Vísir - 30.07.1979, Síða 14

Vísir - 30.07.1979, Síða 14
k 4 vísm Mánudagur 30. júll 1979. sandkom \jmsjún: IUugi Jökulsson Sæmundur Guövinsson ' blaðamaöur skrifar Stuðningi hafnað StUdcntablaöiö berst i bökk- um fjárhagslega eins og önnur blöö. Fyrir skömmu var auglýst eftir ritstjöra aö blaðinu og meöal umsækjenda var Óskar Magnússon laganemi sem hefur unnið viö blaöamennsku á sumrum. Óskar bauöst til aö ritstýra Stúdentablaöinu án þess aö þiggja nokkur laun, til þess aö létta undir með rekstri blaösins. Boöiö var hins vegar ekki þegiö, enda vantar Óskar rauöa stimp- ilinn sem þykir ómissandi aö mati þeirra er stjórna blaöinu. Þungt er hliððtð Forráöamenn Utvarps hafa litt tekiö undir þær niðurstöður skoöanakönnunar Hagvangs aö oft sé 0,00% hlustun á „þunga” tónlist i Utvarpinu. I viötölum f blööum og Utvarpi segjast þeir ekki vera búnir aö kanna þessar niöurstööur! Hvaö ætla þeir aö kanna? Þaö kom fram I samtali viö varatónlistarstjóra Utvarpsins, eininitt f útvarpinu, aö þar sem á sjötta þúsund manns væri I kirkjukórum landsins þá þyrfti að Utvarpa kirkjutónlist. Hvaö skvldu margir kórfélagar geta hlustað á miöjum degi, jafnvel þótt þeir vildu? Sannleikurinn er auðvitað sá aö fólk nýtur klassiskrar tónlist- ar mun betur heima I stofu meö vönduöum stereótækjum. Þaö er bara meinloka aö vilja troöa svona mikilli klassiskri tónlist inn i Utvarpiö dags daglega og nU er gert. Auðvitað ber aö halda uppi slfkum tónlistarþátt- um I Utvarpi en þaö á aö hætta aö nota þetta efni sem uppfyll- ingarefni á öllum ti'mum dags. Báknið og sus Heimdellingar hafa gefiö Ut auglýsingablaö mikiö, eöa öllu heldur tvö blöö, sem kennd eru viö feröamál. Þaö vekur óneitanlega athygli aö I blööum þessum er hvergi rætt viö þá einstaklinga sem reka feröaskrifstofur. Þess I staö er rætt viö forstjóra Feröa- skrifstofu rfkisins, en þaöer eitt af þeim fyrirtækjum sem ungir sjálfstæöismenn vilja afnema undir kjöroröinu: „Bákniö burt” Þeir eru kannski búnir aö breyta slagoröinu I „Bákniö kjurrt”? KluKkan sem kom Albert f klandur Klukkan sem kom honum 1 klandur —og úr aftur. Veslings Albert Taylor er nú laus úr fangelsi. Hann var dæmdur fyrir 5 1/2 ári i lifstíð- arfangelsi fyrir morð á 15 ára svstur unnustu sinnar sem var barin i hel eitt kalt októberkvöld 1973. Albert var aldeilis ekki á þvi að hann hefði framið morðið. „Ég var staddur í næsta bæjar- félagi á þeim tima sem morðiö var framið. Ég var að kaupa mér blaö i blaðsöiuturni kl. ná- kvæmlega 1.15.” Um það sama leyti var morð- ið framiö en Albert kvaðst muna timann vegna þess að hann hefði veitt athygli sérstæðu klikk-hljóði frá klukkunni. Ýms- issaorsakavegna bárust böndin fljótlega að Albert i sambandi viömorðið. Fór svo að lokum að hann var flæktur upp fyrir haus i málinu og sá hvergi út (sic). En hann hélt fast við framburö sinn um að hann hefði verið i næsta bæ. Lögreglumenn voru sendir á staöinn til að athuga klukkuna og kárnaði þá gaman Alberts. Þaðkom semsé iljós að klukkan var rafmögnuð og gaf alls ekki frá sér neitt hljóö. Dadda-radda-da... Nú voru góð ráð dýr og feng- ust reyndar ekki. Albert var fundinn sekur um að hafa myrt þá 15 ára og unnustan tók sig til og giftist einhverjum öðrum fljótlega.. 1 fangelsinu mátti Al- bert svo sitja i 5 1/2 ár. Hann sat þar ekki auðum höndum, bréf eftir bréf streymdu frá honum þar sem hann kvartaði yfir meðferðinni á sér: kvaðst vera saklaus. Lengi vel hlustaöi enginn á röfl- ið i honum en loks var Crust nokkur lögreglumaður fenginn til að rannsaka máhð á nýjan leik — til að þagga miöur i Albert. Klukkan var meginsönnunar- gagn gegn Albert og þvi hugðist Crust fara og skoða klukkuna. En hún haföi verið tekin niður og hann fann hana loks á verk- stæði bifvélavirkja nokkurs sem hafði keypt hana. Kalt var i veðri og hráslaga- legt þegar Crust kom á bifvéla- verkstæðið. Hann tók þá snimmhendiseftir þvi að klukk- an gaf frá sér hin undarlegustu hljóð á kortérs fresti. I ljðs kom Albert Taylor sem dæmdur var I lifstiðarfangelsi. Loki og Helmúl giiissas eftir rannsókn á henni að eitt- - hvað var verkinu ábótavant þvi við þessi veðurskilyrði heyrðust ætið frá henni hljóð. Með þvi að hringja á veður- stofuna komst Crust svo að þvi aö svo til sama veðrið hafði ver- ið daginn sem morðið var fram- ið og Albert keypti sér blað. Þvi var ekki stætt á öðru en að taka málið fyrir aftur og var Albert sýknaður og látinn laus, eftir 5 1/2 ár. Hann hefur farið fram á 40.000 pund i skaðabætur. „Ég ætla að kaupa klukkuna,” skrækti hann. Þetta—skal ég segja ykkur —er hún Loki Schmidt, Helmúts ektafrú. Skattskrá Reykjavíkur árið 1979 Skattskrá Reykjavikur árið 1979 liggur frammi i Skattstofu Reykjavikur, Toll- húsinu við Tryggvagötu, frá 26. júli til 9. á- gúst n.k., að báðum dögum meðtöldum, alla virka daga nema laugardaga, frá kl. 10.00 til 16.00 1 skránni eru eftirtalin gjöld: 1. Tekjuskattur. 2. Eignarskattur. 3. Sóknargjald. 4. Kirkjugarðsgjald. 5. Sjúkratryggingagjald. 6. Sérstakur eignarskattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. 7. útsvar. 8. Slysatryggingargjald atvinnurek- enda. 9. Lifeyristryggingargjald atvinnurek- enda. 10. Slysatryggingargjald vegna heimilis- starfa o.fl. 11. Iðgjald til Atvinnuleysistryggingar- sjóðs. 12. Launaskattur. 13. Iðnlánasjóðsgjald. 14. Iðnaðarmálagjald. 15. Aðstöðugjald. 16. Iðnaðargjald. Barnabætur svo og sá hluti persónuaf- sláttar, sem kann að koma til greiðslu út- svars, og sjúkratryggingargjalds er einn- ig tilgreint i skránni. Innifalið i tekjuskatti og eignarskatti er 1% álag til Byggingarsjóðs rikisins. Jafnhliða liggja frammi i skattstofunni yf- ir sama tima þessar skrár: Skrá um skattá útlendinga, sem heimilis- skráðir eru i Reykjavik og greiða forskatt. Skrá um skatta islenskra rikisborgara, sem fluttu hingað frá útlöndum árið 1978. Skrá um skatta dánarbúa. Skrá vegna tvi- sköttunarsamninga. Aðalskrá um söluskatt i Reykjavik fyrir árið 1978. Skrá um landsútsvör árið 1979. Þeir, sem kæra vilja yfir gjöldum sam- kvæmt ofangreindri skattskrá, skattskrá útlendinga, skattskrá heimfluttra, skrá vegna tvisköttunarsamninga og dánar- búa, verða að hafa komið skriflegum kær- um i vörslu skattstofunnar eða i bréfa- kassa hennar i siðasta lagi kl. 24.00 9. ágúst 1979. Reykjavik 25. júli 1979 Skattstjórinn i Reykjavik Gestur Steinþórsson. 18 I

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.