Morgunblaðið - 14.10.2001, Síða 22

Morgunblaðið - 14.10.2001, Síða 22
22 B SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ bíó ALLT frá því að hún hélt vest-ur um haf hefur Kidman leik-ið í vandaðri myndum en al- mennt gengur og gerist í því vísa landi. Kidman og fyrrum eiginmaður hennar Tom Cruise hafa löngum þótt ein glæsilegustu leikarahjón í Hollywood. Því er skemmst að minnast að frægðarsól leikkonunn- ar Demi Moore hneig til viðar eftir að hún skildi við bónda sinn Bruce Willis. Kidman er mun fjölhæfari leikkona en Moore og hefur verið djarfari í hlutverkavali. Ber þar að nefna myndina Portrait of a Lady sem Jane Campion gerði eftir skáldsögu eftir Henry James svo að ekki sé minnst á leik hennar í leik- ritinu Bláa herberginu sem samið var eftir skáldsögu eftir Arthur Schnitzler. Segja má að Rauða myllan sé eins konar prófsteinn hjá Nicole Kidman. Nú reynir á hvern- ig hún spjarar sig án þess að vera betri helmingurinn af einu tignar- legasta leikarapari í seinni tíð. Kidman telst til leikara á borð við Spencer Tracy og Edward G. Rob- inson sem geta brugðið sér í allra kvikinda líki án þess að breyta útlit- inu sem nokkru nemur. Leikkonan hefur tamið sér vandaðan og áreynslulausan leikstíl svo að sumir gagnrýnendur hafa ekki alltaf lofað frammistöðu hennar sem skyldi. Segja má að hún sé einn af þeim leikurum sem hverfa inn í hlutverk- ið og láta sögupersónuna ráða ferð fremur en minna á sjálfan sig. Kidman er fædd á Hawaii árið 1967. Hún lék fyrst í kvikmynd fjórtán ára að aldri. Leikkonan vakti athygli vestanhafs í spennu- myndinni Dead Calm. Sú mynd var eins konar áströlsk lesning á fyrstu mynd eftir Polanski í fullri lengd, Hnífi í vatninu. Sagan gerist um borð í báti og þurfti Kidman að bera myndina uppi ásamt tveimur karlleikurum. Rallísport með Tom Cruise Kidman hélt vestur um haf og lék í nokkrum Hollywood-myndum, þar á meðal myndinni Days of Thunder. Tom Cruise lék ökuþór sem keyrir kappakstursbíl í nær hverju atriði og hélt sannfærandi á stýri. Þótt einn virtasti handrits- höfundur Ameríkumanna, Robert Towne, hafi verið skrifaður fyrir handritinu var myndin hálfgerður „knaldroman“ og ámóta skemmti- leg og að horfa á kappakstur. Þótt Kidman hefði fremur lítið að gera í myndinni slapp hún skammlaust frá henni og fékk Cruise í kaup- bæti. Kidman lék aftur með eigin- manninum í myndinni Far and Away. Þar segir frá írskum inn- flytjendum sem koma til Banda- ríkjanna í von um betra líf. Myndin var af gamla skólanum og féll ekki í kramið hjá áhorfendum. Kidman stóð þó fyrir sínu að vanda. Segja má að Kidman hafi leikið í vönduðum en ekki klassískum myndum. Nicole Kidman er góð gamanmyndaleikkona eins og hún sýndi og sannaði í myndinni To Die For eftir Gus Van Sant. To Die For er með fáum myndum þar sem Kid- man hefur fengið að sýna hvað í henni býr. Þá lék hún á móti Söndru Bullock í myndinni Practi- cal Magic. Kidman stóð sig með prýði og Bullock var hress að vanda þótt höfundar myndarinnar væru bersýnilega litlir galdramenn. Þó hlýtur versta mynd sem Kidman hefur lagt nafn sitt við að vera Bat- man Forever. Sú mynd var lítið annað en langdregin tískusýning og hefur Leðurblökumaðurinn mátt muna sinn fífil fegri. Þótt Kidman hafi leikið í nokkrum afleitum myndum hefur hún aldrei leikið illa. Leikkonan hefur haldið uppi með- almyndum á borð við Malice og The Peacemaker þótt handritshöfund- arrnir hafi ekki látið hana hafa mik- ið að moða úr. Frægasta mynd með þeim hjóna- kornum hlýtur þó að vera svana- söngur Stanleys Kubricks, Með gallokuð augu (Eyes Wide Shut). Leikstjórinn var óralengi að taka myndina. Segir sagan að Kubrick hafi ekki náð að ljúka við hana sem skyldi áður en hann féll frá. Þrátt fyrir góða spretti og vandað hand- rit eftir Frederic Raphael átti ekki fyrir Kubrick að liggja að gera eró- tíska mynd. Þó er mun meiri fengur í gallaðri mynd eftir Kubrick en sléttri og felldri eftir minni spá- menn. Kidman hlaut mikið umtal eftir að hún kvæntist Cruise en harla ólíklegt er að hún falli í gleymsk- unnar dá eftir að hjónabandið rann út í sandinn. Sannast sagna hafa þessari fjölhæfu leikkonu ekki boð- ist nógu bitastæð hlutverk. Óskandi væri að bíóvinir fengu að sjá hana í myndum á næstu misserum þar sem Leðublökumaðurinn og Sandra Bullock eru hvergi nærri því að ekki er loku fyrir það skotið að Nicole Kidman gæti orðið með lífseigari leikkonum í Hollywood þar sem gærdagurinn virðist lengst aftan í forneskju. Rauða ljónið Ástralska leikkonan Nicole Kidman hefur verið með virtari leikkonum í Hollywood í seinni tíð. Kidman gat sér gott orð í áströlskum bíómyndum og sjónvarps- þáttum á unga aldri. Líkt og mörgum landa hennar reyndist henni auðvelt að laga sig að staðháttum í Hollywood enda þótt nokkur glæpagen séu í öllum Áströlum, skrifar Jónas Knútsson. Reuters Skyldi hún vera KR-ingur? Vitur gamall Sami sagði að allar konur væru hættulegar en rauðhærðar konur væru sérdeilis hættulegur. HANN var enn dökkhærðurfyrir tæpum fimm árum þeg-ar Luhrmann og félagi hans og meðhöfundur, Craig Pearce, byrjuðu að kynna sér bakgrunn sögunnar, sem sögð er í tali og tón- um í Rauðu myllunni. „Ég ýki ekki agnarögn þegar ég segi að gerð þessarar myndar hafi persónulega, tilfinningalega og listrænt tekið af mér svo mikinn toll að ég var á ystu nöf,“ segir hann í viðtali. „Einfald- lega það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum.“ Ekki aðeins komu upp fjölmörg listræn og tæknileg vandamál við undirbúning og 192 daga tökur myndarinnar heldur lést faðir Luhrmanns úr húðkrabba á fyrsta tökudegi, aðalleikkonan, Nicole Kidman, braut rifbein á dansæfingu svo fresta varð tökum um mánuð, slasaðist aftur þegar aðeins þrjár vikur voru eftir af tökunum og var undir miklu sálrænu álagi vegna upplausnar hjónabands þeirra Toms Cruise. Allt þetta og miklu meira til gerði sköpun Rauðu myll- unnar næstum því að martröð. Og ýmis vandamál við eftirvinnslu frestuðu frumsýningu um marga mánuði. Þegar frumsýningunni lauk máttu margir ekki vatni halda af hrifningu yfir þróttmikilli og djarfri gandreið myndarinnar um heim dans og söngva, úrkynjunar og mannlegra örlaga. Rauða myllan er þegar orðin fyrsta dans- og söngva- myndin, sem ekki fellur kylliflöt frá því Grease sló í gegn árið 1978. Áhætta sem borgaði sig Að vísu má segja að Evita hafi plumað sig þokkalega, en þessi 38 ára gamli leikstjóri vissi samt að hann tæki mikla áhættu með Rauðu myllunni. Margir starfsbræðra hans höfðu farið flatt á dans- og söngvamyndum: Peter Bogdano- vich missti fótanna í Hollywood þegar At Long Last Love skall á nefið, Francis Ford Coppola fór á hausinn þegar One From the Heart gerði slíkt hið sama, Martin Scors- ese sökk í þunglyndi og kókaínát við fall New York, New York og mynd James L. Brooks, I’ll Do Anything, fékk ekki dreifingu fyrr en tónlist- aratriðin höfðu verið numin burt úr henni og féll samt. Yfirmenn 20th Century Fox svitnuðu þegar Luhrmann fór að tala um að gera dans- og söngva- mynd, en vegna velgengni fyrri mynda hans, Strictly Ballroom, sem græddi 80 milljónir dollara þótt hún fjallaði um jafn ólíklegt efni og sam- kvæmisdansara, og Romeo + Juli- et, Shakespeare-túlkun fyrir MTV- kynslóðina sem græddi 140 milljón- ir, ákváðu þeir að gefa honum frjálsar hendur. Og þrátt fyrir allt sem gekk á við gerð Rauðu myll- unnar fór hún aðeins lítillega fram úr kostnaðaráætlun, upp á 52,5 milljónir dollara. Myndin hefur þeg- ar halað inn 80 milljónir dollara í Bandaríkjunum og Ástralíu. Gegn ofurraunsæinu Rauða myllan er síðasta myndin í eins konar þríleik sem Luhrmann kallar „rauða tjaldið“. Með honum vill leikstjórinn ganga gegn þeirri natúralísku stefnu eða hversdags- raunsæi, sem hann telur yfirgnæf- andi í kvikmyndagerð samtímans. Myndirnar þrjár eru augljóslega tilbúinn gerviheimur „sem vekur áhorfandann og minnir hann sífellt á að hann er að horfa á bíómynd“, segir Luhrmann. „Í Strictly Ballro- om var þessi áminning í formi dans, í Romeo + Juliet í 400 ára gömlu tungutaki Shakespeares og í Moulin Rouge í söngvum. Sagan er sögð með söngvum. Við tökum einfalda sögu, sem byggist á þekktum, goð- sagnakenndum veruleika, og svið- setjum hana í skálduðum heimi, sem er í senn framandi og kunn- uglegur.“ Vettvangur sögunnar í Rauðu myllunni er hinn frægi, ef ekki ill- ræmdi, næturklúbbur með sama nafni í Montmartre-hverfi Parísar undir lok 19. aldar, þar sem cancan- dansinn varð til, bóhemar og góð- borgarar drukku absintu og allra handa kynlífsöfgar lifðu góðu lífi. Inn á þennan vettvang setja Luhr- mann og Craig, að eigin sögn, goð- söguna um Orfeus: Ewan McGreg- or leikur Christian, ungan rithöfund, sem heldur niður í undir- heimana, þar sem er skemmtistað- Rætur dægurmenningar í Rauðu Reuters Baz Luhrmann: Lokakafli þríleiks stefnt gegn kvikmyndaraunsæi. Rauða myllan, hið frumlega og litríka tónlistardrama Baz Luhrmanns, fjölgaði ekki litunum í hári þessa kraft- mikla ástralska leikstjóra. Það gerði hann gráhærðan. Nú getum við séð og heyrt útkomuna, sem markar endurfæðingu dans- og söngvamyndarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.