Vísir - 08.01.1980, Page 14

Vísir - 08.01.1980, Page 14
vtsnt Þriöjudagurinn 8. janúar 1980. 14 G un n a r V Andrésson, ljósmyndari l kveðfu- hófl fyr- ir Elnar Agústs- son sem nú heldur tll Kaupmannahafnar sem sendlherra íslands Ýmsir stuðningsmenn og vin- ir Einars Agústssonar, fyrrver- andi utanrikisráðherra og nú- verandi sendiherra tslands i Kaupmannahöfn, héldu honum kveðjuhóf í Þingholti á laugar- dagskvöldið. Þar mættu nokkrir tugir stuðningsmanna hans úr Fram- sóknarfiokknum og þökkuðu honum störf í þágu þess fiokks. Var honum óskað heilla á nýjum starfsvettvangi. Ljósmyndari Vísis leit inn og tók nokkrar myndir i hófinu. Einar og Þórunn Sigurðardóttir, kona hans, halda til Kaup- mannahafnar um miöjan mán- uðinn. ESJ. Þrlr fyrrverandi ráðherrar ræðast við: Ólafur Jóhannesson, Halldór E. Sigurðsson og Einar Agústs- son. Alfreð Þorsteinsson, forstjóri Sölu varnarliðseigna, ræðir við Ólaf Jóhannesson. Einar Agústsson ræðir við Kára Jónasson, fréttamann á rikisút- varpinu. Kristinn Finnbogason, framkvæmdastjóri Iscargo, ræðir viö Hall- dór E. Sigurðsson, fyrrverándi ráðherra, og Steingrim Hermanns- son, formann Framsóknarflokksins. Þórunn Siguröardóttir og Guöbjörg Jóhannesdóttir ræðast viö I hófinu. Hætt um fjármálin: Tómas Arnason, fyrrverandi fjármálaráð- herra, Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS, og Hannes Pálsson, að- stoöarbankastjóri við Búnaðarbankann. sandkorn Sæmundur Guðvinsson skrifar VIRDING ALÞINGIS Alþingi kemur nú saman á nýjan leik eftirstutt hlé. Þetta þing þarf að gera róttækar ráðstafanir i efnahagsmálum hið fyrsta ef koma á i veg fyrir alvarlegt hrun og atvinnu- leysi. Siðustu ár hefur mjög veriö hamrað á þvi að Alþingi njóti ekki lengur virðingar lands- manna og sumir gerst stórorð- ir um þetta i ræðu og riti. Ef litiðerá máliö af raunsæi held ég að það sé engu minni ástæða til að bera virðingu fyrir Alþingi en áður. Fyrr á dögum voru alþingismenn hins vegar taldir hátt yfir aöra landsmenn hafnir þegar stéttaskiptingin var miklu meiri. Nú er kominn timi til að þeir sem hella fúkyrðum yfir Alþingi láti af þeirri iðju og þjóðin þjáppi sér saman að baki þingsins. Kjósendur hafa kosið sér alþingismenn sem eflaust eru mistækir eins og aðrir.en ekki er vafiáaðallir þingmenn vilja landi og þjóð vel. . BABB í BÁTINN í Bæjarblaðinu á Akranesi mátti lesa eftirfarandi: „Heyrst hefur, að þegar tengja átti frystihús Þórðar óskarssonar við kyndistöð frá sjúkrahúsinu hafi komið babb i bátinn. Einn þáttur I út- reikningi á heimtaugagjaldi var rúmmál byggingarinnar. Þar sem stór hluti af bvgging- unni er frystigeymslur var talið að þær ættu að dragast frá I útreikningi, þar sem þær eru ekki hitaðar upp heldur kældar niður. En þar sem kerfið segir að reikna eigi rúmmál byggingarinnar og ekki er reiknað með þessum möguleika þá verði þetta að vera svona og þar við situr. Þórður verður þvi að vera án heita vatnsinseða þá að kynda upp frystiklefana.” TILLAGA I RANNSÓKN A ráðstefnu Verkamanna- sambandsins um síðustu helgi varborinupp tillaga sem þeir Guðmundur J. Guðmundsson og Karl Steinar Guðnason höfðu samið. Gerði hún ráð fyrir að Verkamannasam- bandið tæki upp svipaða stefnu hvað viðkemur verð- bótum á laun og ASl aNiyllist. Þegar tillaga tvimenning- anna var rædd kom fram mik- il andstaða gegn henni frá mörgum fundarmönnum Einn af þeim er tóku til máls sagði að Guðmundur og Karl hefðu staðið á bak við tilraunir til að mynda nýja vinstri stjórn. Þá hefði Karl Steinar sagt um efnahagstillögur Guðmundar að þær ætti að senda Sálar- rannsóknafé1aginu en Guðmundur sagt um tillögur Karls Steinars að þær bæri að senda biskupsstofu. Hæðumaður kvaðst leggja til að þessi sameiginlega til- laga tvimenninganna á ráð- stcfnunni yrði send Geðdeild- inni hið snarasta. essí BJE ESS Margir hafa velt þvi fyrir sér hver jir hafi staðið að gerð sjónvarpsauglýsingarinnar frá SÍBS. Það mun vera Auglýsingastofa Gisla B. Björnssonar og sýnir þetta að bestu mönnum geta orðið á mistök.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.