Vísir - 29.10.1979, Blaðsíða 39

Vísir - 29.10.1979, Blaðsíða 39
Umsjón: Halídór \ (Reynisson vtsm , Mánudagur 29. október 1979 dtvaro Kl. 20J)0: -nýp báttur fyrir ungt fólk „Þessi nýi þáttur, „Viö”, veröur einskonar sambland af Púkki og A tiunda timanum”, sagOi Andrés Sigurvinsson en hann ásamt Þórunni Siguröar- dóttur, veröur umsjónarmaöur nýs þáttar fyrir ungt fólk sem veröur á dagskrá útvarpsins i vetur. Andrés sagði aö ætlunin væri i þessum fyrsta þætti að kynna 3 vinsælustu lögin I vikunni fjalla um stjörnumerki vikunnar og einnig yrðu viötöl við krakka um t nýja þættinum VIÐ veröur m.a. rakin saga Spilverks þjóöanna og væntanlega sagtfrá þvi þegar þaö var á toppnum, en þessi mynd er einmitt tekin á toppi Laugardaishallarinnar. það hvað þau hefðu starfað i sum- ar. Einnig yrði kynning á leikrit- um, sem Alþýðuleikhúsið og Iðnó eru með á fjölunum þessa daga. Hljóðriti i Hafnarfirði verður heimsóttur og fylgst verður með þvi hvernig plata verður til og siðast en ekki sist kæmi Sigurður Bjóla i heimsókn og segði sögu Spilverks þjóðanna. —HR Sjónvaro kl. 21.55: Kreppumórail I suöurrfkjunum „Þessi mynd segir frá verka- Bandarikjunum”, sagöi Jón O. lýösbaráttu I Noröur-Karólinu I Edwald, en hann er þýöandi ann- 1 Suöurrikjunum gerast andstæöur hvaö mestar i Bandarikjunum eins og þessi mynd ber meö sér, en hún sýnir glaökiakkanlega blökkumenn innan um hóp af meölimum Kú Klúx Klan. ars þáttar úr myndaflokknum „Suöriö sæla”. Jón sagöi að myndin lýsti þvi hvernig þarna hefði komiö at- vinnuleysi i kjölfar iðnvæðingar- innar, en sú öld væri nú liðin, þeg- ar aðaluppistaðan I efnahag þessa rikis var bómullin, en hún var eins og kunnugt er unnin af hinu ódýra vinnuafli þar sem þrælarnir voru. Hins vegar væri verkalýðshreyfingin ennþá mjög veik, en fjölþjóðafyrirtæki gengju á lagið og notfærðu sér veikleika hennar til að halda niðri kjörum verkamanna. Loks sagði Jón að i myndinni kæmi fram aö verkalýösbaráttan I Norður-Karóllnu væri nú á svipuðu stigi og hún var i Norður- rikjum Bandarikjanna á fjórða áratug þessarar aldar. Þó væri enginn munur gerður á blökkum og hvitum verkamönnum, allir ættu við jafn ramman reip aö draga. —HR MÁNUDAGUR 29. október 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar. Tónleikasyrpa 14.30 Miödegissagan: „Fiski- menn” eftir Martin Joen- sen. Hjálmar Arnason les þýðingu sina (15). 15.00 Framhald syrpunnar. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Siödegistónleikar. 17.20 Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Víkinga- drengirnir”, gert eftir sam- nefndri sögu eftir Hedwig Collin. Aöur útvarpað 1966. Þýðandi: ólafur Jóhann Sigurðsson. 17.45 KórGagnfræöaskólans á Selfossi syngur. Söngstjóri: Jón Ingi Sigurmundsson. 18.00 Viösjá. Endurtekinn þáttur frá morgninum. 18.15 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mál. Arni Böövarsson flytur þáttinn. 19.40 Um daginn og veginn. Guöjón B. Baldvinsson tal- ar. 20.00 Viö, — þáttur fyrir ungt fólk. Stjórnendur: Jórunn Siguröardóttir og Andrés Sigurvinsson. 20.40 Lög unga fólksins. Ásta R. Jóhannesdóttir kynnir. 21.45 (Jtvarpssagan 22.15 Sónata fyrir einleiks- fiölu op. 115 eftir ProkofJeff. Chantal Juillet leikur. 22.30 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Frá tónleikum Sinfónfu- hljómsveitar tslands I Há- skólabfói 25. þ.m., — siðari hlutiefnisskrár. Stjórnandi: Eifred Eckart-Hansen. Sin- fóníanr. 5 iC-dúr eftir Vagn Holmboe. — Jón Múli Arna- son kynnir. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. Mánudagur 29. október 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Iþróttir.Umsjónarmaöur Bjarni Felixson. 21.05 Allan guöslangan daginr Sænskt sjónvarpsleikrit byggt á sögu eftir Gun Jacobsson.Leikstjóri Henry Meyer. Aöalhlutverk Mich Koivunen, Ken Lennaard og Viveka Warenfalk. Leikritiö er um tvo bræður, Tobba og Pingó,sem erusex og ellefu ára, og fráskilda móöur þeirra. Þegar hún fær at- vinnu verður Pingó að gæta litla bróður sins. Þýðandi Jakob S. Jónsson. (Nordvision — Sænska sjón- varpiö) 21.55 Suöriö sæla.Annar þátt- ur. Velkomin til Noröur-Karólina.SU öld er liðin er bómullin skipti sköpum fyrir efnahag Suöurrikjanna og svartir þrælar strituðu daginn lang- an á sólgylltum ekrunum. Verklýðshreyfingin er þróttlítil og þarf á öllu sinu að halda gegn fjölþjóöa- fyrirtækjunum. Þýðandi JónO.Edwald. (Nordvision — Sænska sjónvarpið) 22.40 Dagskrárlok FRAMB0B OG KRAFTAVERK Nú er prófkjörum flokkanna senn lokið.Fyrirsjáanlegt er, að þau skila ekki ýkja glæsilegum listum aö þessu sinni. Ekki megum viö þó snúa við þeim baki og hverfa til gamla fyrir- komulagsins. Ekkert bendir til þess að fámennisval flokksfor- ystu hefði skilaö okkur skárri frambjóöendum en prófkjörin gera nú. Meöan prófkjörin eru brúkuö, er von um breytingu, ella ráöa flokksþrælasjónar- miöin. Þvi ér ekki aö neita aö friski flokkurinn frá þvi i fyrra, Al- þýðuflokkurinn, hefur sett mjög ofan. Nýjasta dæmiö er makkiö I möppudýrum flokksins i Reykjavik meö framboössætin þar. Heföi ekki maöur átt hér viökomu á leiö sinni um veröld- ina, heföi allur listinn í Reykja- vik oröiö sjálfkjörinn i próf- kjöri! Þaö er ekki lltiö afrek hjá þessum hetjum opins stjórn- málaflokks aö veröa næstum allir sjálfkjörnir i prófkjöri. Yfir alla helgina hefur óláta- belgur Alþýöuflokksins, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, hamast viö aö tryggja vini sinum Benedikt Gröndal sæti og atvinnu á meö- an Björgvin Guömundsson félagi hennar hefur unniö leynt og ljóst aö þvf að fella hann. En svo vill til aö I kvöld ætlar þessi flokksformannsbani að draga félaga sinn á höggstokk full- trúaráös Alþýöuflokksins. Þeim fundi mun handbendi hans og margra áratuga bitlingakrati stjórna I krafti formennsku sinnar og þykist því Björgvin Guömundsson eiga auöveldan leik. Alþýöubandalagiö biöur þessarar slátrunar meö von- gleöi og velþóknun og þykir til- breyting i aö láta aöra vinna skitverkin fyrir sig. Hjá flokki allra stétta fer fram prófkjörsumsstaöar og er vöruvaliö, sem prófkjörsneyt- endum er boöiö upp á, ekki fjöl- breytt. Miöaö viö almennar reglur og vörumerkingar og aldur vöru ættu margar þær kempur, sem nú er boöiö upp á, aö vera komnar niöur úr hillun- um. Svarthöföi hefur löngum haft trú á aö innan Sjáifstæöis- flokksins væru nokkrir ungir menn, sem liklegir væru til aö taka þessum væröarflokki tak. En nú hafa þeir brugöist rétt einsog aörir. Þaö er ein af ástæöum þess, aö ekki er út I hött aö töluvert geti hafa verið tú i báöum skoöanakönnunum síödegisblaöanna, svo ólikar sem J)ær voru. 1 fyrri könnun- inni, sem Vlsir framkvæmdi af djörfung og skyndingu, haföi Sjálfstæöisflokkurinn hreint alveg ótrúlegan byr. t Dag- blaöskönnuninni, sem fram- kvæmd var töluvert siöar, var mjög af honum dregiö. Fólk var rasandi reitt út I vinstristjórn- arflokkanna, þegar fyrri könnunin var gerö og ætlaöi Sjálfstæðisflokknum aö taka viö. En þegar reiöin rann af og menn sáu allajþá súpu af þreytu og þröngsýni sem Sjálfstæöis- flokkurinn ætlar rétt einu sinni aö bjóöa mönnum upp á, þá fór móðurinn i einu hendingskasti. Um leiö byrjaöi aö rætast sú spá Svarthöföa, aö Sjálfstæöis- flokknum tækist liklega aö af- stýra stórsigri slnum, þótt ekki væri þaö létt verk. 1 Framsókn fór allt eins og vænta mátti. Tlmi kraftaverk- anna var ekki liðinn, þrátt fyrir aUt. Kristinn Finnbogason, sem ætiö hefur reynst Framsóknar- flokknum best, þegar raunir hans hafa verið mestar, er aftur kominn til skjalanna. Hann sá, aö eitthvaö varö aö gera til aö tryggja stööu flokksins rétt eins og Tfmans foröum. Hann hefur rétt einu sinni grafiö upp nýjan og óvæntan mann til aö fara á þing I sínu umboöi. Notaði hann fordæmi kratanna, sem unnu sigur sinn forðum sem nýr flokkur á gömlum grunni. Nú mun Kristinn vinna flokki sin- um fariö fylgi meö gömlum manni á nýrri möl. Lengi haf a menn velt fyrir sér hugmyndinni um umboösmanns Alþingis, sem draga myndi taum þess smáa i slagnum viö kerfiö. Þessi hugmynd mun enn eiga nokkuö i land. Hins vegar er nú verið aö hrinda i fram- kvæmd hugmynd um sérstakan umboösmann Kristins á Al- þingi, þótt ekki sé enn vitað hvers taum honum er ætlaö aö draga. SVARTHÖFÐI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.