Vísir - 12.01.1980, Blaðsíða 20
20
vism Laugardagurinn 12. janúar 1980.
hœ krakkar!
Umsjón: Anna
Brynjúlfsdúttir
Hér eru þau Þórhildur og Elias komin á bak en á milli þeirra er faðir þeirra, Þórhallur Karlsson
í núna er alveg nýtt og
þaö er maður, sem á það
með okkur og geymir sína
hesta þar líka.
— En er ekki líka hægt
að fá leigð hesthús i Glað-
heimum?
— Jú, Gustur er hér
með tamningastöð og
leigir lika út hesthús, þar
sem krakkar og
unglingar fá að geyma
hestana sína. Þau hirða
um þá sjálf undir umsjón
hirðis.
— Fá allir krakkar sem
vilja þarna hús fyrir
hestana sina?
— Ég held að það séu
miklu fleiri, sem vilja fá
hesthús, en komast að, en
ég held að það eigi að
fara að byggja annað
félagshús.
— Það er mest gaman á
vorin og sumrin, en þá er
Gustur með skipulagðar
hópferðir t.d. í kringum
Hafravatn og víðar.
Marga krakka dreymir
um að eignast hest. En
hvort draumurinn rætist,
það er svo annað mál. En
ég hitti nýlega systkinin
Þórhildi og Elías Þór-
hallsbörn og þau eru svo
heppin að eiga bæði
hesta. Alls á f jölskyldan
5 hesta. Hesturinn hennar
Þórhildar heitir Fengur
og er um 13 vetra. Það
segir reyndar meira frá
honum i frásögninni
hennar Þórhildar hér á
siðunni. Hesturinn hans
Eliasar heitir Stúfur og
er 17 vetra, rólegur og
alveg barnahestur, sagði
Elias. Elias er sjálfur 10
ára, svo að hesturinn
hans er heilum 7 árum
eldri en hann.
— Afi á heima í Eyja-
firðinum, rétt hjá
Akureyri, segir Þórhild-
ur, og hann á 32 hesta.
Hesturinn hans pabba
heitir Sörli og hann hefur
fengið verðlaun í
gæöingakeppni. Hinir
hestarnir okkar heita
Sindri og ófeigur, en
hann er foli, sem við er-
um nýbúin að kaupa.
— Hvar geymið þið
hestana núna?
— Við eigum hesthús i
Glaðheimum hjá Hesta-
mannafélaginu Gusti. Við
sjáum alveg um þá sjálf.
— Hvað gefið þið hest-
unum að borða?
— Það er nú aðallega
hey og graskögglar.
— En hvar voru hest-
arnir, áður en þeir komu
hingað?
— Við erum með girð-
ingu austur á Skeiðum.
Annars höfðum við pláss
1 Glahheimum, hesthúsum hestamannafélagsins Gusts f Kópavogi,
geta börn og unglingar fengiö leigt hesthús fyrir hesta sína, og þau
sjá algjörlega um þaö sjálf undir umsjón hiröis. Þessi mynd er tekin
af unglingunum, þar sem þeir eru aö hiröa um hestana og moka úr
hesthúsinu.
fyrir þá hér isumar alveg við í ferðalag til Þing-
fram í ágúst og þá fórum valla. Húsið, sem þeir eru
tilias Þórhallsson að leggja á hestsinn.
YLUR
Einu sinni átti ég hest,
sem hét Ylur. Hann var
jarpur á litinn og hét
Jarpur áður en ég fékk
hann. Hann var 5 vetra og
mjög fallegur.
Ég var aðeins búin að
fara á bak honum þrisv-
ar, og þegar ég fór í
fjórða skiptið, fór vin-
kona min með mér og
pabbi auðvitað líka. Ég
var á Yl, vinkona mín á
Litla-Brún og pabbi á
Sörla.
Þá kom það óhapp
fyrir, að Ylur varð
hræddur og stökk út fyrir
veg, þannig, að ég datt af
baki og meiddi mig á fæt-
inum.
Þá var Ylur seldur og
nú er ég búin að fá annan
hest, sem heitir Fengur.
Hann er 12 vetra, næstum
13 og er brúnskjóttur á lit-
inn. Ég er mjög ánægð
með hann og fór i ferða-
lag á honum til Þingvalla
í sumar og ætla kannske
aftur næsta sumar.
Ég fór vitanlega ekki
ein, ég fór með pabba,
mömmu, systkinum min-
um og fleira fólki.
Við sóttum hestana
okkar í hagann á Þorláks-
messu og fluttum þá í
nýtt hús i Kópavogi. Nú
fer ég næstum á hverju
kvöldi til hestanna að
gefa.
Þórhildur Þórhallsdóttir aö gefa hesti sfnum, Feng, væna tuggu.
Vfsismyndir: BG
Hestarnir þeirra eru
eldri en þau