Vísir - 24.09.1979, Blaðsíða 28

Vísir - 24.09.1979, Blaðsíða 28
Mánudagur, 24. september 1979 síminn erðóóll Spásvæöi Veöurstofu tslands eru þessi: 1. Faxaflói, 2. Breiöafjörö- ur, 3. Vestfiröir, 4. Norður- land, 5. Norðausturland, 6. Austfiröir, 7. Suöausturland, 8. Suövesturland. veðurspá dagsins BUist er viö stormi á Vest- fjaröamiöum. Klukkan 6 i morgun var vaxandi 973 mb lægð 350 km VSV af Reykja- nesi á hægri hreyfingu NA. Viöa um land veröur 7-8 stiga hiti, en fer aö kólna á Vest- fjöröum. Suövesturland og miöin SV 5-7 og rigning i fyrstu en geng- ur i SV 6-8 meö skúrum. Faxaflói, Breiöafjöröur og miöin, SA 4-6 og rigning i fyrstu en breytileg átt 4-6 og skúrir þegar liða tekur á morguninn. Vestfiröir og miöin A 6-8 rigning I fyrstu en gengur i NA 8-9 meö slyddu siödegis. Noröurland S 4-6. Rigning eöa skúrir vestan til en þurrt aö mestu austan til. Noröur- miö, A 4-6 og rigning i fyrstu, en gengur i NA 6-8 meö rign- ingu eöa slyddu. Noröausturland og miöin S 3-4, sumstaöar rigning I fyrstu, en siöan SV 4-5 og skýj- aö meö köflum. veðrið hér og par Veöriö kl. 6 i morgun: Akureyri alskýjaö 3, Bergen skýjaö5, Helsinkiléttskýjaö 0, Kaupmannahöfn skýjaö 9, Osló léttskýj. 3, Reykjavik rigning 8, Stokkhólmur þokumóöa 5, Þórshöfn skúrir 9. Veörið kl. 18 I gær: Aþena léttskýjaö 25, Berlin rigning 12, Chicagolettskýjaö 19, Feneyjar léttskýjaö 19, Frankfurt alskýjaö 12, Nuuk léttskýjaö 5, London súld 12, Luxemburg skýjað 10, Las Palmas skýjaö 22, Mallorca I I I B I I I B B B B B fl B fl ■ B 1 B I I I 1 I 1 1 1 I B B B 1 fl fl fl I i i skýjaö 14, Montreal léttskýjaö 13, Parisskýjaö 12, Rómrign- ing 18, Malaga heiöskirt 20, Vin alskýjaö 12, Winnipeg skýjaö 17. LOKI segir „Alþýöuflokkurinn er á góöri leiö meö að veröa einn af verö- bólguflokkunum, einn af Kröfluflokkunum”, segir Bjarni Guönason i blaöagrein. Kannski kjörorö kratanna^ i næstu kosningum veröi: „Viö erum Hka Kröfluflokkur”? SJ I i t' „UPPSAGHIR FLUBMANNA SBINUfiA AFIURKAILASAR" seglr Jóhannes úskarsson hiá Fluglelðum „Þaó virðist allt benda til þess að uppsagnir flug- manna verði afturkallaðar, a.m.k. á meðan þessi verkefni í pilagrímafluginu endast", sagði Jóhannes óskarsson forstöðumaður flugrekstrardeildar Flug- leiða í samtali við Vísi, en eins og kunnugt er var 9 Loftleiða- og 9 Flugfélagsflugmönnum sagt upp í sumar og áttu uppsagnir að koma til framkvæmda 1. október. Uppsagnir Loftleiðaflugmanna veröa væntanlega dregnar til baka fyrir mánaöamót. Jóhannes sagöi aö Flugleiöir þyrftu á þessum flugmönnum aö halda i sambandi viö plla- grímaflugið og þvi yrði senni- lega um framhaldsráöningu aö ræða, þó enn væri óljóst i hvaöa mynd hún yrði. bá heföi flug- freyjum verið boöiö upp á fram- haldsráðningu á meöan þess i verkefni endast, en þaö veröur væntanlega fram i desember, en siðan væri allt óljóst með framhaldiö. „Þaö er ekki búiö aö aftur- kalla uppsagnir en ég geri ráö fyrir aö þaö veröi gert nú mjög fljótlega þvi uppsagnir þessara niu Loftieiöaflugmanna áttu aö koma til framkvæmda 1. októ- ber”, sagði Baldur Oddsson for- maöur Félags Loftleiöaflug- manna þegar hann var inntur eftir þessu máli. Sagöi hann að þaö hlyti að vera bráönauösyn- legt fyrir Flugleiöir út af pfla- grimafluginu og væri þvl varla annaö en framkvæmdaatriöi fyrir félagiö. —HR Sextán ára stúlka beið bana Sextán ára gömul stúlka, Elva Guðnadóttir, Tjarnarlundi 13E, beiö bana I umferöarslysi á Akur- eyri aöfaranótt laugardags. Hún lenti fyrir bil ásamt 21 árs göml- um pilti Kristjáni Jóni Guöjóns- syni, sem slasaðist llfshættulega og liggur nú á gjörgæsludeild Borgarspitalans. Fimmtán ára stúlka, sem meö þeim var, slapp ómeidd. Ungmennin voru aö koma af dansleik I félagsheimilinu Hllöar- bæ skammt norðan Akureyrar og gengu I átt til bæjarins. Fólksbif- reiö kom á eftir þeim og varö ökumaður ekki var viö hina gang- andi fyrr en um seinan. Elva og Kristján uröu fyrir bílnum og dróst Elva með honum nokkurn spöl, en Kristján kastaöist frá bllnum viö höggiö. Stúlkan, sem meö þeim var, haföi staldraö viö úti á vegarkantinum, er bllinn bar að og lenti þvl ekki fyrir hon- um. Vegurinn, þar sem slysiö varö er beinn og malbikaöur en er hins vegar ekki upplýstur. Lögregla og sjúkraliö var strax kvatt á staðinn en Elva var látin er komiö var meö hana á sjúkrahús. Kristján var fluttur flugleiðis til Reykjavikur. Arni Magnússon varöstjóri I lögreglunni á Akureyri, sagöi I morgun aö algengt væri aö fólk færi gangandi af dansleikjum I Hliöarbæ til bæjarins og skapaöi þaö stórhættu á óupplýstum veg- inum. —SG Heimasæturnar á ösabakka á Skeiöum standa I ströngu þessa dagana viö kartöfluupptöku. Vfsismynd: EJ Kartölluræktin: AGÆT UPPSKERA A SUBURLANDI „Viö erum aö taka upp kartöflurnar núna og mér sýnist þetta vera heldur meira en I meöalári”, sagöi Helgi Sveinsson bóndi á ósabakka I Villingaholts- hreppi viö Visi I morgun. „Þaö eina sem viö höfum áhyggjur af er aö þaö hefur veriö nokkurtfrostundanfariö. Viö höf- um reynt aö verja kartöflurnar en þaö kemur ekki i ljós fyrr en seinna hvort þær hafa skemmst. Þaö er sömu sögu aö segja hjá nágrönnum okkar, búskapurinn hefur gengiö ágætlega aö öllu leyti I sumar. Ég er þó hræddur um aö okkar kartöflur dugi ekki til ef allt er ónýtt i Þykkvabæn- um, eins og sagt er”. —ÓT Hyggjast breyta skattlagningu á bensfn og bitreiðar: SKATTARNIR VERfil KRÚNU- TALA EN EKKI PRÚSENTA „Það var samþykkt tillaga á ríkisstjórnarfundi í fyrradag þess efnis að skipuð yrði nefnd stjórnar- flokkanna sem gerði tillögur að nýrri skattlagningu á bensín og bifreiðar, þannig að hún miðaðist við krónutölu en ekki prósentu", sagði Svavar Gestsson viðskiptaráðherra í samtali við Vísi. Svavar sagöi aö stefnt væri aö þvi aö þessi nefnd skilaöi tillög- um mjög fljótlega, þvi hin nýja skattlagning ætti aö taka gildi 1. janúar 1980 um leiö og ný fjár- lög. Væri þetta I beinu fram- haldi af umræöu sem varö um þessi mál fyrr I sumar, en þá heföi hann lýst þvl yfir aö hann teldi óeölilegt aö skattlagning á bensin væri látin fylgja Rotter- damvisitölu, frekar en innlendri viömiðun. Svavar var spuröur hvaöa liöir I benslnveröinu yröu miöaðir viö fasta krónutölu en hann kvaöst ekki geta sagt um þaö á þessu stigi, en taldi hugsanlegt aö þaö yröu ein- hverjir hinna stóru þátta bensinverösins eins og bensíngjaldíVegagjald^tollar eða • söluskattur. Þá væri skattlagning bifreiöa einnig til endurskoöunar svo og tekjustofnar Vegasjóös, en þeir eru vegagjald og þungaskattur, en ákvörðun yrði ekki tekin fyrr en eftir aö nefndin skilaöi tillög- um sinum. Þó væri ætlunin aö tollar af bllum yröu mismun- andi eftir þvi hversu bensin- frekir þeir væru, sagöi Svavar aö lokum. —HR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.