemmti-
leg.
Þau sögðust hafa lagt af stað
um hálftiuleytið um morguninn
og þótt ferðasöguslitrin i upp-
hafi greinarinnar séu ekki i
réttri timaröð gefa þær þó til
kynna atburði ferðarinnar,
svona i megindráttum.
„Kemur mynd af mér i blað-
inu?” spurði einn og annar
spurði i hvaða blaði. sá briðji
hvenær, — og spurriingarnar
dundu yfir okkur blaðamennina.
Við gleymdum þvi næstum al-
veg að það var okkar hlutverk
að spyrja. Asthildur Snorradótt-
ir kennari varð fyrir okkar
spurningum.
i tvo mánuöi
Hún sagði, að nemendum
öskjuhliðarskólans væri skipt i
tvo hópa og væri eldri hópurinn,
nemendur á aldrinum 13 — 23
ára,i Hafralækjarskóla. Yngri
hópurinn, krakkar á aldrinum 7
— 13 ára, væri i Húsabakka-
skóla.
Nemendum öskjuhliðarskól-
ans gefst kostur á að dvelja
Feröalagið tii Akureyrar mæltist vel fyrir og engin ferðaþreyta
sjáanleg aö morgni.Vísismyndir: Gsal.
Sund og gönguferöir
Við spurðum krakkana um
það hvað þau gerðu sér til dund-
urs á daginn. Þau sögöust leika
sér, fara i sund, gufubaö,
gönguferðir, halda böll, tefla,
spila og hvað eina sem nöfnum
tjáir að nefna.
Varðandi sundlaugina nefndu
þau aö sveitin hefði hana lfka til
afnota, en engu að siður færu
þau i sund tvisvar á dag, klukk-
an tiu á morgnana og eftir kaffið
á daginn. Þá nefndu þau að
sundlaugin á Húsabakka væri
dýpri og þar af leiöandi betri,
en hjá þeim væri hins vegar
gufubað sem væri ótviræður
kostur.
Þau sögðust fara oft i göngu-
gönguferða um fjöll og firnindi.
Við kvöddum þau við morgun-
verðar'oorðið þar sem þau úð-
uðu i sig súrmjólk, kornflexi og
brauði.
—Gsal
Viö morgunverðarborðið var glatt á hjalla.
nyrðra i sumarbúðunum um
tveggja mánaöa skeið á sumrin,
frá þvi i byrjun júni og fram i
lok júlimánaðar. Asthildur
sagði aö margir nemendanna
væru i sumarbúðunum báða
mánuðina en sumir væru bara
annan mánuöinn.
Að sögn Asthildar eru fjórir
kennarar með krökkunum i
Hafralækjarskóla, auk eins
sjúkraliða og einnar fóstru.
Sjálfir eru krakkarnir 28 að tölu
I þessum skóla og svipaður
fjöldi er i hinum skólanum.
ferðirog m.a. hefðu þau brugðið
sér inn að Laxárvirkjun, farið
að Grenjaðarstað og skoðaö
byggðasafnið og kirkjuna,
gengið alla leið inn i Reykjadal
að Einarsstöðum, auk smærri
Rútan bilaöi. — Þaö þurfti nýjan startara í hana.
— Skipt um á Akureyri. — Borðaður hádegismatur i
Kjarnaskógi. — Farið í sjoppur. — Keypt gott. —
Fariö til litlu krakkanna í Húsabakkaskóla. — Farið
í sund þar.— Komið við hjá Goðafossi. — Hangikjöt
í kvöldmat hjá litlu krökkunum. — Is i eftirmat —
Komið seint til baka.
LITH VIB I MORGUNVERÐ
1