Vísir - 12.01.1980, Blaðsíða 6

Vísir - 12.01.1980, Blaðsíða 6
vtsm Laugardagurinn 12. janúar 1980. Hver verður næsti forseti íslands Margir eru kallaöir Fátt hefur vakiö meiri umræður manna á meöal aö undanförnu en væntanlegar forsetakosningar i sumar. Allt frá þvi aö forseti tslands, dr. Kristján Eldjárn, lýsti þvi yfir I áramótaávarpi sinu, aö hann gæfi ekki kost á sér, hafa fjölmargir menn — og konur — veriö nefndir sem hugsanleg forsetaefni. Flestir þeirra, sem fjölmiölar hafa spurt beint um framboösmál- in, hafa gefiö loöin svör. Fáir hafa neitaö þvi alfariö aö þeir heföu hug á framboöi, og enn færri hafa viðurkennt aö svo sé. Núna er aðeins vitaö um þrjá menn, sem mjög liklega munu gefa kost á sér. Þeir eru: Albert Guömundsson, alþingismaöur og borgarfulltrúi, m.m., sem hefur lýst þvi ákveöiö yfir, Guöiaugur Þorvaidsson, sáttasemjari rikisins og Pétur Thorsteinsson, am- bassador. Auk þeirra hafa eftirtaldir menn þráfaldlega veriö nefndir sem hugsanlegir frambjóöendur: Gylfi Þ. Gislason, fv. ráöherra, Ar- mann Snævarr, hæstaréttardómari, Ólafur Jóhannesson, fv. ráö- herra. Og loks hefur veriö minnst á Hans G. Andersen, sendiherra, Tryggva Gislason, skólameistara, Andrés Björnsson, útvarpsstjóra og Hjalta Þórarinsson, lækni, svo nokkrir séu nefndir I þessu sam- bandi. Aöeins Gylfi Þ. Gislason hefur ákveöiö lýst þvi yfir, aö hann gæfi ekki kost á sér. Og aöeins Albert Guömundsson hefur sagt aö hann ætlaði I framboö. Hins vegar hafa þeir Guölaugur Þorvaldsson og Pétur Thor- steinsson frekar tekiö framboöi liklega/'er taliö aö þeir muni vera meö. Ólafur Jóhannesson hefur ekkert viljaö segja, en samkvæmt ummælum náinna samstarfsmanna hans, er hann ekki talinn hafa hug á embættinu. Sömu kosti og Kristján Eldjárn Ýmsir fjölmiðlar hafa spurt fólk á götunni um óskir þess varðandi forsetaefni. Svörin hafa verið nær samhljóða að þvi leyti, að flestir óska eftir sömu kostum i fari forsetaefnis og nú- verandi forseti hefur til að bera. Fá nöfn komu þó fram i þessum viötölum og þá helst nöfn Al- berts Guðmundssonar og Guö- laugs Þorvaldssonar. Samkvæmt viðtölunum er dr. Kristján Eldjárn talinn hafa þá kosti hels'ta að hafa látlausa, en virðulega framkomu, að slá á strengi þjóöareiningar og þjóö- ernistilfinninga, að vera vel gef- inn og vel máli farinn, að vera hafinn yfir allan flokkadrátt. Helstu æviatriði Dr. Kristján Eldjárn var kjör- inn forseti íslands fyrir nær 12 árum, sumarið 1968. Hann var þá 51 árs. Næstu 20 ár á undan gegndi hann starfi þjóðminja- varðar, en við Þjóöminjasafnið hafði hann starfað frá árinu 1945. Hann er fornleifafræðing- ur að mennt, en lauk auk þess MA prófi i islenskum fræðum við Háskóla tslands. Hann hefur verið i stjórn fjölmargra vis- inda- og menningarfélaga og ritað margar greinar og rit- geröir um fornfræðileg efni. Fortið frambjóðenda Litum þá aðeins á fortið væntanlegra frambjóöenda til embættis forseta Islands. Albert Guömundsson er 56 ára gamall. Hann stundaöi nám við Samvinnuskólann og siðar verslunarskóla i Glasgow. Eftir að námi lauk gerðist hann at- vinnumaður i knattspyrnu næstu 10 árin i Bretlandi og Frakklandi. Þegar heim kom, starfaði hann sem stórkaup- maður i Reykjavik. Hann tók sæti i borgarstjórn árið 1970 og á Alþingi 1974. Hann er ræðismað- ur Frakklands. Hann hefur fengið fjölda viðurkenninga sem iþróttamaður og setið i stjórn ýmissa félaga og fyrirtækja. Guölaugur Þorvaldsson er 55 ára gamall. Hann er viðskipta- fræðingur að mennt. Að námi loknu kenndi hann i 11 ár við Verslunarskóla Islands og frá árinu 1956 við Háskóla Islands. Prófessor varð hann árið 1960 og háskólarektor 1973. A siðasta ári tók hann við starfi sátta- semjara rikisins. Hann hefur unnið i ýnsum starfsnefndum innan Stjórnarráðsins og verið formaður ýmissa félaga. Pétur Thorsteinssoner 62 ára gamall. Hann lauk prófi i við- skiptafræðum frá Háskóla Islands og lögfræðiprófi frá sama skóla þrem árum siðar. Hann hefur verið starfsmaður utanrikisþjónustu íslands frá árinu 1944. Hann hefur gegnt starfi deildarstjóra i utanrikis- ráðuneytinu, sendiherra og sið- í íréttaljósinu Sigurveig Jónsdóttir blaðamaöur ar ambassadors íslands viða um lönd. Hann hefur verið fastafulltrúi Islands hjá Atlantshafsbandalaginu og Efnahags- og framfarastofnun- inni, verið fulltrúi Islands hjá Sameinuðu þjóðunum og sinnt ýmsum öðrum störfum fyrir land sitt erlendis. Armann Snævarr er 60 ára. Hann lauk lagaprófi frá Háskóla Islands og stundaði siðan fram- haldsnám i Uppsölum, Osló og Kaupmannahöfn. Hann varð prófessor við Háskóla Islands árið 1948 og háskólarektor 1960- 1973. Meðal fjölmargra félaga, sem hann hefur setið i stjórn fyrir er Félag Sameinuðu þjóð- anna og einnig hefur hann verið forseti Þjóðvinafélagsins. Hann hefur ritað fjölda greina og kennslubóka i grein sinni. Margir kallaðir Islendingar virðast sem sagt eiga góðra kosta völ i næstu for- setakosningum. Og enn er lang- ur timi til stefnu, svo vel má vera að fleiri menn verði kall- aðir en hér hefur verið talið. Hver þeirra hlýtur svo hnoss- ið, skal engu spáð um. Aðeins einn verður útvalinn og ef að likum lætur verður kosninga- baráttan hin fjörlegasta. —SJ GESTSAUGUM b£TTA £R SKRÍTIÐ. AiLAR /ERNfiR I GUNNflRSHOLTi ERU FRiRMAR AÐ B£RA AMÐJAN VETUR- Teiknarl: Krls JacKson

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.