Vísir - 08.01.1980, Side 1
a
Ó'
vs
©ítiiy;
Þriðjudagur 8. janúar 1980/ 6. tbl. 70. árg.
Lik skipverjanna tveggja, sem létust eftir hnlfsstungu um borö í varÐskipinu Tý, flutt I íand á Akureyri eftir komu skipsins þangaö i gærkveldi. Skipverjar á Tý standa
heiðursvörð. Visismynd: Gunnar V. Andrésson.
TVEIR MENN STUNGNIR TIL BANA UM BORD I VARDSKIPINU TY:
ÞUHGLYHDIS HAFBI GJETT
HJA ARASARMAHHIHUM
j Frá Sæmundi Guðvinssyni, blaðamanni Vísis á
■ Akureyri í morgun.
Tveir ungir menn létu lifið af völdutn hnifstunga um borð i varð-
skipinu Tý i gær. Þriöja varðskipsmannsins, sem áverkunum olli,
er saknaö og talið er aö hann hafi farið I sjöinn. Komið var með lik
. varðskipsmannanna tveggja til Akureyrar i gærkvöldi.
Rannsóknarlögregla rikisins, ásamt aöalfuiltrúa bæjarfógetans á
i Akureyri og lögreglumönnum vann til klukkan þrjú I nótt að rann-
| sókn Týsmálsins. Þeir komu aftur saman klukkan nlu I morgun.
Lokið er við að taka skýrslur af höfuðvitnum máisins, en allir
| skipverjar á Tý verða yfirheyrðir. Sjóréttur verður settur hjá em-
I bætti bæjarfógeta á Akureyri i dag undir forsæti Ásgeirs P. Asgeirs-
| sonar aðalfuiltrúa.
Óvænt árás
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem Visir hefur aflaö sér
var það upp úr klukkan niu i
gærmorgun, þegar Týr var
staddur um 50 sjómilur austur
af Grimsey, sem þessi atburður
átti sér stað.
1 eldhúsi skipsins var þá
staddur Jóhannes Olsen 22 ára
háseti til heimilis að Meistara-
völlum 35 i Reykjavik, og báts-
maður, en óljóst er hvort þar
hefur verið þriðji maöurinn.
Voru þeir að fá sér kaffi. Þá
kom þar að Jón D. Guðmunds-
son þriðji vélstjóri, greip stóran
eldhúshnif eða sveðju.
Jóhannes talaði til hans og
spurði á þá leið hvað hann væri
að leika sér með hnifinn. Ekki
er vitað hvort fleiri orðaskipti
áttu sér stað, en Jón rak hnlfinn
Ibakeða siðu Jóhannesar. Síðan
hvarf Jón út úr eldhúsinu. Þar
fyrir utan á ganginum á milli
eldhúss og matsalar virðist
hann hafa mætt Einari Óla Guð-
finnssyni 18 ára gömlum við-
vaningi, sem hafði veriö að taka
niður jólaskraut I matsal skips-
ins.
Engin vitni voru að þvl er þeir
Jón og Einar Öli mættust, en
Jón mun hafa rekið hnífinn i
brjóst eða kviðarhol Einars og
varð af þvi mikið sár. Siðan
mun Jón hafa farið út á báta-
þilfar, um dyr sem venjulega
eru ekki notaðar.
Sjúkraflug undirbúið
Jóhannes Olsen háseti kom
helsærður upp I brú skipsins. þar
sem fyrir voru Bjarni P. Helga-
son skipherra og fleiri. Þegar i
stað var hinum særðu mönnum
hjúkrað og haft var samband
við lækni á Siglufirði um ráð-
leggingar um meðferð slösuðu
mannanna. Stefna var tekin á
Grimsey.
Þá var strax haft samband
við stjórnstöð Landhelgisgæsl-
unnar. Samkvæmt fyrstu frétt-
um frá skipinu, virtist Einar
ekki vera I lifshættu.
Akveðið var að flugvél færi
frá Flugfélagi Norðurlands út I
Grimsey með lækni á sjúkra-
húsinu á Akureyri, ásamt öðr-
um lækni og hjúkrunarkonu. Af
þvi varð þó ekki.
Á leiðinni til Grímseyjar lét-
ust báðir skipverjarnir. Jóhann-
es Olsen um klukkan hálf ellefu
og Einar Óli klukkan 11:22.
Merki um þunglyndi
Varðskipið kom ekki i nám-
unda við Grimsey fyrr en um
klukkan 13.30. Var þá ákveðiö
að halda til Akureyrar.
Skipið kom þangað að bryggju
um klukkan 18 I gær.
Þeir Jón D. Guðmundsson og
Jóhannes Olsen voru að sögn
skipverja ágætir vinir. Engin
deila hafði komið upp um borð
svo vitaó væri og áfengisneysla
hafði engin verið. Jón hafði sýnt
einhver merki um þunglyndi að
undanförnu, en atburðurinn
kom öllum mjög á óvart, þar
sem hann hafði ekki áður sýnt
neina tilburöi til ofbeldis.
Lik hinna látnu verða væntan-
lega flutt suður með flugvél
Landhelgisgæslunnar til krufn-
ingar i dag.
—SG, Akureyri/KP
Rannsóknarlögreglumenn úr Reykjavik og starfsmenn bæjarfógetaembættisins á Akureyri hófust að
nýju handa um rannsókn Týsmálsins á tiunda timanum I morgun, er ljósmyndari Visis Gunnar V.
Andrésson tók þar þessa simamynd.