Vísir - 08.01.1980, Page 1

Vísir - 08.01.1980, Page 1
a Ó' vs ©ítiiy; Þriðjudagur 8. janúar 1980/ 6. tbl. 70. árg. Lik skipverjanna tveggja, sem létust eftir hnlfsstungu um borö í varÐskipinu Tý, flutt I íand á Akureyri eftir komu skipsins þangaö i gærkveldi. Skipverjar á Tý standa heiðursvörð. Visismynd: Gunnar V. Andrésson. TVEIR MENN STUNGNIR TIL BANA UM BORD I VARDSKIPINU TY: ÞUHGLYHDIS HAFBI GJETT HJA ARASARMAHHIHUM j Frá Sæmundi Guðvinssyni, blaðamanni Vísis á ■ Akureyri í morgun. Tveir ungir menn létu lifið af völdutn hnifstunga um borð i varð- skipinu Tý i gær. Þriöja varðskipsmannsins, sem áverkunum olli, er saknaö og talið er aö hann hafi farið I sjöinn. Komið var með lik . varðskipsmannanna tveggja til Akureyrar i gærkvöldi. Rannsóknarlögregla rikisins, ásamt aöalfuiltrúa bæjarfógetans á i Akureyri og lögreglumönnum vann til klukkan þrjú I nótt að rann- | sókn Týsmálsins. Þeir komu aftur saman klukkan nlu I morgun. Lokið er við að taka skýrslur af höfuðvitnum máisins, en allir | skipverjar á Tý verða yfirheyrðir. Sjóréttur verður settur hjá em- I bætti bæjarfógeta á Akureyri i dag undir forsæti Ásgeirs P. Asgeirs- | sonar aðalfuiltrúa. Óvænt árás Samkvæmt þeim upplýsing- um sem Visir hefur aflaö sér var það upp úr klukkan niu i gærmorgun, þegar Týr var staddur um 50 sjómilur austur af Grimsey, sem þessi atburður átti sér stað. 1 eldhúsi skipsins var þá staddur Jóhannes Olsen 22 ára háseti til heimilis að Meistara- völlum 35 i Reykjavik, og báts- maður, en óljóst er hvort þar hefur verið þriðji maöurinn. Voru þeir að fá sér kaffi. Þá kom þar að Jón D. Guðmunds- son þriðji vélstjóri, greip stóran eldhúshnif eða sveðju. Jóhannes talaði til hans og spurði á þá leið hvað hann væri að leika sér með hnifinn. Ekki er vitað hvort fleiri orðaskipti áttu sér stað, en Jón rak hnlfinn Ibakeða siðu Jóhannesar. Síðan hvarf Jón út úr eldhúsinu. Þar fyrir utan á ganginum á milli eldhúss og matsalar virðist hann hafa mætt Einari Óla Guð- finnssyni 18 ára gömlum við- vaningi, sem hafði veriö að taka niður jólaskraut I matsal skips- ins. Engin vitni voru að þvl er þeir Jón og Einar Öli mættust, en Jón mun hafa rekið hnífinn i brjóst eða kviðarhol Einars og varð af þvi mikið sár. Siðan mun Jón hafa farið út á báta- þilfar, um dyr sem venjulega eru ekki notaðar. Sjúkraflug undirbúið Jóhannes Olsen háseti kom helsærður upp I brú skipsins. þar sem fyrir voru Bjarni P. Helga- son skipherra og fleiri. Þegar i stað var hinum særðu mönnum hjúkrað og haft var samband við lækni á Siglufirði um ráð- leggingar um meðferð slösuðu mannanna. Stefna var tekin á Grimsey. Þá var strax haft samband við stjórnstöð Landhelgisgæsl- unnar. Samkvæmt fyrstu frétt- um frá skipinu, virtist Einar ekki vera I lifshættu. Akveðið var að flugvél færi frá Flugfélagi Norðurlands út I Grimsey með lækni á sjúkra- húsinu á Akureyri, ásamt öðr- um lækni og hjúkrunarkonu. Af þvi varð þó ekki. Á leiðinni til Grímseyjar lét- ust báðir skipverjarnir. Jóhann- es Olsen um klukkan hálf ellefu og Einar Óli klukkan 11:22. Merki um þunglyndi Varðskipið kom ekki i nám- unda við Grimsey fyrr en um klukkan 13.30. Var þá ákveðiö að halda til Akureyrar. Skipið kom þangað að bryggju um klukkan 18 I gær. Þeir Jón D. Guðmundsson og Jóhannes Olsen voru að sögn skipverja ágætir vinir. Engin deila hafði komið upp um borð svo vitaó væri og áfengisneysla hafði engin verið. Jón hafði sýnt einhver merki um þunglyndi að undanförnu, en atburðurinn kom öllum mjög á óvart, þar sem hann hafði ekki áður sýnt neina tilburöi til ofbeldis. Lik hinna látnu verða væntan- lega flutt suður með flugvél Landhelgisgæslunnar til krufn- ingar i dag. —SG, Akureyri/KP Rannsóknarlögreglumenn úr Reykjavik og starfsmenn bæjarfógetaembættisins á Akureyri hófust að nýju handa um rannsókn Týsmálsins á tiunda timanum I morgun, er ljósmyndari Visis Gunnar V. Andrésson tók þar þessa simamynd.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.