Morgunblaðið - 14.10.2001, Page 11

Morgunblaðið - 14.10.2001, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 B 11 ferðalög VÍETNAM OG TAÍLAND Samvinnuferðir-Landsýn bjóða upp á lúxusferð til Taílands 20. janúar til 4. febrúar. Flogið er frá Keflavík 20. janúar gegnum Kaupmannahöfn og komið til Bangkok í Taílandi um kaffi- leytið næsta dag. Hinn 24. janúar er flogið frá Bangkok til Hanoi í Víet- nam. Boðið er upp á skoðunarferð um Hanoi, ferð til Ha Long flóa sem er á skrá Sameinuðu þjóðanna yfir helstu náttúrugersemar í heimi. Fló- inn er yfir 4.000 ferkílómetrar að stærð og yfir 3.000 sker og kalk- steinseyjar fylla hann. Einnig er dval- ið við Nha Trang, vinsælustu bað- strönd í Víetnam og farið til Dalat, sem er tilkomumikill dvalarstaður keisara til forna og brúðhjóna nú á dögum. Ferðin endar svo í Saigon þar sem margt er að sjá og skoða. Hægt er að framlengja ferðina frá 4.-9. febrúar og er þá gist á lúxushóteli á baðströndinni Hua Hin. Verð á mann í tvíbýli er 259.000 krónur með framlengingu og innifalið í verði er flug, hótel, morgunverður, akstur í skoðunarferðum, hádegisverður þar sem það er tekið fram, enskumæl- andi leiðsögumaður á hverjum stað, íslenskur fararstjóri, Svavar Lár- usson, aðgangseyrir, bátsferðir, inn- anlandsflug frá Hanoi til Nha Trang og flugvallaskattar og föst gjöld. Lágmarksþátttaka er 20 manns. Reuters Die Hackeschen Höfe, Ros- enthalerstrasse 40-41/ Sophienstrasse 6 http:// www.hackeschehoefe.com Die Sophie-Gips-Höfe, Sophi- enstrasse 21/ Gipsstrasse 12 Barcomi’s, Sophienstrasse 21, Sophie Gips Höfe, 2. Hof, opið alla daga frá 9–22 og frá 10–22 á sunnud. Die Heckmann-Höfe, Or- anienburgerstrasse 32. armenn birtust umsvifalaust og fjarlægðu bílinn. Ég skemmti mér konunglega og hef bara ekki áttað mig á því hingað til, þótt ég hafi séð formúlu eitt í sjónvarpinu, hvað bílarnir aka í rauninni hratt. Þeir þjóta framhjá á þvílíkum hraða að vart er hægt að ná þeim á filmu. Eða hávaðinn þegar þeir þutu hjá. Ég tók eftir að margir voru með eyrnatappa í eyrunum. Allt bók- staflega iðaði af lífi og mátti sjá gesti koma sér notalega fyrir gras- inu á milli matartjaldanna með börnin á meðan aðrir stóðu í þyrp- ingu við brautina og horfðu á hverja keppnina á fætur annarri. Þarna mátti sjá marga þekkta menn eins og þá Stirling Moss á Jaguar MkVII, Derek Bell og Grant Williams á Jaguar Mk I og Gerry Marshall á Lotus Cortina. Grand Prix-stjarnan Johnny Her- bert var einnig mætt á pínulitlum Mini Cooper og hvert sem litið var voru þeir flottustu bílar sem ég hef séð. Þarna voru allar tegundir sport- og kappakstursbíla, sem rað- að var upp á sérstökum sýning- arstæðum og margir þeirra fágætir eins og Cooper 500cc, Ferrari 750 Monza, Ferrari 250GTO G4, Ferr- ari 246 Dino, Ferrari 246S Dino, Jaguar CUT 7 Lotus-Climax 16, Porsche 904 GTS, Healey Silver- stone, Mercedes-Benz 300 SLS og Ford GT40. Á milli bílanna mátti sjá gömul mótorhjól sem voru algjörar perl- ur. Elstu hjólin sem kepptu í Len- nox-bikarkeppninni voru AJS E95 Porcupine og Matchless G45 frá árinu 1954 en yngstu hjólin voru frá árinu 1967. Öll eru hjólin safn- gripir og ber þá hæst BMW RS frá 1956, Moto Guzzi, Matchless G45, MV Agusta 500/4, Manx, Norton, Aermacchi og McIntyre G50. Þarna voru mótorhjól með hliðarvögnum frá stríðsárunum og eigendurnir í tilheyrandi fornhjólagalla, sem setti punktinn yfir i-ið. Að ganga á milli hjólanna í sólinni með þrumandi hávaðann frá keppnisbrautinni var skemmtileg upplifun sem ég hefði ekki viljað missa af. Cooper-bílaveisla Alla helgina mátti horfa á þekkt fólk sýna eða keppa á gömlum kappaksturbílum sínum. Sérstök minningarathöfn var um John Cooper og föður hans sem voru hönnuðir og smiðir Cooperbílanna. Þeim til heiðurs voru yfir helgina meira en 50 Cooperbílar til sýnis og á sunnudag var sérstakur kapp- akstur þar sem eingöngu kepptu Cooperbílar. Þeir feðgar létu eftir sig marga fágæta bíla eins og pion- eer-útgáfuna frá 1950 af Cooper- JAP 500cc, Cooper Monaco-Chevr- olet T61M og Cooper – Bristol Mk2 T23. Það var fróðlegt að ganga um milli bílanna og sjá hvað þeir voru mismunandi útlits og með ólíkan karakter. Margar raðir af æðisleg- um kappakstursbílum, sportbílum, eðalvögnum og einn gamall „töff, töff á teinahjólum“ sem reyndar var til sölu fyrir slikk. Þetta árið voru sérstaklega til sýnis 11 eintök af Jaguar E-gerð, sem hélt upp á 40 ára afmælið í ár. Þeir gestir sem komu á bílum eldri en frá árinu 1966 fengu að leggja bílunum sínum inni á sýningar- svæðinu og þeir sem komu á Jagu- ar E eða Ford fengu frítt inn og bílarnir þeirra jafnvel settir í heið- ursstæði, enda fáséðir nú til dags. Elsti E-bíllinn á sýningunni var frá árinu 1960 en það var Jaguar VKV 752. Á sýningarsvæðinu var 21 Jaguar E-bíll til sýnis og sá yngsti var 4868 WK-týpa, árgerð 1964. Er ekki laust við að bílaáhugi minn og þekking hafi aukist til muna og eitt er víst að ég mun ekki sleppa tæki- færi til að fara aftur á kappakstur. Í Goodwood er margt hægt að gera sér til skemmtunar. Þar er starfræktur flugskóli árið um kring þar sem bæði er hægt að læra að fljúga eða kaupa sér mislöng útsýn- isflug yfir skógivaxið landið og allt niður að strönd ef fólk vill. Þarna er allt fyrir alla og ekki gleymast börnin því tívolí er starfrækt með mörgum skemmtilegum leiktækj- um, ásamt gokartbraut og bíla- tækjum af mörgum gerðum. Forn- bílaformúlan er því kjörin alhliða skemmtun og útivist fyrir alla fjöl- skylduna og ógleymanleg upplifun. ungra listamanna upp úr 1990, en þýski leikstjórinn Wim Wenders hafði áður notað bakgarðana sem sviðsmynd í mynd sinni „Himmel über Berlin“ í kringum 1987. Hafist var handa við endurnýjun Hack- esche Höfe stuttu eftir fall múrsins og árið 1996 var lögð lokahönd á þá vinnu. Fatahönnuðir og handverksmenn Í næsta garði er til að mynda fal- leg bókaverslun sem sérhæfir sig í ýmiss konar listaverkabókum og býður upp á skemmtilegt úrval póst- korta auk þess að hafa á boðstólum fjölbreytt úrval bóka og korta um Berlín og Þýskaland. Eftir því sem innar dregur (fjær götunni) verður andrúmsloftið rólegra, enda íbúðir á efri hæðum sumra húsanna. Garður fjögur er kenndur við brunninn sem stendur í miðju hans, en í litlum verslunum eru fatahönnuðir og handverksmenn við iðju sína og bjóða vörur sínar jafnframt til kaups. Ekki er nauðsynlegt að feta sig í gegnum alla húsagarðana til baka að innganginum við Rosenthalerstrasse til að sleppa úr þessu völundarhúsi heldur er annar inngangur frá 6. garðinum við Sophienstrasse. Ef genginn er smá spölur eftir Sophienstrasse í norðurátt er fljót- lega að finna á hægri hönd húsa- garðasamstæðuna „Sophie Gips Höfe“ við Sophienstrasse 21. Þrír húsagarðar tengja þar saman Sophi- enstrasse og Gipsstrasse. Í garðin- um í miðið er meðal annars að finna bandaríska kaffihúsið „Barcomi’s“ sem býður upp á glæsilegar tertur og brownies, beyglur og úrval smárétta auk gæðakaffis og fleira góðgætis. Sökum vinsælda er auðveldara að fá borð á virkum dögum en um helgar. „Heckmann Höfe“ við Oranienbur- gerstrasse samanstendur einnig af huggulegum húsagörðum sem hafa að geyma verslanir af ýmsu tagi, veitingastaði, kaffihús og fleira, en ef gengið er í gegnum garða Heckmann Höfe lýkur ferðinni á Auguststrasse. Goodwood Festival of Speed Revival Meeting Goodwood Circuit Chichester, West-Sussex PO18 OPX Netfang: enquiries@goodwood.co.uk Símar: 01243-755000 og 01243- 755057. Fyrir þá sem vilja nánari upplýs- ingar um ársdagskrá Goodwo- od í mótorsporti er bent á net- slóðina: www.goodwood.co.uk Kappakstursheimasíður British Motor Racing Circuits sem vert er að skoða. Þar er hægt að finna allar kapp- akstursbrautir í Bretlandi á korti ásamt ýtarlegum upplýs- ingum og myndum um allar gerðir keppnisbíla. http://www.bmrc.co.uk/ http://www.hewett.nor- folk.sch.uk/CURRIC/ techweb/epscweb/rlinks.htm Gregor Fisken-fornbílasalan er með myndir af öllum bílum sem eru á skrá. Slóðin er: www.gregorfisk- en.com Netfang: cars@gregorfisk- en.com 14 Queens Gate Place Mews London SW7 5BQ Sími: 02075-843503. ku óðalssetri GÖNGUFERÐIR Á BRETLANDSEYJUM Íbúar Bretlandseyja eru 56 milljónir talsins og 600 íbúar á hverja 2,6 fer- kílómetra, að meðaltali. Þrátt fyrir mannmergð er Bretland hins vegar ákjósanlegt til gönguferða og nú hefur Lonely Planet gefið út sérstaka hand- bók um fyrir göngugarpa sem nefnist Gengið á Bretlandseyjum, eða Walking in Britain. Í bókinni er að finna allt sem göngumaðurinn er sagður þurfa að vita, í meðfærilegu broti upp á 560 blaðsíður, hvort sem maður er á hött- unum eftir nokkurra daga göngu í óbyggðum eða rólegum spássitúr um sparilegar sveitir. Bókin hefst á staðreyndum um Bret- land og upplýsingum fyrir göngu- manninn. Þar á eftir fara kaflar sem skipt er eftir landsvæðum með yfir 60 gönguleiðum, hugmyndum um ferða- tilhögun og gistingu og nákvæmum kortum. Sem dæmi um landsvæði sem gerð eru skil eru Vatnahéruðin á Norð- ur-Englandi og óbyggðir norðvest- urhluta Skotlands. Sjá: www.lonelyplanet.com Bílaleigubílar Sumarhús í Danmörku Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga Bílar frá dkr. 1.845 á viku. Innifalið í verði: ótakmarkaður akstur, allar tryggingar. (Allt nema bensín og afgr.gjöld á flugvöllum.) Aðrir litlir og stórir bílar, minibus og rútur. Sumarhús og íbúðir. GSM- símakort með dönsku símanúmeri. Nú einnig bílaleigubílar frá Kaupmannahöfn og Hamborg sem má aka um Austur-Evrópu. Heimasíðan, www.fylkir.is fjölbreyttar upplýsingar. Fylkir Ágústsson Fylkir — Bílaleiga ehf. Sími 456 3745 Netfang fylkirag@snerpa.is . Heimasíða www.fylkir.is . ALEX BÍLAHÚSIÐ VIÐ LEIFSSTÖÐ BÓNSTÖÐ-INNIGEYMSLA Uppl. síma 421 2800 Vefsíða www.alex.is Happdrætti Hjartaverndar sími 535 1825. Einnig er hægt að panta miða í gegnum tölvupóst á happ@hjarta.is Greiðslu- og gírókortaþjónusta Sendum um land allt Stuðningur þinn skiptir máli HJARTAVERND OD DI HF -H 20 18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.