Vísir - 14.11.1979, Síða 8

Vísir - 14.11.1979, Síða 8
VlSIR Miftvikudagur 14. nóvember 1979 8 Útgefandi: Reykjaprenth/f Framkvæmdastjóri: Davffi Guflmundsson Ritstjórar: ólafur Ragnarsson Hörfiur Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guð- vinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Páisson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús ölafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurfiur R. Pétursson. Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8. Simar 86611 og 87760. Afgreifisla: Stakkholti 7-4, simi 86611. ,Ritstjórn: Siðumúla 14, sími 86611 7 linur. Askrift er kr. 4.000 á mánuði innanlands. Verfi i lausasölu 700. kr. eintakið. Prentun Blafiaprent h/f SAMNINGA, ENGA VÍSITÖLU Vlsitölutrygging launanna hefur ekki bætt llfskjör launþega, sem ekki er von, þvi að hún skapar engin ný verömæti. Og hún er ekki vopn I baráttunni gegn veröbólgunni, heldur hjálpar til viö aö magna hana. Visitölukerfiö hefur gengiö sér til húöar, og þaö þarf aö reyna nýjar leiöir. STUTTA Enn einu sinni eru komnar af stað deilur um vísitölutryggingu iauna. Deilan um vísitölutryggingu launa er orðin eitt af eilífðarmál- unum í íslenskum stjórnmálum. Og nú, þegar Sjálfstæðisf lokkur- inn hef ur lýst yf ir vilja til þess að stöðva þessa hringrás, kallar það að sjálfsögðu á andsvör þeirra, sem hræðast allar breytingar. Hvað gott hefur leitt af vísi- tölukerfinu? Hefur það bætt líf- kjör þjóðarinnar? Reynslan segir nei. Aðeins sáralítið brot af þeim kauphækkunum, sem hér hafa orðið um mörg undanfarin ár, hefur reynst launþegum raun- verulegar kjarabætur. Obbinn af kauphækkununum hefur brunnið upp í verðbbólgunni. Ymsir talsmenn verkalýðs- hreyfingarinnar halda því fram til varnar vísitölukerf inu, að það sé ekki orsök verðbólgunnar hér á landi. Það er út af fyrir sig rétt hjá þeim. Frumorsakir verðbólg- unnar eru gengdarlaus seðlaút- gáfa ríkisvaldsins, ávísanir á verðmæti, sem ekki eru til, og óhófseyðsla ríkisins. En visitölu- kerfið á sinn stóra þátt í að skrúfa áfram verðbólguna, þeg- ar hún er komin af stað. Og allir ættu að geta verið sammála um, að ekki felur það í sér neina lækningu á verðbólgumeininu. Ef svo væri, þá værum við Islend- ingar fyrir löngu lausir við verð- bólguna. Þá liggur tvennt fyrir: vísi- tölutrygging launanna bætir ekki lifskjörin, sem ekki er von, því að hún skapar engin ný verðmæti, og hún er ekki vopn í baráttunni gegn verðbólgunni, heldur hjálp- ar til við að magna hana. Þrátt fyrir þessar staðreyndir telja talsmenn vísitölunnar sig ekki enn vera rökþrota. Þeir segja: I okkar verðbólguþjóð- félagi er ekki hægt að gera kjara- samninga til lengri tíma nema um leið sé samið um einhverja vísitölutryggingu. Og þetta er rétthjá þeim. Það er ekki von, að launþegar semji um fast kaup- gjald til langs tíma við þær að- stæður, sem eru ríkjandi í okkar efnahagslífi. En hitter líka jafn- fráleitt og óábyrgt að atvinnu- vegirnir semji til langs tlma um sjálfvirkar launahækkanir, sem allir vita, að þeir muni ekki geta staðið við af eigin rammleik. Á þessum vanda virðist því ekki vera nein skynsamleg lausn önnur en sú, að kjarasamningar séu aðeins gerðir til tiltölulega stutts tíma I senn á meðan við bú- um við það verðbólguástand, sem hrjáir okkur, og þá án nokkurrar vísitölutryggingar. önnur leið er líka hugsanleg, þ.e. sú, að kjara- samningar séu gerðir t.d. til eins árs, en séu uppsegjanlegir af hálfu launþega, ef framfærslu- kostnaður hækkar á samnings- tímabilinu umfram ákveðið pró- sentustig. I raun og veru er hér einnig um að ræða samninga til stutts tíma, en það verður mats- atriði verkalýðshreyfingarinnar á hverjum tíma, hvort hún telur aðstöðutil kauphækkunarkrafna, þegar f ramfærslukostnaður hækkar umfram það, sem samn- ingarnir miðuðu við. Þessa leið hafa t.d. Svíar farið, og virðist hún hafa gefist þeim sæmilega, a.m.k. er reynslan af henni miklu betri en okkar reynsla af hinni sjálfvirku vísitöluskrúfu. Það er vissulega timabært fyrir okkur tslendinga að reyna eitthvað nýtt I þessum efnum sem svo mörg- um öðrum. Samningar til langs tíma geta ekki verið nein trúar- setning núna, þó að þeir séu æski- legir og mögulegir, þegar jafn- vægi hefur náðst. Eitt þeirra atriöa sem sett eru fram i leiftursókn sjálfstæöis- manna gegn veröbólgu er lækk- un á niöurgreiöslum á landbún- aöarvörum. Sú lækkun kemur til meö aö vega hvaö þyngst, i þeim ásetningi sjálfstæöis- manna aö lækka fjárlög um 35 milljaröa króna. Margir hafa hváö viö og biöja um frekari skýringar. Hvaö eru þetta háar upphæöir? Eykst ekki dýrtiöin enn, þegar verö á landbiinaöar- vörum hækkar stórlega? Er þetta ekki árás á hagsmuni bænda ? — 0 — 1 þvi visitölukerfi sem hér hefurgilt, vegur verölag á land- búnaöarvörum þungt. Þaö hefur oröiö til þess, aö stjórnvöld hverju sinni hafa gripiö til þess ráös, aö verja sifellt stærri hlut af rikisfjárlögum, til aö greiöa niöur landbúnaöarvörurnar. Aö einhverjuleyti hefur þetta haft i för meö sér meiri sölu á land- búnaöarvörum en ella, og komiö þannig bændastéttinni til góöa. Kjarni málsins er hinsvegar sá, aö niöurgreiöslur eru hagstjórn- artæki rlkisvaldsins en ekki fjárframlög til landbúnaöarins. Þessu vilja menn þó gjarnan rugla saman. — 0 — Samkvæmt siöustu fjárlögum námu niöurgreiöslur 22 Ellert B. Schram, fyrrverandi alþingismaöur Sjálfstæöis- flokksins segir f þessari grein sinni um tillögur flokksins til lækkunar á niöurgreiöslum landbúnaöarafuröa aö niöur- greiöslur séu hagstjórnartæki rikisvaldsins en ekki fjdrfram- lög til landbúnaöarins. Þessu vilji menn þó gjarnan rugla saman. milljöröum króna. Aö visu sveiflaöist sú tala nokkuö til, vegna hringlanda rikisstjórnar- innar, en þaö breytir auövitaö ekki þvi, aö hér er um einn stærsta ef ekki stærsta einstaka útgjaldaliö rikissjóös aö ræöa. Hvaöan eru þessir peningar teknir? Þeir eru teknir úr vös- um skattborgaranna. M.ö.o. til þess aö greiöa niöur verö á landbúnaöarvörum, sem keyptar eru jafnt af rikum sem fátækum, — er seilst I vasa okk- ar skattþegnanna, og okkur gert aö greiöa aukna skatta upp á rúmlega 20 milljaröa króna. Þetta er i rauninnieitthrikaleg- asta dæmiö um þá blekkingar- iöju, sem islensk stjórnvöld hafa þurft aö stunda vegna fá- ránlegs visitölukerfis. Þaö má ekki veröleggja landbúnaöar- vörurnar i samræmi viö fram- leiöslukostnaö, þvi þá hækkar visitalanen þaö má hækkaskatt ana, þvi þeir reiknast ekki inn i þessa sömu visitölu! Þaö er ekki sama hvort peningarnir eru teknir úr vinstri vasanum eöa þeim hægri. — 0 — Sjálfstæöisflokkurinn leggur til aö þessari hringavitleysu sé hætt. Þaö er ástæöulaust aö greiöa niöur vörur, fyrir þær þúsundir neytenda, sem lifa i góöum efnum, hafa háar tekjur, og þurfa ekki og eiga ekki aö þiggja ölmusu úr hendi rikis- sjóös. Til aö koma til móts viö láglaunafólk og barnafjölskyld- ur er hinsvegar gert ráö fyrir, aö veröhækkun landbúnaöar- Niöurgreiöslur eru einn stærsti útgjaldaliöur rikissjóös, en pening- arnir eru teknir úr vösum skattborgaranna. vara sé mætt meö samsvarandi tekjutryggingu. Þetta sparar ómælt fé, lækkar skatta og út- gjöld rikissjóös sem nemur milljöröum króna. — 0 — Þessar ráöstafanir breyta litlu i þeim vandamálum, sem blasa viö landbúnaöinum, og felast I offramleiöslu og rangri verölagningu. Offramleiöslan kallar á útflutningsbætur, 10-15 milljaröa króna, svo Islending- ar geti selt þá framleiöslu, sem ekki selst á innanlandsmarkaöi, fyrir lægra verö en þaö kostar aö framleiöa hverja einingu! Þaö fyrirkomulag er fyrir löngu komiöút I hreinar öfgar, eins og allir viöurkenna, bændur jafnt sem aörir. öllum er þó ljóst aö útflutningsbætur veröa ekki af- numdar I einu vetfangi, og land- búnaöurinn veröur aö fá sinn aölögunartima, til aö draga saman eöa breyta sinni fram- leiöslu. — ft — Sjálfstæöisflokkurinn mun f þeim efnum taka fullt tillit til bændastéttarinnar, og vill ekki hafa uppi neina tilburöi til aö ráöast aö hagsmunum bænda af hörku eöa tillitsleysi. Bændur sjálfir veröa aö hafa frumkvæöi aö breyttri framleiöslustefnu, enda er þaö i þágu bæöi bænda og neytenda, aö slikar breyting- ar eigi sér staö I sátt og sam- lyndi. Bændur þurfa aö losa sig viö forpokaöa málsvara og ofur- vald Sambandsins, og þeir eiga aö varast þær hugmyndir aö taka eigi upp beina samninga milli þeirra og rlkisvaldsins. Þaö er visasti vegurinn til aö gera bændastéttina aö bón- bjargamönnum I ráöuneytum og koma I veg fyrir velviljaöa afstööu neytenda. Auövitaö á markaöurinn aö vera mæli- kvaröi verölags, þvf þannig skapast eölilegt samband milli framleiöanda og neytanda — milli bænda og viöskiptavina þeirra. Ellert B. Schram

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.