Vísir - 29.10.1979, Side 19
vtsm
Mánudagur 29. október 1979
19
Ólafur Jóhannesson varð i fyrsta sæti f próf-
kjörinu, fékk 183 atkvæði af 254.
Húsavfk:
SÝSLUMAÐUR VILDI
KJÚSA HJÁ KRDTUM
Þaö bar viö á kjörstað i próf-
kjöri Alþýðuflokksins á Húsavik,
aö vfirvald staðarins, Sigurður
Gizurarson, sýslumaður, birtist
öllum að óvörum.
Viðstaddir héldu, að yfirvaldið
hefði rekið inn nefið til að athuga
hvort ekki færi allt vel fram og
urbu þvi hvumsa, er hann vildi
greiða atkvæði.
Sýslumaður var inntur eftir
þvi, hvort hann væri ekki enn
flokksbundinn framsóknarmaður
og játti hann þvi samstundis. Var
honum þá meinað að kjósa og fór
sýslumaður við svo búið,
sárnauðugur þó.
—SG.
„Mér virðist, að það sé svolítil
bylgja með okkur svo að ég hef
daiitla von um að við komum inn
tveim þingmönnum iReykjavik”,
sagði Guðmundur G. Þórarins-
son, verkfræðingur við Visi í gær-
kvöldi, er hann var spuröur, hvort
hann eygði von i þingsæti. Guð-
mundur var annar í skoðana-
könnun fulltrúaráðs Framsókn-
arfélaganna i Reykjavíkum skip-
an listans, sem fram fór á föstu-
dag og laugardag.
Ólafur Jóhannesson, fyrrver-
andi forsætisráðherra, varð i
efsta sæti með 183 atkvæði. Guö-
mundur fékk 134 atkvæði i 2.
sætiö.
,,Ég hef litið um þetta að
segja”, sagði Guðmundur. ,,En
ég er ánægður með þessa út-
komu.”
Skoðanakönnunin er bindandi
fy rir tvö efstu sætin. Að öðru leyti
voru úrslit hennar þau, að i 3ja
sæti varð Haraldur Ólafsson lekt-
or með 156 atkvæði i það sæti, 4.
varð Sigrún Magnúsdóttir, kaup-
maður. með 162 atkv. 5. Kristján
Friðriksson i Última, 6. Kristinn
Agúst Friðfinnsson, guðfræði-
nemi, 7. Geir Viðar Vilhjálmsson,
sálfræðingur, og i 8. Sigrún
Sturludóttirstarfsmaður Pósts og
sima.
1 kjöri voru 10 manns, en 254
tóku þátt i skoðanakönnuninni.
Uppstillingarnefnd þarf að
skiia tillögum um skipan listans,
annarra en tveggja efstu sæta,
fyrir þriðjudagskvöld.
— KS
PáH Stefán
FramsóKn Noröurlanöi vestra:
- Páll 09 Stefán Guðmundsson I efstu sætum
„Tillaga uppstillingarnefndar
var samþykkt af öilum fundar-
mönnum, um 100 manns, sagði
Guttormur Óskarsson, formaður
k jördæm isráðs Framsóknar-
flokksins í Norðurlandi vestra, i
samtali við Visi, en listi flokksins
var ákveðinn á kjördæmisþingi i
Miðgarði i gær.
Fyrir þingið var talið, að Sigl-
firðingar hygðu á sérframboð
vegna óánægju yfir þvi að engin
skoðanakönnun var um röð
manna á listanum.
Efstu menn á lista flokksins
fyriralþingiskosningarnareru: 1.
Páll Pétursson, fyrrverandi
alþingismaður, Höllustöðum, 2.
Stefán Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri, Sauðárkróki, 3.
Ingólfur Guðnason, hreppsstjóri,
Hvammstanga, 4. Bogi Sigur-
björnsson, skattendurskoðandi,
Siglufirði, 5. Jón Ingvi Ingvason,
rafvirki, Skagaströnd.
—KS
UarDar marðf Baldur
JðHAHH EINVAHBSSON EFSTUR
- Leó Löve livergl á iistanum
Guömundur: Gerir sér von um að
komast inn með Ólafi.
Litill munur varð á Garðari
Sigurðssyni og Baldri óskarssyni
i skoðanakönnun, sem fram fór
hjá Alþýðubandalagsfélögunum á
Suðurlandi um skipan lista
flokksins fyrir alþingiskosningar-
nar. Garðar fékk 132 atkvæði og
varð i efsta sæti, en Baldur fékk
123 atkvæði.
Kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsins á Suðurlandi ákvað
skipan listans á fundi slnum i
Vestmannaeyjum i gærmorgun,
og var farið eftir niðurstöðum
skoðanakönnunarinnar. Listinn
er þvi þannig skipaður: 1. Garðar
Sigurðsson, fyrrverandi alþingis-
maður, Vestmannaeyjum, 2.
Baldur óskarsson, fulltrúi,
Reykjavik, 3. Margrét Frimanns-
dóttir, húsmóðir, Stokkseyri, 4.
Auður Guðbrandsdóttir, hús-
móðir, Hveragerði, 5. Jóhannes
Heigason, bóndi, Hvammi. —KS
'Garðar Sigurðsson bar naumlega
sigur úr býtum i keppninni við
Baldur óskarsson um efsta sætiö.
,,Ég var reiðubúinn til þess að
taka sæti á listanum.en það kom
mér algjörlega á óvart, hvað ég
lenti ofarlega”, sagði Böðvar
Bragason, sýslumaður á Hvols-
velli, en hann varð i þriðja sæti á
lista Framsóknarflokksins á Suð-
uriandi.
En hefur þú ekki alltaf verið
talinn sjálfstæðismaður?
,,Ég held, að það sé orðum auk-
ið. Ég hef hvergi verið flokks-
bundinn en haft áhuga á stjórn-
málum og látið skoðanir minar i
ljós. En menn eru alltaf að gera
öðrum upp skoðanir. Hins vegar
er það rétt, að ég er tiltölulega
nýgenginn i Framsóknarflokk-
inn ’, sagði Böðvar.
Framboðslisti Framsóknar-
llokksins á Suðurlandi var ákveð-
inn i kjördæmisþingi flokksins á
llvolsvelli á laugardaginn. Við
skipan fjögurra efstu sæta var
farið eftir skoðanakönnun á þing-
inu. Höð efstu sæta á listanum er
þannig: 1. Þórarinn Sigurjónsson,
lyrrverandi alþingismaður,
Laugardælum, 2. Jón Helgason,
fyrrverandi alþingismaður, Segl-
búðum, 3. Böðvar Bragason,
sýslumaður, Hvolsvelli, 4. Rik-
harð Jónsson, framkvæmdastjóri,
Þorlákshöfn, 5. Jóhann Björns-
son, forstjóri, Vestmannaeyjum,
6. Guðni Ágústsson, eftirlitsmað-
ur. Selfossi.
— KS.
Jóhann Einvarðsson, Markús A
Einarsson og Helgi H. Jónsson
voru kosnir i þrjú efstu sæti á lista
Framsóknarflokksins i Reykja-
neskjördæmi á kjördæmisþingi
flokksins i Festi i gær.
Jóhann fékk 216 atkvæði i fyrsta
sæti.en Markús 52 atkvæði. t ann-
aö sæti fékk Markús 136 atkvæði
en Helgi 126. 1 þriðja sæti fékk
Helgi 186 atkvæði, Leó Löve 54 og
Þrúður Helgadóttir 28. Leó Löve
gaf ekki kostá sér i sæti neðar en i
3ja sæti.
Sex efstu sæti listans eru þann-
igskipuð: 1. Jóhann Einvarðsson,
bæjarstjóri, Keflavik, 2. Markús
Á Einarsson, veðurfræðingur,
Hafnarfirði, 3JIelgi H. Jónsson,
fréttamaður Kópavogi, 4. Þrúður
Helgadóttir, verkstjóri, Mosfells-
sveit, 5. Ólafur Vilhjálmsson,
leigubilstjóri Garðabæ, 6. Bragi
Árnason, prófessor, Kópavogi.
—KS
.lóhann Einvarðsson. Tekst
honum að endurheimta þingsæti
Kramsóknar i Revkjaneskjör-
dæmi?
Ólafur Þörðarson, skólastjóri,
náði 2. sætinu af Gunnlaugi
Finnssyni á framboðslista Fram-
sóknarflokksins i Vestfjarðakjör-
dæmi. Gengið var frá listanum á
aukakjördæmisþingi á laugar-
daginn og fékk ólafur 28 atkvæði i
2. sætiö en Gunnlaugur 21 og
hafnaði hann að lokum I 9 sæti.
Ólafur er nú skólastjóri i Reyk-
holti, en var áður á Suðureyri og
hefur jafnan staðið framarlega I
flokki framsóknarmannna á
Vestfjörðum. 1 heild er listinn
þannig skipaður:
1. Steingrimur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins
2. Ólafur Þóröarson, skólastjóri
3. Sigurgeir Bóasson, skrif-
stofustj. Bolungarvik.
4. Finnbogi Hermannsson,
kennari Núpi
5. össur Guðbjartsson, bóndi
Láganúpi
6. Magdalena Sigurðardóttir,
frú, Isafirði
Itöðvari Bragasyni syslumanni
skaut óvænt upp á lista Fram-
sóknar.
7. Jósep Rósinkarsson, bóndi,
Fjarðarhorni, Strand.
8. Sigurjón Hallgrimsson, sjó-
maður, Isafirði.
9. Gunnlaugur Finnsson, bóndi,
Hvilft
10. Guðmundur Ingi Kristjáns-
son, skáldbóndi, Kirkjubóli
A aukakjördæmisþinginu
mættu um 50 fulltrúar og fór þar
Steingrimur llermannsson leiðir
enn flokk sinn i Vestfjarðakjör-
dæmi.
fram leynileg atkvæðagreiðsla
um skipan listans. Var kosið þar
til hver og einn hafði fengið
meirihluta i ákveðið sæti. Það var
i þriðju atkvæðagreiðslu um 2.
sætið, sem Ólafur Þórðarson
tryggði sér sigurinn og hefndi þar
með ósigursins gegn Gunnlaugi i
prófkjöri fyrir siöustu kosningar.
— SG
Ólafur Þórðarson vann nu sigur i
baráttunni um 2. sætiö.
Framsóknarflokkurinn í Reykjavfk:
ðlafur og Guömunú-
ur í efstu sætunum
Nýgengínn í fiokkinn
og lenti í briðja sæti
Einhugur um llslann
dlafur t>ðröars. telldl Gunnlaug