Morgunblaðið - 14.10.2001, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 B 17
bílar
FJÖLDI mikið breyttra jeppa var
sýndur á jeppasýningu Ferðaklúbbs-
ins 4x4 í Laugardalshöll í síðustu
viku. Allir helstu jeppar landsins
voru þar samankomnir en lítil að-
sókn olli engu að síður skipuleggj-
endum sýningarinnar vonbrigðum.
Hér verður skýrt í máli og myndum
frá nokkrum bílum sem vöktu at-
hygli á sýningunni.
Þessi Toyota 4Runner ætti
að duga vel á fjöllum þar sem
hann er léttur, aflmikill og
með lágan þyngdarpunkt.
Bílnum breytti Pétur Smára-
son. Hann er á gormum að
framan og loftpúðum að aft-
an og Koni-dempurum. Raf-
magnsdriflæsingar eru að
framan og aftan. Undirvagn
bílsins hefur verið lengdur og
hækkaður. Samtals er lengd
á milli hjóla 314 cm. Fram-
hásing var færð fram um 20
cm og afturhásing færð aftur um 30 cm og undirvagninn hækkaður um 6 cm.
Vélarhlíf og frambretti voru lengd um 20 cm.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einhver furðulegasta smíðin á sýningunni var án efa Hrollur. Þetta er samsetningur úr fjölda bíla og útkoman er eftir því
sem næst verður komist árgerðir 1953 til 1983. Lýsingin á þessum bíl er skrautleg. Framstykkið er af Jeepster árgerð
1973, sem fannst í skafli á Kirkjubóli í Norðfirði, pallurinn er karfa af Willis árgerð 1965, sem var fyrsti jeppinn sem eig-
andinn, Þórir Gíslason, eignaðist. Toppurinn er hins vegar af Land Rover árgerð 1964 sem Ræktunarsambandið á Héraði
var búið að henda. Sæti eru úr Cherokee og Scout en rúðuþurrkurnar úr Volvo. Rúðuupphalarar eru úr Lödu, Opel og
Mazda. Vélin er 6.200 cc úr Chevrolet en gírkassinn, fjögurra gíra með lágum 1. gír úr Chevrolet vörubíl árgerð 1953. Það
er ljóst að það þarf mikið hugvit og smíðakunnáttu til að gera nothæfan bíl úr svona samsetningi og það virðist Þórir
Gíslason hafa gert.
Þessir tveir öflugu pallbílar voru
sýndir hlið við hlið. Sá lengra frá á
myndinni er Jeep Comanche árgerð
1988-2001 með Chevrolet 350 vél,
360 hestafla. Hann er sjálfskiptur
með milligír frá Rennismiðju Ægis.
Framhásing er úr Land Cruiser en
afturhásing úr Ford. Hann er með úr-
hleypingarbúnaði út í hjól. Eigandi er
Karl L. Jóhannsson. Sá nær á mynd-
inni er Toyota Hilux 1988 með Buick
455 vél, 350 hestafla og 698 Nm
togi. Hann er sjálfskiptur með gorm-
um að framan og aftan. Undirvagn og
yfirbygging hefur verið hækkuð og til
að létta bílinn er hann með álpall og
plasthúdd. Eigendur eru Davíð Ólafs-
son og Svava Hrafnsdóttir. Ýktur vakti mikla athygli fyrir utan sýningarhöllina. Þetta er Land Rover árgerð
1973 sem var skorinn í sundur eftir miðju og breikkaður um 25 sentimetra.
Annars er búnaðurinn úr ýmsum áttum. Vélin er Ford 400 cu og skiptingin
einnig frá Ford. Millikassinn er Borg Warner 1356, framhásing Dana 44, NoSpin
og afturhásing Dana 60 semifloat, mjókkuð, breytt í sex gata. Bíllinn er á loft-
púðafjöðrun og á 44 Super Swamper á 18,5 breiðum felgum. Eigandi bílsins er
Bjarni Gunnarsson.
Jeppasýning 4x4
FYRIRTÆKIÐ Vélaland
hefur flutt starfsemi sína
í Dverghöfða, við hlið
Bílabúðar Benna, úr
Skeifunni og jafnframt
hafa MD Vélar verið sam-
einaðar fyrirtækinu. MD
Vélar selja Mitsubishi
dísilvélar og rafstöðvar
og þjónusta og annast
auk þess viðgerðir á all-
flestum tegundum dís-
ilvéla. Framkvæmdastjóri
hins nýja fyrirtækis er
Lúðvík Matthíasson,
sem lengi starfaði hjá
Bílanausti. Eftir samein-
inguna starfa 20 manns
hjá fyrirtækinu.
Með sameiningunni bættist jafn-
framt við tækjabúnað fyrirtækisins
sem er nú komið með jafnvæging-
arbekk fyrir hverfla í forþjöppum og
fleiri hluti sem þurfa að vera í ná-
kvæmu jafnvægi svo
ekki myndist titringur.
Með samrunanum eykst
einnig varahlutaframboð
Vélalands. Fyrirtækinu
er skipt upp í þrjár meg-
indeildir, þ.e. skipadeild,
bifreiðadeild og vara-
hlutaverslun. Lúðvík
segir að stærsti hluti
starfseminnar sé þjón-
usta við fyrirtæki, en
jafnframt er nú boðið
upp á breiðari þjónustu
fyrir almenna bílaeig-
endur, þ.á m. smurþjón-
ustu.
Kennimerki Vélalands
er Formula Ford kapp-
akstursbíll sem hangir í lofti verk-
stæðisins. Þetta er eini sérsmíðaði
kappakstursbíllinn í landinu. Hann er
með 1600 rsm vél og allur ný-
uppgerður.
Morgunblaðið/Golli
Eini kappakstursbíllinn á landinu hangir í lofti Vélalands.
Með sameiningunni
hefur Vélaland yfir að
ráða fullkomnum jafn-
vægingarbekk.
Vélaland og MD vélar sameinast
FLJÓT OG ÖRUGG
SÉRPÖNTUNARÞJÓNUSTA
ÚTVEGUM NÝJA SEM NOTAÐA VARAHLUTI
Í ALLA AMERÍSKA BÍLA MEÐ HRAÐI....
- Tangarhöfða 2 - sími 567 1650 - www.bilabudrabba.is -
Hrei
nsum
viðar-, rimla-,
strimla-, plíseruð-
og sólargluggatjöld.
Hlíðarhjalla 26, s. 897 3634.