Morgunblaðið - 19.09.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÁrni Gautur Arason og Rosen-
borg lágu á heimavelli / B2
María Ágústsdóttir fékk tilboð
frá Danmörku / B4
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hef-
ur sent Landsvirkjun bréf þar sem
fyrirtækinu er skýrt frá því að af-
greiðsla á kæru fyrirtækisins á úr-
skurði Skipulagsstofnunar um Kára-
hnjúkavirkjun muni tefjast umfram
þær átta vikur sem lögbundnar eru.
Í stjórnsýslukæru Landsvirkjun-
ar var gerður fyrirvari um að fyr-
irtækið myndi leggja fram frekari
gögn um Kárahnjúkavirkjun fyrir 1.
október og hefur ráðuneytið jafn-
framt óskað eftir því í bréfi að öll
viðbótargögn berist ráðuneytinu
fyrir þann tíma. Magnús Jóhannes-
son, ráðuneytisstjóri umhverfisráðu-
neytisins, segir ekkert því til fyrir-
stöðu að viðbótargögn berist á
kærustigi.
Magnús segir að þegar viðbótar-
gögnin hafi borist muni þau verða
kynnt opinberlega og almenningi
gefinn kostur á að gera athugasemd-
ir við þau, rétt eins og þegar mats-
skýrslan var lögð fram á sínum tíma.
Hann segist þó gera ráð fyrir að
frestur til að gera athugasemdir við
viðbótargögnin verði styttri en sá
tími sem almenningur hafði þá, sem
var sex vikur, þar sem aðeins sé um
viðbótargögn að ræða.
Magnús segist ekki geta sagt fyrir
um það á þessu stigi hversu mikið af-
greiðsla kæra vegna Kárahnjúka-
virkjunar muni tefjast, en hann ger-
ir ráð fyrir því að töfin verði um
fjórar vikur, en það er sá tími sem
Landsvirkjun óskaði eftir til að afla
viðbótargagna. Hann segir þær átta
vikur sem ráðherra hefur lögum
samkvæmt til að kveða upp úrskurð,
fyrst og fremst vera hugsaðar til að
tryggja rétt framkvæmdaraðilans,
þannig að hann þurfi ekki að bíða of
lengi eftir úrskurði.
Magnús segir ekkert því til fyr-
irstöðu að gögn séu lögð fram eftir
að málið er komið á kærustig og seg-
ir að umhverfisráðuneytið hafi leitað
eftir lögfræðiáliti Eiríks Tómasson-
ar lagaprófessors eftir að kæra
Landsvirkjunar barst. Niðurstaða
hans barst í síðustu viku og telur
hann að ráðuneytinu sé ótvírætt
skylt að upplýsa hver áhrif fram-
kvæmdarinnar á umhverfið yrðu út
frá rannsóknarreglu stjórnsýslu-
laga.
Magnús segir í sjálfu sér engin
takmörk fyrir því hvenær gögn geti
komið fram. „Tilgangurinn með lög-
unum er að upplýsa mál, að það liggi
fyrir hver eru nákvæmlega áhrif
framkvæmdarinnar á umhverfið,“
segir Magnús.
Áhersla lögð á aukið samráð
við endurskoðun laganna
Ný lög um mat á umhverfisáhrif-
um tóku gildi í fyrra og segir Magn-
ús þetta vera í fyrsta skipti sem við-
bótargögn berast á kærustigi frá því
nýju lögin tóku gildi. Áður var hægt
að setja mál í frekara mat kæmi í
ljós að ekki væri búið að leggja fram
næg gögn. Hann segir að við endur-
skoðun laganna hafi verið lögð
áhersla á að meira samráð yrði milli
Skipulagsstofnunar og fram-
kvæmdaraðilans, þannig að til þess
kæmi síður að mál lægju ekki alveg
ljós fyrir, þegar tekin væri ákvörðun
um niðurstöðu matsskýrslna.
122 kærur bárust ráðuneytinu um
úrskurð Skipulagsstofnunar. Lögum
samkvæmt skal ráðherra leita um-
sagnar Skipulagsstofnunar, fram-
kvæmdaraðila, leyfisveitenda og
annarra aðila, eftir því sem við á, áð-
ur en hann kveður upp úrskurð
vegna þeirra kæra sem bárust í kjöl-
far úrskurðar Skipulagsstofnunar
og segir Magnús að það hafi verið
gert.
Afgreiðsla umhverfis-
ráðuneytis mun tefjast
Landsvirkjun hefur frest til 1. okt. til að afla viðbótargagna um Kárahnjúka
NOKKUÐ öflugir jarðskjálftar hafa
verið í Öxarfirði síðasta sólarhring-
inn. Stærsti skjálftinn, sem mælst
hefur, kom skömmu fyrir miðnætti og
var hann 4,1 á Richter. Margir
skjálftar hafa mælst yfir 2 og nokkrir
yfir 3. Fólk á Norðausturlandi hefur
fundið vel fyrir stærstu skjálftunum
og raunar hefur fólk á Akureyri einn-
ig orðið þeirra vart.
Jarðskjálftahrinan hófst í fyrrinótt.
Vakt var á jarðskjálftadeild Veður-
stofunnar í gærkvöldi. Steinunn Jak-
obsdóttir, jarðeðlisfræðingur á jarð-
eðlissviði Veðurstofu Íslands, segir
greinilega meiri virkni á Norðurlandi
en verið hefur síðustu mánuði, en get-
ur þess þó að ekkert sérstakt bendi til
þess að stærri skjálftar séu á leiðinni.
Hins vegar væru alltaf auknar líkur á
stærri skjálftum þegar virkni ykist.
Skjálfta-
hrina í
Öxarfirði
ÖKUMAÐUR sendiferðabíls slasað-
ist alvarlega þegar bíll hans fór út af
veginum við vegamót Þrengslavegar
í Svínahrauni seint í gærkvöldi. Bíll-
inn var á leið austur og virðist hann
hafa farið út af veginum og enda-
stungist. Að sögn lögreglu benti flest
til að ökumaður væri alvarlega slas-
aður og var hann fluttur á slysadeild
með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Farþegi sem var í bílnum var fluttur
minna slasaður með sjúkrabíl á
sjúkrahús. Talsverðan tíma tók að ná
ökumanninum út úr bílnum. Þyrlan
lenti við Landspítalann í Fossvogi
laust eftir miðnætti.
Þá varð bílvelta í Aðaldalshrauni
sunnan Húsavíkur í gærkvöldi. Öku-
maður var einn í bílnum og var hann
fluttur með sjúkrabíl til Akureyrar.
Morgunblaðið/Júlíus
Aðstæður á slysstað voru erfiðar og talsverðan tíma tók að ná ökumanninum úr bílnum.
Umferðar-
slys í Svína-
hrauni
MALBIKUN á norður-suðurbraut
Reykjavíkurflugvallar er langt
komin en samkvæmt samningi á
verktakinn, Ístak, að hafa lokið
framkvæmdum 1. október. Þröst-
ur Sívertsen, byggingatæknifræð-
ingur hjá Ístaki, sagði allar líkur
á að sú áætlun stæðist ef veður
héldist þokkalegt út mánuðinn.
Ekki er hægt að leggja yfirlag
nema í þurru veðri og eins má hiti
ekki fara niður fyrir fimm gráð-
ur. Hann sagði að það væri ávallt
nokkur áhætta að vera í stórum
malbikunarverkefnum á þessum
árstíma, en veðrið það sem af
væri mánuðinum hefði verið all-
gott.
Með þessum áfanga lýkur mal-
bikun á flugbrautum vallarins, en
á næsta ári er fyrirhugað að mal-
bika akbrautir.Morgunblaðið/Ásdís
Malbikun
langt komin