Morgunblaðið - 19.09.2001, Síða 17

Morgunblaðið - 19.09.2001, Síða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2001 17 Glæsilegur haustfatnaður Engjateigi 5, sími 581 2141 Haustferðir Heims- ferða til Prag hafa fengið ótrúlegar undir- tektir og nú er fjöldi ferða uppseldar í október og nóvember til þessarar fögru borgar. Beint flug í október og nóvember og nú kynnum við einstakt tilboð mánudaginn 8. október í 3 nætur. Flug út á mánudegi og heim á fimmtudegi og þú kynnist al- veg ótrúlega heillandi mannlífi þessarar einstöku borgar sem á engan sinn líka í Evrópu. Fáðu bæklinginn sendan Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 29.970 M.v. 2 í herbergi, Hotel Korunek, 8. okt., 3 nætur, m.v. 2 í herbergi með morgunmat. Skattar innifaldir. Viðbótargisting Aðeins 10 herbergi í boði Prag 3 nætur 8. október frá kr. 29.970 með Heimsferðum GENGIÐ var í gær frá kaupsamn- ingi um kaup Olíufélagsins hf. (ESSO) á hlutabréfum í Samskipum hf. að nafnverði 445 milljónir króna, sem er 42% af hlutafé félagsins. ESSO átti fyrir 7,7% í Samskipum þannig að félagið á nú 49,7% af heild- arhlutafénu. Þetta kom fram í til- kynningu á Verðbréfaþingi Íslands í gær. Þar sagði að kaupverðið yrði greitt með hlutabréfum í eigu ESSO. Jafnframt var í gær tilkynnt um kaup Olíuverzlunar Íslands hf. (Olís) á 10% af hlutafé Samskipa, þ.e. 105 milljónum króna að nafnverði. Báðir samningarnir eru gerðir með fyrirvara um samþykki stjórna félag- anna. Þá er endanleiki samninganna háður fyrirvörum sem gert verður út um innan þriggja vikna. Í tilkynningunum á Verðbréfa- þingi Íslands í gær, bæði vegna kaupa ESSO og Olís á hlutabréfum í Samskipum, segir að tilgangur þeirra sé að stofna til samstarfs Samskipa hf. og Olíudreifingar ehf., dreifingar- fyrirtækis ESSO og Olís, í rekstri dreifikerfa félaganna og að ná með því fram sparnaði og hagræðingu. Þá segir að ESSO og Olís muni á næstu vikum taka þátt í viðræðum hluthafa Samskipa þar að lútandi. Jafnframt verði skoðuð hagkvæmni þess að sömu aðilar eigi samstarf um birgða- hald og uppbyggingu og rekstur vöruhúsa. Kaupa 6,3% í ESSO Tilkynnt var í gær að ESSO hefði gengið frá kaupsamningi um sölu á eigin bréfum, þar með töldum eigin bréfum sem ESSO mundi eignast við slit á Traustfangi ehf. Um er að ræða 6,3% af heildarhlutafé félagsins að nafnverði 62.239.827 krónur. Kaupendur eru þeir Jón Þór Hjaltason, Jón Kristjánsson og Ólaf- ur Ólafsson, sjálfir og fyrir hönd aðila sem þeir hafa umboð frá. Fyrir eiga Kjalar ehf., sem er í meirihlutaeigu Ólafs Ólafssonar, 6,9% hlut í ESSO, og Sund hf., sem er í eigu Jóns Kristjánssonar og fjöl- skyldu hans, 5,2% hlut í ESSO. Kaupa rúm 22% í Vinnslustöðinni Þá var tilkynnt í gær að Jón Þór Hjaltason, Jón Kristjánsson og Ólaf- ur Ólafsson hefðu sjálfir og fyrir hönd aðila sem þeir hafa umboð frá, keypt rúm 12% af heildarhlutafé í Vinnslustöðinni hf. að nafnverði 175.517.026 krónur. Seljandi er ESSO sem á eftir söluna 6,6% hlut í Vinnslustöðinni. Sala hlutabréfanna er háð fyrirvörum sem ganga út inn- an þriggja vikna. ESSO hefur rétt til þess að leysa hlutabréfin aftur til sín í 8 mánuði frá samningsdegi. Jafn- framt var í gær tilkynnt að Ker ehf. hefði selt sömu aðilum öll hlutabréf sín í Vinnslustöðinni hf. Um er að ræða 10,4% af heildarhlutafé félags- ins að nafnverði 159.426.323 krónur og er sala þessara hlutabréfa einnig háð fyrirvörum sem ganga út innan þriggja vikna. Samtals keyptu Jón Þór, Jón og Ólafur því um 22,4% í Vinnslustöðinni í gær. Að lokum var í gær tilkynnt að Guðjón Stefán Guðbergsson, fram- kvæmdastjóri fasteigna- og fram- kvæmdasviðs, hefði selt 3,0 milljónir króna að nafnverði hlutafjár í ESSO á verðinu 11,30. Eignarhlutur Guð- jóns eftir söluna nemur 1.554.210 krónum að nafnverði. Svigrúm til hagræðingar Morgunblaðið hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að seljendur hluta- bréfanna í Samskipum séu Jón Þór Hjaltason, Jón Kristjánsson og Ólaf- ur Ólafsson, forstjóri Samskipa. Ólafur Ólafsson sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann gæti lítið sagt annað um þau viðskipti sem áttu sér stað með hlutabréf í Samskipum í gær annað en það sem fram kemur í tilkynningum félaganna. Frekari skýringa á þessum viðskiptum sé að vænta á næstunni. Hann sagði að menn telji að það sé svigrúm til hag- ræðingar í skipum, bílum, vöruhús- um og á fleiri sviðum og vilji sé til að ná því fram. Markmiðið sé að lækka kostnað eins og hægt sé. Annað sé ekki um þetta að segja á þessu stigi. Jón Kristjánsson, annar þeirra þriggja sem stóðu að sölunni á hluta- bréfunum í Samskipum, sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að hann vildi á þessu stigi ekki tjá sig um þau við- skipti sem áttu sér stað í gær. Til- kynning verði send út á næstu dögum þar sem greint verði nánar frá þeim. Yfirtöku afstýrt? Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hafa þessi viðamiklu hluta- bréfaviðskipti ekki síst haft þann til- gang að hindra meinta yfirtöku á Olíufélaginu, Olís og VÍS vegna mik- illar hlutabréfaeignar Samskipa og tengdra aðila í Olíufélaginu sem aftur er lykillinn að yfirráðum í hinum fé- lögunum, eins og nánar er rakið í frétt á baksíðu. Í annan stað er þó fullyrt að tilgangurinn með kaupum ESSO og Olís á hlutabréfum Sam- skipa sé að ná fram sparnaði í rekstri allra félaganna. T.d. standi þau öll frammi fyrir því að þurfa að byggja vöruskemmur. Áformað væri að byggja eina stóra skemmu fyrir öll félögin og Samskip mundu síðan reka hana sem svokallað vöruhótel. Hægt yrði að samnýta landflutninga hjá Samskipum og Olíudreifingu og bæta rekstur olíuskips Olíudreifingar. Eft- ir þetta eru olíufélögin tvö, ESSO og Olís, langstærstu hluthafarnir í Sam- skipum, en Jón Þór Hjaltason, Jón Kristjánsson og Ólafur Ólafsson eiga áfram einhvern hlut svo og Eignar- haldsfélag Alþýðubankans. ESSO og Olís kaupa meirihluta í Samskipum Markmiðið sagt sparnaður í rekstri BIRGIR Ísleifur Gunnarsson seðla- bankastjóri segir ekki ástæðu til vaxtalækkana hérlendis, þrátt fyrir að seðlabankar Bandaríkjanna, Jap- ans, Kanada og í Evrópu hafi lækk- að stýrivexti sína. Fram þurfi að koma skýrari merki um minnkandi verðbólgu áður en vextir verði lækk- aðir. Bandaríski seðlabankinn lækkaði óvænt stýrivexti á mánudag um hálft prósentustig og eru vextirnir nú 3% vestra. Eftir lokun markaða í Evrópu tilkynnti seðlabanki Evrópu einnig um lækkun stýrivaxta um hálft prósentustig, í 3,75% og Seðla- banki Bretlands lækkaði vexti í gær- morgun um 25 punkta, eða í 4,75%. Sænski seðlabankinn lækkaði stýri- vexti sína um 50 puntka, í 3,75% og danski seðlabankinn lækkaði vext- ina í gærmorgun um hálft prósentu- stig í 4,15%. Þá lækkaði Seðlabanki Japans stýrivexti úr 0,25% í 0,1%, og líkur eru taldar á að Seðlabanki Noregs muni lækka stýrivexti í dag. Birgir Ísleifur segir að Seðlabanki Íslands verði að meta vexti út frá efnahagsástandinu hérlendis. „Það er augljóst að rökin fyrir lækkun stýrivaxta bæði í Bandaríkj- unum og í Evrópu beinast alfarið að því að forða kreppu í kjölfar hryðju- verkanna í síðustu viku. Þar er greinilega um að ræða sameiginlegt átak og síðan fylgja ýmsir jaðar- bankar í kjölfarið.“ Ná verðbólgunni niður fyrst Birgir Ísleifur segir að auðvitað komi að því að vextir verði lækkaðir hér á landi. „Við erum að berjast við verðbólgu sem í síðustu viku mæld- ist 8,4% á tólf mánaða grundvelli og við horfum fyrst og fremst til þess þegar teknar eru vaxtaákvarðanir. Spá okkar er að verðbólga muni fara lækkandi í lok ársins og á næsta ári. Við viljum einfaldlega fá að sjá þessa lækkun koma fram áður en við förum að lækka vexti hér á landi.“ Seðlabankar í Bandaríkjunum og Evrópu lækka stýrivexti Vextir lækka ekki á Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.