Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.10.2001, Blaðsíða 8
Fylgst með fornbílum Mátti sjá gesti koma sér nota- lega fyrir í gras- inu á milli mat- artjaldanna.  Sprogø, eyjan undir Stórabeltisbrúnni sem tengir Sjáland og Fjón, hefur nú verið opnuð almenningi, segir berlingske.dk. Ferðamálaráð Korsør og Ny- borg hafa tekið höndum saman ásamt Sund&Bælt um að skipuleggja tvær hópferðir til Sprogø nú í október (og eftir samkomulagi) en eyjan hefur ver- ið lokuð almenningi um hríð og þar af leiðandi sveipuð mikilli dulúð. Sprogø hefur verið í byggð frá steinöld en tók ekki að gegna veigamiklu hlutverki fyrr en á dögum Valdimars mikla, sem lét reisa þar borg á 12. öld. Þrátt fyrir langt og forsögulegt hlut- verk sitt virðist Sprogø einna þekktust fyrir að hafa verið dvalarstaður „afvegaleiddra“ stúlkna frá 1923 til 1966 en á þeim árum var til siðs að senda ungar konur, sem ekki hegðuðu sér í samræmi við við- teknar venjur, þangað. Hvers konar „óþekkt“ var um að ræða fylgir ekki sögunni, en launungin mun hafa gefið ímyndunarafli margra lausan tauminn. Ferðin til Sprogø er þriggja tíma löng og kostar tæpar 2.500 krónur. Hægt er að fara með rútu eða siglandi. Hópar geta sett sig í samband við ferða- málaráð í Nyborg eða Korsø í vetur en miðað er við að reglubundnar skoðunarferðir verði farnar til eyj- arinnar í sumar, að sögn berlingske.dk. Forsöguleg eyja sem geymdi óþekkar ungar konur  MIKILL afsláttur er gefinn af gistingu á þekktum hótelum í New York um þessar mundir, samkvæmt travel-news.org. Eitt dæmið er Waldorf Astoria, þar sem veruleg verðlækkun hefur verið gerð til þess að glæða viðskiptin, í kölfar hryðjuverkanna í New York. Herbergi í Art deco hluta hótelsins kosta nú rúmar 23.000 krónur nóttin frá mánudegi til föstu- dags og um 19.000 krónur um helgar. Verð á hót- elherbergjum á Waldorf Astoria hefur farið upp í tæpar 70.000 krónur nóttin á þessum árstíma. Herbergi í Waldorf Towers, sem liggur að Astoria, kostar að sama skapi rúmar 40.000 krónur nóttin frá mánudegi til föstudags og rúmar 36.000 krón- ur um helgar. Gisting á Waldorf Astoria á niðursettu verði  Þeir sem hafa áhuga á bókum og kvikmyndum með sannsögulegu ívafi um síðari heimsstyrjöldina þar sem leit að dulmálslyklum er veigamikill þáttur í atburðarásinni ættu ekki að láta dulmálssafn Þjóð- aröryggisstofnunar Bandaríkjanna í Fort Meade í Maryland framhjá sér fara. Á safninu er að finna ýmsa gripi og upplýsingar um dulmálsráðningu og dulmálsgerð, allt frá 18. öld til vorra daga, meðal annars ENIGMA dulmálsvél Þjóðverja og PURPLE dulmál Japana, sem leyni- þjónustu Bandamanna tókst að ráða í heimsstyrj- öldinni síðari. Á safninu er að finna upprunalega ENIGMA vél sem gestir mega prófa og einnig gefur að líta vél- og tæknibúnað sem notaður er í nútíman- um til þess að vernda tölvubúnað og samskiptaleiðir Bandaríkjamanna. Safnið er lokað í bili en þeir sem vilja fylgjast með opnunartíma geta hringt í síma 00-1-301-688-5849. Safn um dulmálsráðningu og dulmálsgerð í Fort Meade UM 18 milljónir manna fara ár- lega um Kaupmannahafnarflug- völl, Kastrup, og í hverjum þeirra býr hugsanlegur kaupandi. „Sýndu mér í pokann og ég skal segja þér hvaðan þú ert,“ segir berlingske.dk. „Ef matur er í pok- anum ertu Norðmaður, ef það er tækjabúnaður ertu Dani og ef um er að ræða tískufatnað ertu senni- lega frá Suður-Evrópu.“ Asíbúar sýna verslunum með skandinavíska hönnun mestan áhuga, svo og varningi frá Royal Copenhagen, segir ennfremur. Danir í innanlandsflugi stoppa að jafnaði um 40 mínútur í flug- stöðinni og nota 48,3% tímans til þess að versla. Útlendir ferðalang- ar dvelja að meðaltali í klukkutíma og tíu mínútur og nota 44% tæki- færið til innkaupa á meðan. Á Kaupmannahafnarflugvelli er grannt fylgst með innkaupum við- skiptavina, sem stjórnendur flug- vallarins telja lykilinn að vel- gengni verslananna og ánægju flugvallargesta. „Það er jafnframt ein helsta ástæða þess að flugvöll- urinn hefur verið valinn sá besti í heimi af farþegum samkvæmt könnun IATA, þrjú ár í röð,“ segir berlingske.dk og hefur eftir Alan Bork, einum yfirmanna flugvallar- ins, að galdurinn felist í réttri blöndu af verslunum á réttum stöðum með tilliti til farþega- straumsins. „Tveir þriðju farþeganna eru í viðskiptaferð og versla á tvenns konar máta. Annars vegar eru inn- kaup á vörum sem undanþegnar eru skatti, sem ákveðin eru með fyrirvara. Hins vegar er um að ræða snyrtivörur eftir innkaupa- lista að heiman. Við þetta má bæta skyndikaupum, sem gerð eru á víð og dreif í flugstöðinni og sýna mis- munandi hegðunarmynstur, ólíkra þjóða,“ segir Bork en 70–80% við- skiptaferðalanga eru karlmenn. Skartgripir gerðir eftir þekkt- um fornminjum eru talsvert vin- sælir á Kastrup og munu eftir- gerðir víkingaskipa njóta mikillar hylli hjá Bandaríkjamönnum, þótt þær séu strangt til tek- ið ekki byggðar á til- tekinni fyrirmynd. „Bandaríkjamenn hafa ekki mikinn áhuga á tollfrjálsum varningi, hann einskorðast við Evrópubúa og íbúa Austur-Asíu. Fyrir fá- einum árum sýndu Bandaríkjamenn versl- un með sængur mikinn áhuga, sem breyttist um leið og sams konar sængur tóku að fást í heimalandinu. Skömmu síðar var þeirri verslun hætt,“ segir Bork ennfremur. Vinsælustu gjafa- vörur sumarsins voru úr með púlsmæli frá Nike, sem voru „rifin út“, skokkfatnaður, La Coste-peysur og golf- jakkar. Mest selda var- an í augnablikinu er talandi stuttermabolur sem býður góðan dag á átta tungu- málum. Í flughöfninni eru 49 sérversl- anir á 5.000 fermetrum sem sam- tals veltu tæpum 15 milljörðum á síðasta ári, að sögn berlingske.dk. Innkaupapokinn getur komið upp um þjóðerni manns Rúmlega 18 milljónir manna fara um Kastrup- flugvöll árlega. Vörur frá Royal Copenhagen eru vinsælar meðal Asíubúa. Reuters BHÚTAN í Himalaja-fjöllum liggur milli Tíbet, Kína og Ind- lands og hefur verið kallað land friðsama þrumudrekans, lifandi aldingarður og síðasta jarð- neska paradísin. Ferðaþjónusta Bhútan lýtur ströngum lögmál- um og einungis 7.500 gestir fá að heimsækja landið á ári hverju. Skipuleggja verður ferðalagið fyrirfram og hver nótt í landinu kostar rúmar 20.000 krónur með öllu, sam- kvæmt ferðablaði The Sunday Times. Íbúum Bhútan er ætlað lögum samkvæmt, að klæðast þjóðbúningi dag hvern, karl- mennirnir köflóttri ullarkápu með hvítum manséttum og kon- urnar skósíðu pilsi. Þeir sem óhlýðnast eiga á hættu sekt og jafnvel vikulangt fangelsi. Eina verndarsvæði heimsins ætlað snjómanninum ógurlega, jeti, er í Bhútan. Komi maður auga á jeta, er dauðsfall yfirvofandi í fjölskyldunni, samkvæmt trú heimamanna. Dýrlingur nokkur á 18. öld, Drukpa Kunley, gerði reðurinn að ímynd yfirnáttúru- legrar gæsku og því má sjá phallus-tákn hangandi á þak- skeggjum og máluð á veggi. Bhútan er þekkt meðal frí- merkjasafnara fyrir þríhyrnd frímerki, frímerki úr silki og járni sem og röð frímerkja til- einkaða snjómanninum jeta. Í Bhútan er auk þess hæsti ósnortni fjallstindur heims, Gankar Punsum, 7.239 metrar, sem aldrei hefur verið klifinn. Fræg eru ummæli kóngs Bhútan, Jigme Sangye Wang- chuk, verg þjóðarframleiðsla skiptir minna máli en verg þjóð- arhamingja. Heimasíða: www.bootan.com Verg þjóðarham- ingja æðri vergri þjóðarframleiðslu Reuters Taktsang-klaustur, í 3.000 metra hæð, í grennd við Paro í Bhutan. TÍU þúsund lesendur ferða- blaðsins Traveller eru sammála um að besta hótel veraldar sé að finna á eynni Langkawi í Malas- íu, samkvæmt netavisen.no. Al Bustan höllin í Óman hefur verið fremsta hótel heims að mati um- ræddra lesenda undanfarin ár, en hefur nú fallið í 26. sæti. Dýr- asta hótel veraldar, Burj Al Arab í Dubai, kemst ekki á listann og er talið að hátt her- bergisverð eigi sinn þátt í því, en nóttin kostar rúmar 110.000 krónur. Malasíska hótelið nefn- ist Datai og stendur á eynni Langkawi skammt undan vest- urströnd Malasíu (norður af Penang). Innan seilingar frá hót- elinu eru jafnframt regnskógur og löng einkaströnd. Umrætt hótel er hluti af pakkaferðum í Noregi (hjá Wikström Rejser), þótt ótrúlegt megi telja, og kost- ar nóttin fyrir tveggja manna herbergi tæpar 39.000 krónur. Flest bestu hótelanna eru í Asíu, segir netavisen.no, en ekk- ert innan Norðurlandanna. Næstvinsælasta hótelið er Arts hótelið í Barcelona, í þriðja sæti er Four Seasons í New York, Shangri-La í Bangkok í fjórða sæti, Le Saint Gerain á Máritíus í því fimmta, Jumerah Beach í Dubai í því sjötta, Mand- arin Oriental Hyde Park í Lond- on í sjöunda sæti, Four Seasons Resort á Balí í áttunda sæti, So- neva Fushi á Maldív-eyjum í ní- unda sæti og Ritz-Carlton Mil- lenia í Singapore í því tíunda. Heimsins besta hótel í Malasíu Reuters Flest bestu hótela heims eru í Asíu, að mati lesenda Traveller.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.