Vísir - 13.01.1980, Blaðsíða 12
vtsm
Mánudagurinn 14. janúar 1980.
12
vtsm
Mánudagurinn 14. janúar 1980.
17
«»*■
Borgarisjaki viö tslandsstrendur.Hafisinn hér viö land eraö mestu
leyti brotinn lagnaöaris, en alltaf má þó sjá borgarisjaka á stangli.
LANDSINS FORNI FJANDI
■■WANN I ÁR7
/■
*
* ú
zS ? "ms s i * ’ • Mu A, , /,, ‘
Hafis viö Þórshöfn i lok mars á sl. ári.
VIÐ HAFISFRÆBINGA UM LIKUR A HAFISVORI
Hafisinn hefur löngum hrellt okkur islendinga og gert okkur lifiö
erfitt og leitt. Fyrr á öldum þýddi hafiskoma horfelli húsdýra og
jafnvel manna á útmánuöum og jafnvel enn á ofanveröri 20. öld
getur hann skapaö okkur ómælda erfiöleika i landbúnaöi, fiskveiö-
um og samgöngum svo aö nokkuö sé nefnt. Skemmst er aö minnast
þess aö si. ár var mikiö hafisár og var Is hér viö land i meira en þrjá
mánuöi. Var þaö versta hafisár á áttunda áratugnum.
Visir leitaöi til nokkurra sérfræöinga I veöurfræöi og haffræöi og
spuröist fyrir um hvort viö tslendingar ættum von á ööru eins hafis-
ári nú og i fyrra. Ennfremur hverjar rannsóknir færu fram á hafis
og hafislikum hér viö land.
„Núna er mjög litill is i hafinu
fyrir norðan Islando og viö Jan
Mayen þannig að það gefur
vonir um að islitið verði i vor”
sagði Svend-Aage Malmberg
haffræðingur hjá Hafrann-
sóknarstofnun þegar Visir
spurðist fyrir um þessi mál.
„Við förum alltaí nokkrum
sinnum á ári norður fyrir land
til að kanna hitastig sjávar og
seltumagn og siðast fórum við i
lok nóvember. Þá var hitastig
sjávarins lágt og seltan einnig,
en sjórinn getur verið kaldur og
ferskur, m.ö.o. „islegur”, án
þess að það myndist ís. Hins
vegar eru forsendurnar þá fyrir
hendi og svo er einmitt núna.
Svend-Aage Maimberg sagði
að haffræðingar gætu þó
ekki„túlkað” sjóinn eins og þeir
kalla það þegar spá á fyrir um
is, fyrr en i febrúar. Þá fyrst
væri hægt að segja til um hvort
kaldi sjórinn yrði hér við land
fram á vor eða ekki og þar af
leiðandi hafisinn lika.
„Lítil hætta
„Sú hafisspá
i desember
að litil hætta
É hafís'
sem ég
benti til
sé á að
gerði
þess
hafis
verði lengur hér við land en
fjórar vikur að þessu sinni og
alveg eins liklegt að islaust
yrði!’ sagði Páll Bergþórsson
veðurfræðingur, en hann hefur
fengist mikið við hafisrann-
sóknir.
Páll sagði að aðferð sin við að
gera langtima hafisspár byggði
á þeirri ályktun að lofthitinn
noröur við Jan Mayenendur-
speglaði sjávarhitann i kringum
eyjuna á stóru svæði. Enn-
fremur á þeirri ályktun að sjór-
inn i kringum Jan Mayen
streymdi i stórum dráttum að
norðurströnd tslands og væri
hann hálft ár á leiðinni. Ef sjór-
inn hefði þvi verið kaldur að
hausti, væri hættan meiri á haf-
is hér við land, hálfu ári seinna
eða á vormánuðum og öfugt ef
hann væri hlýr.
Páll sagði ennfremur að hann
beitti þeirri aðferð að taka
meðalhita á Jan Mayen yfir 5-6
mánaða timabil til að fá sem
áreiðanlegasta visbendingu um
það hvort hitastigið sé i sjónum
umhverfis eyjuna. Væri það
timabilið frá júni og fram í
októberlok, en þá hefði hann
gert fyrstu spána nú i haust.
Siðan endurskoðaði hann
meðaltalið með tilliti til hvers
mánaðar sem við bættist, allt
fram i janúarlok. Ætti hafis-
spáin þvi að geta orðið stöðugt
nákvæmari eftir þvi sem lengra
liði.
Loks sagði Páll að hitinn á
þessu timabili árið 1979 á Jan
Mayen hefði verið i meðaltali
miðað við siðustu 60 ár, á sama
tima og hann væri langt fyrir
neðan meðaltal hér á íslandi.
//Minni líkur á hafís en
áður".
„Ég tel minni likur á hafis við
Island nú i ár en i fyrra, en það
fer þó mjög eftir þvi hvort rikj-
andi vindátt verði af norðri.
Þannig að yfirborð sjávar kólni
á stóru svæði eða ekki” sagði dr.
Þór Jakobsson veðurfræðingur
og deildarstjóri hinnar nýstofn-
uðu hafisdeildar veðurstof-
unnar, en ásamt honum starfar
Eirikur Sigurðsson veðurfræð-
ingur við þá deild. Dr. Þór hefur
starfað um árabil hjá veður-
stofu Kanada og þá einkum
fengist við rannsóknir á veður-
farssveiflum og þá einkum á
norður-slóðum Kanada. Hefur
hann þar kynnst gerð svo-
nefndra hafislikana, en með
þeim má segja fyrir um breyt-
ingar á hafisnum og hreyfingar
hans nokkra daga fram i tim-
ann.
Dr. Þór sagði að það væri við-
fangsefni veðurfræði sem haf-
fræði að kanna hreyfingu lofts
og sjávar og hvernig ýmsir eig-
inleikar, t.d. þrýstingur, hita-
stig, og raki breyttust við þessar
hreyfingar. Veðurfræðin stydd-
ist þvi mikið við eðlisfræði i at-
hugunum sinum og þá sérstak-
lega afl- og varmafræði.
Aðurnefnt hafislikan byggði á
þvi að áðurnefndir eiginleikar
væru settir i ákveðið kerfi, sem
væri þá n.k. eftirmynd náttúr-
unnar. Þar væri likt eftir þeim
eiginleikum eða þáttum sem
hefðu áhrif á hafisinn og siðan
reiknað út i tölvu hvaða áhrif
þeir hefðu. Þarna væri m.ö.o.
komin eins konar tilraunastofa
með hafis.
Hafíslíkön notuð strax á
næsta ári?
Dr. Þór sagði að þessi hafis-
likön væru enn á tilraunastigi og
gerði hann ekki ráð fyrir að
hægt yrði að notast við þau fyrr
en i fyrsta lagi á næsta ári. Nú
væri hins vegar lögð áhersla á
að fylgjast með isnum og safna
upplýsingum til að nota i hafis-
likönin. Taldi hann að með þess-
um hafislikönum mætti segja til
um breytingar á isnum frá degi
til dags og ættu þau af þeim
sökum að hafa mikla hagnýta
þýðingu.
Að lokum sagði dr. Þór
Jakobsson veðurfræðingur að
rannsóknir á hafísnum hefðu
ekki bara þá þýðingu að segja til
um hafiskomur hér við land,
heldur einnig væru þær nauð-
synlegar við rannsóknir á
veðurfarsbrey tingum, en
breytilegt magn hafiss frá einu
ári til annars gæti haft þar mikil
áhrif. —HR
„Sjórinn noröur af landinu er
„islegur” en þaö þarf þó ekki aö
merkja aö hafis myndist” sagöi
Svcnd-Aage Malmberg haffræö-
ingur.
Páll Bergþórsson veöurfræö-
ingur: „Ég tel litla hættu á aö
hafís veröi lengur en fjórar
vikur hér viö land aö þessu
sinni”.
Dr. Þór Jakobsson veöurfræö-
ingur er að vinna aö hafís likön-
um, en meö þeim ætti að vera
hægt aö segja til um hafis
nokkra daga fram i timann.
Visism. J.A.
Hafisbreiöurnar sl. vor náöu suöur undir Látrabjarg og suöur með öilum Austfjöröum þegar þær uröu hvaö mestar. Myndin er tekin úr
flugvél Landhelgisgæslunnar i Iskönnunarflugi.
Ný kennslubók
um íslenska
málfræðl
Út er komin á vegum IÐUNN-
AR bókin tslensk málfræði,
kennslubók handa framhalds-
skólum. Þetta er fyrri hluti bók-
arinnar. Höfundur er Kristján
Arnason. Hann lauk fyrir fáum
árum doktorsprófi i málvisindum
i Bretlandi og kennir nú málfræði
við Háskóla Islands.
í formála höfundar er komist
svo að orði: „Mikið vatn hefur
runnið til sjávar siðan bók Hall-
dórs Halldórssonar, Islensk mál-
fræði handa æðri skólum, kom út.
Hvort tveggja er, að aðstæður
hafa breyst i fræðiheimi málfræð-
innar, og þá ekki sfður i mennta-
kerfinu islenska, hvað varðar
ytra skipulag og hugmyndir um
móðurmálskennslu. Ný kennslu-
bók i málfræði er þvi löngu tima-
bær.... Þetta kver er fyrst og
fremst tilraun, og ég vona að
menn séu reiðubúnir aö taka
henni með velvilja, en þó strangri
gagnrýni, þannig að reynsla af
notkun kversins geti leitt til ein-
hverra framfara i fræðslu um
málfræði og móöurmál á fram-
haldsskólastigi”.
islensk máifræöi er 133 bls.
Prentrún sf. prentaði.
Tímamótaár
adidas =
Adi Dassler
1920
1929
1932
1936
. 1948
1952
1954
1956
1960
1964
1966
1968
1970
1971
1972
1974
1975
1976
1978
1979
1980
Adi Dassler framleiðir sitt fyrsta par
Fyrstu fótboltaskórnir með 3 röndum
Olympíuleikar í Los Angeles: Einn keppenda hreppir
3. verðlaun í 100 m. á skóm frá Dassler__________
Olympíuleikar í Berlín, Jesse Owens vinnur
fern gullverðlaun í skóm frá Dassler
Adi Dassler stofnar ADIDAS_______________________
Olympíuleikar í Helsinki.
Nærri helmingur þýzka liðsins í Adidas
Fyrstu fótboltaskórnir meö skrúfuðum tökkum,
V-Þjóðverjar heimsmeistarar, allir á Adidas skóm
Olympíuleikar í Melborne. 50% þátttakenda í Adidas
Olympíuleikar í Róm. 75% í Adidas
Olympíuleikar í Tokyo., 80% í Adidas
H.M. Englandi. 75% í Adidas
Olympíuleikar í Mexico. 85% í Adidas
H.M. Mexico. 85% í Adidas__________
Einvígi aldarinnar í hnefaleikum, Ali v. Frazier,
báðir í Adidas skóm
Olympíuleikar í Munchen. 78% í Adidas
H.M. V-Þýzkalandi. 80% í Adidas
Adistar 2000 kemur á markaðinn
Olympíuleikar í Montreal 83% í Adidas
H.M. Argentínu. 75% í Adidas
Framleiðslan nær 200.000 pörum á
adidas^