Morgunblaðið - 14.10.2001, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 B 7
rdb Öryggisþjónusta ehf.
er fyrirtæki sem sérhæfir sig í
öryggisráðgjöf og verndun ein-
staklinga með lífvörðum.
Fyrirtækið vinnur í samstarfi við
marga þekkta alþjóðlega aðila,
svo sem „The world-wide feder-
ation of bodyguards“.
Fyrirtækið mun standa fyrir
námskeiði í lífvörslu á Spáni í
nóvember næstkomandi.
Reyndir kennarar, m.a. frá
Noregi og Danmörku.
Áhugasamir vinsamlegast
skrái sig á heimasíðu okkar
www.rdbprotection.com
A.T.H.: Aldurstakmark á
námskeiðið er 18 ár.
Kennt verður á ensku.
VÍNIÐ A Mano frá Púglíu á
Suður-Ítalíu hefur áður verið til
umræðu hér enda eitthvert mest
heillandi vín sem rekið hefur á fjörur
manns lengi, ekki síst þegar verðið
er haft í huga.
Það er því sérlega ánægjulegt að
þetta vín skuli nú nýlega vera
komið í reynslusölu.
A Mano er sköpunarverk
þeirra Mark Shannon og Elves-
iu Sbalchiero. Hann er frá Kali-
forníu, hún frá Friuli á Norður-
Ítalíu og bæði höfðu þau unnið ár-
um saman við framleiðslu og
markaðssetningu á vínum er leiðir
þeirra lágu saman. Þau féllu ekki
bara hvort fyrir öðru heldur einnig
fyrir Púglíu og ákváðu að framleiða
þar vín er bæri af.
Það hefur svo sannarlega tekist. A
Mano 2000 er sneisafullt af rauðum
og svörtum berjum, kirsuberjum,
lakkrís, plómum, kryddi og jafnvel
appelsínuberki. Yndislegt vín í alla
staði og stórkostlega góð kaup á
1.090 krónur. Vín sem hentar með
suður-evrópskum réttum, ekki síst
þar sem mikið af kryddjurtum er
notað og einnig pastaréttum.
Annað forvitnilegt vín í reynslu er
hið suður-afríska Fleur de Cap
Merlot (1.190 kr.). Blýantur og reyk-
ur eru hér ríkjandi, vínið nokkuð
sýrumikið með kryddi og heitum
jarðvegi.
Steingrímur Sigurgeirsson
Vín vikunnar
A Mano
Morgunblaðið/Jim Smart
G
læ
si
le
g
a
r
g
ja
fa
vö
ru
r Hitakanna
kr. 6.600
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14.