Vísir - 23.11.1979, Blaðsíða 3

Vísir - 23.11.1979, Blaðsíða 3
3 VISIR Föstudagur 23. nóvember 1979 Hafnarflörður: Skipulagslil- lögur Hvamma- hverfls sýndar Sýning á samkeppnistillögum um fyrirkomulag þéttbýlis á tveimur afmörkuöum svæöum i Hvammahverfi i Hafnarfiröi veröur opnuö I dag klukkan 17. Sýningin veröur i húsi Bjarna riddara Sivertsen aö Vesturgötu 6. Skipulag hverfis meö um 300 íbúðum i svonefndum Hvömmum I Hafnarfirði var samþykkt fyrir rúmlega ári. Geröi skipulagið ráð fyrir að rúmur helmingur eða um 170 Ibúðir yröu i einhvers konar fjölbýli og voru afmörkuö tvö svæði innan skipulagsins fyrir það. í febrúar á þessu ári ákvað bæjarstjórn Hafnarfjaröar að bjóöa til lokaðrar samkeppni meðal arkitekta um gerð fjöl- býlisins. Var fimm starfshópum arkitekta boöin þátttaka og rann skilafrestur út 21. september. Dómnefnd hefur nú skilað áliti sinu og mælir með útfærslu tveggja tillagna, sinni á hvort svæði. Höfundar tillögu á svæði A reyndust vera arkitektarnir Guðmundur Kr. Guömundsson, Mannfreð Vilhjálmsson, Olafur Sigurðsson og Þorvaldur S. Þor- valdsson, auk aðstoðarmanna. Aöalhöfundar tillögunnar sem dómnefnd mælti með til útfærslu á svæði B eru Ingimundur Sveins- son arkitekt og Gylfi Guðjónsson arkitekt. Sýningin veröur opin frá klukk- an 17-19 i dag og laugardag og sunnudag frá 14-18. A mánudag verður hún opin frá 17-22. Þar verða einnig til sýnis samþykktir uppdrættir af skipulagi nokkurra annarra hverfa i Hafnarfirði og munu starfsmenn bæjarins veröa til staöar og veita upplýsingar. Þá mun kvenfélagiö Hrund sjá um kaffisölu á staönum. —SG UNGFRU ISLAND KOSIN A SUNNUDAG ,,Viö höfum verið aö undirbúa keppnina I mánuð og erum að verða búnir að ganga frá öllum þáttum hennar”, sagði Jón Ólafs- son hjá Hljómplötuútgáfunni i morgun þegar Vísir spurði hann um fegurðarsamkeppnina sem fer fram á Hótel Sögu á sunnu- dagskvöld. Þar verður Ungfrú Island valin úr hópi tiu stúlkna, þar af eru fimm frá Reykjavik en fimm sem hafa verið kjörnar fulltrúar sinna bæjarfélaga. Að keppninni standa þessu sinni, Hljómplötuútgáfan, Ferða- skrifstofan úrval og Dagblaðiö. Jón ólafsson sagöi að þeir hefðu hug á að breyta fyrirkomulagi keppninnar i framtiðinni og hafa hana með öðru sniöi en tiökast hefur en að þessu sinni færi hún fram á hefðbundinn máta. Ýmis- legt verður til skemmtunar svo sem Brunaliðið og HLH flokkur- Halidóra Björk Jónsdóttír, Ung- frú island 1978 inn. Miðaverð er fimmtán þúsund krónur. Fimm manna dómnefnd velur fegurðardrottninguna. —JM MinnisDeningur Snorra Sturlusonar Út er kominn minnispeningur i tilefni átta alda minningar Snorra Sturlusonar. Peningurinn sem er 50 m/m I þvermál er mjög vandaður að öllum frágangi og glæsilegur útlits. A framhliö er vangamynd af Snorra sem gerð er eftir fyrirmynd styttu Gustavs Vigelands. er Norömenn reistu i Reykholti. A bakhliö er upphaf Heimskringlu eins kunnasta rit- verks Snorra. Þröstur Magnússon teiknari, hannaði peninginn. Upp- lag þessa penings er mjög tak- markaö eða aðeins 500 brons og 300silfur 925/1000. Hver peningur er númeraður á kanti og einnig fylgir númerað upprunaskirteini, þar sem fram koma allar helstu upplýsingar um peninginn og einnig stutt æviágrip Snorra ritað af Ólafi Halldórssyni handrita- fræöingi. Peningarnir eru af- hentir i vandaöri öskju og kostar bronspeningurinn kr. 15.000 en silfurpeningurinn kr. 39.500, einnig er hægt að fá peningana saman i setti á kr. 54.500. Minnispeningurinn er sleginn hjá IS-SPOR h/f sem einnig gefur peninginn út. Hér sést minnispeningurinn I hendi Þrastar Magnússonar sem hannaði Mannlaus krani tók á rás við Sundahöfn I gær og skall niður I Arnarfell er þar lá við bryggju. Miklar skemmdir urðu á krananum og nokkrar skemmdir á skipinu.en engin slys urðu á fólki. Málið er I rann- sókn. (Visism. EJ). ■ ... 1 FJÖLVA i=ÍP ÚTGÁFA Klapparstig 16 ■■ Sími 2-66-59 Hræsni ritstjóra Vísis Siðan Fjölvaútgáfan hóf út- gáfu teiknisögubóka, hefur stöku sinnum örlað á nuddi ihaldssams fólks, sem lifir I gömlum tima. Stundum setja þessar nöldurskjóður sig I gervi siðapostula, hneykslast af vand- lætningu yfir þvi að Kolbeini kafteini og jafnvel hundinum Tobba skuli þykja sopinn góður, eða að Lukku Láki skuli fá sér smók eða að Palli og Toggi skuli leyfa sér að fremja strákapör. — Það ætti bara að rassskella þá. Svona raus lætur Fjölvi eins og vind um eyru þjóta. Hitt er alvarlegra, að ritstjóri Visis skuii s 1. þriðjudag veitast að teiknisögum I leiðara sinum á alveg óvenjulega órökstudd- an, ósanngjarnan. óheiðarlegan og hræsnisfullan hátt. Ósann- girnin kemur fram I þvi að hann veitist að teiknisögubókunum frá öllum hliðum, fyrst býsnast hann yfir þvi að þær skuli vera prentaðar erlendis, siðan er hann enn andvigari þvi, að þær séu prentaðar innanlands. Loks kiikkir hann út meb þvi aö vara foreldra við að gefa börnum sfn- um teiknisögur. Hefur sjaldan sést svo rætinn rógur i forustu- greinum, en þar við bætist að málflutningur ritstjórans bygg- ist á hæpnum og fölskum forsendum. Vikjum að hræsninni. A sama tima og ritstjórinn vill gera teiknisögubækur útrækar, er hann iðinn við að birta teikni- sögur i eigin blaöi. 1 Visi birtast daglega hartnær tvær blaðsiður af teiknisögum og miðvikudags- blaðið er sérstaklega helgað þeim. Við lauslega talningu virðist Visir birta i hverri viku um 80 ..strimla” af teiknisög- um. A ársgrundvelli er það sambærilegt við 20 heilar teikni- sögubækur á ári. Visir gefur sem sagt úr fleiri teiknisögur en Fjölvi. A sama tima birtir Visir enga Islenska barnasögu né textasögu. Út frá forsendu rit- stjóra Visis lætur nærri aö Fjölvi beini þeirri áskorun til foreldra að forðast að kaupa VIsi, svo börn þeirra verði ekki ólæs og forheimskuð áf ósómanum, af þvi að lesa þar 20 teiknisögu- bækur á ári. Þetta gildir þvi fremur, þar sem mikill munur er á-Fjölvi hefur frá upphafi lagt sérstaka áhersiu á að vanda þýðingu og ritun teiknisagna sinna. Mikil vinna og natni er lögð I þýðingu og margfalda yfirferö yfir handrit, til ab fá fram lifrænt mál, iðandi af fjöri, kimni, mál- tækjum og málsháttum. Þvi miöur virðist ritstjóri VIsis ekki bera sömu virðinguna fyrir lesendum sinum. Ha'nn nennir ekki að setja i teiknisögur sinar viðunandi islenskan texta. Sög- ur hans einkennast af dæma- lausri hroðvirkni og handar- bakavinnu, útlenskulegri oröa- röð og fyrir hefur komið að text- inn hefur staðið á haus. Ummæli eins bókavarðar sem eiga að vera undirstaða allra röksemdafærslu ritstjórans eru hæpin, fordómafull og einsýn, Þar er ekkert tillit tekiö tii vixl- verkunar frá kvikmyndum, sjónvarpi, grammófónplötum og kassettum. Teiknisögurnar eru viðbrögð bókaútgáfunnar gegn þeirri samkeppni. Þannig hafa teiknisögurnar þvert á móti stuðlaö að viðhaldi lestrar- getu. Það sýnir fáfræði að halda þvi fram að lestexti I teiknisögum sé sérlega litill. Textinn I Tinna og Lukku Láka er á við meðal barnabók og textinn i Astriki, Alex, Blástakki og Raunsæjum teiknisögum eins og Heim- styrjaldarheftum og Fræknum landkönnuðum, sem nú eru að koma út, er miklu meiri en i venjulegri barnabók. Fjölvi þekkir nokkur dæmi þess að börn sem áttu i lestrarerfiðleik- um komust á strikið við að kynnast Tinna og Lukku Láka og eru nú orðin mestu lestrar- hestar. Fjölvi getur þvi með góðri samvisku ráðlagt foreldrum að gefa börnum sinum vandaðar teiknisögur Fjölva. Þær eru tvi- mælalaust holl og góö iesning. sem vikkar hugmyndasvið og örvar málnotkun i anda gamansemi óg drengskapar. Hinsvegar gefur Fjölvi einnig út barnabækur með venjulegum prentuðum lestexta. Nýjasta bókin af þvi tagi er hin undur- fagra bók um Viu litlu. En til dæmis um margfalda hræsni ritstjóra VIsis er það enn, að hann hefur ekki séð ástæðu til að geta hennar einu orði i blaði sinu, þessarar perlu, Viu litlu, sem við teljum, að sé undur- fegursta barnabókin á jóla- markaðnum i ár. AUGLÝSING

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.