Morgunblaðið - 14.10.2001, Side 15

Morgunblaðið - 14.10.2001, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 B 15 bílar HVER eru áhrif bílamengunar á heilsufar, ef litið er burt frá minni- háttar óþægindum eins og sviða í augum eða særindum í hálsi? Rannsóknir á skammtímaáhrifum mengunar hafa leitt í ljós að tengsl eru á milli mengunarstigs og þátta á borð við erfiðleika við öndun og fleiri heimsókna til heimilislækn- isins. Langtímaáhrifin ekki ljós Þegar að langtímaáhrifunum kemur eru vísindamenn hins vegar ekki á einu máli, sem má rekja til þess að enn hefur ekki tekist að safna nægum upplýsingum um hvað gerist í mannslíkamanum á löngu tímabili. Það eina sem menn eru nokkurn veginn sammála um er, að þótt mengandi útblástur sé í öllum tilvikum óæskilegur er hann ekki eins skaðlegur og áhrif tób- aks og áfengis, sem leggja á ári hverju gífurlegan fjölda að velli. Bílaiðnaðinum hefur á tiltölu- lega skömmum tíma tekist að draga allverulega úr mengandi út- blæstri. Reyndar tala tölurnar sínu máli, en eins og sjá má hefur dregið meira en hundraðfalt úr bílamengun á sl. þremur áratug- um. Taflan er fengin frá bílafram- leiðandanum Renault.                                                                                                           !" # "  "  "    !" # "  "  "    $ "" %""  &' "  &( !" # )   "    !" # %*+, !" # )   "           !" # )   "    !" # )   "    !" # )   "    !" # )   "   *&%*+,  -..  % , &   )/   , &   )/         ! " # ! " # $  % & !' &    !' & ( )  !# *  !' !# %+ )   , & $ )  -  +  . * (. 001 231 4%   51 67 8 275 37 61 6398 95 :93 30 6 98 693 293 198: /0 /123 /4 /125 // /166 /1 /117 !8+  /115 (9 !8+  /5) 033/      Stöðugt minni mengun  EIN af þeim tækninýjungum sem eiga eftir að setja mark sitt á bílaframleiðslu á næstu árum er sex þrepa sjálfskipt- ing ZF Friedrichshafen, sem kynnt var í nýjum BMW 7 í Frankfurt á dögunum. Gírkass- inn, sem kallast 6HP26, er tengdur við nýja línu V8 véla frá BMW, en ljóst þykir að fleiri framleiðendur muni inn- an tíðar njóta góðs af þessari tækninýjung. Þetta er fyrsta sex þrepa sjálfskiptingin í fólksbíla sem fram hefur komið. Hún var þróuð í nánu samstarfi við BMW, en ZF Friedrichshafen hefur um langa tíð smíðað sjálfskiptingar fyrir fyrirtækið. 6HP26 er líka fyrsta sjálf- skiptingin með innbyggðri, rafrænni skiptingu, sem var úrslitaatriði fyrir BMW því slíkur búnaður gerir kleift að stjórna skiptingunni alfarið með tökkum í stýrinu. Þetta sparar rými milli framsætanna, þar sem BMW hefur komið fyrir hinum bylting- arkennda i-Drive stjórnbúnaði, þar sem öllum mikilvægustu aðgerðum er stjórnað frá einum snúningsrofa. ZF Friedrichshafen hóf framleiðslu á sjálfskiptingunni í júlí sl. og hyggst þróa búnaðinn fyrir aðrar gerðir bíla, þ.á m. millistærðarbíla. Skiptingin eykur sparneytni BMW 7 um 5-7%, að mati ZF Friedrichshafen. Um leið bætir hún hröðun bílsins úr kyrr- stöðu í 100 km/klst. um 2-5%. Gír- kassinn er 89 kg að þyngd, 13% létt- ari en fimm þrepa gírkassi fyrirtækisins. Hann er líka með 30% færri hluti en fimm þrepa kassinn og mun minni umfangs. Gírkassinn er með svokall- aðan Stand-by-Control-búnað, sem aftengir vélina frá drifrásinni þegar bíllinn er kyrrstæður. Sex þrepa sjálfskipting í BMW 7 MONSOON MAKE-UP MONSOON MAKE-UPLITIR SEM LÍFGA Nýir litir á Íslandi Lifandi litir frá Monsoon.... .....fyrir þig Útsölustaðir: Snyrtistofan Björt, Bæjarhrauni 2. Hringbrautar Apótek. Borgar Apótek. Snyrtivörudeild Hagkaupa: Kringlunni, Smáratorgi, Spönginni, Akureyri. Debenhams. Dreifing Solvin7, sími 899 2947. Bankastræti 3, sími 551 3635 Póstkröfusendum Lífrænar jurtasnyrtivörur 24 stunda dag- og næturkrem BIODROGA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.