Vísir - 12.01.1980, Blaðsíða 31
VÍSIR
Laugardagurinn 12. janúar 1980
.Hðfum ekki
Dolmagn tii
að halda
99
elnvigið
- segir forseti Skáksambandsins
um einvfgi Snasskýs og Portisch
..Skáksambandiö hefur ekki rætt þann möguleika aö halda einvigi
Spasskys og Portisch hér á landi og ég tel ekki aö viö höfum bolmagn til
þess”, sagöi Einar S. Einarsson, forseti Skáksambands íslands, en
Friörik ólafsson, forseti FIDE, leitar nú aö aöila, sem vill sjá um
framkvæmd einvigisins.
„Reykjavikurskákmótið, sem
við höldum i samvinnu við Tafl-
félag Reykjavikur, verður haldið
á svipuðum tima og einvigið á að
fara fram og Skáksambandið get-
ur ekki sinnt tveimur svo stórum
verkefnum á sama tima”.
Þess má geta, að verölaun fyrir
þetta einvigi eiga að vera tuttugu
þúsund svissneskir frankar, eða
um fimm milljónir islenskar.
,,Ef okkur tekst sæmilega til
með Reykjavikurmótið, þá hefði
ég mikinn áhuga á að Skáksam-
bandið tæki að sér einvigi i und-
anúrslitum, sérstaklega einvigi
Kortsnojs og Tal, ef þeir vinna
báðir sina andstæöinga núna.
En ef einhver aðili hér innan-
lands vill standa fyrir einvigi
Spasskys og Portisch, þá er ekk-
ert útilokað að Skáksambandið
hafi þar einhverja milligöngu”,
sagði Einar.
Friðrik Ólafsson sagðist i sam-
tali við Visi i morgun ekki hafa
haft samband við neinn aðila enn-
þá og vildi sem minnst um málið
segja á þessu stigi. Er Visir
spurði hann, hvort annar aðili
hérlendis en Skáksambandið
kæmi til greina, svaraði hann:
„Það er aldrei að vita, þaö get-
ur ýmislegt komið upp.”
Þá sagði Friðrik, að hann leit-
aði viðar fyrir sér en á Islandi þó
óneitanlega yrði skemmtilegt að
halda einvigið hér. Júgóslavia
kæmi til dæmis vel til greina.
—ATA
Fyrirsögnin á frétt Visis I gær.
Ætla að borga
flugiö sjálflr
„Þennan reikning greiðum við sjálfir persónu-
lega”, sagði Tómas Árnason, alþingismaður, við
Visi i gærkvöldi.
Tilefnið var frétt Visis i gær um reikning fyr-
ir leiguflug, sem Alþingi hafði neitað að greiða.
Visir ræddi einnig við Helga
Seljan, alþingismann, en hann og
Tómas fóru i umrædd leiguflug i
siðustu kosningabaráttu. Helgi
sagði, að umræddan dag hefðu
þeir Tómas tekið áætlunarflug-
vélina frá Reykjavik til Egils-
staða. Til þess að ná fundi á
Bakkafirði, sem var sama dag,
hefðu þeir siðan tekiö á leigu flug-
vél frá Egilsstöðum til Vopna-
fjarðar, og það er reikningurinn
fyrir það flug sem skrifstofustjóri
Alþingis vildi ekki greiða.
Alþingismenn fá greiddar ferð-
ir á áfangastað i kjördæmi sin, og
auk þess sérstakan styrk til ferða
innan kjördæmisins en sá styrk-
ur nam hálfri milljón i fyrra.
Helgi sagðist telja, að hér væri
ekki um ferðalag innan kjör-
dæmisins að. ræða, heldur beint
flug frá Reýkjavik og á áfanga-
stað, Vopnafjörð, og ætti þvi
heildarfargjaldið að greiðast af
Alþingi beint að sinu áliti. Þeim
hefði hins vegar orðið á sú skyssa
að senda reikning fyrir leiguflug-
ið þó nokkru seinna en
reikninsinn fyrir áætlunarflug-
ið og hefði skrifstofustjóri Al-
þingis séð þann reikning en ekki
greitt.
Helgi sagði, að þeir ættu enn
ógreiddan ferðakostnað innan
kjördæma, sem þeir eigi að fá
hálfsárslega, og myndu þeir þvi
annað hvort greiða þessa upphæð
meö þeim peningum, sem þeir
ættu inni hjá Alþingi, eða þá úr
eigin vasa. Það kæmi i sama stað
niður.
Helgi sagði, að flugið frá Egils-
stöðum til Vopnafjaröar heföi
kostað 90 þúsund, en allt flugið frá
Reykjavik 113 þúsund.
„Stjórn Flugleiða samþykkti
á fundi i gær heimild til þess að
leigja DC-10 þotu félagsins i
næstu tvö ár”, sagði Sveinn Sæ-
mundsson, blaðafulltrúi Flug-
leiða i samtali við Visi.
„Samningar standa nú yfir
við flugfélagið Air Florida, sem
er bandariskt flugfélag.”
— Verður flugvélin leigð án
áhafnar?
„Já, enda mjög fátitt að svo
langar leigur séu með áhöfn-
um”. _-/VTA
Tia Flugleiöa — leigö til Flórida.
Visismynd: BG
„TIAN’LEIGÐ
TIL FLÚRÍDA
Ekkl dellt á
Heiibrigðis-
eftlrllllð - helflur
silórnvöld
„Til að fyrirbyggja misskiln-
ing, vil ég taka það fram, að með
ummælum minum i Visi i gær var
ég ekki að deila á Heilbrigðiseft-
irlitið, heldur stjórnvöld,” sagði
Guðlaugur Hannesson, forstöðu-
maður Matvælarannsókna rikis-
ins.
1 frétt Visis i gær var greint frá
þvi að Heilbrigðiseftirlit Reykja-
vikur hefði gefiö Matvælarann-
sóknum frest til 1. mars til að
koma aðstöðu stofnunarinnar i
viðunandi horf.
Guðlaugur kvað þetta ankanna-
legt og átti þá við að stofnun, sem
eigi að vinna að rannsóknum fyrir
heilbrigðisnefndir, skuli ekki hafa
betri aðbúnað en svo, að hóta
þurfi henni lokun.
—SJ
Skemmtun
fyrir aldraða
Kvenfélag Háteigskirkju held-
ur skemmtun fyrir aldraða i Há-
teigssókn sunnudaginn 13. janúar
kl. 15 og verður hún i Domus
Medica.
Að venju verður margt til
skemmtunar: Þorsteinn 0.
Stephensen leikari les upp, Skag-
firska söngsveitin undir stjórn frú
Snæbjargar Snæbjarnardóttur
syngur, frú Emma Hansen flytur
eigin ljóð og einnig verður al-
mennur söngur.
ÓTELJANDI MÖGULEIKAR
ELDHÚSA
Vantar þig
eldhúsinnréttingu?
Hefor þú athugað að nú er hagkvæmasti timinn til að panta eldhúsinnréttingu.
Verðið lægst og kjörin best. Komið, sjáið sýnishorn á staðnum. Látið teikna og gera
föst verðtilboð ykkur að kostnaðarlausu.
Athugið—Þegar pöntun er staðfest, stendur verðið. Raunhæf verðtrygging í verð-
bólgunni.
Húsgagnavinnustofa.Smiðjuvegi 44 Kópavogi Simi 71100
* J . 1 i ii "
r -
V— ► i i *