Vísir - 12.01.1980, Síða 2

Vísir - 12.01.1980, Síða 2
Laugardagurinn 12. janúar 1980. * .> f T ' 2 ,,Ekki erfitt ad vera Þá eru þeir tilbúnir télagarnir, amr prir. hægri hönd bankastjórans” „Nei, nei, þaö er ekkert erfitt að vera hægri hönd bankastjóra," segir Marteinn Þórhallsson, 13 ára, sem í þess orðs fyllstu merkingu er einmitt hægri hönd bankastjóra. Sá bankastjóri stýrir vinsælasta banka landsins. Banka, sem menn eru jafnvel enn áfjáðari að leggja inn í en taka út úr. Þetta er Brandarabankinn, sem hef ur aðsetur sitt i sjónvarpshúsinu við Laugaveg. Bankastjórinn er vænsti karl, svolítið viðutan og þjáist af alls konar kækjum, en er alla jafna léttur og kátur. Hann hefur heldur ekki ástæðu til annars, því hann hefur sér trausta bakjarla. Annar þeirra er Þórhallur Sigurðsson, sem flestir þekkja betur und- ir nafninu Laddi. Hann aðstoðar bankastjórann við hreyfingar höfuðs og vinstri handar. 13 ára sonur Ladda, Marteinn, lætur honum hins vegar í té hægri höndina, eins og áður er getiö. Góður vinur „Mér líkar voðalega vel við bankastjórann. Hann er góöur vinur minn og ég horfi alltaf á hann i sjónvarpinu,” segir Laddi. Og það er von að hann segi þetta, þvi bankastjórinn getur ekki sagt orð án samþykkis Ladda, sem ljær honum rödd. Auk þess ritskoðar Laddi allt, „Annars er gifurlega mikið lagt inn af bröndurum. „Þeir skipta orðið þúsundum og inn- leggin eru fleiri en það sem fer út, þvi margir senda sömu brandarana. Það er eins og öll- um detti sömu brandararnir I hug á sama tima.” Tíska i bröndurum Nú um skeið hefur brandara- — segir Marteinn Þórhallsson, 13 ára hægri hönd brand- arabanka- stjórans i Stundinni okkar sem kemur i bankann og leggur bankinn ekkert lánað út af fila- inn sjálfur, ef aðstreymi brand- bröndurum. Skyldu þeir vera ara er ekki nægilegt. komnir úr tisku? Fyrst þarf aö undirbúa hægri höndina, og svo þá vinstri. Hér gildir þaö, aö hægri höndin veit ekki hvaö sú vinstri gjörir. „Já, það er engu likara, ” ekki komið einn einasti. Eins er segir Laddi. „Til að byrja með með orðaleiki og gátur. Þetta rigndi þeim inn, en siðan hefur kemur allt i sveiflum.” A sjónvarpsskerminum undir afgreiösluboröinu, geta aöstoö- armenn bankastjórans fylgst meö öllu, sem gerist. Þá getur hægri höndin tekiö tillit til þess, sem sú vinstri er aö gera — og öfugt. Visismyndir: B.G. Ritskoðarinn segist flokka brandarana og reyna að hafa i þá svipaðs eðlis i hverjum við- talstima bankastjórans, en eins og kunnugt er, hefur banka- stjórinn viðtalstima einu sinni i viku, á sunnudögum laust fyrir klukkan 19. „Ég hef mest gaman af bröndurum, sem börn hafa búið til,” segir Laddi. „Þeir eru svo skemmtilega klikkaðir. En þvi miður búa þau allt of litið til. Flestir brandararnir eru auð- • sjáanlega komnir frá fullorðn- um, þótt börnin sjái um að leggja þá inn.” ...eða þannig Allir, sem einhver viðskipti hafa við brandarabankann, kannast við aö bankastjórinn viðhefur alltaf viss orðatiltæki, eða þannig. Laddi er spurður hvernig maðurinn hafi vanið sig á þetta. „Ég er sjálfur með þennan kæk, eða þannig,” segir hann. „En bankastjórinn gerir meira úr honum en ég. Þetta er eigin- lega orðið hans eigið vörumerki, eða þannig.” Og það er ekki laust viö, að fleiri hafi tekið þetta upp eftir bankastjóranum. Að minnsta kosti virðist undirrituðum blaðamanni Visis, sem heim- sótti þá félaga i brandarabank- anum, að þetta sé farið að heyr- ast æ viðar, — eða þannig sko. —SJ

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.