Vísir - 14.11.1979, Side 5
VtSIH
Miðvikudagur 14. nóvember 1979
Stúdentar og
byltingarráð-
ið ðsammála
um gísiana
Embættismenn íransstjórnar
hafa opinberlega sýnt sig ósam-
mála stúdentunum, sem hafa
bandariska sendiráðið i Teheran
á valdi slnu og milli 60 og 100
gisla, um skilmálana fyrir þvi, aö
glslunum verði sleppt.
Tveir fulltrúar úr byltingarráð-
inu, sem fer með raunveruleg
völd i landinu, birtu I gær yfirlýs-
ingar, sem fólu I sér mildari skil-
yrði þess, að gislarnir yröu látnir
lausir.
En stúdentar flýttu sér að lýsa
þvi yfir, að það yröi ekkert samið
um gislana, fyrr en keisaranum
hefði verið visaö úr Bandaríkjun-
um, og hver sem öðru héldi fram,
væri ekki á þeirra bandi.
Á blaöamannafundi fyrr i gær
haföi Bani-Sadr utanrikisráð-
herra og Gotbzadeh, fulltrúi úr
byltingarráðinu gefiö til kynr.a,
að til greina kæmi að semja um
frelsi gislanna, ef Bandarikin
gengju aö tveim kröfum. Sú fyrri,
að Bandarikjastjórn lýsti þvl yfir,
að keisarinn kynni að vera glæpa-
maður. Hin, að fallist yrði á stofn-
un alþjóðlegrar nefndar til þess
að rannsaka glæpi hans.
Á fundinum kröfðust þessir
tveir þess, að kallaður yrði sam-
an fundur i öryggisráðinu til þess
að fjalla um þá ógnun, sem
Bandarikin væru heimsfriðnum.
Hollendingar vilja
leyfa sfldvelðar
Hollenska þingið skoraði á
rikisstjórnina að reyna að fá
Efnahagsbandalagið til þess að
aflétta banni á sildveiðum i Norð-
ursjónum.
Vegna fiskverndunar EBE hef-
ur sildveiði veriö bönnuð I Norð-
ursjónum siðustu tvö ár.
Hollendingar vilja nú, að þessu
banni verði aflétt, og að hollensk-
ir fiskimenn fái á næsta ári veiði-
kvóta, sem heimili þeim að veiða
5.000 smálestir af sild.
BBC heldur áfram
útsendingum á er-
lendum málum
Breska rikisstjórnin hefur látið
undan þrýstingi frá öllum stjórn-
málaflokkum landsins og hætt við
fyrirætlanir sinar um aö skera
niöur útvarpsþjónustu BBC.
Ætlunin hafði verið aö hætta út-
sendingum á frönsku, Itölsku,
grisku, tyrknesku, Möltu-mál-
ýsku, spænsku og tungu Burma-
búa og spara með þvi 2,7 milljón-
ir sterlingspunda.
Peter Blaker, aðstoðarutan-
rikisráðherra, greindi frá þvi I
gærkvöldi, aö hætt hefði verið við
að leggja þessar útsendingar nið-
ur, en I staðinn yrði sparað með
þvi að draga úr framkvæmdum
til þess að bæta hlustunarskilyrði.
BEAGAN I FHAMBOÐ
Ronald Reagan hóf i gærkvöldi
formlega baráttu slna fyrir þvi að
hljóta útnefningu Repúblikana-
flokksins til forsetaframboðs.
1 ræðu, sem hann flutti I Hilton-
hótelinu I New York, veittist hann
að stjórn Carters fyrir að hafa
mistekist að stöðva veröbólguna,
rétta hlut dollarans og fyrir stefn-
una I orkumálunum.
,,Ég get ekki og vil ekki standa
hjá og horfa á þessa miklu þjóð
eyðileggja sjálfa sig,” sagöi
Reagan.
Næstu fimm daga verður hann i
stööugum ferðum milli tiu rikja
til þess að kynna framboð sitt, og
kannski fullt eins til þess að sýna,
að þótt hann sé 68 ára orðinn, hái
þaö honum ekki viö kosningabar-
áttuna fyrir þessar 39 forkosn-
ingar, sem eru fyrir höndum.
Reagan er siðastur tiu fram-
boösefna Repúblikanaflokksins
til þess að hefja kosningabarátt-
una, en er sagður samt hafa for-
skot á helstu keppinauta sina, þá
John Connally, Howard Baker og
George Bush. Skoðanakannanir
benda þó til þess, að hann njóti
mun minna fylgis en Demókrat-
arnir Edward Kennedy og
Jimmy Carter.
Skotbar-
dagi
Þessi 19 ára gamli Mexikani, Javier Sanchez að nafni, sem sést hér
á myndinni miða og skjóta af 357 magnum-skammbyssu á lögregiu-
mann i San Antonio i Texas, hafði bdið um sig I húsinu, og varist
nokkra hrið umsátri lögreglunnar. t skotbardaganum scrði hann
þrjá lögreglumenn, en nokkrum sekúndum eftir að þessi mynd var
tekin, féll hann sjálfur fyrir skothrinu frá lögreglumanninum, sem
sést til hægri á miðri mynd.
I
I
I
I
I
20 urðaðir undir rúslum
4
Björgunarsveitir unnu i alla
nótt i Parma á ítaliu við aö grafa
upp úr rústum þriggja hæða
sjúkrahúss, þá sem lifðu af feiki-
lega sprengingu I húsinu. Vitaö er
um að minnsta kosti sjö, sem fór-
ust I sprengingunni.
Óttast er, að milli tuttugu og
þrjátiu séu grafnir undir brak-
inu, hjúkrunarfólk og sjúklingar.
Leki i gasleiöslum er sagður
hafa orsakað sprenginguna, sem
varð i gærkvöldi.
Þegar menn komu á slysstaö-
inn og huguðu aö rústunum,
heyrðu þeir innan úr brakinu
kallaö veikum rómi: „Mamma,
mamma, hjálpaðu okkur.”
Var hafist handa við að grafa,
en mjög seinkaði fyrir, aö sum
steinsteypubrotin eru geysiþung,
og þarf aö nota krana við starfiö.
Herflokkur kom til hjálpar viö
uppgröftinn.
þakjárn • þaksaumur
plastháruplötur • þakpappi
Byggingavörudeild
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 simi 10 600